Tíminn - 16.08.1950, Síða 2
2.
TÍMINN, miffvikudaginn 16. ágúst 1950.
177 blað
')?á hafi til heiía j
3éLfáf
Útvarpið
tltvarpið í dasr.
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20.30 Útvarpssagan: „Ket-
illinn“ eftir William Heinesen;
XXI. (Vilhjálmu.r S. Vilhjálms-
son rithöfundur). Kl. 21,00 Tón
leikar: Hljómsveit Howards
Barlow leikur létt lög (plötur).
Kl. 21,25 Iþróttaþáttur (Sigurð-
ur Sigurðsson). Kl. 21,40 Dans-
lög. Kl. 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. Kl. 22,10 Danslög (plöt
ur>. Kl. 22,30 Dagskárlok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Hekla var væntanleg til
Thorshavn i Færeyjum í morg-
un á leið til GÍasgow. Esja fór
írá Akureyri síðdegis í gær
austur um land til Reykjavík.
Kerðubreið fór frá Akureyri í
gærkvöldi austur um land.
Skjaldbreið er í Reykjavík og
á að fara þaðan í kvöld til
Breiðafj arðarhafna. Þyrill er
væntanlegur Reykjavíkur í dag
Armann fór frá Reykjavík í
gærkvöldi til Vestmannaeyja
og Austfjarða.
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Kiel í gær
til Álaborgar og Reykjavíkur.
Dettifoss fór frá Rotterdam 14.
ágúst til Hull, og þaðn aftur
til Rotterdam. Fjallfoss fór frá
Siglufirði 11. þ. m. til Gauta-
borgar. Goðafoss kom tll
Reykjavíkur í gærkvöldi frá
Gautaborg. Fer í dag til Kefla-
víkur. Gullfoss kom til Leith
í gær, fer þaðan i kvöld til
Kaupmannahafnar. Lagarfoss
var á Isafirði í gærkvöldi. Sel-
íoss er á Siglufirði Tröllafoss
íór frá New York 7. þ. m. til
Reykjavíkur.
Blöð og tímarit
Skákritið,
1. tölublað af hinu nýja skák-
riti er nú komið fyrir almenn-
ingssjónir. Efni ritsins er ein-
göngu um skák og skákmenn. 1
ritinu er eftirfarandi efni: Ávarp
til íslenzkra skákmanna frá
Sveini Kristjánssyni og Þóri Ó-
lafssyni útgefenda ritsins. Skák-
þing Norðurlanda í Reykjavík |
1950 eftir Baldur Möller. Skák- !
þing Reykjavíkur 1950. Lands- j
liðskeppnin 1950. Stórmeistara- j
mótlð í Búdapest. Skákför tll
Norðurlands. Eigum við tvenn
landslið? Af erlenduin vettvangi.
Af innlendum vettvangi. Auk
þess eru sýndar í ritinu ýmsar
taflstöður.
Árnað heilla
Trúlofun.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Hrefna Bjarnadótt-
ir verzlunarmær, Efstasundi 32
og Agnar Jóhannssoi. skrifstofu-
maður, Miðstræti 10.
Hjónaband.
Síðastl. laugardag voru gefin
saman í hjónaband af séra Jó- j
hanni Kr. Briem, Melstaö í Mið- j
firði, ungfrú Ingibjörg P. Gisla- j
dóttir og Héðinn Ágústsson,
bifreiðastjóri. Heimili ungu,
hjónanna er í Skipasundi 47.
Ferðafélag fslands
ráðgerir að fara skemmtiför
að Hagavatni næstk. laugar-
dag kl. 2 e. h. og komið heim
aftur á sunnudagskvöld. Ekið
austur Hellisheiði með við-
komu að Gullfossi og að sælu-
húsi F. í., sem er skammt frá
vatninu, og gist þai. Á sunnu-
dagsmorgun gengið upp á jök-
ul á Hagafell og á Jarlshettur.
Hagavatn er eitt merkasta
stöðuvatn landsins vegna flóð-
anna og umhverfið allt mjög
hrikalegt. Áskriftarlisti liggur
frammi og séu farmiðar teknir
fyrir hádegi á föstudag.
Átthagafélag Kjósverja.
fer í berjaferð upp í Kjós
sunnudaginn 20. ágúst. Lagt
verður af stað kl. 8,30. Þátttaka
tilkynnist í síðasta lagi á
fimmtudagskvöld 17. þ. m. All-
ar nánari upplýsingar í eftir-
tiadum símum: 7429, 80792,
6516 og 3249.
Ný stjórn mynduð
í
Hvítt flauel verður mikið
í tízku, þar sem einhver efni'
til klæðagerðar er að fá. Ilér Vail
sést höfuðfat úr slíku efni
með svörtum dúsk til skreyt- rikisraðnt‘l’ra
ingar.
Zeeland utan-
sem
Hæstiréttur S-Af-
ríku viðurkennir
ekki kynþáttalögin
Hæstiréttur Suður-Afríku
ógilti nýlega dóm, sem kveð-
inn hafði verið upp sam-
kvæmt hinum nýju lögum um
mismunandi rétt kynþátta í
Suður-Afríku. Hafði prestur
verið dæmdur í háa sekt fyrir
að gefa saman í hjónaband
hvítan mann og svarta stúlku
en það er eitt af mörgu, sem
kynþáttalög þessi banna.
Hæstiréttur ónýtti þennan
sektardóm, þar eða hann færi
í bága við almenn mannrétt-
indi.
fvrr
Ný stjórn hefir verið mynd
uð í Belgíu undir forsæti
dómsmálaráðherrans i ráðu-
neyti Jean Duvieusart. Van
Zeeland verður framvegis
utanríkisráðherra. Hinn nýi
forsætisráðherra er 65 ára
gamall. Stjórnin er hrein
stjórn katólska flokksins.
Flugferðir
Flugferðir Loftleiða.
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Vestmanna-
eyja kl. 13,30 og til Akureyrar
kl. 15,30. Auk þess til ísafjarðar
í dag verða hafnar fastar ferð-
ir milli Akureyrar og Siglu-
fjarðar. Er það Grummanbát-
ur Loftleiða, sem annast þess-
ar ferðir. Verða farnar tvær
ferðir daglega. Fyrri ferðin er
frá Akureyri kl. 10,00 og frá
Siglufirði kl. 10,45. Seinni ferð-
in er kl. 18,00 frá Akureyri og
kl. 18,45 frá Siglufirði.
Millilandaflug: Geysir fór í
gær frá París til Kaupmanna-
hafnar. Frá Kaupmannahöfn
var áætlað að vélin færi í morg
un til Hamborgar til að sækja
þýzku knattspyrnumennina, er
hingað koma. Frá Hamborg er
vélin væntanleg hingað seint
í kvöld.
Ný vatnsveita tekin
i notkun í Húsavík
Nfikil hól fyrir
kaapstaðinn
Hinn 10. ágúst var tekin í
notkun ný viðbótarvatnsveita
í Húsavík. Hefir verið unnið
að þessu verki undanfarin tvö
ár. Gamla vatnsveitan var orð
in alltof litil og ófullnægjandi
í kaupstaðnum svo að þar var
vatnsskortur einkum á sumr-
tn. Hið nýja kerfi reyndist vel
og er nú gnægð vatns. Lítið
bar á bilunum á gamla kerf-
inu, þegar hið nýja var tengt.
Undanfarna viku voru ó-
þurrkar í Þingeyjarsýslu en í
gær og fyrradag var bjart
veður og þurrkur.
Skemmdarverk á
brezku herskipi
Komist hefir upp um
skemmdarstarf, sem gerð voru
um borð í brezka beitiskipinu
i „Theseus“. Rafmagnskerfi
' skipsins hafði verið skemmt
, og einnig áttaviti skipsina.
Hert hefr verið á öryggisráð-
stöfunum vegna skemmdar-
verka, sem farið hafa 1 vöxt
í Bretlandi. Fyrir nokkru voru
framin skemmdarverk á flug-
vélum, sem senda átti úr
landi. Einnig var sprengdur
í loft upp prammi með skot-
færabirgðum.
Svíar undirbúa
Nóbelshátíð
f Stokkhólmi er hafinn und
irbúningur að 50 ára afmælis
hátíð Nobels og verður hún
haldinn í marz næsta ár. Öll
um Noblesverðlaunamönnum
verður boðið en þeir eru um
100 sem á lifi eru. Ekki er vit
að með vissu hvort hópur allra
þessara mikilmenna getur
mætt á hátíðina.
Á hátíðinni verður sýning á
þróun þeirra greina sem
Nobelsverðlaunin ná til.
Tdmar flöskur
Hér eftir látum vér borga 50 aura fyrir tómar flösk-
ur, séu þær sóttar heim til manna. Hinsvegar kaupum
vér tómar flöskur í Nýborg á 60 aura.
Hringið í einhvern eftrtaldra síma þegar þér óskið
að losna við tómu flöskurnar yðar, og munuð þér þá
samtímis geta selt komumönnum öll glös og allar
krukkur, sem þér óskið að losna við.
Símarnir eru: 4714, 80818 og 2195.
Látið eigi undir höfuð leggjast að hringja ef þér
eigi kjósið fremur að koma sjálf með flöskurnar í
Nýborg.
Áfengisverzlun Ríkisins
Tillaga um að gera
Evrópuráðið að lög-
gjafarþingi
Á fundi Evrópuráðsins í
Strasbourg s.l. mánud. voru
enn ræddar till. Shumanns
um sambræðslu stál- og kola-
iðnaðar Vestur-Evrópu, og
einnig tillögur Churchills um
að stofna Vestur-Evrópuher.
Fulltrúar Frakka, frá hvaða
flokki sem er, standa á móti
því, að iðnaðarsambræðslan
verði sett undir vald Evrópu-
ráðsins. Aftur á móti eru
flestir brezku fulltrúarnir með
því. Tillögur Churshills um
Evrópuher fær góðar undir-
tektir hjá fulltrúum flestra
landa nema Norðurlandafull-
trúanna. Spaak, formanni
ráðsins hefir verið falið að
gera tillögur um stjórn og
framkvæmd hernaðarsam-
steypu Vestur-Evrópu.
í gær flutti Mc Kay, einn
af fulltrúum brezkra jafnað-
armanna tillögu um, að gera
Evrópuráðið að lcggjafarþingi
og yrðu ákvæði þess bindandi
fyrir allar þær þjóðir, sem í
ráðinu sætu. Fulltrúaráðið á
þannig að vera nokkurs kon-
ar neðrimálsstofa og ráð-
herranefndin á að svara til
efrideildar eða lávarðadeild-
ar brezka þingsins.
Fulltrúar Norðurlanda
standa yfirleitt allir á móti
þessum tillögum og vilja ekki
samþykkja að sjálfsákvörð-
unarréttur þeirra verði af
þeim tekinn. Benda þeir á,
að málum Vestur-Evrópu
verði betur ráðið með frjáls-
um samtökum þjóðanna en
lögbundinni þátttöku.
Nýstárleg
kvikmynd
Fravihald af 8. síðu.
inni t. d. líking af ráðherra-
fundum þar sem fulltrúar
stórþjóða eru einkenndir
með lögum sem þekkt eru. T.
d. þegar Edin stendur upp'
heyrst klukknahljómur Big
Ben. Molotov heldur sína
ræðu meðan leikin eru
„Svörtu augun“ ræða hans er
svo löng að allir fundarmenn
sofna en einn, sem situr hjá
stóru hnattlíkani kveikir f
hnattlíkaninu með vindli sín-
um. Allir fundarmenn fylla
vatnsglös sín og reyna aÁ
slökkva í hnettinum nema
Molotvo einn sem heldur
ræðu um frið meðan leikin
eru „Svörtu augun“ og heim-
urinn brennur.
*
Ohagstæður verzl-
unarjöfnuður um
117 milljónir króna
Samkvæmt upplýsingum
frá hagstofu íslands er verzl
unarjöfnuðurinn við útlönd
óhagstæður um 117 millj. kr.
síðan um áramót. í júlímán-
uði var verzlunarjöfnuðurinn
óhagstæður um 40 millj kr.
Á sama tíma i fyrra var mis-
munurinn 72,5 millj. kr.
1 s. 1. mánuði voru fluttar
inn vörur fyrir 55,5 milj. kr.
en útflutnings verðmæti nam
aðeins 16,2. Ástæðan fyrir
misræmi í verzlunarjöfnuði á
þessu ári samanborið við s. 1.
ár, er sú að innflutningur
var langtum meiri en útflutn-
ingurinn minni.
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS *