Tíminn - 14.04.1950, Side 2

Tíminn - 14.04.1950, Side 2
2 TÍMINN, föstudaginn 14. apríl 1950 81. blað 'Jrá hafi til heiía í nótt: Næturlæknir er í læknavarðstof- unni, sími 5030. Næturvörður er í Ingólfs apóteki sími 1330. Næturakstur annast B. S. R., síini 1720. Útvaroið ítvarpið í dag : Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Silfrið prestsins" eftir Selmu Lagerlöf; I. (Helgi Hjörvar). 21,00 Strengja- kvartett Ríkisútvarpsins; Kvartett op. 18 nr. 2 í G-dúr eftir Beethoven 21,25 Frá útlöndum (Axel Thor- steinsson). 21,40 Tónleikar (plötur). 21,45 Spurningar og svör um ís- lenzkt mál (Bjarni Vilhjálmsson). 22,10 Vinsæl lög (plötur). 22,44 Dagskrárlok. Hvar eru skipin? Ríkisskip. Hekla fer frá Reykjavík kl. 12 á hádegi í dag austur um land til Siglufjarðar. Esja er í Reykjavík. Skjaldbreið var á ísafirði síðdegis í gær á norðurleið. Þyrill er í Reykjavík. Ármann fór frá Reykja vík í gær til Vestmannaeyja. Einarsson & Zoega. Foldin er væntanieg til Palestínu f dag. Lingestroom er í Amster- dam. Eimskip: Brúarfoss er í Reykjavík. Detti- foss var í Rotterdam, fór þaðan væntanlega í gær til Hull. Fjall- foss var væntanlegur í gær til ísafjarðar frá Skagaströnd. Goða- foss kom til Antwerpen 12. apríl, fer þaðan til Leith og Reykjavík- ur. Lagarfoss er á leið til Reykja- víkur. Selfoss er í Heroy í Noregi. Tröllafoss er í New York, fer það an væntanlega í dag til Baltimere og Reykjavikur. Vatnajökull er í Tel-Aviv. S.l.S. — Skipadeild. Arnarfell er í Dalvík. Hvassafell er í Neapel. Æ/öð og tímarit Freyr búnaðarblað, mayz-hefti þessa árs, er nýkominn út, ágætlega úr garði gerður, eins og venja er til um það blað. Á forsíðu er falleg mynd af kirkjugarði í sveit, sem Guðni Þórðarson hefir tekið. Freyr flytur að þessu sinni fjölmargar greinar um ýmisleg búnaðarmál, flestar fróðlegar og prýddar mörg- um myndum, m. aó af votheyr- turnum. Efni blaðsins verður ekki rakið hér, en stórfróðlegt er það öllum þeim, er um búnaðarmál fjalla. Ritstjóri er Gísli Kristjáns- Jazzblaðið marz hefti er nýkomið út. Blaðið er 20 síður og flytur að vanda mik inn frcðleik um innlenda og er- ienda musik og hljóðfæraleikara. Efni blaðsins er að þessu sinni: Forsíðumyndin er af Guðmundi Finnbjörnssyni og grein um hann eftir Hall Símonarson. Bréf frá les endum og svör víð þeim, Ad lib eftir Svavar Gests, A1 Casy, guitar leikari, endursagt, Hljómleikar Jazzblaðsins, gagnrýni Jóns M. Árnasonar. Beztu jazzplöturnar 1949, Harmonikusíðan. Fréttir og fleira, Jazz og dansmúsik o. fl. Úr ýmsum áttum Dánardægur. Guðmundur Sveinsbjörnsson fyrrv. skrifstofustjóri í Stjórnar- ráðinu lézt að heimili sínu hér í bænum laugardaginn fyrir páska. Banamein hans var heilablóðfall. Guðmundur var 78 ára að aldri og hafði verið vanheill nokkur und anfarin ár. Jarðarför hans fer fram 1 dag. • Met í svifflugi. Nýlega flaug Helgi Filippusson einsmanns svifflugu af Olympiu- gerð frá Sandskeiði aij.tui1 að Hvolseli við Hellu, í einum áfanga og er það 71 km. leið í fluglínu. Setti hann þar með nýtt íslands- met í langflugi. Gamla metið vár 50 km. og var það frá Sandskeiði suður á Keflavíkurflugvöll. Með þessu flugi lauk Helgi silf- ur C prófi og er hann þriðji ís- lendingurinn, SPm lýkur þessu prófi. „Loftleiðis landa milli“. í Gamla bíó er sýnd um þessar mundir aukamynd, sem starfsmenn Loftleiða hafa gert á ferðum sín- um um ýms lönd Evrópu og Suð- ur- og Norður-Ameríku. Skýring- texti er talaður inn á myndina. Efnilegur sundmaður. Pétur Kristjánsson, hinn 15 ára gamli sundgarpur frá sundmóti ís- lands í vetur, er farinn til Kaup- mannahafnar tll að taka þátt í unglinga sundmeistaramóti Norð- urlanda, sem háð verður um helg- ina. Með honum fór þjálfari hans Þorsteinn Hjálmarsson. Pétur keppir í 100 m. skrið- sundi, en í því náði hann mjög góðum tíma í vetur. Lágmarks- tími fyrir keppendur mótsins er í. R. - KOLVIÐARHÓLL. Skíðaferðir um helgina: Laugardag kl. 2, 6 og 7. Sunnudag kl. 9, 10 og 1. Farmiðar við bílana hjá Varð- arhúsinu. Innanfélagsmót á sunnudag. Nánar í blöðunum á morgun. Skíðadeild í. R. 1,06,5 mín., en Pétur synti vega- lengdina á ?j,03,3 mín. Aldurs- hámark á mótinu er 18 ára og mun Pétur fá þar erfiða keppend- ur. Leiðrétting. Athygli hefir verið vakin á því að það hafi veiið missögn i „Er- lenda yfirlitinu" fVrir nokkru að Leopold 2. Belgíukonunugur væri afi Leopolds 3., sem nú er kon- ungur Belgíu. Leopold 2. var afa- bróðir Leopolds 3. ÚTBOÐ Tilboð óskast um smíði steinsteyptra íbúðarhúsa við írafoss í Sogi. Uppdrátta og lýsinga má vitja í teiknistofu Sigurð- ar Guðmundssonar og Eiríks Einarssonar, Lækjartorgi 1, í dag og á morgun kl. 5—6. Skilatrygging kr. 200.00. Vertíð á ísafirði * (Framhald af 1. siðu.) úr 75 aurum í 93 aura, sam kvæmt áliti hagfræðinganna er enn ekki komið til fram- kvæmda. Frá skíðavikunni. Sextánda skíðavika ísfirð- inga fór fram við heldur ó- hagstæð veðurskilyrði, þó að á skírdag væri sólskin og þá var norðaustankaldi með dálítilli úrkomu hina dag- ana. Þrátt fyrir þetta var inargt fólk á skíðum alla dag ana. Tvær kvöldvökur voru í skíðaskála Skíðafélagsins og dansleikur var haldinn í Al- þýðuhúsinu á páskadags- kvöld. 'Ornum veai ■ NÝTT LANDNÁM Kennarafélag Laugarnesskólans í Reykjavík hefir keypt sér allstórt land uppi í Mosfellssveit og hyggst að hefja þar landnám með viss- um hætti. Land þetta er allstórt og vel fallið til ýmissar ræktunar. Ætlun félagsins er sú að hefja þarna einhverja ræktun, skógrækt og fleira, og gefist þarna tækifæri til að vinna að ræktunarstörfum. bæði fyrir kennarana en þó eink- urn börnin. Þegar lanidið hefir verið girt og ræktunarstarfið skipu lagt, verður hægt að fara með hópa barna úr skólanum þarna upp eftir og vinna með þeim að plönt- un skógar eða annarri ræktun, kenna þeim ýmis undirstöðuatriði þessara greina og koma þeim í snertingu við íslenzka mold og gróanda lífsins í íslenzku vori. í annan stað geta kennarar unn- ið þarna aS ýmsum hugðarmálum í ræktun, kannske jafnvel fengið sérstaka bletti, ef til vill byggt sér þar sumarskýli o. fl. o. fl. Mögu leikar i slíku landnámi eru óþrjót- andi, bæði til hressingar og ánægju fyrir kennarana og hollrar úti- vistar fyrir börnin. í Laugarnesskólanum er margt ungra og áhugasamra kennara, og þetta framtak þeirra er fullrar at- hygli vert og skilnings af hendi bæjaryfirvalda. Þegar áhugasamir uppalendur rétta þannig fram hönd ina til sjálfboðastarfs í rétta átt, má ekki láta undir höfuð leggjast að taka í hana. Mér er ekki full- kunnugt um það, hverja áheyrn kennararnir hafa fengið i þessu máli né heldur, hvort þeir hafa eftir henni leitað. Eg veit heldur ekki, hvaða áform eru efst í huga þeirra um þetta landnám, eða hvort ákvarðanir hafa verið teknar um næstu verkefni þar, en ég þykist viss um, að hér verður vel fram haldið og gengið að starfi með fullum dugnaði og elju, því að hér eru að verki áhugasamir menn og konur, og þess er óskandi að erindi verði sem erfiði. A. K. AUGLÝSING Samkvæmt reglugerð útgefinni í gær um verðlag á söluvörum Tóbakseinkasölunnar tilkynnist, að hámarks álagning í smásölu, miðað við útsöluverð Tóbakseinka- sölunnar, skal vera á vindlingum, reyktóbaki, vindlum, munntóbaki og rjóli 17%, en á neftóbaki 20% og eld- spýtum og vindlingapappír 18%. Söluskattur er inni- falinn í verðinu. Verðlagsákvörðun þessi nær ekki til þeirra vara, sem keyptar hafa verið fyrir 13. þessa mánaðar. Tóbakseinkasala ríkisins. Rafmagnsmótora í stærðunum 2 til 12 hestöfl, útvegum við leyfishöfum, frá Bretlandi, með mjög stuttum fyrirvara. Verðið hag- stætt. — Einkaumboð á íslandi fyrir: The Brush Electrical Engineering Co., Ltd. Vélar & skip h.f. Hafnarhvoli. Sími 81140. Rauði kross íslands Aðalfundur verður haldinn í skrifstofu félagsins, Thorvaldsensstræti 6, föstudaginn 19. maí 1950, og hefst klukkan 14. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Reykjavík, 12. apríl 1950. Framkvæmdaráðið. Konan mín GUÐLAUG SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR Miðbæ Norðfirði andaðist miðvikudaginn 12. þ. m. Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna. Jón Björnsson Innilega þökkum við öllum þeim er auðsýndu samúð við andlát og jarðarför # LÁRUSAR FR. JÓNSSONAR, FRÁ BARÐI. Sérstaklega viljum við þakka heimilisfólkinu á Krossi í Innri Akraneshreppi fyrir hjúkrun og um- önnun er það veitti honum í veikindum hans. Agúst Lárusson. Guðjón B. Baldvinsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.