Tíminn - 30.11.1950, Síða 1
RtUtjóri:
Hrarinn Þórarlniaou
Wréttaritstfórii
J&n Hetgatou
Ótgeiandi:
rrauuókuarflokkuriuu
Skrifltofur < Edduhútinu
. Fréttasimar:
i;302 0(7 3X303
A/preiðsZusÍTOl 2323
Avflvsingasitnl S1309
FrentsmiOjan Edda
34. átg.
Revkjavik, fimmtudaginn 30. nóvembcr 1950.
268. blað
Banamaður Jóns
Jóhannssonar
fundinn
Lögreglan fann i fyrrinótt
manninn, sem veitti Jóni Jó-
hannssyni bílstjóra bana-
högg á Háteigsveginum að-
faranótt þriðjudagsins.
Hann heitir Páll Helgi Ólaf-
ur Þorfinnsson, til heimilis
að Eístasundi 68, aðeins ní-
tján ára að aldri.
Hann er nú í haldi. og hef-
ir hann játað á sig sök sína.
Farþeginn í bílnum var Arn-
ór Bjcrnsson, Bankastræti 10.
Raknaður úr roíinu
Maður sá, sem fannst með-
vitundarlaus á Grettisgöt-
unni í fyrradag, kom til sjálfs
sín í fyrrinótt, og fór hann úr
Landsspítalanum heim til
sín í gærmorgun.
Maðurinn hafði verið ofur-
öivi á slangri og fallið á
gangstéttarbrúnina.
Hlutaf.jársöfnunin
á Akureyri geng-
ur vel
Eins og fyrr hefir verið frá
skýrt hafa Akureyringar mik-
inn hug á að bæta við sig ein-
um togara enn af þeim, sem
verið er nú að smiða í Eng-
landi. Hóf útgerðarfélagið
hlutafjársöfnun í því skyni
og þurfti að safna 400 þús.
kr. Hefir fjársöfnunin gengið
allvel og í gær vantaði aðeins
150 þús. kr. upp á. Er mál
þetta því að komast heilt í
höfn og vona Akureyringar
fastlega að geta bætt við sig
einum togara.
„Já, en hestat cru þó 3iiotnir,“ var heiti bókar einnar, sem
var metsölubók í Ameríku fyrir nokkrum árum. í henni var
m. a. iýst þeim atburði, að Maraþon-dansari skaut dansfé-
Iaga sinn, stúlkuna, sem hann dansaði við. Nú hefir sams
konar atvik skeð í raun og veru. Maraþon-dansari einn í
Oakland skaut nýlega dansfélaga sinn, ungfrú Violet VVatson.
Hér sést hún liggja á dansgólfinu. Morðinginn var hermað-
ur, er hét Stoneman og flúði hann þegar af hólmi.
Smyglarar og launsal-
ar sannir að sök
*
2 sjómeim smyglnðu, mllliliðlr tóku vl#
variiin»'ii(im, söltimaður annaðist (Ireifingii
Við rannsókn á uppruna smyglvarnings, sem tekinn var
fyrir nokkru í bifreið í Hrútafirði af sölumanni, sem þar var
á ferð, hefir sitthvað koniið á daginn um smygl og svarta-
markaðssölu á smyglvarningi.
Maður drukknar í
Patreksfjarðarhöfn
\;iðisí skjott úr sjúnuni. en líf^unartilrauu-
ir allar roytidusf árangurslausar
Frá fréttaritara Tímans á Patreksfirði.
Það slys varð á Patreksfirði í fyrrakvöld, að Hjörtur Krist-
jánsson verkamaður, til heimilis að Urðuxn á Patreksfirði,
féll í höfnina þar og drukknaði. Voru árangurslausar lífg-
unartilraunir gerðar fram á nótt.
i
Tildrög þessa slyss voru
þau, að Hjörtur heitinn ætl-
aði um níuieytið í fyrrakvöld
um borð í vélskipið íslending,
frá Reykjavík, er lá við bakk-
ann í nýju höfninni. Féll
hann niður á milli skipsins og
hafnarbakkans.
Náðist skjótt.
Þrír ^.skipverjar á íslendingi
urðu varir við slysið. Voru það
Hjörtur Bjarnason, stýrimað
ur frá ísafirði, Jón Vidalín
vélstjóri, Framnesvegi 50, og
Leifur Pétursson háseti. Mið-
fcúni 28, báðir úr Reykjavík.
Brugöu þeir þegar við um
björgun. Sáu þeir brátt, hvar
Hjörtur heitinn flaut við skip
ið, og voru ekki nema örfáar
mínútur frá því hann féll í
sjóinn, þar til þeim tókst áð
ná honum.
Lífgunartilraunir
árangurslausar.
Lífgunartilraunir voru þeg
ar hafnar, og læknir kvaddur
til. Var tilraunum haldið á-
fram fram á nótt, en þær
báru engan árangur. Telur
læknirinn, að hjarta manns-
ins muni. hafa bilað, þegar
er hann féll i sjóinn.
Hjörtur heitinn Kristjáns-
son var 51 árs að aldri, kvænt
ur maöur og átti einn upp-
komirm son og aldraða móð-
ur. —
Grafan farin frá
Patreksfirði
Mörg stór skip Itaifa
Issgþet jsö nýja hafnar-
ftafcknnmn
Frá fréttaritara Tímans
á Pat.reksfirði.
ÆQir fór á mánudaginn með
gröfuna, sem notuð hefir ver-
ið við uppmokstur hinnar
nýju hafnar hér. Ekki er þó
enn lokið við að grafa nema
um helming þess, sem grafa
þarf, svo að höfnin verði eins
og hún á að verða.
Höfnin hefir verið notuð
um skeið, og hafa komið þar
að bryggju togarar og allstór
strandferða- og flutninga-
skip, eins og Hekla og Linge-
stroom.
Tvennir bílaárekstrar
hjá Hreðavatni
Fimm togarar með
karfaafla til Hjalteyrar
HjaHeyrarverksmiðjan liefir nú tekið við
9 þús. lestum af karfa síðan f vor
Tekizt hefir að rekja upp-
runa allmikils af smyglvarn-
ingi þeim, sem maður þessi,
Steinberg Jónsson, sölumað-
ur úr Reykjavík, hafði á boð-
stólum og seldi víðs vegar uin
land á svörtum markaði.,
Höfðu tveir sjómenn á milli- j
landaskipi í Vesturheimssigl- |
ingum smyglað þessum vam
ingi inn í landið.
Frá fréttaritara Tímans á Akureyri.
Síldarverksmiðjan á Hjalteyri hefir nú tekið á móti nálega
níu þúsund lestum af karfa til bræðslu síðan karfaveiðarn-
ar hófust í vor.
Síðustu daga hafa fimm
togarar lagt á land karfa-
afla sinn á Hjalteyri. Eru
það Egill rauði, Goðaborg,
Egill Skallagrímsson, Askur
og Hvalfell. Afli þessara tog-
ara var samtals um 1500 lést-
ir. —
Áður en togaraverkfallið
hófst í sumar hafði verksmiðj
an tekið við um 3 þús. lest-
um til vinnslu, en meðan á
verkfallinu stóð, lögðu Norð-
f j aröartogarinn og Seyðis-
fjarðartogarinn aflá sinn þar
á land. Hefir því alltaf verið
unnið i verksmiðjunni, þótt
fullkomið verkefni hafi hún
ekki fengið fyrr en nú.
Vegna þessarar karfa-
vinnslu hefir alltaf verið
mikil og góð atvinna á Hjalt-
eyri, og nú síðustu dagana
hefir orðið að fá menn úr ná-
j grenninu, af Árskógarströnd
| og víðar, til þess að anna
j vinnslu ails þess afla, sem nú
beist þar á ianö.
Milliliðir.
Síðan hafði varningur þessi
lent í höndum manna, sem
einkum höfðu með höndum
útvegun fyrir sölumanninn,
gegn ágóða fyrir meðalgöngu
^ína. Hins vegar virðist sölu-
maðurinn lítið sem ekkert
hafa fengið beint frá þeim,
sem að smyglinu stóðu.
6—7 menn munu við mál
þetta riðnir, og hafa þrír
þeirra verið i gæzluvarðhaldi
að undanförnu, en hefir nú
verið sleppt.
Mikið af varningi.
Það er allumfangsmikið
(Frnmtiald á 2. siðu.)
Maður vestan úr Dölum siúrslasa'öist —■
félag'i hans fékk heifahrisf Iiig
Síðari hluta dags í fyrradag urðu tvennir bifreiðaárekstrar
og alvarleg slys á mönnum í Grábrókarhrauni við Hrcðavatn,
nokkuð neðan við neðri skálann þar. Mun hálka á
veginum hafa átt þátt í árekstrum þessum.
Tveir menn slasast.
Um þrjúleytið í fyrradag
var jeppi vestan úr Miðdölum
á leið upp Grábrókarhraun.
Er hann var kominn upp und
ir neðri skálann þar,
komu á móti honum tveir
oliubilar úr Hvalfirði, og varð
harður árekstur milli jepp-
ans og annars olíubílsins.
Tveir menn voru í jeppanum,
Skúli Pétursson frá Breiða-
bólsstað og Gunnar Friöleifs-
son frá Gröf í Miödölum, og
hlutu þeir báðir mikil meiðsli.
Skúli skarst á andliti, höfuð-
kúpan sprakk og kjálkar
brotnuðu, en Gunnar fékk
heilahristing.
Annar árekstur.
Annar olíubíllinn ætlaði nú
niður í Borgarnes að sækja
lækni. En í þessari andrá bar
að vörubil úr Reykjavík og
varð annar árekstur milli
hans og olíubilsins, svo að
segja á sama stað og fyrri á-
reksturinn. Engin slys urðu á
mönnum við þennan árekst-
ur. —
Hinir særðu.
Það náðist þó til læknisins í
Borgarnesi, og var Skúli flutt-
ur i Landakotsspítalann í
Reykjavík, þar sem hann ligg
ur nú þungt haldinn. Gunnr
ar liggur hins vegar í neðri
skálanum við Hreðavatn, þar
sem menn, sem starfa að bygg
ingu S.Í.S. að Hreðavatni, eru
nú til húsa.