Tíminn - 17.05.1949, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsólcnarflokkurinn
Skrifstofur í Edduliúsinu
Fréttdsímar:
81302 og 81304
Afgreiðslusimi 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Reykjavík, þriðjudaginn 17. maí 1949.
105. blað
Flotvarpan reynd
hér við þorsk-
veiðar
Nú hefir fengizt leyfi til
þess að reyna flotvörpuna,
sem nú vekur mikla athygli
sjómanna víösvegar, einnig
hér á landi. Er það Landsam-
band íslenzkra útvegsmanna,
sem hefir forgöngu um þetta
nauðsynj amál.
Er flotvarpa, sem nota á við
síldveiðar kominn til lands-
ins og upp á Akranes, þar sem
á að reyna hana.
En nú hefir verið samið urn
að' fá hingað' einnig til reynslu
flo.tvörpu, sem nota á við
þorskveiðar og er hún vænt-
anleg til landsins undir mán-
aðamótin. Verð'ur hún send til
Vestmannaeyja, en vélbátur-
inn Andvari frá Þórshöfn,
sem þaðan stundar togveiðar
mun reyna vörpuna. Verður
fróðlegt fyrir. íslenzka sjó-
menn að sjá það hvernig þessi
tæki, sem valdið hafa miklum
atvinnulífsbreytingum erlend
is, reynast hér við land.
Landssamband ísl. útvegs-
manna mun nú einnig hafa
fengið leyfi til að láta fram-
leiða þessar vörputegundir
hér á landi, ef þær reynast
vel.
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga:
ia inniendra og erlendra
ira tijá félaginu nam rúmum
kr. sJ. ár
FiiKíiiii'ÍKsi lýsíi eindreg'im einróma
við sí|órtíarska*árílIIög'Mr Merðieisd-
Endurbyggingar
oj ný stórhýsi
húsa eftir styrjöldina ganga mjög vel í Finnlanli
rísa upp í Helsingfors. Hér sést nýtt gistihús, sem ný-
lokið er við.
ing'a og AustfirfSins'a
Ðagana 29. 05 30. apríl s.l. var 68. aðalfundur Kaupfélags
Þingeyinga haldinn i Húsavík. Fundinn sátu 82 fulltrúar
frá 10 félagsdeildum, auk stjórnar, framkvæmdastjóra og
cndurskoðenda. Fundarstjóri var kjörinn Karl Kristjáns-
son, formaður félagsstjórnar. Sala félagsins í innlendum og
erlendum vörum nam alls rúmum 9 millj. kr. og hafði auk-
izt um rúmlega hálfa aðra millj. á árinu.
Finnsku fimleika-
meiínirnir hlakka
til íslandsferð-
arinnar
(Konia liingaó annað
kvöld.
Finnsku fimleikamennirnir
koma hingað til lands annað
kvöld og sýna í fyrsta sinn i
íþróttahúsinu á Hálogalandi
næstkomandi fimmtudags-
kvöld. Jens Guðbjörnssyni
formanni Ármanns, en á þess
vegum koma þeir hingað,
barst í gær bréf frá farar-
stjóranum, þar sem hann til-
kynnti endanlega hverir yrðu
í förinni. Eru það allir fræg-
ustu fimleikamenn Finna,
sem margir hverjir hafa hlot-
ið heimsfrægð' hverir fyrir
sína grein áhaldaleikfiminn-
ar. Fararstj órinn sagði það
einnig í bréfinu, að Finnarnir
hlökkuðu mjög til íslands-
ferðarinnar.
Finnarnir sem koma eru
annars þessir:
Fararstjóri: lektor Váinö
Lahtinen, þjálfari'- Birger
Stenman, fulltrúi félagsins:
Keijo Ryhánen. Leikfimis-
menn: Paavo Aaltonen,
Veikko Huhtanen, Kalevi Lai-
tiheh, Olavi Rove, Sulo Salmi,
Heikki Savolainen, Esa Seeste
og Aimo Tanner.
Stórbruni á Akranesi
í gærmorgun
Stór hraðfrystiliós, fiskvinnslustöði «}*'
vcrzlun brennur.
Frá fréttaritara Timans á Akranesi.
í gærmorgunn varð stórbruni á Akranesi. Koin upp eldur
í all mikilli sambyggingu, sem er eign Haraldar Bövarsson-
sonar. En þar eru til húsa frystihús, niatarbúð og margt
iieira. Brann það að' heita má, sem brunnið gat, en þó
brunnu sjálfir frystiklefarnir ekki og því óvíst hversu mikl-
ar skemmdir urðu á fiskinum, sem geymdur var í húsinu.1
Klukkan rúmlega fimm í
gærmorgunn varð fyrst vart
við eldinn. Voru það vélstjór-
ar við írystihúsið, sem voru
að koma til vinnu sinnar er
fyrstir urðu eldsins varir. Virt
is.t þeim eldurinn hafa komið
upp hjá tengli vi'ö hitadunk
og er það þvi hald manna, að'
kviknað hafi í útfrá rafmagni.
Slökkvilið staðarins vann
kappsamlega að því að ráða
niðurlögum eldsins og reynd-
ist það erfitt verk og torsótt.
Var ekki búið að slökkva fyrr
en um hádegið.
Af völdum þessa bruna urðu
mjög miklar skemmdir, brann
matarbúðin alveg til kaldra
kola og allt, sem í henni var
af vörum og verzlunaráhöld-
um. Auk þess brann mestur
hlutinn af hraðfrystihúsinu,
og þar á meðal vinnusalurinn
og þau áhöld og tæki sem þar
voru. Er jafnan mikið af á-
höldum í frystihúsum, sem
vinna íiskinn til útflutnings-
pökkunar: færibönd, vogir og
annað slikt. Auk þess mun tals
vert hafa skemmzt af fisk-
birgðum, þó að eirn sé ekki
fyllilega vitað hversu mikið
tjón þar er um að ræð'a, þar
‘ sem fiskurinn i húsinu hafði
I i gær ekki verið rannsakaður
] til fulls. Eldurinn komst hins
jvegar ekki í sjálfa frystiklef-
■ ana, þar sem veggir frysti-
hússins og loft voru úr stein-
' stéypu. Þakið þar ofan á
ibrann hins vegar eins og
brunnið gat og frystivélar
hússins skemmdust i brunan-
um. !
Auk hins beina tjóns, sem
hlotizt hefir af þessum mikla
eldsvoða á Akranesi, er af f
honum mikið og tilfinnanlegt
óbeint tjón fyrir marga ibúa
kaupstaðarins. Við það að
þessi fyrirtæki brunnu missir
fjöldi manns atvinnu sína í
bili. Hið óbeina tjón eigend-
anna, Haraldar Böðvarssonar
& Co. er þó mest, þar sem
frystihúsið er eitt af þýðing-
armestu atriðunum í rekstri
þess fyrirtækis. Var búið að
semja um að frystihús þetta 1
frysti hvalkj ötið fyrir vinnslu '
stöðina í Hvalfirði, og þó að
Akurnesingar geti fryst hval- 1
kjötið í öðrum frystihúsum
skapast óþægindi og raks af
þes.sum bruna fyrir atvinnu-
lífió á Akranesi í heild.
Múrarar segja upp
sanmingum
Allsher j aratkvæðagreiðslu
Múrarafélags Reykjavikur um
uppsögn kaup- og kjarasamn
nga viö Múrarameistarafélag'
ið, lauk á föstudagskvöld. Úr-
slit urðu þau að með uppsögn
inni voru 41 en móti 18.
Samningnum er því sagt
upp frá og með 15. maí.
Aður en gengið var til dag-
skrár bauð fundarstjóri full-
trúa velkomna en þó sérstak-
lega Björn Sigtryggsson,
bónda á Brún, fyrrv. formann
félagsins, sem hafði nú náð
sér svo eftir langvarandi van-
heilsu, að hann gat sótt fund
inn. Að síðustu bað hann
fundarmenn að rísa úr sæt-
um og votta Sigurði heitnum
Jónssyni á Ainarvatni þakk-
læti og virðingu, en hann lézt
á s.l. vetri. Siaurður át+i lengi
sæti i stj.órn kaupfélagsins.
Að lokinni ræðu fundar-
stjóra sungu fundarmenn
lagið „Blessuð sértu sveitin
min“, undir stjórn Jónasar
Helgasonar á Grænavatni.
Skýrsla framkvæmda-
stjóra.
Þórhallur Sigtryggsson,
framkvæmdastjóri félagsins
flutti skýrslu um hag og rekst
ur félagsins.
Sala félagsins í erlendum
og innlendum vörum nam
rúmurn 9 milljónum kröna, I
og hafði aukist um 1 milljón
og 658 þúsund. Var aukning
sú eingöngu vörur mjólkur-
samlagsins, brauðgerðarinn
ar og sláturfjárvara. Sala að
keyptra vara lækkaði um 540
þúsund og kom sú lækkun ein
göngu á innanbúðarvarning.
Sjóðeignir félagsmanna eru
nú 1 milljón 688 þúsund krón
ur, og höfðu þær aukist á ár-
inu um 246 þúsund. Af fé því
sem rekstur félagsins þarnast
er 621/2% eigið fé.
Skuldir viðskiptamanna
eru engar. Enda fyrir nokkr-
um árum, tekinn upp sá verzl
unarháttur að verzla ein-
göngu gegn staðgreiðslu.
Hinn 1. jún s.l. hóf félagið
brauðgrðai-starfsemi i félagi
við bakarameistara Sigtrygg
Pétursson, sem á 1/4 í fyrir-
tækinu. Starfsemin gekk vel
og nam sala brauðgerðarinn-
ar þessa 7 mánuði 331 þús. kr.
Fundurinn samþykkti að
endurgreiða félagsmönnum
5% af endurgreiösluskyldri
úttekt þeirra árið 1948, og
nam sú upphæð 73800 krón-
um og var öll lögð i Stofnsjóð
! félagsmanna.
I Úr menningarsjóði félags-
ins voru veittar þessar upp-
hæðir.
Til Skógræktarfélags S-
Þingeyinga kr. 1000,00. Til
kaupa á kvikmyndavél kr.
4000,00. Til Vélritunar á hér-
aðslýsingu Þingeyjarsýslu kr.
1000,00. Til Bókastafns S.-
Þhigeyinga kr. 1000,00.
Endurkosnir voru i stjórn
félagsins þeir Baldur Baldvins
son, bóndi á Ófeigsstöðum og
Bjartmar Guðmundsson,
bóndi á Sandi.
Framkvæmdir á árinu.
Á árinu var haldið áfram
byggingu hins nýja verzlunar
húss, steypt ein hæð, unniö
að húsinu að innan, lagðar
vatns, skólp og hitaleiðslur.
í ár er fengið fjárfestingar-
leyfi til þess að steypa þriðju
hæð og klára húsið að utan.
Einnig verður unnið að inn-
réttingu búða og skrifstofa ef
efni fæst.
Stofnun minjasafns.
Stjórn félagsins hafði á ár-
inu rætt um stoínun minja-
safns og verndun fornhýsa.
Þar sem þetta mál getur ver-
ið sameiginlegt fyrir öll kaup
\
(Framliald á 8. siðuí
Goðafoss sneri við
vegna íss
Goðafoss fór héðan frá
Reykjavík á miðnætti aðfara
nótt síðastliðins sunnudags.
Ætlaði skipið vestur fyrir
land til Akureyrar og víðar
til Norður- og Austurlandsins.
Var skipið fullhlaðið meðvör
um norður. En síðdegis á
sunnudag sendi skipstjóri
skipsins út skeyti, þar sem
hann tilkynnti skipafélaginu,
að venjuleg siglingaleið væri
ófær vegna ísreks og var skip
inu snúið við aftur og siglt
vestur fyrií Horn, suður fyrir
land, og er það nú á leið norð
ur austur um land. Þegar skip
ið sneri við, var það statt á
Húnaflóa og var þá óslitinn
ís að heita má svo langt sem
sá og siglingaleiðin lokuð.