Tíminn - 03.08.1950, Qupperneq 1
Ritstjóri:
Þ&rarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusimi 2323
Auglýsingasími 81300 \
Prentsmiðjan Edda
34. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 3. ágúst 1950
167. blað
Lögreglukórinn, sem fór til Stokkhólms: Fremri röS frá
vinstri til hægri: Kjartan Bjarnason, Matthías Guðmunds
son, Matthías Sveinbjörnsson, Friðjón Þórðarson farar
stjóri, Páll Kr. Pálsson söngstjóri, Guðbjörn ílansson,
Ásmundur Matthíasson, Elís Hannesson. — Efri röð: Krist
inn Óskarsson, Garðar Guðmundsson, Gunnar Einarsson,
Kristján Jóhannesson, Ingólfur Sveinsson, Bogi Bjarnason,
Páll Eiríksson fánaberi, Þorleifur Jónsson og Magnús
Aðalsteinsson.
íslenzki lögreglukórinn
hlaut góða dóma ytra
Lögreglukórinn úr Reykjavík, er fór til Stokkhólm á mót
norrænna lögreglukóra, kom heim á sunnudagskvöldið, eft-
ir rösklega viku fjarveru. Friðjón Þórðarson, fulltrúi lög-
reglustjóra, var fararstjóri og skýrði hann Tímanum í gær
i stuttu máli frá ferðalaginu. — Var þetta í fyrsta skipti
að íslenzk lögreglusveit kom fram erlendis.
Afla togaranna mætti full-
nýta, hefðu þeir gúanóvélar
laeíí !i»i veiði í Hvítahafiiiii við Giiðmtind
Pétarssoii stýrimaim a Goðanesi'Síi
Átta eða níu íslenzkir togarar fóru á veiðar til Hvílahafs
i vor og eru þeir nú allir komnir nema Keflvíkingur, sem
enn mun vera þar að veiðum. Flestir togaranna munu hafa
verið’ mánuð í túrnum. Reyndist afli allsæmilegur, og komu
ogararnir með um 239 til 280 lestir af fiski.
Felix Guðmundsson
andaður
. .. ... i
Felix Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri kirkjugarðanna
i Reykjavík, andaðist í Land-
spítalanum í fyrrakvöld, 66
ára að aldri.
Felix var ættaður úr Holt-
um í Rangarþingi, fæddur að
Ægissíðu, sonur Guðnýjar
Jónsdóttur og Guðmundur
Felixsonar.
Felix gegndi fjöldamörgum
trúnaðarstörfum um dagana
og stóð um langt skeið fram
arlega í Alþýðuflokknum og
var þar ótrauður liðsmaður.
Hann var og einlægur bind-
indismaður og tók mikinn
þátt í starfi góðtemplara, og
margvísleg mannúðarmál lét
hann til sín taka. Með hon-
um er i valinn hninginn
drengur góður og vinsæll
maður.
Niðaþoka
við Sléttu
Glórulaus þoka var í gær á
sildarmiðunum norðaustan
land, en mjög lygnt.
Um þrjú þúsund mál
bræðslusíldar bárust til Rauf
arhafnarverksmiðjunnar síð-
asta sólarhring, og um fimm
hundruð tunnur til söltunar.
Von var á fleiri skipum
þangað í nótt, meðal annarra
Víði S.U. með 700 mál. —-
Sumt af þessari síld var veitt
á mánudaginn.
Rannsókn á þara-
gróðri við Breiða-
fjörð
Gerð af rannsóknar-
ráði ríkisins
Rannsóknarráð ríkisins
hefir í sumar látið vinna
að athugunum á þara-
gróðri við norðan verðan
Breiðafjörð með það fyrir
augum, hvort unnt muni
að efna þar til þaravinnslu
á jarðhitasvæðinu að Reyk
hólum í Reykhólasveit. Hef
ir Þorbjörn Sigurgeirsson
stjórnað þessum rann-
sóknum.
Innan skamms mun kaf
ari athuga þaragróðurinn
á þessum slóðum, og mæla,
hversu mikið sé af þara
á fermetra hverjum.
Þaravinnsla er sumstað-
ar erlcndis allmikil og arð
«öm starfsgrein. Eru unn-
ar úr þara sýrur í sápur,
krem og gerviefni og hlaup
til matargerðar.
Svíar lánuðu fargjaldið.
í förinni voru sextán lög-
reglumenn, en söngstjóri var
Páll Kr. Pálsson. Hafði flokk-
urin litla fyrirgreiðslu hlot-
ið hér heima, og engan gjald-
eyri fékk hann til fararinn-
ar. En Svíar lögðu mikla
áhei’zlu á, að íslenzkur lög-
reglukór sækti þetta mót. Var
flogið með íslenzkri vél til
Osló, en þaðan lánuðu Svíar
fargjaldið með járnbrautar-
1-est til Stokkhólms. En ís-
lenzk flugvél sótti höpinn til
Stokkhólms.
HIuiu góða dóma.
Mót þetta sóttu, auk Reykja
vikurkórsins, kórar frá Osló,
Helsingfors og Kaupmanna-
höfn og þrír sænskir kórar —
frá Stokkhólmi, Gautaborg
og Norrköping. Þegar lög-
reglustjóri Stokkhólmsborgar
bauð kórana velkomna,
minntist hann sérstaklega
íslenzka kórsins, er komið
hafði um svo langan veg við
mikla erfiðleika.
Frábærar móttökur.
Tvennir söngleikar voru
haldnir — á Skansins og í
ráðhúsinu. Daginn, sem sug
ið var í ráðhúsinu, var geng-
ið í fylkingu undir fánum frá
lögreglustöð Stokkhólmsborg
ar til ráðhússins.
Söngur íslenzka kórsins
hlaut hina beztu dóma, og var
þess sérstaklega getið, hversu
íslenzku tenórarnir væru
bjartir og fallegir. Birtust
greinar og myndir í mörgum
sænskum blöðum, þar á með-
al Svenska dagblaðinu, Dag-
ens Nyheter og Expressen.
Meðan dvalið var í Stokk-
hólmi var borgin skoðuð, og
meðal annars sátu lögreglu-
mennirnir boð sænska sam-
vinnusambandsins á Kvarn-
holmen. Má segja, að Svíar
hafi borið íslenzku lögreglu-
mennina á höndum sér þessa
daga.
í Osló var verið kyrrt fyrra
(Framhald á 2. síðu.)
• MIIIMIMIIMIIIIMIIIIIIIMHIIHIHIIMIIIIHIItllimmimillll
I Oysin var frá (
10. öld
j Dysin, sem fannst milli |
j Gilsárteigs og Brennistaða 1
j í Eiðaþinghá, hefir nú ver 1
j ið rannsökuð til hlítar. Að i
j því er Tíminn veit best var §
j hér um allmerkan forn- 1
j minjafund að ræða. Dysin j
j var frá tíundq öld.
j Ólafía Einarsdóttir forn i
j leifafræðingur, er gróf dys j
j ina upp og rannsakaði j
i fundinn, mun í dag skýra j
f blaðamönnum frá, hvað j
j þarna kom í dagsins ljós. i
•iiiiiiiiiiMiininiiiitimitiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiMiimmia
Vormánuðina er mikil
þorskveiði í Hvítahafinu, og
sækja þangað togarar frá svo
að segja öllum löndum Vest-
ur-Evrópu. Veiðisvæðið nær
yfir mörg þúsund ferkíló-
metra. Veðurfar er þar gott
á sumrin og oftast sjólítið.
Botninn er yfirleitt góður og
þess vegna lítið netaslit.
Mikill úrgangur
af fiski.
Guðmundur Pétursson, ann
ar stýrimaöur á Goðanesi,
segir svo frá: Við fórum fyrst
til Bjarnareyjar og toguðum
þar. Fiskur var þar smár og
líkur því, sem veiddist fyrir
Norðurlandi i vor. Fór allt að
því fjórði partur aflans í úr-
gang, og er ekki hægt að gera
annað en henda því, þar sem
við höfum ekki fiskimjöls-
verksmiðju í skipinu. Svipað
var um aflann í Hvítahafinu,
og urðum við að kasta miklu.
Hinir nýju erlendu togarar
geta hirt hvert bein, sem þeir
ná úr sjónum. Góðfiskinn
salta þeir, en setja hitt í
vinnsluvélar. Fer þarna mik-
ið verðmæti til ónýtis hjá
okkur.
12 stunda hvíld.
Vaktir voru fjórskiptar í
túrnum og gafst það mjög
vel. Aldrei þurfti að stöðva
veiði þótt samtímis væri unn
ið að því að umstafla fiskin-
um í skipinu. Tólf stunda
hvíld á togurum gefur áreið-
anlega betri afkomu, m. a.
vegna þess, að langtum minna
ber á veikindaforföllum, þeg
ar sjómennirnir fá næga
hvíld. Það er algengt að 3 til
4 af áhöfninni séu veikir mik
inn hluta ferðarinnar. og má
þar um kenna ofþreytu, þar
sem mótstöðuafl gegn sjúk-
dómum minnkar, þegar um
ofreynslu er að ræða.
Enginn gjaldeyrir.
í Honningsvaag í Noregi
tóku íslenzku togararnir olíu
og salt. Þykir sjómönnum
gott að stíga fæti á land eftir
langa útivist. En þó fór svo,
að mörgum íslenzka sjómann
inum varð það lítið gleðiefni
að koma þar i land, því að
enginn gjaldeyri var þeim
veittur. Vitað er, að á nokkr-
um skipum fengu þeir 30 kr.
norskar, en á flestum skipun
um fékkst ekkert.
í Honningsvaag var fót-
boltakeppni, er nokkur ís-
lenzk skip lágu þar inni, og
kostaði aðgangseyrir 2 krón-
ur. Gátu íslendingarnir ekki
keypt sig inn á leikinn, en
Norðmenn aumkvuðu sig yfir
þá og hleyptu þeim inn ó-
keypis. Þótti mörgum sjó-
manninum það hart aðgöngu
að vita til þess, að á sama
tíma, sem þeir fá ekki tvær
krónur til að kaupa sig inn á
kappleik eftir að hafa verið
margar vikur úti i sjó, eru
fleiri tugir íslendinga að
skemmta sér erlendis fyrir
þann gjaldeyrir, sem sjómenn
irnir hafa aflað.
LIFNAR YFIR
SIGLUFIRÐI
Saltað í allan gær-
dag á mörgEim
bryggjnm
f gær var talsvert af síld *
á Grímseyjarsundi, veður
var lygnt, en svartaþoka,
til mikils baga. Allmörg
skip munu þó hafa fengið
talsverðan afla.
Líf og fjör er nú að fær
ast í allt á Siglufirði,
og var síld söltuð í allan
gærdag á mörgum bryggj-
um. Um tíu skip komu til
Siglufjarðar í gær með 200
—500 tunnur síldar til.sölt
unar, og vitað var um all-
mörg fleiri skip, er voru á
leið til Siglufjarðar.
Aflahæst skipa þeirra,
er komin voru, voru Snæ-
fell og Víkingur frá Bolung
arvík með 500 tunnur
hvort.
Létti þokunni á miðun-
um má vænta mikillar
veiði á Grímseyjarsundi, að
talið er.
Er nú mikill hugur í
mönnum í Siglufirði eftir
síldarleysið í sumar, og
verður saltað af kappi, svo
lengi sem síld er til sölt-
unar.
-\