Tíminn - 30.11.1950, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN, fimmtudaginn 30. nóvember 1950.
268. blað
Orá ttafi til heitSa
- \
Jfvarpið
lítvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Einsönögur: Amelita
Galli-Cursi syngur (plötur).
20.45 Lestur fornrita: Fóst-
bræðrasaga (Einar ól. Sveins-
son prófessor). 21,10 Tónleikar
(piötur). 21,15 Dagskrá Kven-
réttindafélags íslands. — Sam-
tal: Frú Sigríður J. Magnússon
talar við frú Maríu Björnsson
um félagsmál kvenna í Vestur-
heimi. 21,40 Tónleikar (plötur).
21.45 Frá útlöndum (Jón Magn-
ússon fréttastjóri). 22,00 Fréttir
og veðurfregnir. 22,10 Sarnnor-
rænir tónleikar: Finnland (plöt
ur): a) Píanókonsert efnr Uuno
Klami. b) „Pan og Echo“ eftir
Sibelius. c) Konsertforleikur eft
ir Eino Linnala. 23,00 Dagrkrár-
lok.
Hvar eru. skipin?
Sambandsskip:
M.s. Arnarfell er í Ibiza. M.s.
Hvassafell er í Gautaborg.
Ríkisskip:
I-íekla var væntanleg til Djúpa
Vogs snemma í morgun á norð- !
urleið. Esja fer frá Reykjavík í
kvöld vestur um land tii Akur- |
eyrar. Herðubreið er í Reykja- j
vík. Skjaldbreið var va ntanleg
til Sauðárkróks í gærkvóld á
norðurleið. Þyrill er norðan-
lands. Straumey var væntanleg
til. Fáskrúðsfjarðar i morgun á
nörðurleið. Ármann er : Vest-
niannaeyjum. ,
Eimskip:
Brúarfoss kom til Gautaborg-
ar 27. 11. fer væntanlega frá
Kaupmannahöfn 2. 12. til Rvik-
ur. Dettifoss kom til New York
28. 11. frá Reykjavík. Fjallíoss
kom til Vaag i Færeyjum 29. 11.
fer þaðan til Reykjavíkur. Goða-
íoss kom til Reykjavíkur 28. 11.
frá New York. Lagarfoss er i
Antverpen, fer þaðan í dag 29.
11. til Rotterdam, Hull og Reykja
víkur. Selfoss er á Akureyri.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 27.
11. til Newfoundland og New
York. Lauca Dan er væntanleg
til Halifax í byrjun desember,
lestar vörur til Reykjavíkur.
Foldin lestar í Leith 4. 12. til
Reykjavíkur. Vatnajökull lestar
í Gdynia í byrjun næstu viku til
Reykjavíkur. i
Flugferðir
Eoftleiðir h. f. I
Innanlandsflug: í dag er á^- (
ætlað að fljúga til: Akureyrar
kl. 10,00 og Vestmannaeyja kl.
14,00. Á morgun er áætlað að
fljúga til: Akureyrar kl. 10,00
og Vestmannaeyja kl. 14,00.
Flugfélag Islands h. f.
Innanlandsflug: 1 dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar,
Vestmannaeyja, Sauðárkróks.
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar.
Neskaupstaðar og Seyðisfjarðar.
Frá Akureyri verða flugferðir
til Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og
Kópaskers. Á morgun eru áætlað
ar flugferðir til Akureyrar, Vest
mannaeyja, Kirkjubæjarklaust
urs, Fagurhólmsmýrar og Horna
fjarðar. Frá Akureyri verður
flogið til Siglufjarðar og Aust-
fjarða.
Millilandaflug: „Gullfaxi“ er
væntanlegur til Reykjavíkur frá
Prestwick og Kaupmannahöfn
í dag. Flugvélin tafðist ytra
vegna veðurs.
Úr ýmsnm áttum
Verzlunum og
skriístofum lckað á morgun.
Á morgun er 1. des. Venju-
lega hafa skrifstofur og verzlan
ir verið opnar til hádegis þann
dag en nú verða þessar stoin-
anir lokaðar allan dáginn. Er
það mest vegna allsherjarmann
talsins sem fram fer þennan
dag.
Radióvitinn á Kálfhamarsvík
er bilaður, og sendir því e'r.ki
að sinni.
Til Akraness
kom togarinn Karlsefni með
220 lestir af karfa, og verður
sá afli allur bræddur.
Til Patreksfjarðar
kom í gær togarinn Neptúnus
með 270 lestir. I vikunni kom
Marz þangað með 300 lestir.
Afli þeirra verður bræddur á
Patreksfirði, eins og hann kem
ur fyrir. Er þó ekki eingöngu
um karfa að ræða heldur ýms-
ar fisktegundir.
Snjór
kom í fyrsta skipti að kalla
á láglendi í Patreksfirði í fyrra
dag. Ekki er snjórinn þó mikill,
og vegir allir færir, nema til
Bíldudals. Leiðin þangað hefir
lokazt.
Færð um Bröttubrekku.
er nú orðin allþung. Menn,
sem voru á leið yfir fjallið á
vörubíl í gærmorgun, urðu að
yfirgefa farkost sinn, en þó
tókst þeim að ná honum síðar í
gær. Áætlunarbíllinn úr Dölum
komst heilu og höldnu yfir fjall-
ið í gær.
Skagíirðingafélagið.
efnir til skemmtikvölds helg-
að Stephan G. Stephanssyni.
Vel er til skemmtiatriða vandað
og rennur allur ágóði af skemmt
uninni til byggingar hins fyrir-
hugaða minnisvarða skáldsins í
Skagafirði. Hér gefst velunn-
urum Stephans G. gott tækifæri
til að styrkja gott málefni, og
minnast skáldsins. Sam^oman
verður 1. des. í Breiðfirðingabúö
Hafnarfjarðartogararnir.
Júlí kom af karfaveiðum á
mánudaginn með 312 smálestir
og verður sá afli að miklu leyti
bræddur. Maí kom af ísfiskveið
um í gær með fremur lítinn
afla, 1500—1600 kitt, og fór til
Englands.
Landssamband íslenzkra
stangveiðimanna stofnað.
Hinn 29. okt. s. 1. var stöfnað
hér í Reykjavík Landssamband
ísl. stangveiðimanna. '
Sem kunnugt er hafa félög
stangveiðimanna verið stofnuð
víðsvegar um landið, og hefir
þeim fjölgað ört á síðari árum.
Veiðimenn töldu því að það
mætti ekki lengur dragast, að
stofna landssamband, sem
gegndi svipuðu hlutverki og hl'ið
stæð sambönd veiðimanna í öðr
um löndum.
Tiigangur Landssambands
ísl. stangveiðimanna er m. a.
þessi: 1. Að koma á sem víð-
tækustum samtökum veiði-
manna um land allt og bæta að
stöðu þeirra til veiði í ám og
vötnum landsins. 2. Stuðla að
aukningu fiskistofnsins í ám og
vötnum. 3. Vinna að nauðsyn-
legum endurbótum á veiðilög-
gjöfinni og vera fulltrúi sam-
bandsfélaganna gagnvart hinu
i opinbera. 4. Stuoia að góðri sam
vinnu stangveiðimanna og veiði
eigenda. 5. Kenna mönnum að
viroa log og regiur um veiöi.
Stjórn sambandsins skipa þess-
| ir menn: Sæmundur Stefáns-
1 son, Reykjavík, formaður. Frið-
I rik Þórðarson, Borgarnesi, gjald
keri. Víglundur Möller, Reylcja-
vík. Pálmar ísólfsson, Reykjavík
og Egill Sigurðsson, Akranesi.
Varaformaður er Gunnar J.
Möller, Reykjavík. Utanáskrift
| sssmbandsins er Pósthólf 1036
Rvík.
Háhyrningar leika
sér við síldarbátana.
Sjómaður af einum rekneta-
bátnum leit inn í skrifstofu
Tímans í gær. — Þetta er í
raiin og iveru fyrsti garðurinn,
sem kemur á haustinu, sagði
hann. Þótt oft hafi verið svelja
hefir ekki fyrr komið raunveru
legur norðvestangarður nieð
foráttubrimi. Við fundum
! mikla síld í Miðnessjó í gær-
: kveldi á mæli en hún var
j lengra út og grynnra í sjó en
í venjulega. Við urðum að draga
! netin eftir klukkutíma, én þó
j var í þeim nokkur síld.
Það hefir verið geysimikið af
háhyrningum á síldarmiðun-
um undanfarið. Það er gaman
að sjá aðfarir þeirra kringum
bátana, þcgar verið’ er að
draga netin. Þair kcma alveg
að bátunum og tína síldina,
sem hrýtur útbyrðis undan
vindunni, kippa jafnvel síld
og síld úr netjunum. Þeir eru
svo gæfir að furðu sætir, oft
ekki nema tveir þrír metrar
að þeim frá borðstckknum.
Við skemmtum okkur þá stund
um við að kasta síid og síld í
hausinn á þeim, þegar þeir
koma úr kafinu og gripa þeir
hana þá snarlega.
Smygl SatansaSa
(Framhald af 1. si3u.)
smygl, sem hér hefir sannazt,
og margs konar varningur,.
sem komizt hefir á svarta
markaðinn eftir þessum leið
um. Er hér ebkum um að
ræða slæður, hálsbindi, vara-
liti, kúlupenna, skrautmuni,
hálsfestar, armbönd og eyrna
lokkar.
— Rannsókn er enn haldið
áfram.
NÝJAR NORÐRA-BÆKUR
|
[
i
SOLEY I IIIIÐ:
Maður og mold
Hér er nýr og athyglisverður
höfundur á ferðinni með á-
kveðiö takmark. Sagan fjall-
ar um göfugar ástir og tryggð
við átthagana og bartsýni á
hlutverki þeirra, sem helga
moldinni krafta sína. Frá-
sögnin er hrífandi og sér-
stæð, atburðaröðin hröð og
spennandi. Enginn lesandi
gleymir stórbóiidasyninum
frá Fellási, sem kemur heim að loknu stúdentsprófi til
þess að starfa á föðurleifð sinni, né heldur hinni ungu,
umkomulausu Reykavíkurstúlku. Margt fólk kemur við
sögu, og því er lýst af næmum skilningi. — Sóley í Hlíð
er húsfreyja í einni afskekktustu sveit landsins. Hún
tileinkar manninum sínum, Jónasi A. Helgasyni, bók
þessa. í ávarpsorðum til lesenda getur hún þess m. a.,
að sagan hafi verið olnbogabarnið sitt, „fóstruð upp í
öskustónni við þröngan kost.. En olnbogabörn biðjast
aldrei vægðar.“ Sóley í Hlíð þekkir yrkisefni sitt. Maður
og mold verður mikið lesin bók.
ELINBORG I.VRUSDOTTIR:
í faðmi sveitanna
I
Endurminningar Sig-
urjóns Gíslasonar frá
Kringiu í Grímsnesi
1866—1950. — Hér er
snilldarvel - haldiö á
fjölskrúðugu efni at-
burða og starfa í for-
tíð og nútíð undir
þaki fjölbreyttasta og
myndauðugasta leik-
sals mannlegs lífs.
Fjöldi manns kemur
hér við sögu austan
Heiðar og vestan. Hér
er meðal annars sagt
frá Hraungerðisheim
ilinu og æskuárum
þeirra bræðra, séra
Ólafs Sæmundssonar
í Hraungerði og séra Geirs, síðar vígslubiskups á Akur-
eyri. Hér er sagt frá Guðmundi Guðmundssyni i Laugar
dælum, lækni Árnesinga 1877—1895, Sigurði í Lang-
holti, Kolbeini í Seli o. fl. o. fl. — í faðmi sveitanna er
bráðskemmtileg og fróðleg bók, rituð at skilningi og
snilld.
OSKAR AÐALSTEINSSON:
líögni vitasveinn
Vtbreilii Timahh
Anglýsingasíml
Tlmans
er 81300
TILKYNNING
frá sérleyfisbifreiðum Keflavíkur
Frá og með 1. desember 1959, vcrður bifreiða-
afgreiðsla vor í Reykjavík í FERÐASKRIF-
STOFU RÍKISINS, - stmi 1540
Þetta er unglingasaga frá
stjörnubjörtum kvöldum með
leiftrandi norðurljósadýrð -
spennandi saga frá nyrstu
ströndum íslands um Högna
vitasvein, sem verður „að-
stoðarmaður“ föðurs síns við
vitaga^zlu á einum afskekkt
asta stað iandsins og lendir
í margs konar ævintýrum og svaðilförum við björgun
sjófarenda í fárviðri og skammdegismyrkri. — Ábyrgð
armikið starf og ekki heiglum hent.
HÖGNI VITASVEINN er fyrsta íslenzka
unglingabókin, sem lýsir störfum vitavarða
og baráttu þeirra.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦❖♦♦♦♦♦
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS
4. >: ý • í 'f m;i? • íw at