Tíminn - 24.01.1950, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.01.1950, Blaðsíða 3
19. blað TÍMINN, briðjudaginn 24. janúar 1950 3 Á víðavangi Eru verkamanna- bústaðir mann- sæmandi?. Mbl. og fylgifiskar þess halda því mjög fram, að verkamannabústaðir í Reykjavík geti fallið undir stóríbúðaskatt. Það geta þeir því aðeins, samkvæmt frumvarpi Framsóknarmanna, að einhleypir menn hafi heil- ar íbúðir. Barnlaus hjón mega þar hafa heilar íbúð- ir án skattgreiðslu. Var það tilgangur Al- þýðuflokksins með verka- mannabústöðunum, að ein hleypar manneskjur hefðu þar heilar ibúðir? Ætla nú bræðrablöðin öll sem berjast gegn Tíman- um og öllum jafnaðarkröf um, að laga húsnæðismál- in með því, að láta einstak linga hafa heilar fjöl- skylduíbúiðr? Og vilja þessi blöð halda því fram í alvöru, að verka manabústaðirnir séu ekki mannsæmandi húsnæði? ★ Viltu kjósa Gamla Togga? Gamli Toggi lofaði tveim ur sama kálfsskrokknum og át hann svo sjálfur. Þannig eru kosningalof- orð íhaldsins. Fyrir Alþingiskosningarn ar lofuðu Sjálfstæðismenn auknum neysluvöruinn- fluiningi. Alþýðuflokkurinn og kommúnistar tóku í sama streng. Ársfjórðungur er liðinn síðan. Sjálfstæðisflokkur- inn fer einn með stjórn í landinu en ekki aukast neysluvörurnar. Það er eins og með önnur stjörnu loforð íhaldsins. Tíminn einn allra blaða sagði þjóðinni satt fyrir al þingiskosningarnar, að annað þyrfti til að laga hlutina en aukinn innflutn ing. Framsóknarflokkur- inn einn allra flokka þorði að eiga fylgi sitt og álit undir því, að fólkið vissi sannleikann. Ætlar þú kjósandi, að horfast í augu við stað- reyndir, eða vilt þú kjósa Gamla Togga og gefa þig á vald viðskiptum hans? ★ Heimilisskattur Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn bað um það um daginn, núna eftir áramótin, að mega legja 30% skatt á allar al- mennar neysluvörur þjóð- arinnar. Þessi skattur myndi á einu ári nema fullum 30 milljónum króna á Reyk- Lausn húsnæðismálsins víkinga eina. Það er líkt og þrír fimmtu af útsvör- unum, en þetta yrði ekki lagt á eftir efnum og á- stæðum, helur eftir neyzlu. Þessi nýi skattur hefði numið 600 krónum á hvert mannsbarn í Reykjavík. Það eru þrjú þúsund krón- ur á hverja fimm manna fjölskyldu með meðal neyzlu. Það hefði víst enginn þurft að þrengja að sér j vegna þessa skatts. Þetta var Sjálfstæðis-1 skattur og hefði hvergi j þurft að koma við tilfinn- ; ingar, því að hann legðist þyngst á barnafólkið. Þarna var „folkkur allra stétta“ að verki „ástvinir reykvískrar alþýðu!“ ★ Hvaðan koma útsvör verzlananna? Hvergi á íslandi eru út- svörin jafnmikil að tiltölu við mannfjölda, sem í Reykjavík. Þó grobbar íhaldið af stjórnsemi sinni, því að sums staðar er út- svarsstiginn hærri. Helztu útsvarsgjaldend- ur í Reykjavík eru fyrir- tæki, sem reka viðskipti víðar en við bæjarbúa, svo sem S. í. S., Sláturfélag Suðurlands, olíufélögin, Slippurinn, vélsmiðjur, flugfélög og svo framvegis. Þessi útsvör öll leggjast á almenning gegnum verzl- un og viðskipti, þó að nokkrum hluta þeirra sé velt á utanbæjarmenn. En bæjarstjórnarmeiri- hlutinn þarf ekki að grobba af því að hafa gert Reykjavík að verzlunarmið stöð landsins og þar með skapaö þá tekjustofna, sem bæj arsj óður rakar saman milljónum hjá. Og fólkið borgar allar þessar milljónir. ★ Lítilþægir menn. Reykjavík er höfuðborg. Þar eru alþjóðarfyrirtæki eins og stjórnarráð, bank- ar, háskóli, landsspítali, áfengisverzlun, tóbaks- einkasala, ríkisútvarp og svo framvegis. Sú atvinna öll sem þessu fylgir er mikill tekjustofn fyrir bæjarfélagið. Þó legst íhaldsmeirihlutinn svo lágt, að hann þykist ágæt- ur af, ef hann þarf ekki að hafa hærri útsvarsstiga á einstaklinga en önnur bæjarfélög, þrátt fyrir alla sérstöðu höfuðborgarinnar og allt sem ógert er. Þaijk má segia, að þetta séu lítilþægir menn og lítil mótlegir. «St-f- Ræ$a Ólafs Jenssoiiar verkfræðings á' fundi Framsókiiarmanna í Síjörnubíói í fyrradag'. Ostar ERU HOLL FÆÐA. LÁTIÐ ÞÁ ALDREI VANTA Á MATBORÐIÐ. Fást í næstu matvöruverzlun. £atnbanc( tii AatnHimufelaqa Sími 2678. a mmu:: Góðir tilheyrendur! í stuttri ræðu er ekki unnt að fjalla um bæjarmálin al- mennt, og hefi ég því valið mér að umtalsefni einungis einn þátt þeirra, húsnæðis- málin. í þeim efnum ríkir nú fullkomið neyðarástand og því nauðsynlegt að miða allar at- hafnir við það. Þrjár þúsundir manna í óhæfu húsnæði. Samkvæmt síðustu skýrslu húsaleigunefndar búa nú tæplega 1700 manns í brögg- um, sem reistir voru fyrir áratug sem bráðabirgðaskýli fyrir fullhrausta karlmenn. Sumir þessara bragga hafa síðan verið lagfærðir með ærnum tilkostnaði, og mega teljast sæmilegir til bráða- birgða, en tveir af hverjum þrem eru taldir vera lélegir, mjög lélegir eða óhæfir til í- búðar. Umhverfi bragganna er víðast hvar svo ömurlegt, sem hugsast getur. Þegar Timinn finnur að því, að skólpið renni í opnum skurði utan við braggana, svarar Morgunblaðið, að það væri heimskulegt, að sóa fjár- munum fram yfir það allra nauðsynlegasta til slíkra bráðabirgðaíbúða. Lokuð skolpræsi eru þá ekki nauð- synleg í braggahverfi að dómi íhaldsins. Það var reyndar ekki við því að búast, meðan allt skólp frá prófessorabú- stöðunum og þar á meðal frá sjálfum borgarstjóranum, rennur í opnum skurði út í Tjörnina. En það eru ekki einungis braggarnir, sem slæmir eru. Inni í sjálfum bænum og úti um holt og hæðir í úthverf- unum, býr fólk í allskonar hreysum, sem alls ekki ættu að koma til greina sem manna bústaðir. Engar skýrslur eru til um, hve margt þetta fólk er, en það mun sízt of hátt áætlað, að um 3000 manns, eða 20. hver bæjarbúi, búi í mjög lélegu eða óhæfu hús- næði. Frumorsök húsnæðisskorts- ins er vitanlega hið öra að- streymi til bæjarins undan- , farin ár. Er helzt að skilja á í- I haldinu, að Framsóknar- | flokkurinn eigi alla sök á þessum fólksflutningum. í þvi sambandi er athyglisvert, að aðstreymið var langmest á timum nýsköpunarstjórnar- innar. Það er augljóst, að gullæðið og glundroðinn, sem óstjórn ihalds og kommúnista skapaði, þegar gjaldeyris- forða þjóðarinnar var sóað í ráðleysu en sveitirnar gleymd ust, á meginsök á aðstreym- inu til Reykjavíkur siðustu árin. Hefðu menn þá farið að ráðum Framsóknarmanna um ráðstöfun gjaldeyrisins og varið meira fé til eflingar landbúnaðinum í stað ein- hliða útþenslu sjávarútvegs- ins, væri nú minni húsnæðis- þörf í Reykjavík en raun er á orðin. Sannast þar enn sem fyrr, hve hagsmunir kaup- staðabúa og sveitafólks fara saman á flestum sviðum. Húsaleigulögin frá 1943 mæla svo fyrir, að ekki megi leigja utanbæjarmönnum húsnæði. Bæjarstjórn Reykja víkúr eða húsaleigunefnd hafa aldrei hreyft hönd eða fót til að framfylgja þessum lögum, og má þvi Sjálfstæðis- flokkurinn sjálfum sér um kenna, hve mikið aðstreymið j varð. Einkaframtakið brást og bærinn var ekki samkeppn isfær. Nú hefði mátt ætla, að í höfuðborg íhaldsins hefði einstaklingsframtakið reynzt þess megnugt að leysa þenn- an vanda, sem það sjálft hef- ir átt mestan þátt í að skapa. Svo varð þó ekki. Þessi grund- vallarstoð Sjálfstæðisflokks- ins brást hér svo gersamlega, að hann neyddist til að fara inn á braut andstæðinga sinna og láta bæinn byggja í- búðir fyrir almannafé. Þeir byrjuðu með timbur- húsum, sem kölluð voru bráðabirgðahús og fá vafa- laust að standa öldina út. Síðan hefir bærinn byggt 19 hús, og nú hafa forráðamenn- irnir öðlazt þá æfingu í list- inni, að siðustu húsin urðu með þeim dýrustu, sem byggö hafa verið hér í bæ. En ekki nóg með það, heldur eru þessi hús, sem ætluð voru barna- fólki, alls ekki við þarfir barnafólks miðuð. Á sama tíma hafa Bygging- arfélag verkamanna og ýms byggingasamvinnufélög byggt allmikið af húsum og sýnt ljóslega, hve mikið má lækka byggingarkostnaðinn með ráðdeild og hagsýni. Árið 1948 var aðstreyminu til bæjarins lokið. Það ár var hér aðeins um eðlilega fjölg- un að ræða. Samt er enn ekkert lát á húsnæðisvand- ræðunum, og enn er verið aö innrétta bragga fyrir fólk, sem ekki hefir þak yfir höf- uðið. Enn eru stóríbúðir byggðar. Fjárhagsráð leyfir ekki byggingu stærri íbúða en 130 m2. Þetta ákvæði fara menn miskunnarlaust í kringum. Vestur á Melum er verið að byggja heilt hverfi af tvíbýl- isvillum, þar sem íbúðirnar eru um og yfir 200 m2. Hér verðið þið, kjósendur góðir ,að taka í taumana, fyrst bæjar- stjórnarmeirihluti íhaldsins hefir ekki enn uppgötvað, að húsnæðisvandræðin verða aldrei leyst með luxusvillum. Byggingarefni er af skorn- um skammti og útlit fyrir, að enn verði að draga úr inn- flutningi þess. Því er enn meiri nauðsyn en áður, að nýta efnið sem bezt. Við verð- um nú um nokkur ár að stöðva allar villubyggingar og leggja aðaláherzlu á stórar sambyggingar, þar eð bygg- íngarefnið nýtist langtum betur á þann hátt. Bæjarstjórn og byggingar- nefnd hafa það fullkomlega á valdi sínu að gera slíkar ráð- svo dýrt, að.það sé íbúunum íjárhagslega ofviða. Árslaun verkamanns i fastri vinnu munu nú vera um 20.000 kr. Hæfilegt er talið, að ætla 15% af laununum í húsa- leigu. Mánaðarleiga mætti þá vera 250 krónur, en það sam* svarar 30 fermetra íbúð tnið- að við núverandi byggingar- kostnað. Það yrðu ekki stórar stofurnar þar. Samkvæmt frumvarpi Framsóknar- manna um stóríbúðarskatt, er 5 manna fjölskyldu ætluð 120 m2 íbúð, eða fjórfalt meira. Það er því ekki efamál, að' hér er þörf mikilla lagfær- inga. Segja má, að yfirleitt hafi menn ekki efni á að búa í þeim húsum, sem byggð eru í Reykjavík um þessat’ mundir. Bærinn gæti stórlækkað byggingarkostnaðinn. Ætla mdfetti, að bæjaryfir- völdin hefðu gert margvísleg- ar ráðstafanir til að lækka byggingarkostnaðinn. Svo er þó ekki. Enda þótt Reykviking ar leggi árlega 70—100 millj. króna í húsbyggingar, sem er tiltölulega miklu meira en. þekkist nokkurs staðar í ná- lægúm löndum, hefir bæjar- stjórnin ekki lagt fram eyr- isvirði til rannsókna á hent- ugum byggingaraðferðum. Sú skoðun er almenn, að við íslendingar stöndum framarlega í tæknileguni efnum. Að því er byggir.gar- tækni viðvíkur, er þetta því. miður hinn mesti misskiln- ingur. í þeim efnum hafa hér ekki orðið verulegar fram- farir síðastliðinn áratug. Eng- inn vafi er á, að með því að færa okkur í nyt reynslu ná- grannaþjóðanna, getum við stórlækkað byggingarkostn- aðinn. Til þess þyrfti bæjar- félagið að leggja fram nokk- urt fé, sem á skömmum tima gæti borið þúsundfaldan á- vöxt. t Bráðabirgðaráðstafanii eru óhjákvæmilegar. Ég hefi þá nefnt tvær ráð- stafanir, sem drjúgar verða til þess að ráða bót á húsnæð- isvandræðunum, þ. e. að' byggja sambýlishús með litl- um íbúðum í staðinn fyrii.1 villur, til þess að spara bygg- ingarefnið, og taka. app nýjar og hentugri byggmgaraðferð • stafanir. Það er kominn timi1 ir tU þessA aö sPara efni og: vinnu. Þriðja raðstofunm ei' til að unnið sé skipulega aö útrýmingu húsnæðisskorts- ins, en ekki tilviljun ein látin ráða eins og verið hefir. Húsnæðið er of dýrt. Útvegun húsnæðis er að- eins önnur hlið þessa mikla vandamáls. Það má ekki vera svo lánastarfsemi, og ber þá. sérstaklega að styrkja sam- vinnuíélög og byggingafélög verkamanna. En hér er mikið verkefni fyrir höndum. Auk þeu’ras þúsunda, sem í lélegu eða óhæfu húsnæði búa, vantar (Framh. á 6. síðu.Jj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.