Tíminn - 14.04.1950, Side 8
„ERIÆJVT YFIRL1T“ t DAG
Haynýtinfi kjjuvnovkunnar
„Á FÖRmjM VEGI“ t DAGi
JViitt Ittndmhn
Truman telur ástandið í
alþjóðamálum fara batnandi
5 ár liðin siðan hann varð forsoti
Truman forseti Bandaríkjanna, ræddi við blaðamenn í
Washington í gær og sagði hann meðal annars, að ástandið
í alþjóðamálum hefði farið smábatnandi undanfarin fjögur
ár, eða frá því 1946. En það ár kvað Truman hafa verið ófrið
vænlegasta árið, sem hann myndi eftir. Svo hefðu Banda-
ríkjamenn hafið aðstoð við Tyrkland og Grikkland og síðan
hefði Marshallhjálpin komið til sögunnar.
Forseti í 5 ár.
Það eru nú liðin fimm ár,
siðan Truman tók við af
Roosevelt forseta, en það var
í aprílmánuði 1945. Truman
sagði, að þessi fimm ár
hefðu verið erfið að ýmsu
leyti, en þá hefði fyrsta árið
verið langerfiðast.
Ánægður með ástandið.
Hann sagði að ástandið
bæði í verzlunar og landbún
aðarmálum Bandaríkjanna
væri nú mjög gott. Þjóðin
hefði enga ástæðu til þess
að óttast kreppu. Þvert á
móti væru allar horfur á því
að velmegun landsmanna
myndi halda áfram að auk-
ast. Fleiri menn hefðu nú at
vinnu í Bandaríkjunum en
nokkru sinni áður, i sögu
landsins og bandarískir
verkamenn lifðu við mun
betri kjör en starfsbræður
þeirra í Evrópu.
Bandaríska flugvél-
in enn ófundin
Bandarískar, sænskar og
danskar flugvélar héldu í
gær árangurslaust áfram
leitinni að bandarísku flug-
yélinni, sem hvarf síðastlið-
inn laugardag, á leiðinni frá
Wiesbaden í Þýzkalandi til
Kaupmannahafnar. Leitinni
mun haldið áfram í dag. —
Þýzkt skip kom í gær til
hafnar í Svíþjóð og skýrði
skipstjóri frá því, að síðdegis
síöastliðinn mánudag hefðu
skipverjar séð flak á floti,
30—40 km. frá Borgundar-
hólmi, en þar eð skipið hefði
ekki haft neitt senditæki,
hefði ekki verið »hægt að
skýra frá þessu fyrr. — Flug
vélar rannsökuðu í dag þetta
svæði, en urðu einskis vísari.
Rússar reisa kjarn-
orkustöð
Þýzkur vísindamaður, Ró-
bert Havemann að nafni lét
s\o ummælt í austur-þýzka
útvarpið í gær, að Rússar
ynnu nú að því að reisa kjarn
oikustcð, sem væri ætlað það
hlutverk að framleiða kjarn
orku sem nota ætti í iðnað-
inn. Hamborgarblöðin hafa
einnig skýrt frá þessu og geta
meðal annars, að þegar hafi
verið hafin framleiðsla á
þungu vatni í I. G. Farben-
verksmiðjunum, á hernáms-
svæði Rússa í Berlín.
Greinargerð
um hækkun
á tóbaki
Alþýðublaðið Iætur nú ekk
ert tækifæri ónotað til að
ófrægja síðustu gengislækk-
un. Það siðasta sem blaðið
lætur frá sér fara í þessu efni
er að gengislækkunin í marz
sé aðalorsök hækkunar á síga
rettum þeim, sem nú fást á
hærra verði en áður.
Þetta er rangt því verð-
hækkunin á þessum sígarett-
um stafar aðallega af gengis
lækkuninni, sem gerð var s.l.
haust og þá með stuðningi
Alþýðuflokksins.
Blaðinu hefir borizt svo-
svohljóðandi greinargerð frá
Tóbakseinkasölu ríkisins.
„Verðhækkun sú, sem orð-
ið hefir á aðal cigarettuteg-
undinni, sem verið hefir hér
að undanförnu og kom til
framkvæmda í gær, úr kr.
5.80 í kr. 6.40 pr. 20 stykkja
pakki, stafar, að lang mestu
leyti, af verðhækkun, sem
varð erlendis á þessari vöru-
tegund undir lok s. i. árs og
stóð í sambandi við gengis-
fall sterlingspundsins í sept.
s. 1., en aðeins að mjög litiu
leyti vegna gengisbreytingar
ísl. krónunnar, sem varð nú
fyrir skemmstu. Hefði
Tóbakseinkasalan átt kost á
þvi að hafa þessa cigarettu-
tegund til sölu undanfarna
mánuði, mundi hver pakki
hafa kostað kr. 6.30. Hækk-
unin, sem orðið hefir nú
vegna gengisbreytingarinn-
ar, nemur því aðeins 10 aur-
um pr. pakka, eða 1.6% af
því verði, sem pakkinn
mundi hafa kostað fyrir
gengisbreytinguna. Hefir
verið komist hjá því að
hækka aðal-cigatettutegund
irnar vegna gengisbreyting-
arinnar um meira en þessa
10 aura á þann hátt, að smá
söluálagningin hefir verið
lækkuð og Tóbakseinkasalan
hefir einnig lækkað sína á-
lagningu í hlutfalli við verð
hækkunina. Verður verðlag
á öllum vörum Tóbakseinka-
sölun'nar ákvarðað í sam-
ræmi við þessa tilhögun eins
og breyting sú á reglugerð-
inni um álagningu á vörum
einkasölunnar ber með sér
og áður hefir verið birt.“
Vilja saraeina
fræðslumyndir
frá ýmsum löndum
Fyrir nokkru síðan var
stofnað félag í Stokkhólmi,
sem er hugsað sem miðstöð
fyrir menningarkvikmyndir.
Forustumaður þessa félags er
Lennart Bernadotte, sem jafn
framt er skátahöfðingi Svía.
Tilgangurinn með stofnun
þessa félags er fyrst og fremst
sá, að koma á og greiða fyrir
notkun menningarkvikmynda
þannig, að ýmsir menn, sem
eigi filmur, geti sent þær til
félagsins og megi það nota
úr þeim eða þær allar til að
gera menningar- og fræðslu-
kvikmyndir. Er þetta t. d.
hugsað svo, að einn eigi mynd
ir af bjargfugli á íslandi, ann
ar frá Orkneyjum og sá þxiðji
frá Argentínu. Þó engin ein
mynd sé nothæf til sýninga,
væri hægt að gera fullkomna
mynd, með því að skeyta þær
saman. Greiðsla er hugsuð
þannig, að miðstöðin í Stokk-
hólmi sendi menningarkvik-
myndir sínar til þeirra landa,
sem filmur koma frá og fái
lj ósmyndarinn það, sem inn
kemur fyrir sýningu í heima-
landi sínu, að mestu. Félagið
hefir mikinn áhuga á því,
að fá myndir frá íslandi og
komast í samband við ís-
lenzka kvikmyndatökumenn."
Þeir kvikmyndatökumenn,
sem vilja lána myndir sínar
á þann hátt, sem að ofan
greinir, geta snúið sér til
Menntamálaráðuneytisins, er
jafnframt veitir frekari upp-
lýsingar.
(Frá Menntamálaráðuneyt-
inu).
Borgarstjórinn vill ekki
tryggja bænum eignarrétt
á bæjarstæði Ingólfs
Arnarsonar
lýsir sig' fylgjamii rannswkn en vill slá
ákvörðun iim kaup lóða á frest
Á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur í gær var rætt um
rannsókn á því hvar bæjarstæði Ingólfs Arnarsonar hafi
slaðið. Hafði allsherjarnefnd alþingis sent bæjarstjórn bréf
og ieitað umsagnar bæjarstjórnarinnar um þá tillögu um
kaup á lóðum í Grjótaþorpi, sem nú liggur fyrir alþingi.
Indverskir ráðherr-
ar ánægðir
Nehrú, forsætisráðherra
Indlands, staðfesti í gær í
Nýju Delhi fregnir, að tveir
af ráðherrum hans hefðu beð
ist lausnar, vegna sáttmála
þess, sem hann gerði nýlega
við Liekat Aly Khan, for-
sætisráðherra Pakistan, um
kynþáttavandamálið í Beng
al og fleiri héruðum. Ráð-
herrar þessir, sem eru verzl
unarmálaráðherrann og iðn-
aðar og birgðamálaráðherr-
ann, eru óánægðir með sátt
málann, telja að Indverjar
hafi látið fullmikið undan
síga fyrir Pakistan.
Þórður Björnsson, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
vítti það í ræðu, að mál þetta
skyldi ekki hafa verið lagt
beint fyrir bæjarstjórn, þar
sem alþingi leitaði beint á-
lits hennar, heldur lagt fyr-
ir bæjarráð eins og gert var
fyrst.
Minnti Þórður á, að hann
hefði fyrir nokkru flutt til-
lögu um þetta mál i sam-
bandi við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar bæjarins. Þeirri
tillögu hefði verið vísað til
bæjarráðs, en eftir fundar-
gerðum þess að dæma, væri
hún ekki komin þar fram,
þótt skammt vær.i á milli.
Ástæða hefði þó verið fyrir
bæjarráð að fjalla um til-
lcguna, þar sem aðgerðir al-
þingis í málinu rækju á eftirj
ákvörðun bæjarstjórnar. \
Flutti Þórður síðan eftir-
farandi tillögu um þetta mál:
Bæjarstjórn telur rétt að
Alþingi samþykki tillögu þá
til þingsályktunar nr. 262,
sem nú liggur fyrir Alþingi
„um að fela rikisstjórninni
að leita um það álits sér-
fróðra manna hvort eigi
megi telja líklegt eða full-
víst að bæjarstæði Ingólfs
Arnarsonar hafi verið í
Grjótaþorpinu eða um það
bil, þar sem nú stendur hús
ið Grjótagata 4“, en bæjar
i stjórn lítur svo á að æski-
legast sé, að höfð sé sam-
vinna við bæjaryfirvöld
Reykjavíkur um þetta.
Þá telur Ibæjarstjórn, að
Acheson til I*arísar
Tilkynnt var í Washington
í dag, að Acheson, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna,
myndi halda til Parísar 8.
maí næstkomandi, til við-
ræðna við Schuman, utanrík-
isráðherra Frakklands. Þeir
verða síðan samferða til Lon
don, þar sem þeir ræða við
Bevin. Fundur Atlantshafs-
hafsbandalagsráðsins hefst í
London 15. maí, og er þá
gert ráð fyrir að ráðstefnu
ráðherranna þriggja verði
lokið.
Baitilaríkiii styrkja
framvcgis banda-
menn sína
Louis Johnson, hermála-
ráðherra Bandaríkjanna, lét
svo ummælt við blaðamenn
í gær, að Bandaríkin myndu
framvegis veita bandamönn
um sínum í Evrópu alla þá
efnahagslegu og hernarðar
legu aðstoð, sem þau gætu í
té látið og nauðsynleg
væri talin. Hann endurtók
fyrri ummæli sín um það, að
friðinn væri einungis hægt
að varðveita með hernaðar-
legu afli. Bandaríkin hefðu
nú tekið að sér að vera for
ystuþjóðin vestan járntjalds.
Og þeirri forystu myndi ekki
unnt að halda, nema þau
gættu þess vandlega, að vera
hernaðarlega öflug.
sé það álit hinna sérfróðu
manna, að bústaður Ingólfs
Arnarsonar muni hafa verið
á tilteknu svæði í Grjóta-
þorpi beri Reykjavíkurbæ að
öðlast eignarumráð yfir
svæðinu og húsum þeim,
sem á því kunna að vera til
verndar hinum fornhelgu
minningum og felur borgar
stjóra að vinna að þvf.
Nokkrar umræðúr urðu um
tillöguna og taldi borgarstj.
að binda bæri allar samþykkt
ir um málið við rannsóknina
eins, en skjóta á frest að
taka ákvörðun um kaup á
lóðum þar til að rannsókn lok
inni. Þórður taldi hinsvegar
sjálfsagt að fyrir lægi ský-
laus vilji bæjarstjórnarinnar
um að bærinn vildi tryggja
sér eignarhald á bæjarstæð-
inu, ef það fyndist, og því
rétt að tengja þetta tvennt
í ályktun bæjarstjórnarinn-
ar.
Tillögunni var siðan vísað
til bæjarráðs að tillögu borg
arstjóra, með 8 atkv. gegn
7. Er nú að sjá, hvort J^ún,
fær að ganga þangað fljót-
ari boðleið en hin fyrri, eða
verður úti á leiðinni eins og
oft á sér stað um tillögur sem
íhaldsmeirihlutinn sendir
þangað til svæfingar.
. . . o« þá voru cftir
tveir
Ógæfan virðist elta Attlee
forsætisráðherra Breta og
vera einráðin í því að rýja af
honum þingfylgið þangað til
meiri hlutinn er glataður og
íhaldsmenn fella stjórnina.
Er saga þessa þingmeirihluta
einna líkust vísnasögunni um
„tíu litla negrastráka.“ Þing-
menn verkamannaflokksins
falla af fatinu einn og einn 1
einu. Einn deyr, annar veik-
ist, þriðji slasast o. s. frv. Fyr-
ir nokkrum dögum kom það
fyrir, að einn þingmaður
verkamannaflokksins féll af
sporvagni út af Westminst-
er-brú í London og slasaðist
svo, að hann liggur nú í
sjúkrahúsi. Síðan er þing-
meirihluti stjórnarinnar að-
eins tveir þingmenn. Segja
brezku blöðin í gamni, að vel
megi segja eins og í vísunni
um „tíu litla negrastráka“:
Einn þeirra féll af
Westminster-brú
og þá voru eftir tveir.