Tíminn - 30.07.1950, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.07.1950, Blaðsíða 1
r————------- Skrifstofur i Edduhúsinu Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda 34. árg. Reykjavík, sunnudaginn 30. júlí 1950 164. blað Þoka hamlar enn síldveiðum Um 6 |nVs. mál bámst til Raufarhafnar í fyrrinótt í fyrradag var allgóð síld- veiði, eins og skýrt var frá j í blaðinu í gær. En í gær- morgun gerði aftur þoku á miðunum, auk þess sem tals- verður stormur var úti fyrir. Um 20 skip höfðu komið til Raufarhafnar um hádegi í gær frá því kvöldið áður. Voru þau með allmikinn afla, sam- tals um sex þúsund mál. Til Siglufjarðar komu í gær tvö skip með um 500 mál hvort. Voru það Bjarni Ólafs son frá Akranesi og Guð- mundur Þórðarson úr Garð- inum. Nokkuð af síldinni átti að salta, en afgangurinn verð ur látinn í bræðslu. Vatnsveita á Hofs- ósi langt komin En verkið stöðvast í ágúst | Sumarleyfin standa nú sem hæst. Hér sést ung stúlka, sem notar leyfið sitt til þess að teikna það, sem fyrir augun ber.1 Prá fréttaritara Tímans á Hofsósi. Um þessar mundir er ver- ið að gera vatnsveitu hér á Hofsósi. Er vatnið tekið úr fjallinu ofan við kauptúnið og er leiðslan um hálfur fjórði kílómetri á lengd. Á miðri leið er 14 metra hár turn, og er hann bæði til vatnsmiðlunar og til þess að auka þrýstinginn. Vatnsveita þessi mun kosta um sex hundruð þúsund kr., og á hún að nægja Hofsósi um fyrirsjáanlega framtíð. Áður var ekki sameiginleg vatnsveita á Hofsósi, en vatn aðeins leitt í einstök hús. Nú er verið að leggja að- færsluæðina, og mun því verða lokið um miðjan ágúst- mánuð. En þá stöðvast verkið, því að fjárhagsráð hefir neit- að um fjárfestingarleyfi fyr- ir innanbæjarkerfinu. Vatnsveitan mun því ekki koma Hofsósi að neinum not- um fyrr en í fyrsta lagi seint á næsta sumri, ef íjárfest- ingarleyfi fæst það árið, enda þótt nú sé búið að vinna um tvo þriðju verksins og leggja fram fé í samræmi við það. Bryggjan í Hval- firði laskast Bryggjan undir Þyrilsklifi í Hvalfirði laskaðist í síðastlið- inni viku, er einn af tundur- spillunum amerísku, er hing- að komu, lagðist að henni. — Brotnuðu fáeinir staurar. Úþurrkar tefja saltfisk- verkun á Austfjörðum Unnið að vegagerð við Bcrnfjörð Frá Djúpavogi stunda þrír opnir bátar handfæraveiðar í sumar, en tveir stærri bátar stunda veiðar með dragnót. , Unnið er að vegagerð frá Djúpavogi til Beruf jarðarbotns, og' er gert ráð fyrir að Djúpivogur verði kominn í samband við ' sðaiakvegakerfi landsins á næsta sumri. Tíðindamaður Tímans hefir átt tai við Þorstein Sveinsson kaupfélags- stjóra á Djúpavogi og spurt hann frétta að austan. Sæmilegur afli á handfæri. í sumar stunda þrír opnir vélbátar handfæraveiðar í firðinum, og hafa þeir aflað sæmilega. Eru 1—3 menn á I bát. Þykir gott, ef maðurinn | aflar skippund á dag, enda er aflinn oft minni en sem því nemur. I Handfærafiskurinn er allur saltaður, og gera fiskimenn- irnir það sjálfir. Þorskur er enginn frystur í frystihúsi, J og var allur aflinn í fyrravet- ur, að heita mátti, saltaður. l Óþurrkar tefja saltfiskverkun. Saltfiskafli Djúpavogsbát- anna síðastliðinn vetur nam samtals um 2000 skippundum. Er um það bil helmingur afl- ' ans farinn til útlanda, en ' hitt er eftir enn þá. Hefir ver- | ið unnið að fiskverkun, eftir því sem hægt hefir verið í sumar, vegna veðurs. Stöðugir óþurrkar hafa tafið verkun i fisksins, og er mikill fiskur enn óþurrkaður, þó að búið sé að þvo um 300 skippund af því fiskmagni, sem eftir er af vertíðaraflanum á Djúpa- vogi. Steinbítur og koli frystnr fyrir Ameríkumarkað. Þeir tveir bátar, sem nú stunda veiðar með dragnót, hafa aflað heldur illa að und- anförnu. Afla þeir aðallega í svokallaðri Lónsbugt, út af Papey. Afli dragnótabátanna, sem er aðallega koli og stein- bítur, er frystur fyrir Ame- rikumarkað. En miklar vonir éru bundnar við markað þar fyrir þessar fisktegundir hrað frystar. Unnið að vegagerð. í sumar er unnið að því að koma Djúpavogi í samband við akvegakerfi landsins. Var i fyrra unnið allmikið að (Framhald á 2. síðu.) Sumir beztu skákmennirnir ekki meðal jjátttakenda í landsliðskcppni í fyrrakvöld annn Baldnr, Vesíö! og Julius Viclsen Norræna skákmótið 1950 hófst í fyrrakvöld hér í Rcykja- vík, og var teflt í þjóðminjasafnshúsinu nýja. Árni Snæ- varr, forseti Norræna skáksambandsins, setti mótið og bauð hina erlendu skákmenn velkomna, en þeir eru 15. Keppend- ur í mótinu eru 40 og er teflt í 4 flokkum, landsliðsflokki, meistaraflokki og 1. fiokki, en hann er tvískiptur. Finnarnir komu ekki. Það urðu mikil vonbrigði þegar fréttist, að finnsku skákmennirnir, sem ætluðu að taka þátt í mótinu komu ekki, en meðal þeirra var stórmeistarinn Böök. Áður hafði Svíinn Stolz, sem er einn bezti skákmaður þeirra. hætt við þátttöku í mótinu. Þar sem þessir menn mættu ekki til leiks, urðu mikiar breytingar á flokkunum frá því, sem upphaflega hafði ver ið ákveðið. Eggert Gilfer og Daninn P. Nielsen, sem áttu að tefla í meistaraflokki færð ust upp i landsliðsflokkinn. Landsliðskeppnin. í fyrstu umferð, sem tefld var í fyrradag, eins og áður segir, tefldi Baldur Möller, en hann er núverandi Norður- landaskákmeistari, við Eggert Gilfer. Skák þeirra var mjög flókin til að byrja með. Bald- ur náði yfirburðastöðu í mið- taflinu og gaf Gilfer eftir 40 leiki. Sviinn Sundberg tefldi við Norðmanninn Vestöl. Sundberg hafði hvítt og náði mikilli sókn, en lék af sér manni og gafst upp. Danirn- ir Julius Nielsen og Palle Ni- elsen tefldu saman. Skák þeirra var fjörlítil. Julius náði yfirburðastöðum, vann hrók og gaf hinn skákina litlu síðar. Guðjón M. Sigurðsson tefldi við Norðmanninn Her- seth.Skák þeirra var skemmti legasta skákin í umferðinni. Herseth var með hvítt og * Ogæftir og afla- tregða í Vopnaf. Um síðastliðin mánaðamót var dágóður afli á Vopnafirði, og upp úr því gerði tíðar ó- gæftir, og dró þá jafnframt úr afla. Er í Vopnafirði einn stór bátur og allmargir smærri, og hafa þeir aflað illa þennan mánuð allan, þótt gefið hafi á sjó. Síldarskip hafa komið inn á Vopnafjörð, og hafa þau orðið síldar vör í firðinum norðanverðum. Enn hafa þau ekki aflað neitt teljandi vegna storms og ókyrrðar á sjó. náði nokkurri sókn upp úr byrjuninni. Guðjón varðist vel, og þegar skákin fór i bið, var staðan mjög lík og senni- legt er að jafntefli verði. Guðmundur Ágústsson tefldi við Svíann Kinnmark. Skák- in var allflókin, en þegar hún fór í bið, var staðan mjög svipuð — fimm peö og drottning hjá báðum. Meistaraflokkur. Úrslit í meistaraflokki urðu þau, að Lethinen, Finnl., vann Sturlu Pétursson. Svíinn Ni- hlén vann Jón Þorsteinsson, en Friðrik Ólafsson og Bjarni Magnússon — Axel Pétursson og Lárus Johnsen gerðu jafn- tefli. Slcák V. Rasmussen, Danmörk, og Jóhanns Snorra sonar var biðskák. í fyrsta flokki fóru flestar skákirnar í bið. Flokknum er tvískipt og keppa þar 6 erlendir skák menn. Það er þó helzt til tíð- inda í fyrstu umferð, að Þór- ir Ólafsson vann Jakob Lund, Noregi. 2. umferð fór fram í gærkvöldi, en engri skák var lokið, þegar blaðið fór í prent un, en þá tefldu saman í landsliðsflokknum Gilfer og (Framhald á 2. síðu.) Nýr bæjarfógeti í Eyjnm Forseti íslands veitti í fyrra dag Torfa Jóhannssyni verð- lagsstjóra bæjarfógetaemb- ættið í Vestmannaeyjum frá 1. ágúst að telja. Sumarhátíð Fram- sóknarmanna að Reykjaskóla Sunnudaginn 6. ágúst verður sumarhátíð Fram- sóknarmanna að Reykja- skóla í Hrútafirði. Verða þar ræðuhöld, söngur og dans. Vafalaust verður fjöl- mennt á þessari sumarhá- tíð, eins og venjulega, er Framsóknarmenn halda sumarhátíðir sínar við Reykjaskóla.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.