Tíminn - 20.09.1950, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.09.1950, Blaðsíða 4
4. TÍMINN, miSvikudaginn 20, september 1950. 206. blað'. HANDBÖK BÆNDA Landbúnaðarráðherrann, Hermann Jónasson, skýrði frá þvi á fundi Stéttarsam- bands bænda nýlega að hann myndi sjá svo um, að gefin yrði út handbók fyrir bænd- ur innan skamms. Mál þetta er nú komið nokkuð á veg. Hefir Tlminn frétt, að í ráði sé að ýmsir trúnaðramenn búnaðarsamtakanna verði kallaðir saman í haust eða snemm vetrar til að ráða ráðum sinum um efni og fyrir komulag bókarinnar. Verður þá að líkindum að því stefnt, að bókin geti komið út á næsta vori. Fyrr getur það naumast orðið, því að hér er um að ræða mikið vanda- verk, sem getur orðið til stór- gagns fyrir landbúnaðinn, ef vel tekst, en lítils virði ella. Hér er í raun og veru um stórmál að ræða, sem bænda stéttin ætti að láta sig miklu varða. Bændabýli landsins eru rúmlega sex þúsund að tölu. Á hverju þessara 6000 bænda býla, eru meiri og minni tæki færi til að afla sér nýrrar reynslu varðandi búskapinn á ár hverju. Mögmeikar til að afla reynzlu af nýjum bú- skaparháttum og tækjum eru að vísu nokkuð misjafnir, a. m. k. að talsverðu leyti komn ir undir efnahag og aðstöðu. En hinar gömlu búskaparað- ferðir hafa líka sína þroska- möguleika, og þar skiptir lika miklu máli, að úr því sé skorið með reynzlu, hvernig bezt henti að vinna að hverjum hlut. En þó að bóndinn reyni sitt af hverju í gömlum bú- skaparaðferðum og nýjum, er ekki þar með sagt, að allir haldi að staðaldri reynzlu sinni til haga, festi sér hana í minni eða miðli öðrum ai henni. Margir gera það þó að sjálfsögðu. En þó að reynzla þeirra bænda, sem beztum árangri ná í búskap, komi þeim sjálfum að gagni og e. t. v. næstu nágrönnum þeirra, má ekki þar við sitja, ef vel á að vera. Þess er og að gæta, að einn reynir þetta og annar hitt. Einn er fyrir- mynd í fjármennsku, annar í jarðrækt, þriðji í öflun eða verkun heyja o. s. frv. Það sem á vantar í því sambandi, er að allir bændur landsins eigi kost á að kynnast hinum bezta árangri sem náðst hefir á hverju sviði, og geti fært sér þær aðferðir í nyt, sem bezt hafa gefizt. Má þá held- ur ekki gleyma því, sem fræði menn landbúnaðarins og til- raunamenn á vegum hins op inbera hafa unnið og leitt í ljós á síðari tímum né bún- aðarvísindum þeim, er num- in hafa verið erlendis og byggð á erlendri reynzlu, því að oft geta þau einnig í hag komið hér, þótt margt sé með öðrum hætti. Hlutverk handókarinnar á áð vera að gefa hverjum þeim er við búskap fæst, tækifæri til að lesa í stuttri og skýrri fráscgn, í hvert sinn er hann þykist þurfa, það sem menn nú vita sannast og réttast um öll hin helztu viðfangs- efni, er á vegi bóndans verða í daglegu starfi á öllum tím- um árs. Um sumt, jafnvel margt, af því sem slík bók fjallar um, veit bóndinn sjálf ur ef til vill eins vel eða bet- ur en bókin, og fjölbreytni lífsins og hinna margvíslegu Rit, sem ú að geta komið að miklum uot- um fyrir bændastéttina. staðhátta er jafnan meiri en svo, að gert verði ráð fyrir í einni bók, hve stór sem hún væri. Þó á hún, ief vel er að unnið, að hafa eitthvað, sem öllum má til gagns verða, eða réttara sagt: Eitthvað í henni verður alltaf einhverjum til leiðbeiningar. — Auk þess yrði svo að sjálfsögðu í slíkri bók ýmisskonar almenn fræðsla um málefni landbún- aðarins, hagfræðilegar stað- reyndir o. II. sem jöfnum höndum væri til gagns og gamans fyrir þá, sem áhuga hafa á landbúnaðinum, sögu hans og þróun. Svo aið segja hvern dag vakna í huga bóndans, ekki slzt þeirra, sem ungir eru og fátækir af eigin reynzlu, fleiri eða færri spurningar um starfið, sem honum væri styrk ur I að fá svör við frá þeim, sem fleira hafa reynt og bet- ur mættu vita. Sumum slik- um spurningum verður hann sjálfur að svara fyrr eða síð- ar af því að enginn annar getur gert það. Við öðrum gæti hann sennilega fengið gagnleg svör hjá stéttarbróð ur sínum annarsstaðar í sveit inni eða sýslunni, e. t. v. ekki fyrr en í öðrum landsfjórð- ungi. Öðrum gætu ráðunaut- ar og aðrir vísndamenn land búnaðarins svarað, ef þeir væru til staðar. Vera má, að bóndinn sjálfur hefði numið svarið, ef hann hefði verið í búnaðarskóla. Þó er það ekki víst, og enn hefir ekki nema nokkur hluti bænda- stéttarinnar sótt slíka skóla. En þegar bóndinn er að hefja starf sitt, e. t. v. nýja fram- kvæmd, og skjótra ákvarðana er þörf, er enginn tími til að leggja land undir fót tíl að spyrja ráða. Þá er sennilegt að handbókin gæti oft kom- ið í góðar þarfir, ef hún er nægilega fjölbreytt og vel til hennar vandað. Dæmin eru nærtæk. Margir bændur hér á landi vita enn tiltölulega lítið um votheys- gerð, hvernig votheyið eigi að vera til þess að það telj- ist vel verkað, hvernig eigi að byggja votheysgryfju, hvernig hún eigi að vera í laginu, hversu mikið efni þurfi til hennar, hversu hátt jarðræktarframlag fáist til hennar o. s. frv. Þó að rnenn hafi einhverntíma heyrt tal- að um þetta, fyrnist slíkur fróðleikur meðan hans er ekki þörf, og er jafnvel orðín úreltur, þegar til hans á að taka eftir langan tíma. Og hvernig er um áburðarnotk- unina? Á því sviði hefir margt komið i ljós á síðustu tímum sem mönnum var áður nulið, en hverjum bónda er í raun- inni nauðsyn að vita. Hugs- um okkur bónda, sem ætlar að rækta matjurtir á jörð sinnl í fyrsta sinn og heíir aldrei fengizt við slíkt áður. Hann þyrfti áreiðanlega að spyrja um margt, stórt og smátt. Heimafengin reynzla er góð, en það er dýrt að þurfa að læra allt af henni, taka á sig kostnaðinn af mis tökunum. Svipað er að segja um hina miklu vélanotkun í sveitunum nú. Á því sviði verða áreiðanlega stundum mikil mistök, sem hægt hefði verið að komast hjá, ef kost- ur hefði verið leiðbeiningar á réttri stundu. Og hvað þá um bóndann, sem þarf að byggja yfr sjálfan sig eða skepnur sinar. Það er gott að fá fagmenn til slíkra verka en ekki spillir, að bóndinn eigi sjálfur kost hagnýtrar fræðslu um tilhögun bygg- inga. Sjálfs er höndin holl- ust, þar sem annarsstaðar. Á undaförnum áratugum hafa, eins og áður er að vikið, verið gerðar margvíslegar vís indalegar tilraunir í þágu landbúnaðarins. Hefir þar án efa verið unnið mikið og gott verk af sérmenntuðum og reyndum mönnum á vegum búnaðarsamtakanna og ríkis ins. Öðru hverju eru gefnar út fræðilegar ritgerðir um þau efni. Hér má nefna fóðrun- artilraunir, áburðartilraunir og ýmiskonar jarðræktartil- raunir og jarðvegsrannsókn- ir, verkfæratilraunir, tilraun ir með byggingarefni, búfjár- ræktartilraunir o. s .frv. En bóndinn, sem allt í einu þarf á ráðleggingum að halda varð andi verk sitt eða fyrirhug- aða framkvæmd, hefir ekki tíma til að leita uppi slikar ritgerðir og tína upp úr þeim það, sem hann þarf á að halda í það sinn. Röksemda- leiðslur og rannsóknaraðferð ir skipta hann ekki máli þá 1 stundina. Hann þarf að fá \ niðurstöðuna, skýra og fá- orða, ef um „praktiska“ nið- urstöðu er að ræða á annað borð. Sérstaklega þarf hann á aðvörun að halda, þar sem hætta getur verið á ferðum. Og hætturnar eru margar í sambandi við búskapinn, ekki sízt fóðrun og meðferð búfjár ins, og þó sérstaklega, þegar verið er að reyna eitthvað nýtt eða eithvað óvænt kem- ur fyrir. Þess þarf auðvitað vel að gæta, að handbók sem þessi flytji ekki úreltar niðurstöð- ur eða rangar. Á röngum nið- urstöðum er ávallt nokkur hætta, ýmist af því að ekki er nægilega vandað til upp- lýsinga eða tilraunir hafa mis heppnast, án þess að þeim, er þær gerðu, væri kunnugt um. Og þekking, sem einu sinni var góð og gild, getur misst gildi sitt, orðð úrelt, ef önnur þekkng og víðtæk- ari kemur til skj alanna. Hand bók fyrir bændur á það því sameiginlegt með öðrum handbókum, að gildi hennar er takamarkað við tíma, og verður því að endurbæta hana og gefa út á ný öðru hverju. Vel myndi fara á því, að í sambandi við handbók- arútgáfuna væri starfræktur bréfa^kóli fyrir bændur og bændasyni, einkum á veturna þar sem tekin væru til með- ferðar einstök viðfangsefni, og þá jafnframt svarað fyrir spurnum, er berast kynnu frá þeim,er þáttakendur væru í þessari starfsemi. Slíkur bréfaskóli gæti verið á veg- um Búnaðarfélags íslands, og í sambandi við búnaðar- fræðslu þá, sem haldið er uppi á vegum félagsins, bæði í útvarpinu og á búnaðar- (Framhald á 5. síðu) Nú er komið haust. Sumarið, hefur verið mörgum erfitt, í sumum héruðum, eitt hið ó- þurkasamasta í manna minn- um. Á austanverðu landinu er heyskapur svo lítill og lélegur, að útlit er fyrir að bændur verði að skerða bústofn sinn til mikilla muna. Enn einu sinni sýnir það sig, hver voði stafar af því fyrir .landbúnaðinn að þurfa að treysta á*útiþurrkun- ina mestmegnis eða eina saman. Fátt eða ekkert er jafn nauð- synlegt fyrir bændur landsins og að eignast varnir gegn ó- þurkunum. Þessu má aldrei gleyma. Fóðurbætisgjöf hlýtur að verða mikil á næsta vetri a. m. . k. í aðal óþurkasveitunum. Síld ar- og fiskimjöl, sem hægt hefði j verið að flytja út fyrir erlendan I gjaldeyri, verður nú að nota I innanlands, og auk þess verður naumast komizt hjá innflutn- ingi erlends kjarnfóðurs í rík- um mæli. Þetta er ill nauðsyn en óhjákvæmileg að þessu sinni En hvernig verður framtiðin? Er ekki hægt að finna ráð til að hægt verði að komast hjá að nota eins mikinn gjaldeyri í þessu skyni og gert hefir ver- ið undanfarið og enn mun gert verða á komandi vetri? Fyrsti áfanginn í þeirri við- leitni er auðvitað að bæta verk- un heyjanna. Að nýta til fulln- ustu þau næringarefni, sem fást af túni og engjum á hverri jörð. Ekkert kjarnfóður er betra en hið gróandi gras um hásum arið. Ef hægt væri að varðveita þessi dýrmætu efni óskert og óskemmd til vetrarins, þyrfti víst engu að kvíða, og þá væri ekki þörf á fóðurbæti, jafnvel ekki fyrir kýr í hárri nyt. En gall- irtn er, að þetta tekst ekki, a. m. k. ekki nema að mjög litlu leyti. Vel verkað vothey mun halda mestu af næringar- gildi sínu. En það er ennþá alltof lítið. Næst votheyinu geng ur súgþurrkað hey, ef það er látið í hlöðu nýslegið af ljánni, eða svo segja þeir, sm það eiga að vita. Óhrakin taða, þótt þurk uð sé úti nægir og sennilega án fóðurbætis oftast nær. En und- ir eins og heyið fer að hrekjast, þarf að bæta það upp tíl að fá fullt gagn af mjólkurkúm. Og þannig er það í flestum sumrum um talsvert mikinn hluta af heyfeng landsmanna, misjafnlega mikinn að vísu. Þar við bætist svo það, sem að vísu er hirt óhrakið, en svo linþurt, að í því hitnar. Ornað hey get- ur að vísu verið lystugt og gott fóður, en mun þó ávallt hafa heldur minna næringargildi en hitt, sem helzt grænt til vetrar. Afföllin verða því ávallt mjög mikil frá því sem verið hefði, ef öll hey hefðu geymst með ó- skert fóðurgildi hinna gróandi grasa. hvort ekki sé kominn tími til að reyna að láta hana verða þjóðinni að gagni. Menn eru nú | búnir að reyna kornrækt hér í mörg ár, jafnvel áratugi. Eru 1 menn þá ekki orðnir einhvers jVÍsari? Ár eftir ár sé ég í blöð- um og tímaritum, að kornrækt in á Sámstöðum hafi gefizt svo og sv.o vel og myndir, sem eiga að staðfesta það. Er þá ekki (kominn tími til að hefjast 1 handa svo að um muni? Ýmsir hafa bundið vonir við i það, að landbúnaðurinn gæti sjálfur framleitt þá uppbót, sem með þarf til að bæta upp rýrnum heyjanna. „Skýjaglópur" skrifar mér um það mál á þessa lið: „----- Ég er líklega helzt til bjart- sýnn á ýmsa hluti, og þessvegna býst ég við, að einhverjir kalli mig skýjaglóp------Seinnipart- inn í sumar hefi ég oft verið að hugsa u'm kornræktina, og Hvernig væri að taka nú fyr- ! ir kornrækt í stórum stíl, þar sem land er hentugast til þess og hægt er að byrja með minnst um tilkostnaði — án fram- ræslu? Mig skortir að vísu þekk ingu, en ég vildi leggja til að byrjað yrði á söndunum í Rang i árvallasýslu. Það á að græða í þá upp hvort sem er, og því I þá ekki að slá tvær flugur í einu höggi. Bera tilbúinn áburð í sandinn og sá í hahn komi. Þetta land er ákaflega auðunn ið, auk þess sem það er þurrt. Áburðurinn kostar að vísu er- lendan gjaldeyri eins og sakir standa, en þegar áburðarverk- smiðjan kemur, gerbreytist að- staðan að þessu leyti. Ég hefi þá trú, að á þessu landsvæði væri hægt að framleiða allt það kjarnfóður, sem þörf er á handa búpeningi landsmanna, þar á meðal hænsnafóður og J það væri átak, sem um munaði. -----Ég vil fá að vita, hvort þetta er hægt. Það þarf að fá um það skýrt álit manna, sem þekkingu hafa og reynzlu, inn lendra og erlendra, ef með þarf. Úr þessu þarf að skera. Og hefj ast svo handa, ef þeir fróðu menn telja að vit sé í því. Einhverntíma hefi ég lesið í kennslubók, að í akuryrkjulönd um séu höfð svokölluð sáð- skipti, þ. e., að hið sama sé ekki ræktað nema eitt eða tvö ár í senn. Svo sé skipt um. Nýjum jurtum sáð í akurinn, og öðru hverju fái akurinn að hvíla sig. Þetta er gert til að nota efni jarðvegsins sem bezt, skilst mér. Þá þarf að skera úr um það, hvaða möguleika við íslending- ar höfum til svona sáðskipta. Getum við e. t. v. ræktað fleiri en eina korntegund — til skipta og notað þær jöfnum höndum til fóðurbætis? Og hvernig er með kartöflur? Enn er kartöflu ræktin helzt til lítil til að full- nægja innanlandsþörfinni. Er ekki hægt að nota kartöflur sem fóðurbæti, og gæti ekki komið til mála að flytja þær út, ef þær væru ræktaðar í stórum stil? Geta fóðurrófur ekki líka kom- ið til greina, og myndi ekki borga sig að flytja þær t. d. til bænda á Suðurlandi, ef korn- ræktin væri þar? Ég spyr eins og barn í þessu efni, enn það eru fleiri, sem spyrja. Og ein- hverjir ættu að vita þetta, eða geta aflað sér vitneskju um það.------Hvað segja allir okk- ar ágætu búfrðeðikandidatar um þessa hluti, og hvað segja til- raunamennirnir? Það langar mig til að vita. Ég hefir mínar skoðanir um það, eða öllu held- ur trú, en það hefir nú víst ekki mikið að segja“. Þetta segir „Skýjaglópurinn". Og svari nú þeir, sem það geta. Gestur. Þakka innilega vinarhug og hlý handtök á sextugs afmæli mínu. Lifið heil. BJARNI GÍSLASON

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.