Tíminn - 06.05.1950, Blaðsíða 4
4
TÍMINN, laugardaginn 6. maí 1950
98. blað
Otvarpsfræðsla Búnaðar-
félags íslands
Frá því að útvarpstarf-
semi hófst hér á landi, hefir
Búnaðarfélag íslands beint
eða óbeint annast erinda-
flutning um búfræðileg efni
í vitvarpinu.
Sú var tíðin, að Búnaðar-
félag íslands hafði ráð á þvi
að halda uppi reglubundnum
bændanámskeiðum um meg-
inbyggðir landsins, en á síð-
ari árum hefir f járþröng_, og
þar af leiðandi starfsmanna
fæð, orðið þess valdandi að
bændanámskeið eru nú orðin
sjaldgæf.
Til að bæta upp missi nám
skeiðanna hóf Búnaðarfélag
íslands fræðslustarfsemi í út
varpinu. Hin síðustu ár hefir
þessi útvarpsfræðsla verið
nokkuð reglubundin, yfir vet
ur og vor, þar til i haust, að
hún féll niður.
Yfir hin liðnu útvarpsár,
hefir Búnaðarfél. íslands ver
ið að leita fyrir sér um hent-
ugan útvarpstíma fyrir þenn
an erindaflutning, en. ekki
náð viðunandi árangri. Ávalt
hefir viðleitnin strandað á út
varpráðsskeri „Reykjavíkur-
útvarpsins“.
Stöðugar umkvartanir
bænda og bændasamtaka
hafa borist til Búnaðarfélags
íslands og Búnaðarþings.
Sendinefndir frá Búnaðarfé-
lagi íslands og Búnaðarþingi
hafa mörgum sinnum á und-
anförnum árum farið á fund
útvarpsráðs og skrifstofu-
stjóra þess. Um árangur þess
ara funda vitnar útvarps-
timi sá, sem búnaðarfræðsl-
an hefir hlotið á undangörn-
um árum.
Vegna ritsmíða formanns
útvarpsráðs í Tímanum 28.
apríl s. 1. þykir rétt að birta
hér óstytt nokkur bréf, sem
farið hafa í millum útvarps-
ráðs annarsvegar og Búnaðar
félags íslands og útvarps-
fræðslunefndar þess hinsveg
ar.
Þann 5. des. 1949 sendir út
varpsfræðslunefnd B. í. út-
varpsráði eftirfarandi bréf:
„Vér leyfum oss hér með að
senda yður hjálagða ályktun,
sem Búnaðarþingið 1959 sam
þykkti varðandi útvarps-
fræðslu Búnaðarfélags ís-
lands.
Með skírskotum til við-
ræðna, sem einn af oss, (Ás-
geir L. Jónsson) hefir nokkr
um sinnum átt við skrifstofu
stjóra útvarpsráðs, þá er ósk
vor sú, að í stað 20 mínútna
erinda, sem áður hafa verið
flutt hálfsmánaðarlega, komi
nú 10 mín. erindi vikulega á
tímabilinu kl. 20—22.
Væntum vér þess eindregið
að útvarpsráð daufheyrist
ekki lengur við þessari hóf-
legu málaleitan vorri, að
bændastétt landsins fái í eig
in þarfir 10 mínútur af þeim
840 mínútum á viku, sem
falla á hinn svonefnda dag-
skrártima, þ. e. kl. 20—22.
Þar eð orðið er mjög aðkall-
andi að útvarpsfræðsla Bún-
aðarfélags íslands geti hafist
leyfum vér oss því að óska eft
ir svo greiðum svörum sem
verða má.“
Bréfi þessu fylgdi eftirfar-
Greinargcrð frá Htvarpsfræðslunefnd
Búnaðarfélags íslands.
andi þingskjal Búnaðar-
þings:
Áskorun Búnaðarfélags Mos
fellshrepps, varðandi breyt-
ingu á dagskrártíma landbún
aðarþátta í útvarpinu.
í tilefni af þessu máli sam
þykkti Búnaðarþing 1949 eft
irfarandi ályktun:
„Samkvæmt óskum og á-
skorunum ýmsra bænda víðs
vegar að af landinu, leyfir
Búnaðarþing að beina þeirri
eindregnu ósk til útvarpsráðs,
að útvarpstími búnaðarþátt-
arins, sem nú er eftir kl. 22,
verði færður fram á venjuleg
an dagskrártíma, helst kl.
21,30. Jafnframt er útvarps-
fræðslunefnd Búnaðarfélags-
ins falið að vinna að fram-
gangi þessa máls.
Greinargerð.
Á undanförnum Búnaðar-
þingum hefir æ ofan 1 æ ver-
ið leitað eftir þvi við útvarps
ráð, að fá útvarpsþátt Búnað
arfélagsins færðan inn á
hinn almenna dagskrártíma
útvarpsins að kvöldinu frá
kl. 8—10, þetta hefir ekki tek
ist til þess. Búnaðarþing hef
ir ávalt skoðað þetta sem full
komið réttlætismál og leyfir
sér því að halda þessari mála
leitan og baráttu áfram“.
Ályktunin samþykkt með
22 samhljóða atkvæðum.
Þann 14. des. 1949 ritar
skrifstofustjóri útvarpsráðs
oss eftirfarandi:
Útvarpsfræðslunefnd
Búnaðarfélags íslatids,
Reykjavík.
í framhaldi af bréfaskrift-
um og samtölum hefir for-
maður útvarpsráðs borið
fram í útvarpsráði tillögu
um það, að Búnaðarfélag ís-
lands fengi einn fræðsluþátt í
mánuði á tímanum 20,20.
Felt var á fundi útvarpsráðs
í gær að veita rúm fyrir slíka
þætti yfirleitt á tímanum
20.00 til 22.00.
Búnaðarfélaginu stendur
til boða hinn sami tími og
áður, eða annar tími sem
heldur kynni nú um að semj-
ast.
Virðingarfyllst
Helgi Hjörvar
(sign)
Þann 10. jan. s. 1. ritar
stjórn B. í. útvarpsráði eftir
farandi:
Útvarpsráð,
Reykjavík.
„Með skírskotum til bréfs
útvarpsfræðslunefndar Bún-
aðarfélags íslands til útvarps
ráðs, dags. 5. des. s. 1., og svar
bréf útvarpsráðs dags. 14. des.
s. 1., viðvíkjandi hentugum
tíma til flutnings búnaðar-
þátta í útvarpinu, þá leyfir
stjórn Búnaðarfélags ís-
lands sér hér með að lýsa
óánægju sinni yfir undirtekt
um útvarpsráðs í máli þessu
og beinir jafnframt þeirri ósk
tzl útvarpsráðs, að það, enn á
ný, taki mál þetta til alvar-
legrar endurskoðunar.
Stjórn Búnaðarfélags ís-
lands vill í þessu sambandi
einkum benda á eftirfárandi
staðreyndir.
Bændur, og aðrir verka-
menn til sveita eru tima-
bundnari gagnvart útvarpinu
inu en nokkur önnur stétt
þjóðfélagsins, að undanskild
um sjómönnum á hafi úti. —
Á fundum hreppabúnaðar-
félaga, búnaðarsambanda og
búnaðarþings, hefir í mörg
ár verið rætt um tillitsleysi
útvarpsráðs gagnvart þessari
sérstöðu annarar aðalfram-
leiðslustéttar þjóðarinnar. í
umboði þessara bændasam-
taka, hefir Búnaðarfélag ís-
lands ár eftir ár leitað til út-
varpsráðs um endurbætur á
erinda tima búnaðarþátt-
anna, þannig að bændur geti
almennt notið þeirra en jafn
an án árangurs.
Útvarpsráði virðist jafn
erfitt að skilja þarfir og sér-
stöðu bændastéttarinnar í
þessu máli, eins og bænda-
stéttinni er erfitt að skilja
hvers vegna henni er neitað
um 10 mínútna útvarpstíma
á viku, — á þeim tíma, er
hún getur hlustað á útvarp,
en til þess að njóta fræðslu
um þau mál, er hana varðar
sérstaklega. Því jafnvel þó
starfsemi útvarpsins kunni
fyrst og fremst að vera mið-
uð við óskir Reykvíkinga og
annara kaupstaðarbúa, þá
verður ekki séð, að þeim hlust
endum, sem jafnarlega ganga
ekki til hvílu fyrr en kl. 23—
24, sé nokkur ógreiði gerður
þó dagskrá útvarpsins sé
hnikað til um 10 mínútur
einu sinni í viku frá þvi sem
verið hefir, og þó aðeins yfir
vetrarmánuðina.
Eins og að framan er bent
á, þá hefir bændastéttin hér
algera sérstöðu. Hér kemur
því alls ekkert fordæmi til
greina, með tilliti til annara
stétta þjóðarinnar, þó út-
varpsráð mætti hér óskum
bændastéttarinnar.
Stjórn Búnaðarfélags ís-
lands leyfir sér því enn á ný
að óska eftir 10 mínútna út-
varpstíma í viku hverri, helst
á tímanum 20.20 til 21,20 —
til aprílloka. Mánuðina maí
og júní getur gamli útvarps-
tíminn hentað.
Ef útvarpsráðs synjar enn
á ný málaleitan þessari, þá
er þess vænzt, að synjuninni
fylgi rökstuðningur, svo að
málið liggi sem ljósast fyrir
frá báðum hliðum, við áfram
haldandi meðferð þess.“
Frá skrifstofu útvarpsráðs
kom eftirfarandi svarbréf:
Reykjavík, 23. jan. 1950
„Stjórn Búnaðarfélags ís-
lands hefir með bréfi 10. þ.
m. ítrekað óskir félagsins um
það, að fá rúm í kvöldagskrá
fyrir búnaðarþætti. Útvarps-
ráð hefir enn rætt þetta mál
og athugað vandlega og vill
ekki breyta þeirri ákvörðun
sinni, að erindi sem ætluð eru
sérstökum stéttum verði ekki
flutt á aðaldagskrártíma út-
varpsins, þ. e. kl. 20—22. Þó
að útvarpsráð vildi fallast á
þær röksemdir Búnaðarfélags
ins, að bændastéttin hafi hér
(Framhald á 7. síðu.)
X
TILKYNNING
!
um
lóðah
reinsun
Með tilvísun til 10. og 11. gr. heilbrigðissamþykktar
Reykjavíkur eru húseigendur hér með áminntir um að
flytja af lóðum sínum allt, er veldur óþrifnaði og ó-
prýði og hafa lokið þvi fyrir 15. maí n. k. Hreinsunin
verður að öðrum kosti framkvæmd á kostnað húseig-
anda. — — Upplýsingar 1 skrifstofu borgarlæknis,
sími 3210.
Heilbrigðisnefnd
Fyrirliggjandi
Alíkálfakjöt
Nautakjöt
Kýrkjöt
Ærkjöt
Folaldakjöt
Dilkalifur
Hangikjöt
Rúllupylsur
Saltað ærkjöt
Saltað tryppakjöt
Saraband íslenzkra samvinnufélaga
Sími 2678
TILKYNNING
frá Verkstjórasambandi íslands
Með tilvísun til 9. greinar í kaup og kjarasamningi
milli Verkstjórasambands íslands og Vinnuveitenda-
sambands íslands dags. 10. júní 1949, hefir stjórn
Verkstj órasambands íslands ákveðið að lágmarks-
kauptaxti fyrir verkstjóra skuli vera svohljóðandi:
Kaup aðsto?Sarverkstjóra undir stjórn verkstjóra
skal vera 25% yfir kaup fullgildra verkamanna.
Kaup annarra verkstjóra skal vera 45% yfir kaup
fullgildra verkamanna.
Ef um sérstaklega umfangsmikla verkstjórn er aö
ræða, getur kaup orðið hærra en hér greinir, þó með
sérstöku samkomulagi.
Kauptaxti þessi breytir eigi kaupi þeirra verkstjóra,
sem nú kunna að hafa hærra kaup en hann gerir ráð
fyrir.
F. h. Verkstjórasambands íslands.
Þorl. Ottesen. Adolf Petersen.
Við þökkum öllum nær og fjær auðsýnda samúð og
hjálp við andlát og jarðarför systur okkar
ÞÓREYJAR SKAPTADÓTTUR,
ennfremur þeim, sem stunduðu hana með stakri alúð
í löngum veikindum. — Fyrir hönd vandamanna,
Arnheiður Skaptadóttir, Jóhann Skaptason.