Tíminn - 01.07.1950, Blaðsíða 1
Ritstjóri: |
Þórarinn Þórarinsson 1
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn i
iianiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiit
| Skrifstofur t Edduhúsinu §
Fréttasímar:
S1302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
íiiiiiiiimiiiiiimiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiitiiiiii
34. árg.
Reykjavík, laugardaginn 1. júlí 1950
141. blað
Samvinnufélög Norðurlanda í
stöðugum og öruggum vexti
„Vöxtnr sanivinnustefiiunnar byggist á
þekkingn fólksins á starfscmi samvinnu-
félaganna. Styrkur stefnunnar er hiö
sanna lýðræði «g' frjálst val þjóðanna á
verzluiiarháttifm** seg'ir forstjóri (K. F.)
sanihands sænsku sainviniiufélaganna
Alhin Joiiansson
Fyrsta aðalfundi „Nordisk Andelsforbund“ á íslandi er
nýlokið, en Samband íslenzkra samvinnufélaga gerðist með-
limur þess árið 1949. Á fundinum sátu eftirtaldir stjórnar-
meðlimir: Albin Jóhansson, formaður, aðalforstjóri K.F. í
Svíþjóð, Frcdrik Nielsen, forstjóri Nordisk Andelsforbund
og aðalforstjóri F.D.B. í Danmörku, P. A. Viding, aðalfor-
stjóri S.O.K. í Finnlandi Sverre Nielssen, aðalforstjóri N.K.L.
í Noregi, Julius Alanen, aðalforstjóri O.T.K. í Finnlandi og
Vilhjálmur Þór, aðalforstjóri S.Í.S. á íslandi.
\
Albin Johansson, formaður
Nordisk Andelsforbund og að-
alforstjóri K.F. I Svíþjóð.
Sátu stjórnarmeðlimirnir,
að undanteknum J. Alanen og
S. Nielssen fund með blaða-
mönnum í gær. Albin Johns-
son sagði í fáum dráttum frá
starfsemi samvinnufélaganna
í Svíþjóð. Gat hann þess að
starfsemi þeirra hefði auk-
ist og væru nú um ein og hálf
milljón heimila innan vé-
banda samvinnufélaganna
þar. Sala framleiðsluvara fé-
laganna nam 800 þúsund
krónum (sænskum) en sala
allra félaganna bæði af fram
leiðsluvöru og vöru til neyt-
enda nam alls einum og hálf-
um miljarð króna.
Lýðræðisgrundvöllur.
Jóhansson gat þess, að sam
vinnufélögin sænsku fylgdu
ekki neinum sérstökum
stjórnmálaflokki að málum
og væru meðlimir félaganna
í liinum ýmsu flokkum. Lagði
hann áherzlu á nauðsyn
frjálsrar verzlunar og afnám
toilmúra og sagði að án
frjálsrar verzlunar gætum
við ekki notið hinna góðu lífs
Alhirti tún sitt um
síðnstu helgi
Frá fréttaritara Timans
í Vik í Mýrdal.
Um síðustu helgi lauk
fyrsti bóndinn í Mýrdal við
að slá tún og hirða töðu sína.
Það var Sigursveinn Sveins-
son á Fossí.
Flest allir hér um slóðir,
eru byrjaðir að slá, en sumir
búnir að slá talsvert.
Tiðarfar hefir verið mjög
gott, en upp á síðkastið hef-
ir sprettan verið hæg vegna
langvarandi þurrka.
Vel lítur út um sprettu í
kartöflugörðum, og var sett
rneð meira móti af kartöflum
niður í vor.
kjara, sem við nú geru.n.
Benti hann á, að samvinnu-
stefnan grundvallaðist á lýð-
ra:ðishugsjóninni, en gat þess
um leið að stærsti samvinnu-
félagsskapurinn væri senni-
lega i Tékkóslóvakíu, en þar
væri það ríkið sem skipaði
samvinnurekstur. ',,Vlð ósk-
um ekki eftir slíku fyrit-
komulagi. Við viljum hafa
rétt til að velja og hafna“,
sagði Jóhansson.
Þrír fjórðu Finna
samvinnumenn.
Viding aðalforstjóri S.O.K. i
Finnlandi sagði að nærri %
þjóðarinnar væri í samvinnu
félögum. S.O.K. hefir um
4000 verzlanir innan vébanda
sinna og eru 374 félög í sam-
bandinu. Vörusala hefir auk-
izt mjög undanfarin ár og
seldust framleiðsluvörur fé-
lagsins fyrir 5 milljarða
marka 1949 en vöruvelta með
al allra félaganna nam alls
40 milljörðum marka.
/
Aukin sala í Danmörku.
Frederik Nielsen forstjóri
Nordisk Andelsforbund lét í
ljós ánægju sína yfir þvi, að
S.Í.S. skuli vera gengið i sam
bandið. Sagði hann, að í Dan-
mörku væri e:nnig um mikla
aukningu á starfsemi sam-
vinnufélaganna að ræða. T.
d. gat liann þess að árið 1948
seldust afurðir félaganna fyr
ir 4 milljónir króna (dk) en
1949 fyrir 5 milljónir. Er
þessi gífurlega aukning aðal-
legá vegna aukinnar sölu á
landbúnaðarafurðum.
Metsöluár I Noregi.
. Innan N.K.L. eru 1124 kaup
félög með um 270.000 félags-
menn. — Heildarsala N.K.L.
(heildsala) var N.kr. 112
millj. Smásala kaupfélag-
anna innan N.K.L. var um
525 milljónir n.kr. — Árið
var metsöluár bæði hjá N.K.
(Framhald á 2. slðu.)
Kona hans er með honum á
myndinni.
Hreppsnefndar-
kosningar
Við hreppsnefndarkosn-
ingarnar i Hvammshreppi í
Vestur-Skaptafellssýslu (Vík
í Mýrdal og umhverfi) hlutu
kosningu Oddur Sigurbergs-
son kaupfélagsstjóri, Guðlaug
ur Jónsson afgreiðslumaður í
Vik, Guðmundur Guðmunds-
son skósmiður í Vik, Jón Þor-
steinsson sýsluskrifari i Norð
ur-Vík og Kjartan Leifur
Markússon bóndi í Suður-
Hvammi. — Oddur Sigur-
bergsson kaupfélagsstjóri er
nú oddviti sveitarfélagsins.
— Jón Þorsteinsson var kos-
inn sýslunefndarmaður.
í AUstur-Eyjafjallahreppi í
Rangárvallasýslu voru kosnir
Jón Hjörleifsson oddviti i
Skarðshlíð, Sigurjón Þorvalds
son bóndi í Núpakoti, Sigur-
bergur Magnússon bóndi á
Steinum, Kort Ingvarsson
bóndi á Klömbrum og Árni
Jónasson bóndi í Ytri-Skóg-
um. — Sýslunefndarmaður
var kosinn Gissur Gissurar-
son i Selkoti
Valdimar Björns-
syai haldið kveðju-
samsæti
Þjóðræknisfélágið heldur
Valdimar Björnsson frá
Minneapolis og konu kveðju-
samsæti i Tjarnarkaffi á
mánudagskvöldið, og hefst
það klukkan hálf-níu.
Valdimar og kona hans
hafa dvalið hér á landi stutt-
an tíma, en munu fara aft-
ur í næstu viku.
Síldarlegt fyrir Norðurlandi:
Fagriklettur fékk 800
mál við Grímsey
Fanney fékk 300 t. við Langanes. Vinna
hefst við Sílclarverksmiðjiir á Siginfirði
Síldveiðarnar fyrir Norðurlandi byrja vel. Fyrstu fregn-
irnar um síldveiði eru þær, að þau tvö skip, sem byrjuð eru
veiðar, hafa bæði fengið góða veiði. Síldin er stór og feit
og full af rauðátu. Sjómenn eru bjartsýnir og telja góðar
veiðihorfur, betri en verið hafa í byrjun vertíðar undan-
farin ár. Vonandi er að þær vonir bregðist ekki að þessu
sinni.
Fyrsta síldveiðin.
í gær voru aðeins tvö skip
byrjuð síldveiðar fyrir Norð-
urlandi af íslenzkum skipum,
Fagriklettur frá Hafnarfirði
og Fanney frá Reykjavík.
Fengu bæði skipin góða veiði
í fyrradag og lcgðu aftur út
á veiðar síðdegis í gær.
Fagriklettur fékk sína veiði
við Grímsey. Veiddust fyrst
400 tunnur en síðar um kvöld
ið komst veiðin upp í 800 mál.
Síldin var stór og feit og full
af rauðátu og var haldið með
aflann til Eyjafjarðar, þar
sem mestur hluti hans var
frystur til beitu.
Fanney veiddi um 300 tunn
ur við Langanes einnig í
fyrrakvöld. Sú síld var eins
og sú sem Fagriklettur fékk
full af rauðátu, feit og stór.
Góðar veiðihorfur. •
Sjómenn telja það vita á
gott að skipin skyldu bæði fá
svona góða veiði sitt á hvor-
um stað og það að rauðáta
var mikil í síldinni gefur líka
góðar vonir, hvað sem verða
kann um áframhaldandi
veiði. Síldin er fyrir löngu
Húnvetnsku konurn-
ar farnar heim
Hnnvetnlngafélagið
kvaddi þær með sam
sarti í fyrrakvöld
Húnvetnsku húsfreyjumar,
sem verið hafa á ferðalagi
hér sunnanlands undanfarna
daga, héldu heimleiðis sið-
degis í gær. í fyrrakvöld hélt
Húnvetningafélagið I Reykja
vík þeim samsæti í Tjarnar-
kaffi. Þar voru margar ræður
fluttar undir . borðum, lesið
kvæði og sungið. Einni?; sýndi
Baldvin Þ. Kristjánsson þar
kvikmynd við mikla hrifn-
ingu. Var siðan setið og rabb
að saman fram yfir miðnætti
og sótti hófið alls um 80
manns. Konurnar eru um 30
í íörinni. Láta þær hið bezta
yfir ferðinni og segja að sól-
skinið hafi elt sig dag hvern.
orðin þekkt að því að vera
óútreiknanlegastur allra fiska
sem veiðast við íslandsstrend
ur.
Útlend veiðiskip fyrir
Norðurlandi.
Byrjað er að sjást til út-
lendra veiðiskipa fyrir Norð-
urlandi. Fyrir tveimur dög-
um kom finnskt síldveiðiskip
til Siglufjarðar og í gær sást
til rússnesks síldveiðiflota út
af Melrakkasléttu. En áður
hefir sést til annarra rúss-
neskra veiðiskipa. Annars
munu útlendu skipin yfirleitt
ekki vera komin á miðin enn
þá.
íslenzku skipin hraða
sér til veiða.
Þegar fregnirnar bárust
sjómönnum um fyrstu síld-
veiðarnar við Grímsey og
Langanes var víða farið að
hraða för báta til Norður-
landsins. Bátar frá Siglufirði
sem áttu að fara í slipp verða
nú strax sendir út til veiða
í dag og Reykjavíkurbátarnir
sumir hverjir fara fyrr norð
ur, en gert var ráð fyrir. Sama
er að segja um báta frá öðr-
um verstöðvum við Faxa-
flóa.
Fyrstu Vestmannaeyjabát-
arnir eru þegar lagðir af stað
norður, þar á meðal Skaft-
fellingur og Helgi Helgason.
sem báðir munu hefja veið-
ar nú um helgina.
Vinna hefst í verk-
smiðjunum í dag.
Samningar hafa nú tekizt
(Framhald á 2. siðu.)
Hækkun á mjólk
vegna dreifingar-
kostnaðar
Mjólk mun nú hækka í
verði um 10 aura literinn eða
4,5% og stafar hækkun þessi
aí auknum flutnings- og
dreifingarkostnaði en ekki
auknum framleiðslukostnaði.
Tilsvarandi hækkun á aðrar
mjólkurvörur mun einnig
eiga sér stað.