Tíminn - 16.08.1950, Qupperneq 1
I —
Ritstjóri:
Þórarínn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurínn
-------------------------~7
Skrifstofur i Edduhúsinu
Fréttasimar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
34. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 16. ágúst 1950
177. blað
Sjö votheysturnar hyggðir
í Borgarfirði í sumar
I»eir ©rsi steyptir Iiálfir í jörð, og' Jiarf ©kki
saxablásara til að koina boyimi í |>á
Á sambandssvæöi Búnaðarsambands Borgíirðing-a er ráð-
gert að reisa a. m. k. sjö votheysturna í sumar, og er bygg-
ingu fimm þeirra lokið. Tíðindamaður blaðsins hitti Hauk
Jörundsson, kennara á Hvanneyri, en hann hefir haft um-
sjón með byggingu turnanna
Turnarnir háifir í
jörð.
Turnar þessir eru byggðir
því sem næst hálfir í jörð,
sagði Haukur. Þeir eru sex
metrar á hæð og gerðir úr
mjög sterkri járnbentri stein
steypu. Þvermál þeirra er fjór
ir metrar og eiga þeir að geta
tekið um fimm kýrfóður. Þeir
eru steyptir í mót frá S.Í.S.
Þarf ekki saxblásara.
Höfuðkostur þessara turna
er sá, að ekki þarf saxblás-
ara til þess að koma heyinu
í þá. Saxblásarar eru dýrir,
kosta líklega um 10 þús kr.
Þar sem turnarnir eru hálfir
í jörð. verður meirihluti heys
ins í jörðu að vetri og frýs því
minna og má gera sér vonir
um minni skemmdir af þeim
sökum. Hæðin er heldur ekki
meiri en svo, að víðast má
koma fyrir skáborðum af hey
vögnunum upp í hliðarop
turnsins og draga heyið inn
af bifreiðum eða heyvögnum.
Hey mun verða sett í alla
þessa turna í Borgarfirði í
sumar.
Margir biðja um
turna.
Eins og fyrr segir er búið
að byggja fimm turna, verið
er að steypa hinn sjötta og
einn er eftir. Efni er ekki til
í fleiri turna, en fáist það,
sem enn er óvist, munu nokkr
ir fleiri verða steyptir í sum-
Agæt reknetaveiði
í Miðnes- og Grinda-
víkursjó
Undanfarna daga hefir ver
ið ágæt reknetaveiði hjá bát
um frá Faxaflóaverstöðvum í
MiÖnessjó og Grindavikur-
sjó. Hafa bátarnir fengið 100
—200 tunur eða 4—7 tunnur
i net. Beztur var afli hjá
Grindavíkurbátum í fyrrinótt
allt upp í 220 tunur. Kefla-
víkurbátar fengu 100—150
tunur. Þaðan stunda nú fjór
ir bátar reknetaveiðar.
Síldin er fryst að mestu
leyti, en frystihúsin hafa ekki
við og verður þvi að setja
sumt í bræðslu.
fyrir hönd sambandsins.
ar áður en mótin fara í aðra
landshluta. Margir hafa beð-
ið um slíka turna en líkur til
að þeir verði að bíða til næsta
sumars.
Turnar þeir, sem gerðir eru
í sumar, eru á þessum bæj-
um: Tveir á Hæli í Flókadal,
einn á Oddsstöðum í Skorra-
dal, einn á Indriðastöðum í
Lundar-Reykjadal, einn í
Ferjukoti og verið er að
steypa turn á Lambastöðum
en eftir að byggýa turn á
Litlu-Brekku.
Bálfarir fara í vöxt
hér á landi
Útfararkostnaður
lækkar að mun
Síðan bálstofan í Fossvogs
kirkjugarði tók til starfa 1947
hefir 71 lík verið brennt þar,
og fara bálfarir mjög í vöxt
meðal íslendinga. Þar sem bál
stofur hafa tekið til starfa er
lendis hefir tala þeirra sem
brendir eru ekki vaxið jafn
ört og hér á landi.
Um 70% allar jarðarfara i
Reykjavík fara fram frá Foss
vogskirkju, enda sjást nú
sjaldan likfylgdir á götum
bæjarins. Til dæmis má geta,
að í júlímánuði fóru fram 17
jarðarfarir frá Fossvogskirkju
en ekki nema 7 frá öllum kirkj
um bæjarins samanlagt.
Sú nýjung hefir verið tek-
in upp við jarðarfarir í Foss-
vogskirkju að öll útförin fer
fram í kirkjunni sjálfri og
þar er einnig rekunum kast-
að og losnar fólk við þau ó-
þægindi að standa við gröf-
ina úti i garðinum þegar vond
eru veður eins og oft er hér
að vetrarlagi.
Útfararkostnaður hefir
einnig lækkað og kostar út-
för, þegar um greftrun er að
ræða frá 1000 til 1300 kr. en
bálför kostar um 800 til 900
kr.
Fyrir sunnan kirkjuna er
verið að útbúa reiti þar sem
duftöskjum verður komið fvr
ir. Ef óskað er, fást þar reitir
sem eru 40X40 centimetrar
að stærð og ætlaðir eru fyrir
duftöskjur. Einföld plata með
nafni hins látna veröur svo
komið fyrir á leiðinu.
Bob Mathias varpaði kúlunni 13,77 metra á meistaramót-
inu, en það er langt undir hans eigin meti. Ef til vill dregur
kuldinn hér úr áragnrinum.
Brúnkolalögin á Skarðs-
strönd rannsökuð í ár
VórSnr uiiiit að hefja hrBÍnkolaviniislu?
Eins og kunnugt er eru á Skarðsströnd allmikil brún-
kolalög í jörðu. Hafa kol stundum verið tekin þar til elds-
neytis úr fjörunni, og á styrjaldarárunum voru unnar fjög-
ur hundruð lesta brúnkola úr námu í landi Skarðs á Skarðs-
strönd, og átta lestir í landi Tinda.
Tíðindamaður frá Tíman-
um átti i gær símtal við Krist
in bónda Indriðason á Skarði,
og sagði hann, að nú um
mánaðamótin hefðu menn
verið við boranir í Tindalandi
og er búið að bora eina 45
metra djúpa holu, en verið að
bora aðra. Fleiri holur er fyr
irhugað að bora.
Kolalögin 2—3 m. þykk.
Kolalögin á Skarðsströnd-
inni eru upp frá flæðarmál-
inu, og verður vitanlega þykk
ara jarðlagið ofan á þeim, er
dregur ofar. Á Skarði var kol
unum skipað út svo að segja
beint úr opi kolanámunnar,
þegar kolanám var stundað
þar á stríðsárunum.
Kolalögin munu á þessum
slóðum vera tveggja til
þriggja metra þykk, og rann-
sóknir hafa sýnt, að þetta eru
góð brúnkol.
Lokaþáttur rann-
sóknarinnar.
| Boranir þær, sem nú eru
framkvæmdar, eru lokaþátt-
ur í rannsókn á því, hvort
vinnandi vegur sé að hefja
þar kolanám á venjulegum
tímnum.
Félag, sem stofnað hefir
verið i þvi skyni, að hefja
þarna námuvinnslu, ef fært
þykir, stendur fyrir þessum
rannsóknum, og er Haraldur
Guðmundsson frá Háeyri
framkvæmdastjóri þess.
Nýtt dilkakjöt á
markað í dag
Sumarslátrun er nú haíin
og kom fyrsta dilkakjöt sum
arsins á markaðinn í morgun.
Slátrun hófst í Borgarnesi í
fyrradag en í gær hjá Slátur
félagi Suðurlands i Reykjavík.
Verð á hinu nýja dilkakjöti
hefir verið ákveðið fyrst um
sinn kr. 20,00 hvert kg. í heild
sölu en kr. 23,20 i smásölu.
*
Islenzkum blaða-
manni boðið til
Finnlands
Utanríkismálaráðuneytinu ís
lenzka hefir borizt bréf frá
finnsku ríkisstjórninni, þar
sem hún tilkynnir, að ákveðið
sé að bjóða til Finnlands í
sumar eða haust fjórum nor-
rænum blaðamönnum, þar af
einum íslenzkum. Er til þess
ætalazt, að blaðamennirnir
dvelji einn mánuð í Finn-
landi, og lætur finnska stjórn
in þeim í té fimmtiu þúsund
finnsk mörk. En ferðalög að
heiman og heim eiga þáttak-
endur sjálfir að greiða.
Utanríkismálaráðuneytið
mun ráðstafa þessu boði í
samráði við Blaðamannfélag
íslands.
Ægir tekur rúss-
neskt skip
Var í íslenzkri land-
helg'i með ólöglegan
veiðarfærahúnað
Síðastliðinn laugardag tók
varðskiptið Ægir rússnezkt
síldveiðiskip, með ólöglegan
veiðarfæraútbúnað á siglingu
undan Grjótnesi. Skipið heit
ir Gand.
Ægir fór með skipið til Akur
eyrar, þar sem dómur var upp
kveðinn í málinu. Var hann
á þá leið aó' rússnezka skipið
skyldi greiða 2500 krónur í
sekt, auk málskostnaðar. Skip
ið er nú farði aftur út til
veiða.
Mikill afli á karfa-
veiðunum
Ákurevrartogararn
ir þrír allir við þær
veiðar
Akureyrartogararnir, þrír
Jörundur, Kaldbakur og Sval
bakur, eru allir á karfaveið-
um. Hafa þeir aflað mjög vel
að undanförnu, eins og áður
í sumar.
Svalbakur var væntanleg-
ur til Krossanesverksmiðj-
unnar í gærkvöldi með full-
ferði og verður unnið úr karf
anum í verksmiðjunni, á sama
hátt og áður.
Krossanesverksmiðjan mun
nú eiga um 2 þúsund lestir
af karfa og einnig fiskimjöli.
Hefir vinnsla 1 verksmiðjunni
gengið mjög vel. Um 7 þús-
und mál af síld hafa borizt
til verkmismiðjunnar, það
sem af er sumrinu.