Tíminn - 04.11.1950, Page 8
„ERLEIVT YFÍRLIT“ I DAG:
Uvlio Kaleva Kehhonen
34. árg.
Reykjavík
„A FÖRIVEJH VEGI“ í DAG:
Sveit oti haupstaðir
4. nóvember 1950.
240. blað
Sudurherinn
hörfar enn
Bardagar voru harðir í Kó^
reu í gær. Á austurvígstöðv-
unum sækja tvær hersveitir
Bandaríkjamanna fram til
Chongchon-árinnar frá hafn
arborginni Hungnam, þar
sem allmikið lið var sett á
land fyrir nokkru. Á vestur-
ströndinni við Unsan eiga
þrjár hersveitir Suður-Kóreu
manna og þrjár sveitir Banda
ríkjamanna í hörðum varn
arbardögum og hafa orðið að
hörfa um 25 km. síðustu fimm
dagana. Þrátt fyrir þessa
hörðu gagnsókn, segir Mac
Arthur, að staða herja S.Þ.
geti ekki talizt hættuleg.
Sífellt berast fleiri fregnir
um þátttöku kínverskra her-
manna frá Mansjúríu í bar-
dögum og rússneskar flugvél-
ar sjást sífellt á lofti. Sveit
bandarískra orrustuflugvéla
kom í gær til Yokohoma á
leið til Kóreu.
Maður lærbrotnar
í umferðarslysi
Klukkan fimm í fyrradag
varð Hannes Kristinsson, Mið
stræti 8A, fyrir bifreið á Suð-
urlandsbraut og lærbrotna’ði,
og liggur hann nú í Land-
spítaianum.
Hannes fór á reiðhjóli vest-
ur Suðurlandsbraut, og er
hann kom á móts við Háa-
leitisveg kom jeppabifreið
niður þann veg, beygði fyrir
Hannes inn á Suðurlands-
brautina og ók vestur hana.
Hjólaði Hannes þá yfir á
hægri vegarkant, og varð í
þessum svifum fyrir bifreið,
sem kom austur Suðurlands-
braut.
Lögreglan óskar eftir vitn-
um að þessum atburði, eink-
um þeim, sem kunna að hafa
veitt jeppabifreiðinni athygli.
Jafnframt skoi-ar hún á þann,
son ók jeppanum, að gefa sig
fram.
Fræðslumálaskrif-
stofan tvítug
A þessu firi eru liðin 20 ár
síðan fræöslumálaskrifstof-
an tók formlega til starfa.
Að vísu hafði Jón Þórarins-
son hafið starf fræðslumála-
stjóra eða umsjónarmanns
fræðslumálanna árið 1907 en
það Vír ekki íyrr en 1930,
sem opin skrifstofa með
starfsliði var sett á stofn. Þá!
var / sgeir Ásgeirsson, fræðslu
málastjóri. Nú starfa átta
manns á fræðslumálaskrif-
stoíunni og starf hennar hef-
ir farið sívaxandi.
Skeröing neitunarvaldsins
samþ. á allsherjarþinginu
IIss?*jt að kalla allsherjarliing' saman innaia
K«larlirisi}»s liafi noitunarvaldi verið hoitt
Allsherjarþingið samþykkti í gær tillögu Breta og Banda-
ríkjamanna og sjö annarra ríkja um skerðingu neitunar-
valdsins í öryggisráðinu þegar um aðgerðir til verndar friði
er að ræða.
Þannig lítur járnbrautarsiöðin í Kiel út, þótt liðin séu firnm
ár siðau annarri heimsstyrjöldinni lauk og friður val* sam
inn í orði kveðnu.
Minni lexiulærdómur,
meira sjálfstætt nám
or sírínau í skúSaniáliini allra ftorðiirlamla
Helgi Elíasson, fræðsiumálastjóri, og Jónas B. Jónsson,
fræðslufulltrúi, sáiu í byrjun október þing fræðslumála-
stjóra og námsstjóra á Norð'urlöndum. Skýrðu þeir frétta-
mönnum nokkuð frá störfum þings þessa í gær.
Fer I lieiinsókn til
Orikklands
Elísabet Englandsprins-
essa mun fara í heimsókn til
Grikklands í byrjun desem-
ber n. k. til fundar við skyld-
fólk sitt í grísku konungs-
f jplskyldunni. Hún skilur,
börn sín eftir heima í Lon- [
don. — 1
Svíar boðuöu til þingsins.
Það var fræðslumálastjórn
in í Svíþjóð, sem bryddi á
þinghaldi þessu og sendi
fræðslumálast j órum hinna
Norðurlandanna boðið og ósk
aði eftir þátttöku. Slíkt þing
hefir ekki áður verið hald-
ið, en var til þess ætlað að
forvígismonn þessara mála
kynntust stjórnarháttum
skólamálanná í hinum Norð-
urlöndunum, ræddu sameig-
inleg vandamál og ykju per-
sónuleg kynni.
Þingið var haldið í Gauta-
borg og hófst 5. okt. Sóttu
það 11 Danir, 2 Finnar, 10
Norðmenn, 2 Islcndingar og
um 70 Svíar. Fræðslumála-
stjóri Svia setti þingið, en síð
an héldu fræðslumálastjórar
hvers lands eiindi um skipu-
lag skólamála í landi sínu, og
á eftir voru fyrirspurnir og
svör. Hafði slíkra yflrlitser-
inda verið óskaö í fundarboði
til þess að fá umræðugrund-
völl, er hæfi þ.nginu.
Áhyggjuefnið hið sama.
í erindum þessum og um-
ræðum, sem af þeim spunn-
ust, kom skýrt í ljós, að á-
hyggjuefni skálamanna á öll-
um Norðurlöndunum eru svip
uð og bundin við ákveðna ann
marka. Er þar efst á baugi
hinn gegndarlausi lexíulær-
dómur skólanna, sem flest-
um virðist vera mjög á kostn
að sjálfsnáms og einstaklings
þroska. Reynt er nú alls stað-
ar eftir megni að minnka lex-
íunámið en auka sjálfstætt
námsstarf eftir mætti. Fara
fram á öllum Norðurlöndun-
um athuganir og tilraunir í
þessa átt. í þessu sambandi
j var einnig rætt um prófin
og óttuðust
i ströngu oe
Tillagan var samþykkt með
52 atkvæðum gegn fimm en
Indland og tvö önnur ríki
sátu hjá. í ályktun þessari
felst það, að hægt er að kalla
saman allsherjarþingið með
sólarhringsfyrirvara, hafi
neitunarvaldinu verið beitt í ^
öryggisráðinu til þess að* 1
koma í veg fyrir aðgerðir S.
Þ. gegn ofbeldisárás á eitt-
hvert ríki innan samtakanna.
Til þess að skjóta málinu til,
allsherjarþings með þess'om
hætti þarf atkvæði sjö með-
limabjóða í ráðinu.
Ýmsar breytingartfllögur
höfðu komið fram við álykt-
un þessa en voru flestar felld
ar. Þó var samþykkt sú til-
laga, að skipuð skyldi sér-
stök nefnd er hafa ætti með
höndum eftirlit með því, að
friður sé haldinn og tilkynn-
ir hún öryggisráðinu, ef hún
telur, að grið hafi verið rof-
in. —
Forseti þingsins sagði að at
kvæðagreiðslu lokinni í gær,
að hér væri um að ræða ein-
hverja mikilvægustu sam-
þykkt allsherjarþingsins fyrr
og síðar, og mundi hún að
minnsta kosti gerbreyta á-
hrifaaðstöðu S.Þ. til að koma
í veg fyrir ófrið og þess væri
að óska, að S.Þ. bæru gæfu
til að neyta þessa aukna valds
til varðveizlu friðarins.
Fyrirlestur um at-
vinnu- og við-
skiptamál
Kristján Friðriksson fram-
kvæmdastjóri flytur opinber
an fyrirlestur í Listamanna-
skálanum á morgun, og hefst
liann klukkan tvö. Umræðu-
eíiii hans er atvinnu- og fjár-
hagsmál. -
í erindi þessu munu koma
fram ýmsar hugmyndir, sem
munu þykja nýstárlegar, bæði
um iðnaðarmál og gjaldeyris-
mál. —
Saknað flugvélar
með 48 farþega
Stór farþegaflugvél af Con-
stellation-gerð týndist í gær
á leið frá Kairó til London.
Flugvélin var að koma frá
Bombay en hafði viðkomu í
Kairó. í vélinni voru 48 far-
þegar og átta manna áhöfn.
Hún var komin norður yfir
Miðjarðarhaf, er síðast heyrð
ist til hennar. Leitarflokkar
voru sendir af stað í gær til
að leita i Svissnesku Ölpun-
um. —
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn
fær inns s aðvantkirkjunnii
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík hefir gert samn-
margir, að hin ing við aðventistasöfnuðinn hér um afnot af aðventkirkj-
nákvæmu próf, unni við Ingólfsstræti. Verða messur óháða fríkirkjusafn-
j sem víðast hefir verið beitt aðarins framvegis í aðventkirkjunni, og messar séra Emil
’ til þessa, mótuðu of mikið
skólastarfið og væru þránd-
ur í götu frjálslegri starfs-
hátta. Víða er nú tekið að
léttcí mjög á þessum prófum
og jafnvel talað um að af-
nema þau að verulegu leyti.
Annan dag þingsins skoð-
(Framnald á 7. siðu.)
Björnsson þar í fyrsta skipti kl. eilefu árdegis á morgun.
Frá því söfnuðurinn var Þakkir færðar.
stofnaður hafa guðsþjónust-1 Nú, þegar söfnuðurinn
ur hans farið fram í Stjörnu- j hættir messugerð í kvik-
bió. Hafa þær verið vel sótt- myndahúsinu hefir hann beð
ar, þótt í kvikmyndahúsi j ið Tímann að færa húsráð-
væri, og sannaðist þar hleypi I endum í Stjörnubíó þakkir
dómaleysi fólks.
„Jón biskup Arason”
I'runi.svniiiií ■ bjóólÞÍkiiúsiiiii á |irið.jiid:ig
Jón biskup Arason eftir Tryggva Sveinbjörnsson verður
sýndur í þjóðleikhúsinu i fyrsta skipti á þriðjudaginn kem-
ur, 7. nóvember, á f jögurra alda hátíð Hólafeðga. — Ilöfund-
ur mun ekki verða viðstaddur frumsýningu.
Leikendur.
I'relsisbarátta.
Tryggvi Sveinbjörnsson
skrifaði leikinn í Kaupmanna
höfn á hernámsárunum, og er
grunntónn hans baráttan fyr
ir frelsinu. Fyrsti og annar
þáttur gerast að Hólum, þriðji
þáttur að Sauðafelli og fjórði
í Skálholti.
Haraldur Björnsson veröur
leikstjóri. Valur Gíslason leik(
ur Jón Arason, Arndís BjörnSj
dóttir leikur Helgu, Róbert
Arnfinnsson leikur Ara og
Haukur Óskarsson Björn.
Alls verða leikendur tuttugu,
auk þrjátíu manna, sem koma
inn á ieiksviðið.
fyrir veitta aðstoð og slíkt
hið sama aðventistasöfnuð-
inum, er nú lánar guðshús
sitt, þrátt fyrir nokkurn' mun
á kenningum þessara tveggja
safnaða. : T
Yfivlýsing aðveivtista.
Július GuðmunGsSon hefir
af hálfu stjómar aðventista-
safnaðarins látlð svo um-
mælt:
„í sambandi við ofanritað
óskum vér aö taka það fram,
að með ákvörðun vorri um
að leyfa óháða fríkirkjusöfn-
uðinum afnot af kirkju vorri
til guðsþj ónustuhalds tökum
vér énga afstöðu til skoðana-
muns þess, er ríkja kann á
milli hinria lútersku safnaða
hér í bænum. Söfnuðir vorir
(Framhald & 7. síðu.)