Alþýðublaðið - 29.03.1920, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 29.03.1920, Blaðsíða 1
1920 Mánudaginn 29. marz 71. tölubl. Rðssar sigra fétverja. Khöfn, 27. marz. Þýzka blaðið Lukal Anzeiger segir að Kússar (bolsivíkar) hafi tekið borgina Yilna. Stjórnin í Warschaw er flúin(?) [Líklegast hafa Pólverjar verið nokkuð fljótir á sér um daginn að lýsa sigri]. ^llsherjar verfckau í Danotórkn? Khöfn, 27. marz. Atvinnurekenda fólagið danska hótar að gera allsherjar verkbann í Danmörku 9. apríl. Khöfn 28. marz. Verkbannið nær alls til 150 þúsund verkamanna, en ekki til sjómanna né þeirra, er vinna við opinberar stofnanir. frakkar einir. Khöfn, 27. marz. Trá Washington er símað, að Bandaríkin, England og Ítalía séu á móti því, að bandamenn setji herlið inn í Ruhrhérað [á Þýzka- landi]. frakkar iánxglir. Khöfn, 26. marz. Trá París er símað, að þar sé mikil óánægja yfir því, að Frakkar hafa orðið að leyfa ríkisvarðliði Þjóðverja að halda inn í Ruhr- laérað. SuðurOótlanð. Khöfn, 27. marz. Alþjóðanefndin leggur til, að alt annað atkvæðasvæði Suður-Jót- lands, þar á meðal Flensborg, til- heyri framvegis, sem nú, Þýzka- landi. Danskt herlið heldur á skírdag suður yfir landamærin, sem verið hafa, og sezt að í hinum nýfengnu löndum Dana. ynisherjarverkfall i €nglanði? e Khöfn, 26. marz. Frá London er símað, að alls- herjarverkfall sé yfirvofandi í Eng- landi, en að Lloyd George reyni að miðla málum. [Verkfall þetta mun standa í sambandi við kaupkröfur, en ekki kröfurnar um að gera kolanám- urnar að þjóðareign.] þjéðverjar og Sanir. Vifurlegar ráðstafanir. Khöfn, 26. marz. Þjóverjar ætla að semja við Dani um að vernda rétt þjóðernisminni-' hlutanna í báðum löndunum. Bolsivismi i þýzkalanðL Khöfn, 26. marz. Ráðsstjórn er sett á stofn í borgunum Rostock og Warnemúnde i Mecklenburg í Norður-Þýzkalandi. €kki er ait sem sýaist. * „Enginn er dómari í sinni eigin sök“. Útgerðarmaðurinn Ólafur Thors ritar fremur barnalega grein, sem hann nefnir „Með aibrigðum", í Mgbl. 17. marz s.l. Greinin er „með afbrigðum" kveinstafir, vegna þess hve þingið hafi verið frá- munalega ósvífið, að spyrja út- gerðarmenn ekki ráða um það, hvernig bezt yrði fyrir komið lög- um um botnvörpuveiðar í land- helgi hér við land. Hví kveinar hann ekki líka fyrir útlendu út- gerðarmennina? Þeir hefðu þó lík- lega engu síður getað frætt þingið um það, hvernig hægast væri fyrir botnvörpunga að veiða í landhelgi. Eða heldur Thórs að ekki só sama hver brýtur lög landsins? Heppi- legast væri, eftir því sem hann setur fram, að t. d. þjófar væru spurðir að því, hvernig haga ætti lögum um þjófnað. Þeir eru vafa- laust sínum hnútum kunnugastir, engu síður en útgerðarmenn. Thórs fjargviðrast mikið út af því, hve sjómönnunum íslenzku sé aukið erfiði með því ákvæði, að veiðarfæri öll skuli vera í „búlka“, er togarar eru innan landhelgi. Eg skal nú setja hór lýsingu á því, hvernig farið er að því að búlka „troll“, og fræða jafnframt útgerðarmannínn, sem Alþingi átti 'að leita til um „upplýsingar“ um það, að hingað til hefir sá skiln- ingur verið lagður i sögnina „að búlka", sem lýsir sér í eftirfarandi lýsingu: í hvert skifti, sem varpa er dregin inn, er miðhluti hennar, með botnrúllunum („the bobbies“) settur inn fyrir öldustokkinn, net- ið síðan dregið inn, og sé fiskur í vörpunni, þá fer hann niður í pokann, sem síðan er dreginn ihn með vindunni. Á meðan liggja báðir vængirnir utanborðs, ásamt með hlerunum, aftan og framan til á skipinu. Ætli skipið að hreyfa

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.