Tíminn - 28.12.1950, Side 7

Tíminn - 28.12.1950, Side 7
289. blað TÍMINN, fimmtudaginn 28. des. 1950 T íslendingaþættir (FramhalA af 3. siBu.) afur verið einn af helztu og atkvæðamestu mönnum sveit ar sinnar. Þegar barist hefir verið fyrir framfara- og fé- lagsmálum, hefir hann jafn- an verið í fylkingarbrjósti, vigreifur bardagamaður, ör- uggur til sóknar og varnar. Ekkert hefir verið fjær hon um en gefast upp, þótt illa horfði stundum um hugðar- mál hans, og aldrei hefir hann látið hlut sinn meðan stætt var. Óiafur er að eðlis- fari skapríkur maður og ör- geðja. Og eins og oft vill verða um mikilhæfa skap- menn, var .hann ráðríkur og óvæginn og harðskeyttur andstæðingur. Á hinn bóg- inn er hann maður sáttfús og er ekki gjarnt að erfa mis- klíðir við menn. Á fundum var Ólafur held- ur stirt um mál. En þrátt fyr- ir það, var löngum veitt meiri athygli máli hans en margra þeirra, sem sléttmálir eru og flaumtalandi. Því olli skap- hiti og sannfæringarkraftur, er hann lagði í orð sín, þeg- ar honum fannst nokkuð við liggja. En væru honum orðin ekki ávallt sem tiltækiiegust í mæltu máli á fundum, var annað uppi er hann hélt á penna. Eins og vita má um mann, er svo lengi hefir gegnt oddvitastarfi, hefir Ólafur skrifað mikinn fjölda bréfa og málsskjala. Einkennilega víða bregður þar fyrir hjá Ólafi ritleikni og jafnvel stíl- snilli, er margur, sem telur sig rithöfund, væri fullsæmd- ur af. Þegar bezt liggur á Ól- afi, er sem hann leiki hand- öxum, og er þá allt á lofti í senn, glettni, ádeilur og viða- miklar röksemdarfærslur. Við sveitungar Ólafs og samstarfsmenn, minnumst hans sem eins hins svipmesta og minnisstæðasta manns, er við höfum kynnst.“ Gunnar Grímsson. Kvíarbryggja (Framhald af 5. síOu.) sagt virðist ekkert annað geta skýrt þessi kaup en að dygg- ir kosningasmalar íhaldsins þurfa að koma jörðinni í verð. Allar líkur benda til þess, að stofnkostnaður og rekstur v'nnuhælis yrði mjög dýr og örðugur á þessum stað og því næsta vafasamur sá ávinn- ingur ríkisins, að bærinn gefi honum þessa jörð undir vinnu hælisrekstur. Hér er því vissu Iega mál á ferð, er þarfnast nánari athugunar áður en lengra er út í það flanað. Hér hefir átt að nota gott mál t’l að koma fram mvrkra- verki, en enn ætti að vera tækifæri til að hindra það. Reykjavikurbæ ætti að vera í lófa lagið að finna aðra jörð, er hentaði betur til þessa reksturs, og sennilega á bær- inn þegar slika jörð, þar sem Korpúlfsstaðir eru. Vafasarot er, hvort nokkuð er skárra hægt að gea við Korpúlfsstaði en að koma þar upp vinnu- og betrunarhæli. X-f-Y. Hreingerningastöðin MJÖLL Annast jólahreingerning- arnar. — Pantið í síma 2355, (kl. 9—12 og 2—6). — Samningar nm þýzka herinn byrja 8. janúar Áttunda janúar næstkom- andi munu samníngar viö vesturþýzk stjórnarvöld hefj ast um stofnun þýzkra her- flokka og þátttöku þeirra í varnarkerfi Vestur-Evrópu. Stór þýzk nefnd skipuð full- trúum stæstu flokkanna ann ast samninga og er formað- ur hennar Theodor Blanc. Aðallega verður samið um stjórn þýzku herflokkanna og stærð þeirra, en sam- kvæmt samþykkt Atlanzhafs ráðsins má stærð þeirra ekki fara yfir 5—6 þús. manns hvers. Ragnar Jónsson hæstaréttarlögmaður Laugaveg 8 — Sími 7752 Lögfræðistörf og eignaum sýsla. SK1P/UITG6KÐ RIKISINS Armann fer til Vestmannaeyja í kvöld. Tekið á-móti flutningi í dag. Forðizt eldinn óg eigoatjón Framleiðum og seljum flestar tegundir handslökkvl tækja. Önnumst endurhleðslu á slökkvitækjum. Leitið upp- lýsinga. Koisýruhleðslan s.f. Símí 3381 Tryggvagötu 10 Frímerkjaskipti Sendið mér 100 fslenzb frf- merki. Ég sendi yður um hae) ?00 erlcnd frfmerki. J 0 N AGNARS, Friiuerkjavervlun, P. O. Box 356, Reykjavfk. „Marmari" eftir Guðmund Kamban. Leikstjóri: Gunnar Hansen. Frumsýning í Iðnó á föstudag 29. þ. m. kl. 8. Fastir frumsýningargestir sæki aðgöngumiða sinna kl. 4 —6 í dag. Annars seldir öðr- um. — Sími 3191. S.K.T. Kabarettinn verður í Iðnó í kvöld kl. 9. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5. — Sími 3191. Sonur, stjúpsonur og bróðir GUÐMUNDUR DANIVALSSON, lézt af slysförum 24. þ. m. — Jarðarförin auglýst síðar. Danival Danivalsson, Jóhanna Danivalsdóttir Ólína V. Guðrnundsdóttir, Sturlaugur Kr. Danivalsson. Happdrætti Háskóla Islands Happdrættið byrjar nú aftur starfsemi sína með nýju fyrirkomulagi. — Á síðustu 17 árum hefir happdrættið greitt í vinninga samtals 25 milljónir króna Happdrættið hefir þrívegis áður endurbælt skipulag sitt, og hefir nú enn verið gerð breyting, sem einnig er viðskipta- vinum í hag. Nú er taía vinainga samtals 7500. Af 25000 niímertim, sem eru í umferð hljóía 3 af hverjum 10 viuning á ári. l>pha>ð viimhiga liefir mi verið hæhknð «!* eru samtals á ári 4,200.000 kr. Aukavinningar eru 33, samtals 78.000 kr. Verð hvers heilmiða verður nú 20 kr. á mánuði, hálfmiða 10 krónur, fjórðungsmiða 5 krónur. Ekkert happdrætti býður önnur eins kostakjör og Happdrætti Háskólans. — Happdrættið greiðir í vinninga 70% af andvirði miðanna. Sala miða hefir því aukizt ár frá ári og er nú nálega 95%. Þar sem óseldir miðar eru dreifðir um allt land, má telja, að happdrættið sé uppselt. Eftirspurn eftir heiimiðum og hálfmiðum hefir verið svo mikil siðustu árin, að ekki hefir verið unnt að verða við eft- irspurn. Þeir, sem fyrstir koma, veitist auðveldast að ná í þessa eftirsóttu miða. Gasnlir viðskiptamenn halda númerum sínum til 10. janúar. Sala happdrættismiða hefst í dag. Dregið verður í 1. flokki 15. janúar. Umboðsmenn í Reykjavík eru þessir: Arndís Þorvaldsdóttir kaupkona, Vesturgötu 10, simi 6360, Bókaverzlun Guðm. Gamalíelssonar, Lækjargötu 6 B, sími 3263. Elías Jónsson kaupm., Kirkjuteigi 5, sími 4970. Carl D. Tulinius & Co. (Gísli Ólafsson o. fl.), Austurstræti 14, simi 1730. Helgi Sívertsen, Austurstræti 12, sími 3582. Kristján Jónsson kaupm. (Bækur og ritföng), Laugaveg 39, simi 2946. Maren Pétursdóttir frú, (Verzlunin Happó), Laugaveg 66, sími 4010. Pálína Ármann frú, Varðarhúsinu. sími 3244. í Hafnarfirði: Valdimar Long kaupm., Strandgötu 39, sími 9288. Verzlun Þorvalds Bjarnasonar, Strandgötu 41, sími 9310.- Ilafið |u‘i* efnl á |iví ag sleppa tækifæri til þess að vinna 150.000 kr., 40,000 kr„ 25, OOO kr., 10,000 kr., 5000 kr. o. s. frv.? Hæsti vinningnr: 150.000 krónur Aðrir vinningar: 4 á 40.000 kr. 9 á 25.000 kr. 18 á 10.000 kr. 18 á 5,000 kr. 130 á 2000 kr. 500 á 1000 kr. 2555 á 500 kr. 4275 á 300 kr.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.