Tíminn - 04.11.1950, Qupperneq 3

Tíminn - 04.11.1950, Qupperneq 3
246. blað TÍMINN, laugardaginn 4. nóvember 1950. S, s :■; • t ■ Hvað er svefninn? Rannsóknir Rieket |»róíessors Richet heitir prófessor einn ' franskur, sem nýlega hefir skrifað ritgerð um svefninn. Þykir hún merkileg, enda byggð á því, sem nútímavís- indi vita um svefninn og sjálfstæðum athugunum höf- undarins á þeim grundvelli. | Hér verður sagt frá nokkrum atriðum, sem fram koma í þessari ritgerð. j Það er ekki nema tvennt, sem nýfætt barn þarf með: Að taka til sín fæðu og fá að sofa. Prófessorinn telur, að börn innan 15 ára aldurs þurfi 10 tíma svefn á sólarhring. Fullorðnir menn á aldrinum 25—60 ára, telur hann hins vegar að þurfi ekki að sofa nema eftir því, sem þeir finna að svefnþörf sín er, og er þá alveg sama hve mikið erfiði þeir leggja á sig, likam- legt eða andlegt. Venjulegur svefn á þessu aldursskeiði er 6—8 stundir án miðdegis- blundar. En þegar fólk er komið á sjötugsaldur fer það að þurfa meiri svefn og svo sannast á þvi, að tvisvar verð- ur gamall maðurinn barn. | Ef hundur fær ekki svefn, dregur það hann til dauða á 93 til 143 klukkustundum. Maður getur haldið sér vak- andi í 17 daga án þess að hafa varanlegan skaða af því. Maður nokkur, sem ekki festi blund í 21 dag, lézt af því að líkamshitinn varð svo lítill og heilinn gat ekki starfað. Við getum vakað 48 til 60 stundir, segir prófesfsorinn, og haldið fullum kröftum að kalla. Sumir geta vakað og Merkrar konu minnst: Sigmunda Katrín Jónsdóttir unnið í 115 stundir og margir komast af með þriggja eða fjögra stunda svefn í sólar- hring talsverðan kafla. Hann ráðleggur mönnum að drekka sterkt kaffi og te, ef þeir þurfi að leggja á sig vökur. Napóleon mikli var þekktur að því að þurfa lítinn svefn, en gat lika sofnað, þó að hann hefði ekki nema fimm mín- útna hvíldarstund. Samanlagt svaf hann ekki nema fjórar til firnm stundir á sólarhring. Margir telja, að kvöldsvefn- inn fyrir miðnætti sé bezti svefninn. Efnaskiptingin í lík- amanum er hægari i svefni en vöku. En þó að við snúum hlutunum við og gerum nótt að degi og dag að nótt, breyt- ist ekki kirtlastarfsemin af þeim sökum. Efnaskiptingin verður hægari að nóttunni,— á hinum náttúrlega svefn- tíma, þó að við vökum þá. Talið er að það sé tauga- hnoða í miðheilanum, sem stjórni svefninum. Flestir vöðvar verða slapp- ari í svefninum, nema augn- vöðvarnir, svo skrítið, sem það kann að virðast. Sennilega dreymir menn alltaf meðan þeir sofa, þó að þeir muni ekki nema lítinn hluta drauma sinna þegar. þeir vakna. Þetta eru nokkur atriði úr i ritgerð visindamannsins, en J annars eru dularlönd svefns- ins ennþá leyndardómsfull og ókönnuð, svo að vísindin kunna ekki að gefa nema mjög takmörkuð svör um leyndardóma þeirra. Enska knattspyrnan A laugardag (28. október) íóru leikar þannig í 1. og 2. deild. Staðan i 11 deild: Arsenal—Derby 3—1 Burnley—Aston Villa 2—0 Chelsea—Sunderland 3—0 Everton— Manchester Un. 1—4 0—4 1—1 4—2 1— 4 4—1 2— 0 Huddersfield—Bolton Middlesbro—Fulham Newcastle—Blackpool Portsmouth—Wolves W ednesday—Liverpool Stoke—Charlton W. Bromwich—Tottenham 1—2 Eins og sjá má af þessu varð aðeins einn leikur í 1. deild jafntefli og er það mjög sjald gæft. Það var Middlesbro, sem jskipti stigunum með Fullham og svo virðist sem liðið hafi tapað hinni góðu æfingu, sem þiað var í, í september. Það sem mest kom á óvart s. 1. laugardag var sigur Boltons yfir Huddersfield 4:0, þrátt fyrir að Huddersfield léki á heimavelli, og sigur Wolver- hamton 4:1 yfir Portsmouth. Landliðsmarkmaðurinn Will iams var frábær í „Úlfabúr- inu“ en í framlínunni stóð Jimmy Mullen sig bezt, þrátt fyrir að hann er einn af elztu leikmönnum liðsins. Totten- ham hélt áfram sigurgöngu sinni. Það líð.ur ekki á löngu þangað til liðið verður komið í efsta sætið. West Bromwich skoraði markið á síðustu mín útu leiksins. Arsenal og New- castle eru ennþá í efstu sæt- unum, en sigur Manchester TJnited yfir Everton í Liver- pool sýnir að liðið er í fram- för. Harry Potts, sem Everton keypti nýlega, lék með. í 1. deild hafa verið skoruð 499 mörk en í 2. deild 485 síðan keppnin byrjaði. Sunderland keypti Trefor Ford frá Aston Villa fyrir metupphæð eða 30 þúsund pund. Ijfðið tapaðl samt stórt fyrir neðsta liðinu Chelsea. Sigur Chelsea er sá fyrsti eftir 9 tapleiki í röð. Miðframvörður þeirra hélt Ford alveg nÆri og gat hann lítið sýnt hvers hann er megn ugur. 20 ljósmyndarar hópuð ust utan um Ford fyrir leik- inn og er sagt, að allt uppi- standið hafi gert hann mjög taugaóstyrkan. Þá bætti það ekki úr skák, að meðspilarar hans í Sunderland þekktu hann ekki og höfðu aldrei æft með honum. ' f Coventry náði forustunni í 2ó. deild — er með betri markatölu en Manch. City, sem sýndi nú lélegri leik en áður í keppninni. Notts County hefir unnið tvo leiki úti m. a. Sheffield, en þetta er í fyrsta skipti, síðan keppn in byrjaði, að þeir vinna heima. Tommy Lawton skor- aði nú sitt fyrsta mark. Grims by, sem verið hefir neðsta lið ið í 2. deild hingað til, reyndi nú Bloomer sem miðfram- herja í staðinn fyrir Briggs, en hann skoraði flest mörk í 2. deild í fyrra. Fyrirtækið heppnaðist, því Bloomer skor aði fjögur mörk. í 3. deild syðri gerðu öll efstu liðin jafn tefli, en í þeirri nyrðri töpuðu þau öll. Tranmere tapaði 1:0 fyrir Lincoln City á heima- velíi. Áhugi almennings er alltaf jafnmikill. Yfir 1. milj. káu leikina, en mestur var (Framhald k 7. siðu.) Hinn 26. dag maímánaðar s. 1. andaðist hér í Reykjavík ekkjan Sigmunda Katrín Jónsdóttir. Hún var fædd að Hafralellstungu í Öxarfirði 4. júní 1880 og því svo að segja sjötíu ára að aldri, er hún lézt. Foreldrar hennar voru þau hjónin Jón Jónsson og Sigríður SigmundsÖóttir, er lengst bjuggu að Vestra- Landi í sömu sveit. Jón og Sigríður voru ann- áluð fyrir dugnað og hag- sýni. Hófu þau búskap, lítt efnum búin, að Akri í Öxar- firði á hinum mestu harð- indaárum. Lagðist Akur í | eyði skömmu eftir að þau | Jón og S'gríður fluttu það- an að Ási í Kelduhverfi, enda lítil jörð, hjáleiga frá Skinna stað. Til marks um það, hve annt þeim foreldrum Sigmundu var um það að koma sér upp bústofni sem fyrst er það, að búskapinn byrjuðu þau með því að selja allt það dauðra muna, er þeim fannst þau geta án verið, þar á með al ný reiðtýgi. Fyrir andvirðið keyptu þau svo búfénað. Varð sú raun á, er tímar liðu, að þrátt fyrir allmikla ómegð, hófust þau af eigin ramleik úr sárustu fátækt til efna- legs sjálfstæðis og velmegun ar hin siðustu ár. Varð þetta þó ekki fyrr en þau höfðu bú ið um nokkurra ára skeið að Vestra-Landi. Sigmunda ólst upp hjá for eldrum sínum, fyrst að Akri, þá að Ási og síðast að Vestra Landi. Hún var elzt fimm systkina og einkadóttir for- eldra sinna. Snemma varð hún að taka þátt í starfi og striti foreldranna, því að vinnuhjú héldu þau aldrei. Sagði Sigmunda svo sjálf frá að aldrei gæti hún gleymt því, hversu þreytt hún hefði verið, þá er hún, þriggja ára til fjögra ára barn þurfti að fylgja móður sinni eftir við smalamennsku, er Jón bóndi var að heiman til búsað- drátta eða heyöflunar. Kom þá fyrir, að Sigríður tók dótt ur sína á bak sér, enda þótt hún bæri þá einnig elzta son sinn, er var yngri en Sig- munda. Laust eftir fermingu réðist Sigmunda í vist að Skinna- stað til þeirra hjóna Sesselju Þórðardóttur og Þorleifs prests Jónssonar, fyrst að hálfu leyti, en síðar að öllu, þegar bræður hennar voru svo til þroska komnir, að þeir gátu veitt foreldrum sínum næga hjálp við búsýsluna. Fór Sigmunda eigi vistferlum frá Skinnastað fyrr en hún hóf sjálf búskap að Hróars- stöðum þar í sveitinni ásamt mannj sínum, Giuðmund’{ Jónassyni, ættuðum úr Húna vatnssýslu. Höfðu þau bæði verið í vist að Skinnastað og þar voru þau gefin saman í hjónaband af Þórleifi. Á Hróarsstöðum bjuggu þau hjón til vorsins 1913 er þau fluttu að Ferjubakka í sömu sveit. Þar bjuggu þau í þrjú ár, en fluttu þá búferl- um að Gunnólfsvík á Langa- riesströndum. Tveimur árum síðar eða vorið 1918 brugðu þau búi. Flutti Sigmunda þeg ar til átthaganna með börn- in, en Guðmundur varð eftir iim sinn. 6. júní, sama vorið, ■♦eri Guðmundur til fiskjar ^inn á báti frá Heiðarhöfn á Langanesi. Varð það hans síðasta för, því að úr þeim róðri kom hann aldrei aftur. Stóð þá Sigmunda ein uppi með átta börn, sum að vísu nokkuð stálpuð, en önnur í fyrstu bernsku. Lét hún þó eigi bugast, enda þótt svo að segja eina eign hennar væru börnin. Fór og svo, að með hjálp guðs og góðra manna, tókst henni að koma öllum hópnum til manns. Eru börn þeirra Guðmundar öll á lífi. en þau eru þessi: Sigurjón, skrifstofustjóri í Reykjavík, kvæntur Ásu Jó- hannsdóttur. Sesselja. gift Ólafi Tryggva Oddssyni, bif- vélavirkja i Reykjavík, Eirík- ur, pylsugerðarmaður hjá Kjötbúð Akureyrar, kvænt- ur Önnu Sveinsdóttur, Vík- ingur, bóndi að Austara- Landi í Öxarfirði, tvíkvænt- ur. Fyrri kona Svava Haralds dóttir, dáin 1939, síðari kona Kristjana Ólafsdóttir. Þorleif ur, forstjóri Olíufélagsins á ísafirði, kvæntur Guðrúnu Bergsdóttur, Sigríður, tvígift. Fyrri maður Árni Gunnars- son, bóndi að Skógum í Öx- arfirði, dáinn 1937. Síðari maður Jón Ólason. bóndi að Garði í Kelduhverfi. Snorri, bóndi að Akurseli í Öxarfirði, kvæntur Kristínu Jónasdótt- ur, Frímann, deildarstjóri hjá K.E.A. á Oddeyri, kvænt- ur Soffíu Guðmundsdóttur. Barnabörn átti Sigmunda 23, er hún lézt. Ætla mætti, að kona, sem staðið hefir í svo ströngu sem Sigmunda allt frá barnæsku, hefði hug á að eiga léttari daga og gegna léttari störf um, þegar börn hennar voru loks á legg komin. En þvi fór fjarri um hana. Barnaskóli með heimavist var reistur að Lundi í Öxar-! firði laust fyrir 1930. Hafði skóli sá eigi starfað í mörg ár, er Sigmunda réðist þang- að sem ráðskona. Gegndi hún því starfi i mörg ár. En eftir að hún lét af þeim störf i um dvaldist hún mest með börnum sínum, ýmist í Reykjavík, Akureyri og ísa- firði eða heima í átthögun- um gömlu. Fór jafnan svo, er voraði, að hana fýsti að halda heim og dvelja i sveitinni sinni. Svo röm var sú taug, er batt hana æskustöðvun- um. Lengstum ævi sinnar hafði Sigmunda verið heilsuhraust. En á siðastliðnu ári mun hún hafa farið að kenna allmjög sjúkdóms þess, er dró hana til dauða. Sumarið 1949 dvaldi hún heima í Öxarfirði, en hélt til Reykjavíkur, er haustaði. Lá hún þunga legu um miðjan vetur, en komst þó aftur á fætur. En mjög var henni þá brugðið, þótt * eigi léti hún mikið yfir sjúk- leika sínum, er hún var í hópi vina sinna. En eigi leið á löngu, þar til hún gat eigi lengur haft fótavist og fór nú heilsu hennar mjög ört hnignandi. Dvaldi hún þenn an vetur ýmist á heimili Sig- urjóns, sonar síns, eða Sess- elju, dóttur sinnar, unz svo . var komið, að hún gat aðeins | á sjúkrahúsi notið þeirrar hjúkrunar, er með þurfti. En þá lagðist henni sú líkn með þraut, að eigi þurfti hún lengi þess að bíða, að dauðinn leysti hana frá þjáningum þessa jarðneska lífs. Lík hennar var flutt heim til átthaganna, og hvilir hún nú í kirkjugarðinum að Skinnastað. Þannig -var ævisaga Sig- mundu í stuttu máli og þó eigi nema hálfsögð. Þess er ógetið, hvílíka hollustu og at- orku unga vinnukonan a Skinnastað sýndi í starfi sínu og hversu hún iafnan var reiðubúin að gera öðrum greiða og rétta hjálparhönd, hvenær, sem hún sá tækifæri. til, án þess að hugsa um, að sjálfri sér bakaði hún fyrir- höfn og erfiði, sem hægt var að komast hjá. Fór því fjarri, að hún væri frábitin þvi að taka þátt í glaðværð og fé- lagsskap jafnaldra sinna, en um þær mundir var talsvert félagslíf meðal æskulýðsins i Öxarfirði. Var t. d. kringum aldamótin starfandi söngfé- lag í sveitinni og tók Sig- munda þátt i því með lífi og sál, enda var henni alla ævi söngur og söng-iðkanir hið mesta yndi. Eftir að hún hóf búskap og ómegð tók að hlaðast á þau hjónin varð hún vitan- lega að verja hverri stund við gæzlu bús og barna. En hver) um, sem að garði bar, var tek ið opnum örmum gestrisninn ar, þótt ekki væri allt af af miklu að miðla. Og hvenær, sem færi gafst að gera öðr- um greiða eða rétta nágranna hjálparhönd á einhvern hátt, var allt slikt látið í té á þann hátt, að likara var, að Sig- mundu væri þægðin en þess, er greiðann þáði. Mátti á- reiðanlega með sanni segja um hana, að tæpast vissi vinstri höndin, hvað sú hægr. gerði. Að skólanum á Lundi var jafnan annasamt, þvi að auk vetrarstarfsins var þarna um nokkura ára skeið rekið sum- ardvalarheimili fyrir börn at Akureyri. Stóð Sigmunda einnig fyrir því, á sama hátt og skólaheimilinu að vetrm- um. Flest eða öll árin hafði hún litla eða enga hjálp við heimilisstörfin. Má af þvi marka þrek hennar og at- orku, þar sem hún var þá komin af léttasta skeiði. Fundir og skemintisamkon ur þeirra Öxfirðinga voru jafnan haldnar að Lundi, eins og tíðkast hefir í sveit- um ,þar sem skólahús hafa verið reist. Eigi ósjaldan fóru þar og fram veiting&r við ýms tækifæri svo sem íerm- ingar og jarðaríar i að Skinnastað, sem er örskammt frá. Mæddi allt þetta « p g & Sigmundu, enda þóti nún þyrfti eigi sjálf hverj sinm að standa fyrir veiti gvmum. (BTamhald á 7. síöu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.