Tíminn - 03.09.1949, Side 7
185. blað
TÍMINN, laugardaginn 3. september 1949
7
NYTT RIT
Vilmundur Jónsson, landlæknir
Lækningar séra Þorkels
Arngrímssonar, sóknar-
prests í Görðura á
Alftanesi
Uppistaðan. í riti þessu eru á annað
hundrað nærri þrjú hundruð ára
gamlar íslehzkar sjúkdómslýsingar,
sem til skamins tíma voru taldar glat
aðar, en komu óvænt í leitirnar. Sjúk
dómslýsingarnar eru frá hendi fyrsta
lærðs læknis á íslandi, séra Þorkels
Arngrímssonar í Görðum á Álftanesi
(fæddur 1629, d. 1677), fööur Jóns
biskups Vídalíns.
Ritið er á sjötta hundrað blaðsíöur
og kostar aðeins kr. 55.00 (70,00 innb)
SUNNAN YFIR SÆ
ný Ijóðabók eftir Sigfús Blöndal, bóka
vörð í Kaupmannahöfn.
Sunnan yfir sæ, hefir eins og oft
áður borist ný Ijóðabók eftir kunnan
og góðan landa, Sigfús Blöndal, höf-
und orðabókarinnar miklu.
Sigfús Blöndal hefir alið aldur sinn
utanlands í fjöldamörgár,enhugurinn
hefir jafnan verið heima á Fróni eins
ogfevæðin bera með sér. Kvæði Sig-
fúsar eru bæði gamankvæði og ljóð
alvarlegs efnis, en öll bera þau vott
göfugum manni og gáfuöum, þrung-
in af lífskraíti og göfgum tilfinn-
ingum. Hinir fjölmörgu vinir Sigfús-
ar, auk þeirra, sem hafa heyrt hann
syngja ljóðin sín og spilað undir á
gítarinn sinn, munu fagna því að fá
ljóð hans gefin út.
Verð bókarinnar er kr. 50,00 í bandi.
Kennslubók i bókfærslu eftir Gylfa Þ. Gíslason, prófessor við Viðskiptahlskólann.
Þetta er ný kennslubók fyrir skóla og einstaklinga, sem sjálfir vilja, án kennara, læra bókfærslu. Mjög full-
komin kennslubók. Verð innb." 25,00.
ALLT HELGAFELLSBÆKUR
Siprjón Steinþórsson
(Framhald af 3. slðu).
þurfti að hlaöa af fióðgörð-
um. Til dæmis hafði ég er ég
hætti búskap 1937, hlaðið um
5 km. lánga 'fíóðgarðá.
— Hvað villtu svo segja
mér' um félagslífið í Hraun-
gerðishreppi á þessum árurn0
— í Hraungerðis.reppi voru
á þessum árum margir góðir
og gildir bændur og svo er
enn. — Einn bóndi kom nýr í
sveitina um sama leiti og ég,
— það var Eggert Benedikts-
son í Laugardælum. Hann
tók fljótt við forustu í hreppn
um. Laugardælaheimilið var
ósvikið menningarheimili og
gætti þess fljót þar 1 kring. —
Búnaðarnefnd var starfandi í
hreppnum, og áttum við sæti
í henni, Guðmundur Snorra-
son á Læk, Guðmundur
Bjarnason í Túni og ég. Við
áttum það meðal annars sam-
merkt, að vera bj artsýnir eins
og títt er um unga menn, og
kom vel á með okkur frá því
fyrsta.
— Var ekki farið að örla á
samtökum meöal bænda í þá
átt að taka jarðyrkjuverkfæri
í þjónustu sína við vinnuna?
— Jú, að vísu var svo, en
margir voru vantrúaðir, sem
Tómas forðum, trúðu ekki á
þessa töfra tækninnar. Okkur
þremenningana í búnaðar-
nefndinni langaði til að sanna
bændum, að hér væri á ferð-
inni annað og meira en tómt
tízkuprjál. — Ég var því send-
ur suöur til Reykjavíkur með
hluta af sjóði félagsins til að
kaupa jarðyrkjuverkfæri. Ég
sneri heim aftur með tvo
plóga og 2 herfi, er gengu svo
á milli bænda. — Gömlu menn
irnir kölluðu þetta fjársóun,
en þegar til kom vildu allir
verða fyrstir til að fá þessi
verkfæri til sín, jafnvel þeir,
sem efuðust um ágæti þeirra
áður en þau voru keypt. —
Seinna fæddu þessir plógar af
sér marga slíka.
— Tókstu ekki virkan þátt
í málum hreppsins á fleiri
sviðum?
— Jú, ég sat í hreppsnefnd
í 12 ár, og úr því að við erum
farnir aö minnast á þessi mál,
þá má eins geta þess, aö ég,
eins og margir fleiri, var á-
hugasamur um stofnun fram-
leiðslusamvinnufélaganna. —
Meðal annarra tók ég þátt í
stofnun Rjómabúsins, Mjólk-
urbús Flóamanna, Sláturfé-.
lags Suðurlands og Kaupfé-
félags Árnesinga, og enn er
ég með, þótt ég sé ekki lengur
virkur þátttakandi.
— Hvenær léztu svo af bú-
skapnum og hvers vegna?
— Ég missti konuna 1930,
en hún hafði staöið dyggilega
við hlið mér öll þessi ár — án
hennar hefði þetta aldrei orð
ið neitt. — Ég hélt þó áfram
búskap til ársins 1937, en þá
hætti ég, þar sem ég taldi
þýðingarlaust að halda áfram
— börnin voru sezt að á öðr-
um jörðum, og ég vildi gefa
mér færari mönnum tækifæri
til að spreyta sig á búskapn-
um.
— Hvað villtu svo segja
mér um framtíð íslenzks land
búnaðar og hvernig kanntu
við að vera ekki lengur virk-
ur þátttakandi á þeim vett-
vangi?
— Ég hefi tröllatrú á fram-
tíð íslenzks landbúnaöar og
ég held að hann eigi fyrir sér
glæsilega framtíð, ef hann
tekur í þjónustu sína þá miklu
og stórvirku tækni, sem nú-
tíminn býður upp á. — Um
það, hvernig ég kunni við mig
sem áhorfanda, verð ég að
segja, að mér finnst ég ekki
lengur vera maður til að taka
virkan þátt í starfinu sjálfu,
en gaman er að virða fyrir sér
allar breytingarnar og fram-
farirnar í íslenzkum landbún-
aði. — Þó finnst mér alltaf
.eins og einhverjar sterkar
rætur, er að mér stóðu, hafi
brostið þegar ég hætti bú-
skapnum.
Sigurjón frá Króki er ekki
alveg dauður úr öllum æðum
enn. Ennþá gengur hann aö
starfi þótt áttræður sé, og
þess má gjarnan geta, að
hann var á sínum tíma einn
aðalhvatamaður og stofn-
andi verkalýðsfélagsins á Sel-
fossi. Að lokum spurði ég svo
Sigurjón, hvað hann vildi
segja um lífið yfirleitt?
— Mér finnst aö lífið sé
dásamlegt, sagöi hann, þrátt
fyrir allt amstur og erfiðleika,
því að í starfi og striti er fólg-
inn lykillinn aö lífshamingju
þjóða og einstaklinga.
Þannig fórust Sigurjóni Stein
þórssyni orð áttærðum. Átta-
tíu ár eru að vísu hár aldur,
en á herðum Sigurjóns hvíla
þau sem fys eitt. Og ef segja
má með sanni um nokkurn
áttræðan mann, að hann sé
„fullorðinn unglingur,“ þá á
það við um Sigurjón Stein-
þórsson. — Ég óska þér hjart-
anlega til hamingju með þenn
an merkisdag þinn og vona,
að þér endist líf og heilsa til
þess að rýna mörg ár ennþá
fram í þá öld tækni og þró-
unar, er þú dáir svo mjög.
Gunnar Ingvarsson.
'HÚfeiÍií Jímm
SKIPAUTGÉKÐ
5 RIKISINS
„ESJA"
austur um land til Siglufjarö!
ar hirm 8. þ. m. Tekið á móti
flutningi til Fáskrúðsfjarðar,
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
N orðf j aröar, Seyðisf j aröar,
Þórshafnar, Raufarhafnar,
1 Kópaskers og Húsavikur ár-
degis í dag og á mánudaginn.
Pantaðir farseðlar óskast sótt
ir á þriðjudaginn. .
„HEKLA"
fer frá Reykjavík laugardag-
inn 10. september n. k. til
Álaborgar. Pantaðir farseðlar
óskast innleystir í skrifstofu
vorri þirðjudaginn 6. septem-
ber. Nauð'synlegt er, að farþeg
ar leggi fram vegabréf sín.
Frá Álaborg fer skipið vænt-
anlega um mánaðamótin
september-október til Reykja
víkur.
ÚTSÖLUSTAÐIR
REYKJAVÍK
Vcsturbær:
Vf>stursötu 53
West-End.
Fjoiu, Vesturgötu
Miðbær:
Bókastöð Eimreiðar--.,
innar ui
Tóbaksbúðin Kolasuhdi.
Söluturninn við LækJ-r
artorg
Austurbær:
Veitingastofan Gosl.,,: .
Bókabúð KRON
Laugaveg 45
Vöggur Laugaveg
Veitingastofan Florida,
Veitingastofan Óðins*'
götu 5.
Sælgætisbúðin Stjarna,
Laugaveg 98.
Soluturn Austurbæjar
Verzlunin Ás.
Verziunin Langholts-
veg 74 :
Verzlunin Hlöðufell,
Langholtsveg.
Verzlunin Mávahlíð 25.
íslenzkt smjör | Eldurinn
fyrirliggjandi
Bögglasmjör (óskammtað)
Rjómabússmjör (gegn skömmtunarseðlum)
| Fryst jhúsið HERÐUBREIÐ
Sími 2678.
gerir ekki boð á undan sérl
Þelr, sem eru hyggnir,
tryggja strax hjá
Sarm/Lnnatryggingum
flver fylgist með
tímanum ef ehhi.