Tíminn - 30.11.1950, Síða 8
34. árg.
Eeykjavík
30. nóvember 1950.
268. blaS
Sinfóníuhljómsveítin efnir
ti! æskulýðshljómleika
Þýzkssr hf jómsveilarsí jóri stýrir tveimur
hljómleíkum. Islenzkar sinfóníur hráðlos'a
Komirm er hingað til lands þýzkur tónlistarmaður, Her-
mann H Idebrandt að nafni. Kemur hann hingað í boði
sinfóníuhljómsveitarinnar og stjórnar hér á tveimur hljóm-
íeikum, á sunnudaginn kemur, og 17. desember. Blaðamenn
ræddu í gær v ð hljómsveitarstjórann og forstöðumenn hljóm
sveitarínnar.
Duglegur tónlistarmaður.
Hinn þýzki tónlistarmaður
er kunnur í heimalandi sínu
-og hefir sýnt mikinn dugnað
við tónlistarstörf i fæðingar-
borg sinni, Stuttgart. Stofn-
aði hann þar góða sinfóníu-
hljómsveit fyrir styrjöldina,
en síðan henni lauk hefir,
hann unnið að því að byggja
hana upp að nýju. Tónlistar-
menntun sína hlaut Hilde-
brandt í Berlín og Köln.
Hingað kom Hildebrandt
um miðjan þennan mánuð.
Hefir hann unnið að því að
æfa hljómsveitina fyrir hljóm
leikana á sunnudaginn.
Vaxandi aðsókn
að hljómleikum.
Forstöðumenn sinfóníu-
hljómsveitarinnar tjáðu blaða
mönnum í gær, að aðsóknin
að hljómleikum sinfóníu-
hijómsveitarinnar færi vax-
andi með hverjum hljómleik
um.
Gert er ráð fyrir að í des-
ember verði að minnsta kosti
tveir hljómleikar fyrir hátíð
ar, auk hljómleika, sem á-
kveðnir eru fyrir unglinga.
Sinfóníuhljómleikar
fyr.r æskulýðinn.
Hefir verið ákveðið að
stofna til nokkurrar æsku-
Iýðshljómle;ka. Verða þar
aðallega flutt léttari verk og
cnnur, sem frekar eru við
hæfi barna og unglanga.
Á þessum æskulýðshljóm-
leikum verður flutt ýmisiegt
af því, sem áður hefir verið
fiutt á hljömleikum sveitar-
innar, en auk þess margt ann
að til v ðbótar.
Fyrstu æskulýðshljómleikar
sinfóníuhljómsveitarinnar '
verða annan sunnudag í þjóð^
le khúsinu og verða aðgöngu
miðar að þeim seldir vægara
verði.
Fleiri íslenzk
verk í framtíðinni.
Blaðamenn notuðu tækifær
ið í gær til að spyrjast fyrir
um það hjá forráðamönnum
hljómsveitarinnar, hvort ekki
sé ætlunin að flytja allmikið
af innlendum sinfóníum á
hljómleikum sveitarinnar
framvegis.
Töldu hljómsveitarmenn,
að þess yrði skammt að bíða.
Bentu þeir á, að ýmsum ann-
mcrkum sé bundið að taka
íslenzk verk til flutnings. Af
þeim er að vísu allmikið til,
en ekki nema lítið sem unnið
er til flutnings fyrir sinfóníu-
hljómsveit. Hins vegar væri
ákveðið að fljótlega verði ís-
lenzk verk tekin til flutnings
á hljómleikum sinfóníuhljóm
sveitarinnar, og jafnan mikið
um þessi mál rætt meðal
hl j ómsveitarmanna.
Verk gömlu meistaranna
á sunnudaginn.
Efnisskrá sinfóníuhljóm-
Jeikanna á sunnudaginn er
viðamikil. Verða þá tekin til
meðferðar verk gömlu meist-
aranna. Flutt verða verk eft-
ir Mozart, Brahms og rúss-
neska tónskáldið Tschaikov-
sky. —
Á hinum sinfóníuhljómleik
unum, þar sem Hildebrandt
stjórnar, verður meðal ann-
ars tekið til meðferðar sin-
fónía nr. 3 eftir Beethoven.
Ágæt síldveiði hjá
Akranesbátum
Frá fréttaritara Tímans
á Akranesi.
Góður afli var hjá Akra-
nesbátum, þegar þeir komu
af veiðum í gærmorgun, þótt
ekki ræki nema um eina og
hálfa klukkustund hjá þeim
flestum.
Fóru þeir allir, 16 að tölu,
út til veiða fyrir hádegi í
fyrradag og lögðu í Miðnessjó,
nokkru eftir ljósaskiptin.
Versnaði veður þá fljótlega,
eins og skýrt var frá í Tím-
anum í gær, og fór allur flot-
inn þá að draga.
Akranesbátarnir voru að
koma heim í fyrrinótt frá
því klukkan 2,30 til 8 um
morguninn og fengu heldur
hraklegt veður á heimleið-
inni.
Voru þeir, eftir aðstæðum,
allir með jafnan og góðan
afla, 50—60 tunnur. Stöku
bátur var með minna, en tveir
voru með 107 og 108 tunnur,
Bjarni Jþhannesson og Fram.
Engin síldarbátar fóru til
veiða í gær vegna veðurs.
411111111111111111111111111111111111111111111II11111111111111111111111.
| Samvinnunám-
I skeið á Akureyri I
z t
: ^ i
| í gærkvöídi lauk á Akur-
| eyri þriggja daga sam-
| vinnunámskeiði, sem Kaup
I félag Eyfirðinga efndi til.
\ Bauð félagið til námskeiðs
= 'ns fólki úr félagsdeildum
| sínum, og sótti það um 20
f nianns, konur og karlar.
| Xámskeiðið fór aðallega
j fram í gistihúsi K.E.A. og
1 voru þar flutt erindi um
I samvinnuinál og félagsmál
j kaupfélagsins, sýndar kvik
{ myndir og ýmis íyrirtæki
• h«»ímsóít.
11111111111111111111111111111111111111111111
Hafís 100 km.
undan landi
í gær sást hafísbreiða um
100 kílómetra norðvestur af
Straumnesi, og náði hún
eins langt til austurs og aug-
að eygöi.
Þetta er í annað sinn á
skömmum tíma, sem hafís-
fregnir berast af þessum slóð
um. —
Her S.Þ. styrkir varnarlínii
sína við Otiongchon-fijót
Norðiirhcrinn komimi snðnr yfir fljutið á
eiiuiHt stað og er 50 km. frá Pyongyang
Harðir bardagar geisuðu í Kóreu sem fyrr í gær. Suður-
herinn reyndi eftir megni að treysta varnir sínar á suður-
bakka Chongchon og er meginherinn kominn suður yí’ir
fljótið.
Aeliesoii fiytur
iitvarjssræðu
Acheson utanríkisráðherra
Bandaríkjanna flutti út-
varpsræðu i nótt og ræddi
Kóreumálin. í gær sat banda-
ríska stjórnin á löngum fundi
og einnig átti Truman for-
seti fund með æðstu mönn-
um hers og utanríkismála.
Syðst við fljótið eru þó
nokkrar sveitir Bandaríkja-
manna enn norðan þess og
hafa tvær hersveitir þar ver-
ið umkringdar að mestu. Sæk
ir kínverskur her þar fram
suðvestur með ánni til sjáv-
ar Og reynir að hefta för
bandarísku hersveitanna yf-
ir fljótið.
í bardögunum undanfarna
daga er talið, að norðurher-
inn hafi goldið mikið afhroð.
Hann beitir nú ógrynni liðs
og mörgum skriðdrekum. Sagt
er einnig, að herlið streymi
yfir Yalu-fljót inn í Kóreu
frá Mansjúríu.
Á einum stað fóru skrið-
drekahersveitir norðurhers-
ins yfir Chongchon-fljótið i
gær og sóttu suður á bóginn
og var talið að þær væru að-
eins 50 km. frá Pyongyang.
Víglínan er þó mjög óregiu-
leg og erfitt að átta sig á
stöðu einstakra herdeilda.
Lofther S.Þ. gerði margar
og miklar árásir á stöðvar og
herfylkingar norðurhersins í
gær og olli miklu tjóni. Sums
staðar flugu orrustuflugvél-
ar i fylkingum yfir hersveitir
með samfelldri skothríð og
ollu stórfelldu tjóni.
Nýtt bandarískt herlið var
sett á land i gær í Fusan,
hafnarborginni syðst á Kór-
euskaganum.
Húsmæðrafundir K.Á.
afbragðsvel sóttir
Síðustu daga hefir Kaupfélag Árnesinga efnt til sex hús-
mæðrafunda í öllum nítján deildum kaupfélagsins. Var fyrsti
fundurinn haldinn í Hveragerði fyrra mánudag, en hinn
síðasta að Selfossi í fyrrakvöld. Hinir fundirnir voru haldn-
ir að Stokkseyri, Brautarholti, Laugarvatni og Félagslundi í
Gaulverjabæ. Sóttu hvern fund á annað hunörað húsmæður.
Aðalfundi L.Í.Ú.
frestað
Aðalfundur Landssam-
bands islenzkra útvegsmanna
var settur 20. nóvember, en
nú hefir honum verið frest-
að. Aðalmál það, sem fyrir
fundinum lá, var rekstrar-
grundvöllur bátaútvegsins.
Var fundinum frestað sök-
um þess, að ekki er lausn
íengin á þessu vandamáli, og
eru þvi frekari umræður
gagnslausar að sinni. —
En starfað er að því að
finna lausn á þessu máli.
Egill Thorarensen kaupfé- |
lagsstjóri sótti alla fundina, j
stjórnaði þeim, flutti erindi j
um kaupfélagsmál og las j
kvæðin Móðir mín eftir Matt
hías Jochumsson og Einar,
Benediktsson. Baldvin Þ.
Kristjánsson sótti einnig alla
fundina, flutti erindi um hús-
mæðurnar og samvinnuhreyf
inguna og sýndi kvikmyndir.
Gísli Sigurðsson skemmti á
öllum fundum með gaman-
vísum og eftirhermum, nema
á Selfossfundinum — þar
sungu Söngbræður undir
stjórn Ingimundar Guðjóns-
sonar.
Hvarvetna bauð kaupfélag
ið t l kaffidrykkju, og voru
þar ræðuhöld og scngur og
annar gleðskapur. Á fundin-
um i Félagslundi vakti ung
stúlka, 16—17 ára, Stefanía
Pálsdóttir frá Litlu-Reykjum,
sérstaklega athygli með flutn
ingi þriggja kvæða af fullkom
inni raddbeitingu og leikræn
um tilburðum. — Allir fóru
• iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiimiiii«Mi«iMiiiiiiniiii*<iMitii
- i
| 90% af neyzíu-1
| vörura |
| Egill Thorarensen kaup-1
| félagsstjóri skýrffi frá því |
1 á húsmæðrafundum Kaup- i
| félags Árnesinga, að hér- |
i aðsbúar keyptu 90% af öll- i
{ um sykri, sem notaður er á I
| félagssvæðinu, hjá kaup- {
{ félaginu.
| Má af þessu draga þá á- |
I lyktun, að Kaupfélag Ár- |
| nesinga hafi nú hlutfalls- {
| Iega mesta verzlun allra |
| kaupfélaga í landinu, þar |
i sem aðrar verzlanir þó eru i
I á félagssvæðinu. =
fundirnir afbragðsvel fram,
og mælist þessi nýi þáttur í
kaupfélagsstarfinu afbragðs-
vel fyrir.
Utanríkismál rædd
í brezka þinginu
í gær hófust í neðri deild
brezka þingsins umræður um
utanríkismál og munu þær
standa tvo daga. Bevin ræddi
aðallega Kóreumálin í ræðu
sinni og kvað þessar umræð-
ur brezka þingsins einhverj-
ar hinar alvarlegustu, sem
fram hefðu farið lengi. Hann
sagði, að Kínverjar bæru nú
höfuðábyrgð á því, að ekki
kæmist á friður í Asíu. því að
það væri auðvelt, ef þeir
fengjust til samstarfs við S.
Þ. og til þess hefðu Bretar
viljað styrkja þá með því að
styðja upptöku þeirra. Hann
sagði, að Bretar væru alger-
lega á sama máli og Banda-
ríkjamenn og aðrir meðlimir
S.Þ. um aðgerðir í Kóreu, sem
sé það, að halda fast við þá á-
kvörðun að reka ofbeldisher
brott úr Kóreu og koma þar
á friði. Hann sagði, að Bretar
viðurkenndu ekki umráð
stjórnar Syngmans Rhee yf-
ir öðrum héruðum Kóreu en
þeim, sem hún hefði verið
löglega kosin í. Um Þýzka-
landsmálin sagði Bevin, að
mikilvægum áfanga væri náð
þar sem væri samkomulag
vesturveldanna um aðild
Þjóðverja að vörnum Evrópu.
Eden varð fyrir svörum af
hálfu stjórnarandstöðunnar.
Hann deildi á Bevin fyrir að
lýsa ekki skýrari stefnu
brezku stjórnarinnar í Kóreu
málunum og einnig' hvað
hann það mestu furðu, að
brezka stjórnin vildi enn
styðja upptöku Peking-stjórn
arinnar í S.Þ. þrátt fyrir of-
beldisverk hennar siðustu vik
ur í Kóreu og innrás gegn
herjum S.Þ.
Pleven biöur
um traust
Pleven forsætisráðherra
Frakka bað þingið 1 gær um
trpustsýfirlýsingu til handa
stjórn sinni. Kvaðst hann
hafa ákveðið að biðjast lausn
ar, en þar sem forsetinn. hefði
, ekki viljað taka lausnarbeiðni
| til greina hefði hann ákveð-
' ið, að fara þá leið, að láta
þingið skera úr um það hvort
, stjórnin sæti áfram eða ekki.
. Atkvæðagreiðslan um traust-
I ið fer fram á morgun.