Tíminn - 15.06.1949, Qupperneq 4
TÍMINN, miðviku'daginn 15. júní 1949.
125. blað
Játningarnar, kirkjan og biblian
3kki alls fyrir löngu gafst i
jss tilefni til þess að hugleiða |
guöi játninganna fyrir oss og
knstna menn yfirleitt.
Xirkjublaðið birti nýlega
-remar um félag játninga-
srúrra presta, og sumir mál-
ivarar þess félags birtu síðan
stuttar yfirlýsingar um það í
blöðunum. Ekki er það hugs-
un mín að fara að ræða hér,
ívaö mér kann að hafa þótt
/annugsað við stofnun félags,
sem ber slíkt heiti sem þetta.
:ig tel slíka félagsstofnun
get-a leitt ýmist til góðs eða
:ils fyrir kirlrjuna, eftir því
,em á er haldið. Verði hún til
að-efla réttan skilning á gildi
„atFj-inganna, er ekkert nema
^ott um hana að segja. Verði
hun aftur á móti til þess að
iata líta svo út, sem klofning-
innn innan kirkjunnar sé
.neiri og hættulegri en hann
er, getur það orðið til að villa
þeim sýn, sem ekki eru fróðir
am þróunina á hinum guð-
iræðilega vettvangi. Ég vona,
aó þeim sem f undið hafa köll-
un hjá sér til að kveðja til
'aljóðs fyrir því, að menn leggi
. itund á að kynna sér játn-
.ngarnar og sögu þeirra sem
bezt, beri gæfu til að þjóna
Kristi og kirkju hans með
þessu fyrirtæki sínu. Læt ég
. svo fitrætt um það mál út af
fyrir sig. Ég hefi ekki heldur
hugsað mér að ræða hér hina
logíræöilegu hlið máisins, sem
. heizt, hefir verið rædd í Kbl.
Eg veit, að hvorki guðfræð-
. Ingar né lögfræðingar eru á
eitt sáttir um það, að hve
, rníklu íeyti hinar svonefndu
höf uöj átningar lútherskrar
'Jdrkju eru bindandi fyrir oss.
!Þetta er fræðilegt atriði, sem
ékki á, erindi í prédikun. Þaö,
sem fyrir mér vakiv í dag, er
.þaö, að vér fyrir Guðs augliti
hugum hvert með öðru, hvað
se hið raunverulega gildi
.játninganna, hvaða vald þær
'hafi yfir oss, og af hverju það
oald takrnarkist. En fyrst og
iremst ber oss þó að spyrj a
'pess, á hvern hátt játning-
arnar geti gert oss betri lœri-
meina Krists.
Þær játningar, sem hér er
.un að ræða, eru fimm að tölu,
jg engin þeirra er orðin til,
syo að menn viti, á fyrstu
aratugum kristninnar, heldur
nafa sumar þeirra verið lengi
að mótast. Aðrar eru frá sér-
stökum tímum, sem vér
þekkjum vel af sögulegum
' heimildum, og þær eru samd-
ar af nafngreindum guðfræð-
mgum. Þrjár af játningun-
im eru kaþólskur arfur. Það
eru hin postullega trúarjátn-
ing, Nikeujátningin og A-
þanasíusarjátningin. En eftir
siðaskiptin öðlast hin unga
látherska kirkja tvö rit„ sem
akveðið er að leggja til grund-
vallar fyrir kenningum henn-
ar, að því leyti sérstaklega
sem snertir afstöðuna til
hinna gömlu kirkjukenninga,
ýmist móti eða með. Þessi rit
'eru Ágsborgai'j átningin og
’ cræði Lúters hin minni. Af
játningaritunum eru tvö, sem
Öllum almenningi á íslandi
eru kunnug, sem sé postn.l-
lega trúarjátningin, og Fræð-
in. Og ég hi'gg, að það séu
engar öfgar, þótt ég segi, að
ahnarsstaðar á Nerðurlöndum
sé því líkt háttað og hér, að
guðíræðingar einir kynni sér
hinar játningarnar nokkuð að
xáö'i. En að sjálfsögöu eru þess
ar játningar lesnar og skýrðar
Eæða efíip séra Jakob Jónsson.
í öllum lútherskum presta-
skólum, og þá auðvitað hér við
Háskóla íslands.
Nú er ekki úr vegi að spyrja:
Hvaða hlutverk er þessum
játningum ætlaö? Hver var
tilgangurinn með því að semja
þær og varðveita þær?
í textanum, sem ég las, er
verið að áminna ungan mann,
sem hefir tekið að sér forystu
í kristnum söfnuði. Hann er
áminntur um að berjast trú-
arinnar góðu baráttu. Og
hann er minntur á góða játn-.
ingu, sem hann hafi játað í
viðurvist 'margra votta. Ekki
er fullkomlega Ijóst, hvers
konar játningu hér er átt við.
Höfundur bréfsins minnir í
næstu seíningum á játningu
Krists sjálfs frammi fyrir
Pílátusi. Ef til vill er því átt
við það, að þessum unga safn-
aðarforstj óra eða prédikara
hafi áður auðnast að bera
fram játningu sinnar kristnu
trúar, umkringdur af óvin-
um eða í mikilli áhættu, eins
og frelsarinn sjálfur hafði.
gert frammi fyrir landshöfð-
ingjanum. Jesús hafði sagt:
„Hver sem við mig kannast
fyrir mönnunum, við hann
mun ég einnig kannast fyrir
föður mínum á himnum.“ Aö
játa trú sína á Krist, jafnvel
þó að píslarvættið væri ann-
ars vegar, var þá sama sem að
vera hans maður, hvað sem
aðrir kynnu að bjóða, trúa
honum fyrir sér, þótt maður-
inn væri yfirgefinn af öllum
öðrum. Bæði Nýja-testament-
ið ok kirkjusagan geyma
fagrar sögur um slíkar játn-
ingar. Sá, sem aftur á móti
gafst upp við að játa trú sína
á Krist, var að segja sig úr
lögum við hann, ganga úr
vist hans og flokki.
Eins og nærri má geta, hafa
aídrei verið samdar neinar
sérstakar játningar til þess
gerðar að bera fram vio slík
tækifæri sem hér hefir verið
minnst á. Á hættunnar og
ógnanna stund getur hvort-
tveggja átt sér stað, aö menn
grípi til orða, sem aðrir hafi
mótað, og að menn í geðs-
hræringu sinni noti þau
orð, sem andinn leggi þeim á
varir. Alkunn er hin forna
saga um manninn, sem sat á
áhorfendapöllum hringleika-
hússins, og sá kristna menn
láta líf sitt niðri á leiksvið-
inu. Hann sá þá deyja með
lofsöngvum og taæn á vörum.
Loks stóð hann upp úr sæti'
sínu og hrópaði: „Ég er krist-
inn“. Fleiri orða þurfti ekki
við. Þetta nægöi til að af-
marka stefnuna gagnvart um-
heiminum, sem ofsótti Krist.
Það var oftar en undir þess-
um kringumstæðum, að
kristnir menn sáu ástæðu til
að játa trú sína. Þegar heiðnir
menn létu skírast til trúar á
Krist, varð það smám saman
venja, að þeir lýstu yfir þeirri
trú með einhverskonar trúar-
játningu. Fyrst í stað hafa
þessar skírnarjátningar að
öllum líkindum verið mjög
einfaldar, ef til vill falið lítið
annað í sér en hina ' gömlu
játningu, sem táknuð var með
fisk-merkinu. Fiskur var
fimm stafa orð á grísku, og
væri hver staíur látinn tákna
upphafsstafina í orðunum:
Jesús Kristur Guðs Sonur
Frelsari, þá táknaði fisk-
myndin fagra og einfalda
trúarjátningu. Slík kenni-
merki notúðu kristnir menn
stundum sín á milli, þegar
þeir ætluðust ekki til, að aðr-
ir gæfu gaum að. Skírnarjátn
ingarnar voru aftur á móti
bornar fram í heyrenda hljóði
við guðsþjónusturnar, og
smám saman fóru þær að fela
meira og meira í sér. Ástæöan
er augljós og eðlileg. Hinir
fyrstu kristnu menn skera sig
ekki að verulegu leyti úr gyð-
inglegu samfélagi, nema í
því að þeir trúa á Krist sem
Guðs son — sem Messías.
Meira þurfa þeir ekki að taka
fram um guðshugmynd sína.
Öðru máli er að gegna, þegar
um er ao ræða kristna söfn-
uði, sem heima eiga innan um
heiðna menn, sem hafá margs
konar hugmjmdir um marga
og ólíka guði. Loks kemur aö
því, að vart verður við ýmis-
konar klofningskenningar,
sem kirkjulegum umsjónar-
mönnum og yfirvöldum er
ekki um, að verði viðloðandi
í kristilegum boðskap. Þá er
farið að leggja áherzlu á að
játa eitt og annað, sem fór í
gagnstæða átt við villukenn-
ingarnar, og undirstrika það,
sem talin var rétt kenning á
: þeim tíma. Þannig úrðu til
! játningarrit, s^m að vísu hafa
aldrei verið notuð sem skírn-
arjátningar, heldur einskon-
ar stefnuskrár tiltekinnar
kirkjudeildar. Svo var háttað
um játningar lúthersku kirkj-
unnar. Þó að Ágsborgarjátn-
ingin hafi fyrst og fremst átt
að sýna - fram á, hvar lút-
herskir menn voru enn í sam-
ræmi við hina fornu kirkj u og
Fræðin væru fyrst og fremst
samin sem kennslubók, þá
hafa þessi rit verið talin höf-
uð-játningar eða aðalgreinar-
gerð fyrir stefnu hinnar lút-
hersku kirkjudeildar. Fleiri rit
hafa ekki verið samin af lút-
herskum kirkjudeildum, sem
eignað hefir verið játninga-
gildi — að minnsta kosti ekki
á Norðurlöndum — nema hin
merka yfirlýsing norsku
kirkjunnar á stríðsárunum,
„Kirkens Grunn“, verði ein-
hverntíma talin til slíkra rita.
Nú kem ég að spurningu,
sem hefir mikla þýðingu. Hún
er sú, hvort vér getum alveg
verið án þessarra játninga?
Nei, vér getum ekki fleygt
þeim fyrir ofurborð. Þessi
gömlu og hálf-fyrndu rit hafa
tvennskonar þýðingu fyrir
oss, alveg án tillits til allra
lagasetninga um gildi þeirra.
Og þýðing þeirra er bæði nei-
kvæð og jákvæð. Vér skulum
taka einfalt dæmi, sem skýrir
þetta vel. Ef ég lít í sálmabók
hinnar svokölluðu Samein-
uðu kirkju í Canada, sem þar
, í landi er einhver stærsta
I kirkjudeildin meðal ensku-
| mælandi manna, þá sé ég, að
i þar eru, auk sálmanna, ýmsar
: aðrar trúargreinar, svo sem
| postulleg trúarjátning og
i boðorðin. En ég sé fljótt, að
, ekki ber saman um boðorðin.
Annað boðorðiÖ hljóðar þar
svo: Þú skalt engar líkneskjur
gjöra þér né nokkrar myndir
eftir því, sem er á himnum
uppi, o. s. frv. Síðan koma
hin boðorðin, sem auðvitað fá
þá aðra töluröð, vegna þessa
innskots, en níunda og tí-
unda boðorðiö hjá oss er þar
sameinað í eitt: „Þú skalt
(Framhald á 7. síðu)
Utanfari nokkur sendir okkur
þær upplýsingar, sem fara hér
á eftir í bréfi hans:
„Ég fór nýlega skyndiferð til
útlanda og fannst mér sjálfum,
að það væri ekki erindisleysa
eða eingöngu gert til að viðra
sig og lysta og eyða frítíma og
peningum. En hvað sem um það
má segja, þá fékk ég nokkurn
gjaldeyri til fararinnar og lít því
svo á, að á engan hátt hafi ver-
ið gengiö á lög og rétt og ríkj-
um að fá danskar krónur fyrir
Þegar ég sótti um þann gjald-
eyri, sem ég fékk, bað ég líka
um að fá danskar krónur fyrir
300 krónur íslenzkar til ’ að
kaupa bækur fyrir. Við þessu
fékk ég það svar, að Viðskipta-
nefnd hafi samið við bókaverzl-
anir okkar um það, að veita
ekki einstaklingum leyfi til
bókakaupa og beri mér því að
snúa mér til þeirra.
Nú er ekki margt um þetta að
segja, en þó vil ég benda á
tvennt. Annað er það, að í utan-
íör minni sá ég bækur, sem mig
langaði til að lesa, en hafði ekki
hugmynd um að væru til fyrri
en ég sá þær. Sömuleiðis sá ég
í fornbókaverzlunum ýmsar
girnilegar bækur, sem mér þóttu
góð kaup í. En samkvæmt því,
sem íslenzka ríkið skipar þess-
um málum. á ég eftir heimkom-
una að biðja einhverja bóka-
verzlun að panta þessar bækur
fyrir mig, ef ég vil fá þær og
þær skyldu fást ennþá.
Hitt er satt, að enginn lítur
eftir því þó aö ferðamaðurinn
kaupi sér bók fyrir eitthváð af
þeim ferðagjaldeyri, sem hann
hefir. Vel má 'vera, að það megi
kallast ferðagjaldeyrir, þegar
hann gefur útlendum peninga-
stofnunum skýrslu um gjaldeyri
sinn. En hér á landi greiða menn
75% skatt af ferðagjaldeyrinum.
en það er mér sagt að eigi ekki
aö ná til bókalcaupa. Það verð-
ur því þrátt fyrir allt ódýrara,
að láta bókaverzlun panta fyrir
sig, en að kaupa bók fyrir
venjulegan ferðagjaldeyri.
Ekki dettur mér í hug að áfell-
ast neinn fyrir þessa tilhögun.
Hún er eflaust í göðri meiningu
gerð. Því vona ég líka, að öll-
um hlutaðeigendum þyki vænt
um að sagt sé frá því, hvaða
samkomulag bóksalar og inn-
flutningsyfirvöldin hafa gert og
það er nú það minnsta, þó að
maður geti þess sem gert er og
láti það eigi liggja í þagnargildi
sem vel er gert. Ráðamenn okk-
ar eiga það sannarlega skilið, að
þjóðin fái að vita hvað vel og
dyggilega þeir stjórna málum
hennar.“
Það eru dálítil blaðaskrif í til-
efni af komu þýzka fólksins
þessa dagana. Þjóðviljinn hefir
ónotazt við innflutningi þess
og nú í gær kemur upp í dálk-
um hans sú skoöun, að eittlivað
af þessum mörinum kunni að
hafa flúið af hernámssvæði
Rússa og þá sé nú ekki von á
góðu af þeim.Ef til vill bólar hér
á dýpri rökum málsins. Annars
hefir Þjóðviljinn byggt málflutn
ing sinn á því, að það væri nóg
framboð af islenzku fólki í sveit-
irnar. Það er nýtilkomið ef svo
er, og vel má blaðið hugleiöa það,
að því búi, sem þarf manneskju
með allt árið, er lítil stoð í því,
þó að einhver vilji fara þangað
í 2 mánuði eða skemmri tíma.
En vonandi verður ekki erfitt að
finna í Þjóðviljanum í haust
auglýsingar frá stúlkum, sem
vilja komast í vist í sveit í vet-
ur, ætíð þó sem ráðskonur. Þær
ættu hvorki að þurfa að ganga
svangar né berfættar í þeirri
vist og ekki heldur að þurfa að
búa í kjallara. Fyrst Þjóöviljinn.
veit um þetta íslenzka fólk, sem
þráir að starfa í sveitunum, er
vonandi, að hann tapi því ekki
til liaustsins.
En svo skal því bætt við, þó
að ég búist við að þau orð verði
rangfærð og notuð til að afla
mér óvinsælda, að til er fólk,
sem engin ástæða er til að menn
sækist eftir á heimili sín. Það
getur líka verið um „vörusvik"
að ræða á vinnumarkaöi. Og þó
að það falli ekki vel í geð á tím-
um lýðskrums og loddaraskapar,
skal það sagt hér, 'að til er í
verkalýðsstétt á íslandi þannig
íólk, að bændur munu í lengstu
lög vilja sneiða hjá þeirri skap-
raun að hafa það á heimilum
sínum. Þetta veit ég að Þjóðvilj-
inn mun reyna að gera að of-
sókn og rógi í garð vinnandi al-
þýðu. En hitt er jafnsatt fyrir
því, að stundujn er það satt enn
þann dag í dag, að betra er autt
rúm en illa skipað, og það er
ekki víst, að þörf heimilisins sé
borgið, jafnvel þó að einhver
vilji fara- þangað. Það er ekki
sama hver það er.
En um þýzka fóikið er svo
það að segja, að íslendingar
hafa ráðið það hingað, svo að
ekki er ástæða til að amast við
því, sem um þýzka innrás væri
að ræða. Um hugarfar þess og
hjartalag kann ég ekki að
dæma, en Mbl. og Þjóðviljinn,
sem birta nú fjálgar greinar um
„ógæfu og smán“ þeirra, sem
einhverntíma hafa ratað í að
taka afstöðu með Hitler og naz-
ismanum, ættu að velja þann
kostinn, sem sæmri er, að þegja
og hugleiða þá heldur við hverja
mundi eiga hið fornkveðna: Vei
yður, þér hræsnarar!
Starkaður gamli.
TILKYNNING
:: A aðalfundi Útvegsbanka íslands h. f. var ákveöið að
« greiða hluthöfum 4% arð af hlutabréfum fyrir árið
J: 1948. Arðmiðar verða innleystir í aðalskrifstofu bank-
:: ans og útibúum hans á venjulegum afgreiðslutíma.
::
frá Útvegsbanka (slands hi.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
««:«t«i