Tíminn - 30.04.1950, Qupperneq 1

Tíminn - 30.04.1950, Qupperneq 1
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Skrifstofur t Edduhúsinu Fréttasímar: 'Í1302 og I130S AfgrelOsluslmi 2323 AuQlísingasími 31300 PrentsmiBjan Edda '1 34. árg. Reykjavík, sunnudaginn 30. apríl 1950 94. blað Setning listamannaþingsins var meö miklum hátíöaöra? Fiölskrúiiug lÍKÍsýniii" var opnuð í |ijó?í- nfinjasafnsliúsiiiu nýja « g'srr Kiukkan tvö í gaer var hrifija listamannaþingið sett í I*jóðleikhúsinu. Var það hátíðleg og eftirminnileg athöfn, sem fór hið bezta fram. Síðar um daginn var listsýning þingsins opnuð í þjóðminjasafnshúsinu nýja. Hátíðasýning á íslandsklukkunni var í gaerkveídi. í kvöld eru hijómsveit- artónleikar í Þjóðleikhúsinu. Athöfnin hófst með því að Sinfóníuhljómsveitin lék for- leik eftir Jón Leifs og stjórn- aði tónskáldið sjálft hljóm- sveitinni. Útvarpskórinn að- stoðaði með söng. Setning þingsins. Helgi Hjörvar formaður framkvæmdanefndar lista- mannaþingsins setti þingið með stuttri ræðu og lýsti for setakjöri þingsins. Hann gat þess, að þing þetta væri hald ið af því tilefni, að Þjóðleik- húsið er vígt, og þess vegna væri það meir helgað leiklist inni með nokkrum hætti, en cðrum greinum. Ákveðið hefði því verið að kjósa Arndísi Björnsdóttur leikkonu, for- seta þingsins, en vegna sjúk leika síns getur hún ekki tek ið forsæti. Varaforseti þings- ins var kjörinn Valur Gísla- son, leikari, og mun hann gegna forsetastörfum á þing inu. Tók hann við forsæti á þinginu eftir ræðu Helga Hjörvar. Næstur tók til máls Björn Ólafsson, menntamálaráð- herra og flutti þinginu árn- aðaróskir. Aðalræðuna við setningu þingsins flutti Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur, og var ræða hans afburða snjöll. Að lokum var þjóðscngurinn leik inn og stjórnaði Páll ísólfsson tónskáld hljómsveitinni. Listsýning opnuð. Kl. 4,15 voru setningargest ir og félagar í Bandal. ísl. listamanna saman komnir í þjóðminjasafninu nýja. Gunn laugur Pálsson, framkvæmda stjóri sýningarinnar opnaði hana með stuttri ræðu. Síð- an kvaddi Lúðvíg Guðmunds- son skólastjóri sér hljéðs og afhenti gjöf til Þjóðleikhúss- ins eins og skýrt er frá á öðr um stað hér i blaðinu. Sýning þessi er allyfirgrips mikil eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær. Sýna þar 27 málarar og sumir þeirra nýir og áður óþekktir hér á samsýningum, og 6 mynd- höggvarar. Þarna eru einnig nokkrir uppdrættir að leiktjöldum eft ir þau Nínu Tryggvadóttur og Sigfús Halldórsson. Deild e” sýnir byggingarlist er þarna og eru þar líkön og pppdrætt- ir að byggingum. Er þar líkan að þeilsuverndarstcð i Reykja vík eftir Einar Sveinsson og Gunnar Ólafsson og líkan af j Langholtsskóla eftir sömu.' Þá er þar einnig tillöguuþp- dráttur að nýju náttúrugripa safni eftir Gunnlaug Hall- dórsson, og tillöguupdráttur að rikiséperu eftir Ágúst Pálsson. Hljdmleikarnir í kvöld. í dag kl. 2 verða hljómleikar í Þjóðleikhúsinu. Þar leikur Sinfóníuhljómsveitin og stjórna henni Róbert Abra- ham, Jón Leifs, Páll ísólfsson og dr. Urbantchitsch. Ein- söngvari verður Guðmundur Jónsson. Leikin verða tónverk eftir Karl Ó. Runólfsson, Jón Leifs, Jón Nordal, Urbants- chitsch og Pál ísólfsson. í kvöld er samfelld dag- skrá listamannaþingsins í út- varpin. VERTÍÐ BREGZT Á AKRANESI Vertíðin á Akranesi hefir algerlega brugðist og er sú versta sem komið hef- ir í mörg ár. Hæsti bátur þar, Ásmundur hefir ekki fengið meir en 840 skippund og næsti bátur er um 60 skip- pundum fyrir neðan hann. Síðastliðna viku hafa bát- ar róið ýmist suður í Grinda- vikursjó, vestur við Jökul eða lagt linu sína á grunnmiðum og hefir aflinn verið mjög sv.'paður eðu um 6 til 16 skip pund. Saltlaust er nú á Akranesi en hraðfrystihús Haraldar Böðvarssonar hefir tekið á móti þeim afla sem fengis hefir. Tveir bátar eru farnir á sildveiðar, en aðrir stunda línu enn. Síldveiðibátarnir hafa ekki komið að enn. Má þar af ráða að þeir hafa ekki aflað neitt sem nemur enn- þá. Stunda þeir reknetaveið- ar. Maður og kona — mynda- stytta Tove Ólafsson | Þjóðleiklmsinu I gefst listaverk I Lúðvík Guðmundsson, i skólastjóri. hefir gefið | Þjóðleikhúsinu mynda- I styttu allstóra, sem nefn- | ist Maður og kona eftir I Tove Ólafsson. Við opnun 1 listsýningar listamanna- i þingsins í gær afhenti I-úð ; i víg gjöf þessa en þjóðíeik- i i hússtjóri þakkaði. Myndin | i er nú á listasýningunni, en j i að þinginu Ioknu verður 1 i hún flutt í Þjóðleikhúsið | | og sett annað hvort í and- j | dyri þess eða við aðaldyr j | þess. | Mynd þessi er höggvin í j | grástein. Skemmdur sykur hirtur úr öskuhaugum bæjarins OtirgariiPknir skarst í loikinn í »a‘rinor<<nii Fyrir nokkru skemmdist allmikið af sykri í flutninga- skipi, sem leki kom að á leiðinni til íslands. Var hinum skemmda sykri ekið vestur á öskuhaugaana við Reykjavík á fimmtudaginn og föstudaginn, og fleygt þar í pokunum. i Ekki leið á löngu, áður en þar vestur frá tók að verða vart aðvífandi manna, sem jafnvel komu með bíla til þess að hirða sykurinn úr ösku- haugunum og aka honum til ^bæjarins. Kom þar, að málið : var kært fyrir borgarlækni, . og í gærmorgun voru menn á jhans vegum sendir vestur á öskuhaugana til þess að j ganga svo frá hinum skemmda sykri, að ekki væri unnt að ná honum upp og flytja hann brott. Skáru þeir pokana sundur og steyptu úr þeim. Til hvers á að nota sykurinn? Ekki verður sagt, hvers mik ið af sykri kann að hafa.verið flutt af öskuhaugunum né til hverra nota sá sykur, er flutt ur kann að hafa verið brott, hefir verið ætlaður. En hafi um brottflutning i allstórum stil verið að ræða, eins og lík ur benda til, virðist sýnt, að hann hafi verið hirtur í því skyni að selja hann eða nota til iðnaðar, enda ólíklegt. aö nokkur maður hirti skemmd- an sykur af öskuhaugunum til nota í eigin húsi. Minningarsjóður ÖLDU MÖLLER leikkonu Minningarsjóði Öldu Möll- er leikkonu hefir borizt veg- leg gjöf að upphæð kr. 2400 frá nánum vinum leikkununn ar. í ávarpi þvi, sem birt var í dagblöðunum um sjóðstofn- unina er sagt ,,að það sé von okkar, að mcrgum verði kært að styrkja sjóðinn með nokkr um fjárframlögum, því með þeim hætti geri menn hvort tveggja í senn að votta merki legri listakonu verðskuldað- an heiður og leggi varanlegt lið þvi málefni, sem hún bar fyrir brjósti“. Gjöfum og framlögum i sjóð inn er veitt móttaka hér á blaöinu eftir beiðni. Nýjar síldarvörpur reyndar Póst- og símagjöld hækka Króna umlir cintolil brcf innan larnls. not- cndaiíjöld o«* simtala»jöld hsckka uni þriðjung Vegna gengisfellingarinnar hefir orðið að hækka all- verulega póstburðargjöld og símagjöld og hefir ný gjald- skrá verið gefin út af þessu tilefni, er gildir frá 1. maí n. k. og birt í Stjórnartíðindum. Þannig hækkar burðargjald fyrir einfalt bréf (20) ínnan- lands og t:l Norðurlanda úr 75 aurum í 100 aura, en burð argjald fyrri' bréf til annara landa helst óbreytt. Símskeytagjöld innanlands hækka um 11% (nema blaða skeyti), talsíma-notenda- gjöld um 25—36%, en tal- stöðvarleigur nokkru meira. Hinsvegar verður ekki hækk- un á símtala- og loftskeyta- gjaldi til skipa, en símtöl inn anlands hækka að meðaltali um ca. 30%. Þó er engin hækk un á símtalagjaldi um vega- lengd innan 25 km. Símtalafjöldi í Reykjavík og Hafnarfirði, sem innifal- jínn er í hinu fasta afnota- gjaldi, lækkar um 50 símtöl á ársfjórðungi, þ. e. úr 850 sim |tölum í 800 símtöl á ársfjórð ungi, en hinsvegar teljast símtöl milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar aðeins sem 3 innanbæjarsímtöl i stað 4 áð ur. Gjaldskrárbreytining nær ekki til símgjalda, sem féllu í gjalddaga fyrir 1. maí þ. á. og hækka því t. d. ekki tals- stöðvarleigur, sem féllu í gjalddaga 1. apríl s. 1. fyrr en 1. janúar 1951. . (Fréttatilkynning frá póst- og símamálastjórninn:). Vélskipiír Fanney, sem ver- ið hefir í síldarleit og rann- sóknum á vegum rikisstjórn- arinnar mun nú hefja veiði- tilraunir með nýjar gerðir síldarvarpna. Mun danska flotvarpan verða reynd enn, þar sem talið er að ekki hafi verið fullreynt með hana í vetur. Einnig munu verða reyndar gerðir af vörpum, sem íslenzkir menn hafa gert. Námsstyrkur úr Nansenssjóði Stjórn Nansensjóðsins i Oslo hefir nú í fjórða skipti í röð, ákveðið að veita islenzk- um vísindamanni styrk t:l náms i Noregi. Er styrkurinn að fjárhæð þrjú þúsund norskar krónur. Menntamálaráðuneytið hefir verið falið að gera tíllögu um, hver hljóta skuli styrkinn, og eru þvi þeir, er sækja vildu urn styrkinn beðnir að senda urnsóknir sinar til ráðuneytis ins fyrir 1. júní 1950.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.