Tíminn - 26.11.1950, Side 8
34. árg.
Reykjavfk
26. nóvember 1950.
265. blað.
„4 FÖRMJM VEGI“ I DAG:
Sítnutnál f% épttvofisbúu
Grasið hætt að gróa upp úr stakkstæðunum:
Saltfiskverkunin aftur orðin
helzta atvinnugrein fslendinga
Hér áður fyrr, þegar tilveran við sjávarsíðuna kringum
strendur landsins byggðist svo að segja eingöngu á salt-
fiski og síld, var atvinnulífið í föstum skorðum. Karlmenn-
irnir veiddu á vertíðinni, konurnar vöskuðu fiskinn á vorin
og þurrkuðu hann með aðstoð aldraðra manna og unglinga
á sumrin, meðan karlmennirnir voru flestir við síldveiðar.
Svo kom stríðið á Spáni og
síðar um heim allan og
breytti lögmálinu með saltfisk
inn og síldina. Hvítar breið-
ur af saltfiski á stórum svæð
um blöstu ekki lengur við
sjónum á sólheitum sumar-
dögum. Stakkstæðin, sem áð
ur voru iðandi af lífi og starfi
urðu auð og tóm, eins og j
yfirgefinn orustuvöllur og
grænt grasið fékk að gróa í
næði upp á milli steinanna,
meðan þjóðir heimsins börð-
ust og höfðu ekki tíma til j
þess að bíða eftir því, að fiskn 1
um væri breytt í saltfisk með
aðstoð hinnar stopulu sum-
arsólar norður við heims-
skautsbaug.
Gömlu markaðslöndin
koma aftur til sögunnar
En það, sem réði þó mestu,
var það að markaðslöndin i
suðri, þar sem saltfiskurinn
er sá fiskur sem hæfir bezt,
Jokuðust. Spánn og Ítalía,
okkar gömlu viðskiptalönd,
voru úr sögunni sem við-
skiptalönd íslendinga af
styrjaldarástæðum. i
Nú er þetta breytt aftur. ís
lenzki saltfiskurinn er aftur
orðin vinsæl markaðsvara i
Jöndum hinnar suðrænu sól-
ar við Miðjarðarhafíð. Á-
stæða er til að ætla, að með
aukinni vöruvöndun og að-
gæzlu á öllum sviðum geti ís-
Jenzki saltfiskurinn jafnan
átt örugga markaði hjá þess-
um suðrænum þjóðum, sem
kunna að meta góðan salt-
fisk og finnst ísaður fiskur og
frystur alls ekki vera fiskur.
Svipast um eftir
íslenzkum saltfiski
ítölsku bændurnir eru nú
aftur farnir að svipast um á
markaðstorginu eftir „Pakk-
ala Islanda“. Helzt vilja þeir
fá hann sólþurrkaðan og
geyma hann við bæjarvegg-
inn eins og góðum búmönn-
um sæmir og borða hann
steikan i ólivuolíu og tómat-
sósu með rauðvínsbelg við
hlið sér.
Hafa því algjör straum-
hvörf orðið í framleiðsluhátt
um og verkun íslenzka fisk-
aflans á tveimur síðustu ár-
um. Er það eðlileg afleiðing
af lokun freðfiskmarkaðanna
í Norðurálfu. Suðurlandabúar
kunna heldur ekki að borða
freðfisk og vilja það ekki.
Allar horfur eru á því, að
íslendingar verði á næstu ár
um að efla mjög saltfiskverk
unina, og þarf það ekki að
vera neitt neyðarbrauð, þar
sem saltfiskur er víða um
heim seljanleg vara og eftir-
sótt, sé um góðan fisk að
ræða.
Stakkstæðin aftur orðin
vettvangur dagsins.
Sumarið í sumar hefir ver-
ið mikið saltfisksumar á ís-
landi. Gömlu fiskireitirnir,
sem fallnir voru í gleymsku
og dá urðu aftur þungamiðja
athafnalífsins kvölds og
morgna, þar sem sólin lét sjá
sig. En hvítklæddir stakkarn
ir stóðu einir eftir á stakk-
stæðinu á kvöldin og biðu
næsta sólskindags.
Fiskþurrkun undir berum
himni útheimtir mikla vinnu.
En sú er bót í máli, að ungling
ar eru liðtækir við fiskþurrk
unina, og kemur sér vel sú
vinna, er þannig fellur til,
bæði fyrir atvinnulífið og
unglingana, sem eru starfs-
lausir að loknu skólanámi.
Venjulega tekur 10—12
sólskinsdaga að sumrinu að
fullþurrka saltfisk, ef ekki sé
þurrkað upp á hörðustu
gráðu. Venjuleg þurrkun er
sú, sem unnin er fyrir Spán-
armarkað. Fiskur á Portúgals
markað er svolítið harðari,
og saltfiskur, sem ætlaður er
til sölu í Suður-Ameríku, er
grjótharður, svo að þannig
fæst hann vart með þeirri
útiþurrkun, sem völ er á hér
á landi.
Fallegastur sólþurrkaður.
Þarf hann hita og þurrk
til viðbótar við sólina.
Þróunin hefir líka orðið
sú, að nú þegar aftur er tek-
ið til við saltfiskverkunina,
koma þurrkhúsin til sögunn-
ar. Nú er fiskur óvíða þurrkað
ur til fulls úti, heldur hert á
þurrkuninni i húsunum og
henni lokið þar.
En sólþurrkun úti á stakk-
stæðunum liður samt varla
undir lok. Sólþurrkaði f!sk-
urinn verður alltaf fallegri.
En vinnan við þá þurrkunar-
aðferð er dýrari og auk þess
er stopul veðrátta-n. Gæðin
og fegurð saltfisksins er þó
það, sem margir keppa að
og allir eiga að keppa að.
Þess vegna er kapp á það
lagt að þurrka eins mikið úti
og kostur er.
j
j Fjörugt athafnalíf á
björtum sólskinsdegi
Á stórum stakkstæðum, þar
(Framhald á 7. siðu.)
Þessi mynd er tekin yfir stakkstæðið í Hafnirfjarðarhrauni, þegar verið er að ljúka
breiðsluna. (LJísm. Guðni Þórðarson)
Fí’s/cjburr/cun z HafnarfjarðarhraunL
Myndir þessar voru teknar í haust af stakkstæði í Hafnar-
íjarðarhrauni. Á efri myndinni sjást stúlfcurnar, vera að
breiða fiskinn á stakkstæðinu en á þeirri neðri eru menn
að taka fiskinn úr stakknum á handbörurnaf, sem hann er
borinn á út um stakkstæðið. (Ljósm. Guðni Þórðarson)
Áhugi á rýmkun lantí-
helgi vestan lands
Okknr vantar tilfinnanlega betri liöfn. seg
ir Gnðbrandur Guðbiartsison í Ólafsvík
Mikill áhugi er nú fyrir því í útgerðarbæjunum v'.fi Breiða
fjörð, að landhelgin þar verði rýmkuð eða ákveðin svæði
friðlýst á vetrarvertið og bátamið friðuð fyrir ágangi togara,
sagði Guðbrandur Gubjartsson, hreppstjóri á Ólafsvík í við-
tali við tíðindamann frá Tímanum
Ágangur af togurum á báta
miðum á Breiðafirði er tals-
verður, og bitnar það ekki
sízt á Ólafsvíkurbátum á vetr
arvertíð, þegr<r sækja þarf
norður í svonefndan Á1 eða
norður á Fláka. Þar er m'kið
af togurum og scmuleiðis um
hverfls nesið.
t
Ólafsvíkurhöfn.
Annað áhugamál íbúa Ól-
afsvíkur er að hcfnin þar
verði endurbætt st'rlega, svo
að hún verð örugg og góð
stærri bátum en nú er. Frá
Ólafsvík er mjög skammt á
góð mið, og það er oftar en nú
sern bar er mokafli. Má því
vera ljðst, hvílíkt t.jún þgð
| er, að ékki skuli vera hæyt að j
| nýta betur en nú er þessi!
góðu bátamið.
íbúar Ólafsvíkr byggja þó
afkomu slna ekki eingöngu á
sjónum. Þar er einnig land-
búskapur til léttis og tekju-
auka ,þótt í smáum stíl sé.
60—70 kýr munu vera í kaup
túninu, og þegar fjárskiptin
fóru fram, komu þangað 300
kindur af nýjum stofni. Er á-
hugi fyrir auknum land-
búskap mikill, enda eru
sk lyrði fremur gcð og
landíð kjarngott. Eyðijarðír
inni í Fröðársveit, nm sex
kíl'metra frá kauptúninu eru
nytjaðar til héyöflúnar
handa fénaði í Ólafsvík.
Málfondakcpcr
F.U.F.
sveiíimum.
Framsogum a Ö ui* I ón
Snæbjörnsson. ; ,
Mætið vel og stundvís-
lega.