Tíminn - 22.01.1950, Page 6

Tíminn - 22.01.1950, Page 6
6 TÍMINN, sunnudaginn 22. janúar 1950 18. blaff TJARNARBID Calitornia Afar viðburðarík og spenn- '< andi amerísk kvikmynd tekin í j eðlilegum litum. Aðalhlutverk: Barbara Stanwyck Ray Milland Barry FFitzgerald Bönnuð börnum Sýnd kl. 5, 7 og 9 Reimleikar Sprenghlægileg gamanmynd 1 með hinn heimsfræga gaman- j leikara NILS POPPE Sýnd kl. 3. N Y J A B I □ Skrítna fjölskyldan (Merrily we líve) Framúrskarandi fyndin og £ skemmtileg amerísk skopmynd gerð af meistaranum HAL RO- ACH, framleiðandi Gög og Gokka-myndanna. Danskir skýringartextar. Sýnd kl. 5, 7 og 9 Uppreisnin á Sikiley Þessi æfintýraríka og spenn- andi mynd. Sýnd kl. 3. Bönnuð börnum yngri en 12 ára ] Sala hefst kl. 11 f. h. Hafnarf jarðarbíó Fyrirmyndar eiginmaður Ensk stórmynd í undurfögr- j um litum, eftir hinu fræga \ leikriti Oscar Wilde. — Paulette Goddard Micliael Wilding o. fl. Sýnd kl. 7 og 9. Gög og Gokke í hinu vilía vestri Sýnd kl. 3 og 5 - Sími 9249! Boliéme-líf Falleg og skemmtileg þýzk' söngvamynd. — Danskur texti. j Sýnd kl. 7 og 9. Hann, hún og Hamlet LITLA og STÓRA. Sýnd kl. 3 og 5 Sala hefst kl. 11 f. h. vio 5KÓIAÚ0TU * * Freyjnrnar frá Frúarvengi (Elisabetu of Ladymead) Ensk stórmynd, tekin í eðli- legum litum. Sýnd kl. 7 og 9. Fífldjarfnr flug- maðnr (The fighting Pilot) Mjög spennandi og viðburða- rík amerísk kvikmynd. Sýnd kl. 3 og 5 Gættu peninganna Óven.iulega vel samin og leiki in sakamálamynd spennandi; frá upphafi til enda. Aðalhlutverk: Clifford Evans Patricia Roc Nýjar fréttamyndir frá Politiken j Sýnd kl. 5, 7 og 9 Bönnuð börnum innan 16 ára. < Dansmærin Estrella Sýnd kl. 3. GAMLA B I □ Anna Karenina eftir Leo Tolstoy Ensk stómynd eftir hinni j heimsfrægu skáldsögu. .. Aðalhlutverk: Vivien Leigh Ralph Richardsson Sýnd kl. 5, 7 og 9 Smámyndasafn Teikni- og gamanmyndir og < fræðslumyndin „Haust börn“. Sýnd kl. 3 Sala hefst kl. 11 f. h. BÆJARBID HAFN ARFIRO! \ Mýrarkotsstelpan 5 Efnismikil og mjög vel leik- | in sænsk stórmynd, byggð á! : samnefndri skáldsögu eftir hina j ■ | frægu skáldkonu Selmu Lagerlöf > - Danskur texti. — / Aðalhlutverk: j Margreta Fahlén { Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184 TRIPDLI-BID 1 ísland í lifandi niyndum 1925 — 25 — 1950 ára afmæli Fyrsta íslandskvikmyndin tek! in af LOFTI GUÐMUNDSSYNIJ Kvikmynd þessi hefir ekki j verið sýnd í 25 ár. Sýnir m. a. FFiskveiðar, Iand i búnað, ferðalög, ísl. glímu,! fyrsta heimsflugið og m. m. fl.j Hvernig leit þetta allt út fyr- ir 25 árum? Aukamynd: Hvaladrápið í FoFssvogi o. fl. ] VENJULEGT VERÐ Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. Sími 1182. Vilja lesendur láta ljúga að sér? (Framhald aí 4. siðuJ. sett í gang með tvöföldum krafti- Og það tókst að vekja öldu í bænum. Jafnan vinn- ur fólskur maður fyrsta leik. En hér var byrjað of fljótt. Nú er brostin sú alda, sem átti að fleyta valdabáti íhaldsins heilum að landi á faldi sínum, svo að sigursæl- ir formenn hans væru örugg- ir með allt sitt á þurru næstu fjögur ár. Hið aldna far lend- ir í útsoginu og ærnar líkur til að ný holskefla rísi og hvolfist yfir það og geri það að manntapabolla. Framá- mennirnir við blöðin sjá það nú, að þeir hafa helzt til fljótt lagt út. Þeir orga hátt í crvæntingu sinni, en það breytir ekki náttúrulögmál- unum. Nú er það sýnt, að þeir fá ólagið á sig í lendingunni. Votkunnarmál. Eg skil það vel, að ritstjórn Vísis á ekki sjö dagana sæla. hrópi blaðsins um stóríbúða- skattinn. Þegar Tíminn loks- ins kemur viti fyrir þetta fólk, svo að það áttar sig á frumvarpinu, finnst því yfir- leitt að frumvarpið sé hóflegt og sanngjarnt og það hafi ver ið reitt til reiði af litlu tilefni- Þá er hringt til Vísis og það ekki til að þakka fyrir fyrri frásagnir blaðsins, því að flestum er illa við að láta hafa sig að fífli og leika með sig. Þetta eru óþægilegar kring- umstæður hjá blaðinu. Þá grípur það til þess að segja, að frásögn Tímans um efni frumvarpsins sé röng. Það er auðvitað ein vandaræðalýgin enn, — „en þú ert kominn í bölvaða skömmina hvort eð er“, sasði kerlingin. En það er athyglisvet, að að í öllum þeim umræðum, sem Sjálístæðisblöðin hafa haft um stóríbúðaskattinn, hafa þau aldrei talið heppi legt að birta frumvarpið eða einstakar greinar þess. Hundruð manna hafa trúað Menntun og dómgreind. Mbl. hefir stundum talað um menntun og dómgreind í sambandi við kosningar, þó að ekki sé það núna. Hins vegar er það fróðlegt að sjá, hvernig menntun, dóm- greind og siðferði Reykvík- inga snýst við þeim áróðri, sem nú er hafður uppi í blcð- um Sjálfstæðisflokksins. Vilja Reykvíkingar hafa heiðarleg blöð, sem ræða mál in frá mismunandi hliðum og deila um þau á grundvelli staðreynda eða vilja þeir ærulaus sorpblöð, sem ljúga sitt á hvað um atkvæða- greiðslur á Alþingi, efni laga og þess háttar? Bergur Jónsson Málaflutningsskrifstofa Laugaveg 65, sími 5833 Meima: Vitastíg 14. títbrclðið Tíiuann. WILLY CORSARY: 18. dagur Gestur í heimahúsum fór með hann í járnbrautarstöðina. Hann hafði setið við hlið- ina á henni. En það var einkennilegt, að hann skyldi ekki hafa minnzt á það við hana. Kannske hafði hann ekki mun- að eftir klútnum fyrr en hún var farin út úr bílnum, fleygt honum þarna og gleymt að segja henni frá því. En hún var ekki ánægð með þessa skýringu. 6. Kirkjuklukkan sló fimm, þegar hún ók meðfram gömlu virkisveggjunum í Utrecht. Nokkrum mínútum síðar nam hún staðar fyrir framan löfræðiskrifstofu Rutgens & Elstings. Vélritunarstúlka tjáði henni, að Felix væri ekki í borg- inni. Henni varð illa við. Snögglega sá hún, hvernig hún hafði lát ið stjórnazt af vanstillingu, sem gerði hana hlægilega. Hún ók heim til sín í vondu skapi. Hús þeirra Elstings-hjónanna var stórhýsi í hinum gamla hluta borgarinnar, þar sem tiginmannlegast þótti að búa. í þessu sama húsi hafði Allard búið með fyrri konu sinni. Hann hafði tekið mikilli tryggð við húsið, en ína hafði alltaf staðið einhver stuggur af því. Hinir þykku og miklu veggir voru henni ekki að skapi, marmarastigarnir voru kuldaleg- ir og hin fornu húsgögn og gömlu málverk voru annarleg eins og svipir frá liðinni öld. í einum salnum hékk málverk af fyrri konu Allards — fríðri konu með tómlegt bros og köld augu. ína hafði stund- um fundizt fyrstu árin, þegar hún stóð andspænis þessari rnynd, að hún væri framandi gestur í þessu húsi. Engu hafði hún breytt í húsinu eða hagað eftir sínu höfði. Henni fannst þetta fremur hús hinnar dánu konu en sitt. En son- ur hennar fannst henni vera sitt barn. Það var sigur henn- ar í hinu leynilega stríði milli hennar og myndarinnar. Kristjáni þótti vænna um hana en móður sína — það hafði hún oft og mörgum sinnum fundið, og vafasamt, hvort hon- um hafði nokkurn tíma þótt sérstaklega vænt um móður sína. Þegar Allard keypti Heiðabæ, fékk hún mestu að ráða um það, hvernig húsið yrði búið húsgögnum. Þar var líka ný- tízku húsbúnaður. En Allard hafði aldrei kunnað við sig þar. í augum hans var það aðeins hús, þar sem hentugt var að taka á móti gestum á sumrin. Hið gamla og skugga- lega hús í Utrecht var heimili hans. Þegar ína hafði matazt í borðsalnum, þar sem jafnan varð að loga ljós allan daginn, settist hún að blaðalestri í einni stofunni. Hún reyndi að telja sér trú um, að Allard væri einhvers staðar nærstaddur. Á sumrin var hann eini mað- urinn, sem steig fæti sínum inn í þetta hús — þótt raun- ar dveldi hann hér aðeins um nætur. Þá boröaði hann alltaf í veitingahúsum. En henni gekk illa að ímynda sér, að hann væri hér nú — hún fann það allt of greinilega á andrúms- loftinu, að hann hafði ekki komið hér um langt skeið. ína opnaði vindlakassa og þefaði af vindlunum. Þeir minntu hana á hann. Svo datt henni í hug síðasta samtal þeirra. Hvað skyldi hann halda, ef hann vissi, hvernig hún hafði hagað sér? Skyldi hann bíta í vörina, ygla sig og hvessa aug- un — verða reiðúí? Nei — það var orðið svo langt síðan hún hafði séð þann svip, er var svo ólíkur þeim Allard, sem hún unni. Hann myndi sjálfsagt aðeins verða undrandi, horfa á hana áhyggjufullur í bragði, en síðan hugga sig við það, að hún hlytt að hafa verið þreytt og í vondu skapi. Hún sagði við sjálfa sig, að þetta mætti ekki gerast í ann- að sinn. Ef hún vendi sig á þess háttar atferli, færi hún sjálf að trúa þvi, að þetta væri henni óviðráðanlegt. Taug- ar manns voru eins og lítil börn — það reið á því að taka þegar í upphafi fyrir alla misbresti. Hún hafði hagað sér eins og flón. Brottför hennar frá Heiðabæ og allar vanga- veltur út af máli, sem henni var óviðkomandi, báru vitni um ófyrirgefanlegt misvægi í sálinni. En samt sem áður gat hún ekki gleymt Sabínu Nansen. Hún fór inn í herbergi sitt, sótti eina af skáldsögum henn- ar og reyndi að gerá sér í hugarlund konuna, sem hafði skrif- að hana. En það var mjög óskýr mynd, sem hún gat gert sér af henni. Hún ímyndaði sér hana ungat blíðlynda konu og dálítið óvenjulega í háttum. Bæði Jósep og Lísbet höfðu sagt hana einkennilega. Gat það verið, að hún hefði flúið burt frá öllu — vinum sínum, lífinu og frægð sinni? Þessi bók virtist ekki skrifuð af veiklyndri konu. En hvaö vissi hún yfirleitt úm samborg-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.