Tíminn - 28.06.1950, Page 2

Tíminn - 28.06.1950, Page 2
2 TÍMINN, miðvikudaginn 28. júní 1950. — 138 blað Jjtá hafi til heiia 1 nótt. Næturlæknir er í lækna- varðstofunni, sími 5030. Næturvörður er i Lyfjabúð- inna Iðunn, sími 7911 Hvar eru skipin? Sambandsskip. Arnarfell kom til Sölves- bcrgar í gær. Hvassafell kom tii Reyðarfjarðar í morgun. Rikisskip. Hekla er í Glasgow og fer þaðan annað kv*id áleiðis til Reykjavíkiir. Esja fer frá Reykjavík í kvöld austur um iand til Siglufjarðar. Herðu- breið fer frá Reykjavík í kvcld til Breiðafjarðar og Vestfjarða. Skjaldbreið fór frá Akureyri í gær vestur um land til Reykjavíkur. Þyrili er í Reykjavík. Ármann átti að fara frá Reykjavík í gær- k-völd til Vestmannaeyja. Eimskip. Brúarfoss fór frá Hull í gær til Reykjavíkur. Dettifoss er á Siglufirði. Fjallfoss fór frá Reykjavík 25. júní til Svíþjóð ar. Goðafoss fór frá Leith 25. júni til Reykjavíkur. Gullfoss fór frá Leith 26. júní til Reykjavíkur. Lagarfoss er á Vestfjörðum. Selfoss er vænt anlegur til Seyðisfjarðar í dag frá Halmstad. Tröllafoss er í New York. Vatnajökull er í Reykjavik. Flugferbir Á bæjarráðsfundi s.l. föstudag gerðist þetta m. a.: Lögð fram tilkynning um ályktun áfengisvarnarnefnd- ar kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði, þess efnis, að bannað verði að selja börn- um innan 14 ára aldurs gos- drykki og sígarettur. Bæjarráð samþykkti til- lcgu lögreglustjóra í bréfi, dags. 20. þ. m., um að ákveð- inn verði einstefnuakstur um Traðarkotssund, frá suðri til norðurs og um Haðarstíg, frá norðri til suðurs. Ennfremur að bifreiðastöður verði bann aðar á þessum götum. Lögreglustjóri og umferða- nefnd leggja til að ákveðinn verði einstefnuakstur um Norðvírstíg, frá Vesturgötu að Tryggvagötu. Bæjarráð felur bæjarverk- fræðingi þessar framkvæmd- ir um gatnagerð. eftir því sem efni leyfir og fé verður fyrir hendi: Holtavegur, holræsi. Hring braut frá Njarðargötu austur fyrir Liljugötu. Hverfisgata (Lækjarg.—Klapp.), hellu- lögn. Ingólfsstræti (Hverfisg. —Lindarg.) hellulcgn. Kola- sund. Laugavegur (Barónst. —Snorrabr.), hellulögn. Rauð arárlækur, útrás. Lækjargata (Bank.—Hverfisg.). Htkreitit TitnahH /tuglýAit í TírnaHUHi Kórca (Framhald af 1. síðu.) Aðalstöðvar hersins hafa þó verið fluttar til borgar sunn- ar í landinu. í fyrrakvöld var stjórnin að búast til brott- j ferðar, en þá hófst sókn Suð- ur-Kóreumanna og hætti hiin þá við förina. Þing Suður-Kóreu hefir skorað á allar frjálsar þjóð- ir að veita Kóreu hernaðar- hjálp til' að hrinda árásinni og verja frelsi sitt. t jjfl i Þungar sprengjuflugvélar ! til Malaja. ! Stjórn Ástralíu hefir ákveð ið að senda aukinn herstyrk til Malaja og í gær fóru nokkrar þungar sprengjuflug vélar frá Ástralíu til Malaja. Alvarlegt ástand. ! Á þingum flestra landa í j Vestur-Evrópu lásu forsætjs- ráðherrar upp yfirlýsingu Trumans í gær. Halvard Lange, utanríkisráðherra Nor J egs lét svo ummælt í norska ! þinginu í gær, að atburðir ; þeir, sem nú væru að gerast í Kóreu væru alvarlegri og iskyggilegri en állt annað, sem gerzt hefði síðan styrj- öldinni lauk. Þótt þeir væru fjarlægir Norðurlöndum, færi ekki hjá þvi, að þeir mundu hafa margvíslegar illar afleð ingar fyrir þau og trufla það samstarf og fyrirætlanir, sem þegar hefðu verið gerðar. Loftleiðir. í gær var flogið til Akur- eyrar, Vestmannaeyja, ísa- fjarðar, Flateyrar, Þingeyrar, Bíldudals og Patreksfjarðar. í dag er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja kl. 13,30. til Akureyrar kl. 15,30. Auk þess til ísafjarðar og Siglu- fjarðar. Á morgun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja, Ak ureyrar, ísafjarðar og Pat-1 reksfjarðar. Geysir fór í gærmorgun kl. 9,00 til Gautaborgar og Kaup mannahafnar með 30 far- þega. Vélin er væntanleg aft ur til Reykjavíkur kl. 16,00 í dag. Meðal farþega er danski K.F.U.M. knattspyrnuflokk-, urinn. Úr ýmsurn áttum Á hátíðarmóti, sem haldið var í Mountain i Norður-Dakóta, föstudaginn 16. júní, flutti dr. Richard Beck vararæðismaður íslands kveðju íslenzku ríkisstjórnar innar. Var honum falið að flytja rikisstjórninni og ís- ]enzku þjóðinni kveðjur og heillaóskir íslendinga í Norð ur-Dakóta og annarra gesta á hátíðinni, m. a. frá síra Philip M. Péturssyni frá Winnipeg, forseta Þjóðræknjs félagsins, en hann flutti einn ig ávarp á hátíðinni. Reykjavik, 27. júní 1950 Utanríkisráðuneytið. -Jf örnum vec^i - Sjórinn og tómstundirnar Það er svo í okkar þjóðfé- lagi, að helgidagar eru marg- ir, og mikill fjöldi fólks nýt- ur ríflegra tómstunda um hverja helgi að sumarlagi. En til þess að þessar tómstundir verði til blessunar, þarf að nota þær réttilega. Margir verja þeim líka til marghátt- aðra starfa, útivistar, ferða- laga og fjallgöngu. Þeim er slíkt iðka, er sannarlega borgið. En svo eru aðrir, sem meira þarf að leggja upp i hend- urnar á. Og snúum okkur að höfuðborginni okkar. Eins og við öll vitum eru megin- skemmtiatriði fólks hér að fara í kvikmyndahús eða í kaffihús eða á dansleiki. Þvi miður er meginþorri þeirra kvikmynda, sem hér eru sýnd ar lítt menntandi. og margar þeirra eru þess eðlis, að þær eru beinlínis forheimskandi og afmenntandi. Dansleikir eru góðir í hófi, en kaffihúsa- lifið heldur innantómt og öm- urlegt. Hér þarf meiri til- breytni og betri aðstcðu til þess að nota tómstundir á skynsamlegan og þroskandi hátt. Þegar það hefir borið við, að fólki hefir verið gefinn kostur á að sigla hérna um sundin og -skoða umhverfi Reykjavíkur af sjó, hefir eft- irsókn verið gífurleg. Aðstaða til slikra ferða væri ofurlítið spor í rétta átt. Það er vekj- andi, að kynnast átthögum sínum, og það getur orðið upp haf ýmsra nytsamlegra hluta. En svo er annað: Hvers vegna er fólki ekki gefinn kostur á sjóferð út á Svið, eða hvar nú fiskimiðin eru, svo að menn geti legið þar á skaki í fáeina klukutima, þeg ar fiskigöngur eru. Eg er viss um, að slíkar ferðir eru vin- sælar, ef þeirra væri kostur. Marga myndi fýsa að fara slíka veiðiferð. Það myndi áreiðanlega ekki skorta þátt- { takendur, ef ferðir væru vel auglýstar, og sæmilega greitt fyrir fólki að njóta þeirra. | Sú var tíð, að flestir með þessari þjóð höfðu einhvern- tíma dregið fisk á færi. Það mættu fleiri njóta hressandi sjávargolunnar og reyna og æfa fiskni sína úti í miðun- um en nú er títt. Vill ekki einhver aðili gangast í því, að slíkar veiðiferðir verði teknar upp og almenningi gefinn kostur á þátttöku? J. H. L m r 9 Allir út á völl! Spennandi keppni! K.F.U.M. Boldklub - - Valur keppa í kvöld kl. 8,30 stundvíslega. Komið og sjáið skemmtilegan leik. ALVARLEG ÁMINNING Þeir kaupendur, er enn skulda síðasta ár- gang eru mjög alvarlega áminntir um að greiða þegar blaðgjaldið. FRAMVEGIS VERÐUR BLAÐIÐ EKKI SENT TIL SKULDUGRA KAUPENDA. INNHEIMTA TÍMANS ! Hafnfirðingar! ÚTSVARSSKRÁ 1950 Skrá yfir niðurjöfmm útsvara í Hafnarfjarðarkaup- tað fyrir árið 1950, liggur frammi almenningi til sýn- is á Vinnumiðlunarskrifstofu Hafnarfjarðar, Vestur- götu 6, frá föstudegi 30. júní til fimmtudagsins 13. júlí n. k., kl. 10—12 og 16—19, nema á laugardögum þá að- eins kl. 10—12. Kærufrestur er til föstudagskvölds 14. júlí kl. 24, og skulu kærur yfir útsvörum sendar bæjarstjóra fyrir þann tíma. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, 27. júní 1950, Helgi Hannesson. Munið gjalddagann l.júlí! Blaðgjöld utan Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar eru sem hér segir: Mjólkursvæði Reykjavíkur og á Akureyri kr. 115.00 ár- gangurinn. — Annars staðar á landinu kr. 90.00— árgangurinn. INNHEIMTA TÍMANS Frestið ekki lengur, að gerast áskrifendur TÍMANS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.