Tíminn - 08.02.1950, Qupperneq 2
---r- -|
Tíminn. miðvikudaginn 8. febrúar 1950
32. blað
'Jrá hafi til heila
C nótt:
Mæturvörður er í læknavarðstof-
ijnni, sími 5030.
Næturvörður er í lyfjabúðinni
Xðunn, sími 7911.
Næturakstur annast Hreyfill,
5Ími 6633.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
sýnir í kvöld kl. 8
„Bláa
Aðgöngumiðar seldir i dag frá kl. 2 — Sími 3191
Útvarpið
I&tvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.)
18.30 íslenzkukennsla. I. fl. 19.30
fjýzkukennsla II. fl. 19.25 Þingfrétt
lr. — Tónleikar. 20.30 Kvöldvaka:
1) Ffrindi: „Norsel“-leiðangurinn
dr. Sigurður Þórarinsson). b) Út-
/arpskórinn syngur íslenzk lög
plötur). c) Upplestur: Þóroddur
Guðmundsson les frumort kvæði.
d) Erindi: Upphaf kvikmyndasýn-
inga á íslandi (Ólafur B. Björns-
son ritstjóri). 22.10 Passíusálmar.
22.20 Danshljómsveit Björns R.
Einarssonar leikur.
Hvar eru skipin?
Skipadeild S.Í.S-
Arnarfell er í Hamborg.
Hvassafell er í Álaborg.
ilíkisskip:
Hekla er á Akureyri. Esja er í
'rteykjavík og fer þaðan annað
kvöld austur um land til Siglu-
rjarðar. Herðubreið er í Reykja-
vik. Skjaldbreið átti að fara frá
Reykjavík kl. 21 í gærkvöldi 4
Húnaflóahafnir til Skagastrandar.
Þyrill er 1 Reykjavík. Skaftfelling-
ir átti að fara frá Reykjavík í
4ærkvöldi til Vestmannaeyja.
ífiimskip:
Brúarfoss er á leið frá Reykja-
;ík til Hull, Gdynia og Ábo í Finn-
tándi. Dettifoss kom til Leith 5.
Cebr. frá Hull. Fjallfoss kom til
Leith 5. febr., fer þaðan til Frede-
ikstad og Menstad í Noregi. Goða-
• roks fór frá Reykjavík í gærkvöldi
il New York. Lagarfoss er í Rvik.
ielfoss er í Rvik. Tröllafoss er í
Fievkjavík. Vatnajökull kom til
Haiuþorgar 19. jan.
,'fiiiiarsson og Zoega:
Foldin hefir væntanlega farið frá
fíúll a mánudagskvöld áleiðis til
Revkjavíkur. Lingestroom er í
imsterdam.
Flugferðir
Gullfaxi, millilandaflugvél Flug-
íélags íslands er í skoðun í Amst-
-:rdam, en fer þaðan til Kaup-
nannahafnar og kemur þaðan á
fimmtudag með viðkomu í Prest-
vick.
Geysir Loftleiða er í Kaupmanna
aöfn til skoðunar.
Flogið verður ekki til útlanda fyrr
Jn þriðjudaginn 14. þ. m.
4fflabrögðin.
,'Framhald af 1. siOuJ
'óa með styttri línu en bátar
frá öðrum verstöðvum sunn-
anlands. Allur fiskur, sem
öerst á land í Höfn, er salt-
aður Mikil atvinna er í Höfn
og hefst varla undan að
ganga frá aflanum með þeim
mannafla, sem þar er fáan-
iegur.
Veðurfar í Hornafirði, eins
og annarsstaðar, hefir verið
imhleypingasamt og ógæftir
talsverðar.
ír Keldwliverfi.
(Framhald af 1. síðu)
smiðaverkstæði, sem smíðar
hurðir, glugga og húsgögn,
og kemur það að ágætum not
um.
Uggur í bændum.
Nokkur uggur í bændum er
úm það, að þeir ' fái ekki að
gera þessar bráð'nauðsynlegu
umbætur, þótt þá skorti ekki
fé til þess. Fjárfesting og
fjárfestingarleyfi eru nýir og
torfengnir hlutir. Hinir, sem
þurfa á lánsfé að halda,
þreifa á köldum veruleikan-
um strax.
Þrjú nýbýli
Þrír efnilegir ungir menn
í hreppnum hafa ákveðið að
stofna sitt nýbýlið hver og
hefja byggingu á næsta vori.
Er þess að vænta, að til þess
fái þeir lögmæt lán' og aðra
fyrirgreiðslu, svo að þeir þurfi
ekki að hrekjast burtu úr fæð
ingarsveit sinni, þar sem þeir
vilja helzt lifa og starfa.
Fólksfjöldi er svipaður
og um aldamót.
í Kelduhverfi er fólkstala
nú svipuð og um aldamót og
hefir ekki lækkað hin síðari
ár, þrátt fyrir árlegan brott-
flutning, einkum ungs fólks.
Um þriðjungur fóiksins eru
börn innan fermingar og rúm
lega tíundi hver maður kom-
inn yfir sextugt. Þar að auki
er svo vanheilt fólk og ekki
fullvinnandi sökum æsku.
Mun fullvinnandi fólk ekki
fleira en fjórir af hverjum
tíu og er það lág hlutfalls-
tala- Hins vegar er ókleift fyr
ir búskapinn að greiða taxta-
kaup, þegar ekki er tekið til-
lit til fjárhagslegra hlunn-
inda, sem sveitavinnan hefir
að bjóða verkafólki fram yf-
ir kaupstaðavinnu. Þrátt fyr-
ir þetta má segja, að fólkinu
líöi vel. Það gerir hófsamar
krofur og framfarir eru á
flestum sviðum, að vísu óvíða
stórfelldar, en „sígandi lukka
er bezt“.
Vöruskortur tilfinnanlegur.
Mjcg tilfinnanlegur vöru-
skortur er norður þar á ýms-
um nauðsynjavarningi, sér-
staklega á fatnaði og efni til
hans. Skömmtunarseðlarnir
eru ríkulegir og safnast fyrir
á heimilum, en varan ófáan-
leg, hvar sem leitað er. Þó
hefir upp á síökastið borizt
nokkuð af fatnaði í verzlan-
ir. Er hann saumaður í
Reykjavík, rándýr vara og
annars flokks. Heyrzt hefir,
áð Fjárhagsráð semji um
framleiðslu á sumri þessari
vöru og afhendi einkafyrir-
tækjum í Reykjavík forgangs
rétt til þess að gera klæðnað
úr innfluttri vefnaðarvöru,
sem áður var atvinna þjóðar-
innar í heild. Er vafasamt, að
þetta verði talið bjargráð fyr
ir landsbyggðina utan Reykja
víkur.
Skortur á vélum.
Vélanotkunin vex alltaf, en
þó er skortur á búvélum og
heimilisvélum mikill- Pantan
ii geysimiklar óuppfylltar og
borfir þetta til mikilla vand-
ræða á fólkslitlum heimilum,
þai sem sannarlega er ekki
vanþörf á að létta störfin.
Kaupfélag Norður-Þingey-
inga rekur viðgerðarverk-
stæði fyrir búvinnuvélar og
heimilisvélar til mikilla hags
bóta.
^jfJjaqurt er rtkkríi
Kvöldsýning
Kvöldsýning í Sjálfstæðishúsinu í kvöld miðviku-
dag kl. 8,30. Húsið opriað kl. 8 — Aðgöngumiðar seldir
á morgun frá kl. 2. Sími 2339.
DANSAÐ til kl. 1.
ButmntnttnnnmKottKitthtwmtmttttmtmhttmtttnmttttttniffltttmmB
itmmttttttttttmttttttttttttttmmttmttKntttttttttttfflmntttttttttttttttmtttarg
Gerizt áskrifendur að
Zjímanum
Áskriftasímar 81300 og 2323
Anglýsið í Tímanoin,
Armann — I.R. — K.R.
GRÍMUDANSLEIK
halda félögin sameiginlega í samkomusal Mjólkur-
; stöðvarinnar, föstudaginn 17. febr. — ÞRENN VERÐ-
LAUN VEITT fyrir beztu búningana. — Sextett Sein
þórs Steingrímssonar leikur fyrir dansinum. — Að-
göngumiðar fást í' Bókaverzlun Lárusar Blöndal, Bóka
verzlun ísafoldar og á skrifstofum féiaganna.
Stjórnir Ármanns Í.R. og K.R.
JOHAN C. MARTENS & Co., Bergen
BRASOL Salatolje
MARKOL Hermetikkolje
Þessar olíur eru þekktar um all-
an heim til niðursuðu á alls-
konar sjávarafurðum og til sal
atgerðar. Lækkað verð af- 4
greiðsla strax gegn gjaldeyris-
og innflutningsleyfum.
Einkaumboð fyrir ísland:
BERNHARD PETERSEN,
Reykjavík — Sími 1570.
-^4 fö
ornum vec^i
FJÓRÐUNGSLEIKHÚS
Ífúniiii TíntaHH
Baldur Pálmason, starfsmaður
ríkisútvarpsins, bar þá uppástungu
fram í útvarpserindi í fyrrakvöld.
að nú þegar þjóðleikhúsið tæki til
starfa, yrði stefnt að því að skapa
fúllkomið leikhúskerfi, og ríkið
stuðlaði að þvi, að reist yrðu mynd
arleg leikhús á ísafirði, Akureyri,
Austfjörðum og Hvolsvelli í Rang-
■ árþingi.
Hann hugsaði sér, að þessi leik-
hús nytu svo styrktar af þeim leik-
! urum, sem störfuðu við þjóðleikhús
ið í Reykjavík, og það yrði þannig
I aflvaki og frjógjafi leikmenntar í
þeim hlutum landsins, sem liggja
i svo fjarri miðstöð íslenzkrar leik-
listar, að fólkið, sem þar býr, get-
ur ekki nema örsjaldan notið þess,
sem þar fer fram.
Þessi hugmynd er of góð til þess,
að hún verði ekki rædd af nein-
um. Vafalaust munu þó ráðamenn
landsins telja, að þeir hafi nú í
mörg horn að líta, bæði um fjár-
framlög úr félausum ríkissjóði og
deilingu byggingarefnís — með þús
undir manna í húsnæðishraki á
aðra hönd, en gjaldeyrisþurrð á
hina.
En þótt í svipinn ári ekki nema
i meðallági vel til þess að hrinda
hugmyndinni í framkvæmd, þá er
samt tími til þess að velta þvi
fyrir sér, hvernig framkvæmdum
verði hagað og vinna henni hylli
fólks og gera því ljóst, hvaða
blómgun í menningarlífi þjóðarinn
ar hún getur haft í för, þegar svig
rúm fæst til athafna.
Þó að nú sé þröngt og grátléga
sé búið að leika fjárhag þjóðar-
innar, má það ekki verða til þess,
að hætt verði að horfa hærra en
diskbarmurinn nemur.
Þótt það sé undirstaða hins dag-
lega lífs, að fólk hafi til hnífs og
skeiðar, þá er andleg menning und
irstaða þjóðlíísins, Og henni má
aldrei gleyma, fremur en hinum
efnalegu framförum, ef ekki á að
fara verr en illa. J. H.
iiiiiniiiiiiiMiiHimimiiMiiiiiiiiiiiitiimiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiimiimiiniiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiii,
s _
Skagfirðingar!
Óska að kaupa eitt eintak af Ættum Skagfirðinga, |
I eftir Pétur Zophaniasson ættfræðing. Tilboð óskast. |
Stefán Bjarnason verkfr. |
Sogamýrarbletti 55.
Sími 6611.
Reykjavík.
miiiimiimiiiimimiimimmmimiimiimiiimimimiiiimimiiiiiiiiiimimiiiiiimmmiimiimmmmiiimmiii(
Nægar birgðir fyrirliggjandi. — Ný framleiðsla
kemur í hverri viku.
Reykhús S.Í.S.
Sími 4241.
Auglýsingasími Tímans 81300