Tíminn - 16.05.1950, Síða 5

Tíminn - 16.05.1950, Síða 5
106. blað TIMINN, þriðjudaginn 16. maí 1950 5 f»rtðjucf. 16. t»nt Launauppbótin til opinberra starfs- manna í sambandi við afgreiðslu fjárlaganna var samþykkt á- kveðin launauppbót til opin- berra starfsmanna og jafn- fram lengdur nokkuð starfs- tími hjá stórum hluta þeirra. Þykir rétt að rekja hér for- sögu og aðdraganda þess máls í aðaldráttum. Núgildandi, launalög voru sett á þingi 1945. Síðan hefir engin breyting orðið á launa kjörum opinberra starfs- mann og standa þeir því orð- ið augljóslega ver að vígi en aðrar hliðstæðar stéttir, sem hlotið hafa margar kaup- hækkanir á þessum árum. Með tilliti til þessa ákvað meiri hluti Alþingis í fyrra- vor að veita opinb. starfsm. launauppbót og var síðan ákveðið af meirihluta þáv. rlkisstjórnar, að hún skylfli nema 20% á mánaðarlaunin. Þessi tilhögun hefir haldizt, unz núv. ríkisstjórn kom til valda, en hún lét ekki greiða, nema 15% launauppbót. Framsóknarmenn tóku ekki þátt í framangreindum á- kvörðunum í fyrravor, því að þeir vildu fá athugun á því áður en launauppbótin var ákveðin hver hún ætti að vera með tilliti til þess, að opinberir starfsmenn nytu svipaðra kjara og aðrar hlið- stæðar stéttir. Samkvæmt ákvæðum launa laganna frá 1945 átti að endur skoða þau að fimm árum liðn um. í samræmi við það skipaði ríkisstjórn Stefáns Jóhanns á siðastl. hausti sér- staka nefnd til að endurskoða launalögin og ákveða nýjan launastiga með tilliti til þess, að opinberir starfsmenn nytu svipaðra kjara og aðrar hlið- stæðar stéttir. í nefnd þess- ari áttu sæti fulltrúar frá þá verandi stjórnarflokkum ' og Bandalagi opinberra starfs- manna. Magnús Gíslason skrifstofustjóri var formaður nefndarinnar. Nefnd þessi hefir skilað á- liti fyrir stuttu síðan, og varð niðurstaða hennar sú, að kaup hinna lægst launuðu starfsmanna (i 10.—15. fl.) ætti að hækka um 17% mið- að við hliðstæðar stéttir og er þá opinberum starfsmönn um áætlað um 5% lægra kaup en nemur taxtakaupi umræddra stétta, ef þær hafb, næga atvinnu. Þessi 5% lækk un er byggð á því, að opinber ir starfsmenn njóti meira at vinnuöryggis, meiri eftir- launahlunninda og nokkurra fleiri fríðinda umfram hinar stéttirnar. Hinsvegar ber að taka tillit til þess aftur á móti að opinberir starfsmenn hafa ekki frjálsan samningsrétt og fá því yfirleitt ekki kaup- hækkanir fyrr en aðrar stétt- ir eru búnar að njóta þeirra um lengri eða skemmri tima. Þá fá og opinberir starfs- menn ekki full laun fyrr en eftir nokkurra ára þjónustu. Jafnframt þvi, sem nefndin lagði til, að kaup hinna lægra launuðu starfsmanna (í 10.—15. fl.) hækkaði um ERLENT YFIRLIT: Bækur og höfundar Umdeild bók, sem fjallar um trú og vísindi. — Uppá- haldskvæði 50 sænskra skálda. — Smásagnagerð brezkra rithöfunda. Einn þeirra manna, sem nú er mest rætt um í Bandaríkjunum, er rússneski vísindamaðurinn dr. Immanuel Velikovsky, sem hefir dvalið þar vestra sem landflótta- maður um nokkura áratuga skeið, en er nýlega orðinn ríkisborgari í Israel. Ástæðan til þess, að dr. Velikovsky ber svo mjög á góma, er bók, sem hann hefir nýlega gefið út og er nú metsölubók í Banda- ríkjunum: Af nafni hennar „Worlds in Collision" kynnu ýmsir að ætla, að hún fjallaði um hina pólitísku árekstra og deilur stórveldanna, en svo er ekki, heldur er það tilgang- ur hennar að sanna, að trú og vís- indi rekist ekki á og þó einkum að því leyti, sem snertir frásagnir gamla testamentisins, en dr. Veli- kovsky heldur því fram, að þær séu i aðalatriðunum sannleikanum samkvæmar. Siðan bók dr. Velikovsky kom út, hefir mjög verið um kenningar hans rætt og rifist, svo að annað umtalsefni er nú ekki talið öllu almennara i Bandaríkjunum. Orsakaði Venus syndaflóðið? Kenning dr. Velikovsky er i stuttu máli sú, að upphaflega hafi ekki verið nema ein pláneta á milli jarðarinnar og sólarinnar, eða þar til um 1500 árum fyrir núv. tímatal, en þá hafi Venus komið aðvifandi utan úr geyminum sem halastjarna og gengið óreglulega í nálægð jarðarinnar um nokkurt skeið, unz hún hafi misst halann og tekið sér stöðu milli sólarinnar og jarðarinnar. Af þessu hafi leitt ýmsa óvenjulega náttúruatburði hér á jörðinni og sé hér að finna skýringar á frásögnum gamla testa- mentisins, eins og t. d. af synda- flóðinu, hvarfi Rauðahafsins o. s. frv. Dr. Velikovsky telur náttúru- fyrirbæri þau, sem orðið hafi á jörðinni af völdum Venusar meðan hún reikaði um sem halastjarna, hafa verið svo stórkostleg, að menn eigi erfitt við að gera sér þau í hugarlund. Eyðileggingar af völdum vatnsefnissprengju séu hreint smásmíði í samanburði við það, sem þá átti sér stað. Að baki umræddum kenningum dr. Vetikovsky leggur margra ára verk hans. Hann hefir kynnt sér öll helztu vísindarit, sem um þessi mál fjalla, og kynnt sér öll gömul trúarbrögð, sem kunn eru. Hann sýnir m. a. fram á, að sagnir um náttúruatburði svipaða þeim, sem gamla testamentið greinir frá, sé sé ekki aðeins að finna þar, heldur skýra gömul munnmæli I Kína, Mexico, Peru, Egiptalandi og Finn landi frá þessu sama. Sérstæð Ijóðabók. Á síðastliðm; ári kom út í Sví- þjóð ljóðabók, sem vakið hefir all- mikla athygli. Bókin heltir: Min básta dikt, og hafa fimmtíu skáld valið í hana það kvæði sitt, sem þau telja bezt af kvæðum sín- um. Jafnfran^t gera þau sérstaka grein fyrir, hversvegna þau telji þetta kvæði bezta kvæði sitt. Val margra skáldanna hafa kom ið mjög á óvart, eins og t. d. val þeirra Bo EVrgmans, Sigfrid Siwerts, Robbe Enckells. Val þeirra flestra virðist lika mótast meira af persónulegum ástæðum og til- finningum, sem tengdar eru kvæð- inu, en af bókmenntalegu gildi þess. Öllu réttara virðist þvl að segja, að skáldin hafi frekar valið uppáhaldskvæði sitt en besta kvæð- ið. Nokkur skáld fengust ekki til þess að taka þátt í þessari útgáfu. Meðal þeirra voru Pár Lagerkvist og Karl Vennberg. Það er bókafor lagið Natur och Kultur, er gefið hefir út bók þessa. Smásagnagerð Breta. Á síðastliðnu ári kom út í Bret- landi úrval smásagna eftir enska nútímahöfunda (The Pick of Today’s Short Stories), sem hlotið hefir miklar vinsældir. Þekkt jkáld og gagnrýnandi, John Pudney, hafði annast valið á sögunum. Fyrir þá sem þekkja til enskrar Þriðja bindi af striðsendurminn- ingum Churchills •er nýlega komið . út og hefir hlotið góða dóma.. smásagnagerðar, skal hér getið nokkurra hinna útvöldu sagna. Eftir Evelyn Waugh er „Tactical Exercise”, eftir Gráham Greene. „The Hint of an Explanation", eftir Arthur Calder Marshall „Now it is the World", eftir Frank O’Conn- or „The Drunkard”, eftir Elizabeth Bowen „The Needle-Case“, eftir Erlc Linklater „Joy as it Flies“, eftir Midhael Harrisop „Mrs. Briggs", eftir Henry'Freece „Birds” og eftir James Hanley „Fancy Free“. Bók þessi hefir af ýmsum rlt- dómurum verið talið það til gild- is, að hún gæfi furðu glögga hug- mynd um brezk skáld og viðfangs- efni þeirra eftir síðari heimsstyrj- öldina. Athyglisvert þykir það, að flestar eru sögurnar alvarlegs eðl- is og meira virðist kenna napurrar beiskju en smekkvísrar kýmni, sem mörg ensk skáld hafa oft beitt með góðum árangri. 17%, lagði hún til að kaup þeirra, sem hærri laun fá, hækkaði aðeins frá 10—15%. Tillögu þessa gerði nefndin meira með tilliti til þess, að launauppbótin ofþyngi ekki ríkissjóðnum en að hún álíti hana réttláta. Lauamunur hjá ísl. ríkinu er samkvæmt þessu orðin mun minni en annarsstaðar og stórum minni en hjá einkarekstrin- um. Er mikil hætta á því, að þetta geti orðið til þess, að erfitt verði að fá hæfa menn til að gegna ábyrgðarmestu trúnaðarstörfunum, er mest veltur á, að vel séu rækt. Þar sem launalaganefndin hafði ekki gengið frá tillög- um sínum um ný launalög fyrr en komið var fram yfir seinustu mánaðamót, treysti ríkisstjórnin sér ekki til þess að taka þau til afgreiðslu á þessu þingi. í stað þess lagði hún til, að samþykkt yrði launauppbót til opinberra starfsmanna á þessu ári í samræmi við tillögur nefnd- arinnar og jafnframt yrði vinnutími á skrifstofum lengd ur um 3 klst. á viku og mun láta nærri, að það sé 8% leng ing starftímans. Þessar tillög ur rikisstjórnarlnnar hafa nú verið samþykktar,. Vel má vera að ýmsum opin berum starfsmönnum finnist ,það súrt í broti, að launaupp |bótin verður ekki nema 10— j 17% framvegis í stað 20% jáður og að vinnutími margra þeirra hefir verið lengdur um ' 8%. Sé hinsvegar litið á mink andi atvinnumöguleika, sem margar aðrar stéttir búa nú jvið, verður þó ekki annað ^sagt en að opinberir starfs- menn megi una hlut sínum 'sæmilega. Þá staðreynd er líka vert að gera sér ljósa, að ríkið virð ist hafa litla möguleika til .þess að greiða opinberum ' starfsmönnum þessi laun, ^nema þvi takist verulega að rifa seglin og draga úr starfs mannahaldinu. Þessvegna jætti ekki síst að mega vænta I skilnings og liðsinnis opin- .berra starfsmanna við þann j nauðsynléga samdrátt, sem þar þarf nú að eiga sér stað. Að öðrum kosti mun ríkið fyrr eða síðar neyðast til að skerða kjör þeirra, því að öðru vísi fær það þá ekki ris ið undir þeim ofvexti, sem hér hefir átt sér stað. Raddir nábúarma Mbl. ræðir um stefnu er- lendra jafnaðarmannaflokka í forustugrein sinni á sunnu- daginn. Þar segir m. a.: „Alþýðuflokkurinn hefir áður verið minntur á afstöðu jafnað- armanna í öðrum löndum til gengisbreytinga. Brezkir jafn- aðarmenn breyttu gengi sterlings pundsins og lögðu áherzlu á að verkamenn gætu ekki fengið neina kaupuppbót þrátt fyrir gengis- fellingu. Finnskir jafnaðarmenn lækkuðu finnskan gjaldmiðil og fylgdu aðferð flokksbræðra sinna í Bretlandi gagnvart kauphækk- ununum: Báðar þessar ríkisstjórn ir framkvæmdu gengisbreytingima til þess að efla framleiðslu þjóða sinna og tryggja afkomuöryggi hennar. En hvað segir Alþýðu- blaðið um það? Álítur það að flokksbræður þess í Bretlandi og Finnlandi hafi lækkað gengið á gjaldmiðlinum til þess að skerða kjör brezkrar og finnskrar al- þýðu? Þaðl mætti lika spyrja Al- þýðublaðið að því, hvort að það telji að hvarf norsku jafnaðar- mannastjórnarinnar frá niður- greiðsluleiðinni sé sérstök árás á lajinþega. Allir vita að sú ráðabreytni þýð ir stórfellda hækkun á vöruverði”. Mbl segir síðan, að umrædd ir jafnaðarmannaflokkar hafi þorað að taka ábyrga afstöðu og unnið þannig tiltrú verka- lýðsins. Hér hafi Alþýðu- flokkurinn hinsvegar tvístig- ið af ótta við kommúnista með þeim afleiðingum, að komnvönistar hafi vaxið þeim yfir höfuð og full ástæða sé til að örvænta um framtíð Al- þýðuflokksins. Óráðshjal Alþýðu- flokksins um landsverzlun Forkólfar Alþýðuflokksins eru nú í miklum vanda stadd ir vegna þess, að þeir hafa fram að þessu ekki getað bent á nein úrræði, sepi hefðu getað komið í staðinn fyrir gengishekkunina, án þess að verða meiri kjaraskerðing en hún mun reynast. í vand- ræðum sínum eru þeir nú farnir að tala um, að betra hefði verið að fylgja uppbótar leiðinni áfram, enda þótt þeir viðurkenndu það þrá- faldlega í vetur, að hún væri ekki fær lengur. Þá eru þeir einnig farnir að ympra á því, að sennilega hefði mátt leysa allan vandann með því að setja á fót landsverzlun. > t seinasta blaði var sýnt fram á, hvernig uppbótar- leiðin myndi hafa reynst í framkvæmd. Hún skal því ekki ekki rædd frekar að sinni, heldur í þess stað vik- ið nokkrum orðum að lands- verzlunarórum Alþýðuflokks- ins. Að því má að sönnu færa rök á pappírnum, að það yrði ódýrast í framkvæmd að hafa alla innflutnings- verzlunina í einni hendi. Starfsmannahald á þá að geta orðið minna og ýms ann ar kostnaður. Trúin á slíkan sparnað minnkar þó fljót- lega, ef ríkið ætti að hafa verzlunina með höndum og höfð er hliðsjón af því, hve mikil útþennsla vill yfirleitt verða í starfsmannahaldi rik- isins og stofnana þess. Við þetta bætist svo, að búast má við lakari innkaupum, þegar einn aðili hefir þau al veg með höndum og öll sam keppni er úr sögunni. For- ráðamenn slikrar stofnunar hafa ekkert slíkt aðhald, sem samkeppnin er. Litlar líkur eru til, að landsverzlun myndi útrýma spillingu og svörtum markaði, heldur gæti hvort- tveggja blómstrað f skjóli hennar í stærri stíl en nokkru sinni fyrr. Má í því sambandi hafa í huga margvíslega mis- beitingu á ríkisvaldinu hjá stofnunum, sem minna hafa | átt undir sér en einvöld rík- iseinokun. Það er líka skemmst af þvf að segja/að erlendir jafn aðarmannaflokkar telja þjóð nýtingu verzlunarinnar þá þjóðnýtingu, er seinast komi til greina vegrna þess, hve hún sé torveld og áhættu- söm i framkvæmd. Þar sem jafnaðarmannaflokkar hafa hafa farið með völd og haft hreinan þingmeirihluta, eins og í Noregi og Bretlandi, hafa þeir því hvorki hreyft hönd né fót til að þjóðnýta verzlunina, heldur þvert á móti unnið að því að auka frjálsræði hennar. T. d. hef- ir brezka jafnaðarmánna- stjórnin unnið að því að leggja niður þá innkaupa- starfsemi ríkisins, sem hafði verií tekin upp á stríðsárun- um. Má f þvf sambandi minna á það, að brezka ríkið er nú hætt að kaupa frystan fisk og lætur einstaklingum það eftir að annast alveg þessa verzlun. Ástæðan var sú, að þessi starfsemi ríkis- (Tramhald d 7. stðu.)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.