Tíminn - 20.01.1951, Blaðsíða 1
í
Ritstjóri:
Þðrarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
1 ■ --------------------
1
Skrifstofur i Edduhúsin::
Frcttasimcr:
81302 og 81303
Afgreiðslusimi 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
35. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 20. janúar 1951.
16. blat'.
Afengísneyzla Islendinga hef
ir minnkað verulega sl. 4 ár
Arið 1946 var hiín 2 lítrar af hroinum
vtnamla á mann en s. 1. ár 1,47 líárar
Þessi sérkennilega myndi af dr. Ralph Bunche var tekin,
er hann var í Osló fyrir skemmstu og veitti þar viðtöku
friðarverðlaunum Nobels
Samkvæmt upplýsingum frá Áfengisverzlun ríkisins nam
sala áfengis hér á landi 65,5 m llj. s- 1. ár og er það tæpum
flmm milljónum meira en árið 1949.
Samþykkt Dagsbrún
ar í fyrrakvöld
Verkamannafélagið Dags-
brún í Reykjavík hélt fund í
fyrrakvöld. Var á fundi þess-
um gerð samþykkt, þar sem
félagið lýsti því yfir, að það
teldi svo mikið atvinnuleysi
í bænum, að þörf væri opin-
berra gagnráðstafana til þess
að forða heimilum frá neyð.
Fundurinn gerði þær kröf-
ur, að vélbátaflotanum yrði
komið á veiðar, án þess að toll
ar eða skattar yrðu þyngdir
eða kjör eða kaupmáttur
krénunnar yrði fyrir rýrnun,
gömlu togararnir gerðir út á
veiðar, hafin vinna við hafn-
armannvirik og opinberar ný
byggingar þegar i stað og
fjárfestingaleyfi veitt til
byggingaframkvæmda á
næsta ári. Jafnframt var skor
að á bæjarstjórnina að hefja
gatnagerð.
Snjóflóð í
Dalsmynni
Frá fréttaritara Tímans
á Svalbarðseyri.
Um svipað leyti og snjó-
flóðið féll á háspennulínuna
í Ljósavatnsskarði, féllu all-
mörg önnur snjóflóð úr Þver-
árfjalli í Dalsmynni. Eru snjó
flóð alltíð á þeim slóðum.
Snjóflóð þessi ollu þó ekki
neinu tjóni, nema hvað haga-
girðingar rofnuðu.
í Reykjavík einni saman
nam áfengissalan 51,4 millj.
kr. en 47,6 millj. árið 1949.
Er söluaukningin í krónutölu
langmest þar, en í flestum
öðrum kaupstöðum, þar sem
útsölur eru, stendur hún nær
því í stað og hefir jafnvel
minnkað að krónutölu sums
staðar. Á Akureyri nam sal-
an 6,5 millj. kr. en 6,0 millj.
árið áður. Á ísafirði varð hún
1,5 millj. og nær hin sama
ár',3 áður. Á Siglufirði var hún
2,4 millj. og hin sama árið
áður. Á Seyðisfirði 1.2 millj.
en 1,0 millj. árið áður. í Vest-
mannaeyjum 2,4 millj. og 2,0
millj. árið áður.
Verðið hækkað á árinu.
Þótt nokkur hækkun sé víð
ast að krónutölu er um minnk
andi áfengismagn að ræða,
þar sem verðið var hækkað
um 20% 15. maí 1950. Salan
hefir aðeins aukizt að krónu-
tölu um ca. 7,5%.
JYJinnkandi áfengisneyzla.
Sé gerður samanburður á
áfengisneyzlunni s. 1. fimm
ár sést, að hún hefir minnkað
allverulega síðan í árslok
1946. Sé áfengisneyzlan um-
reiknuð í 100% spírituslítra
á hvern íbúa landsins hvert
undanfarinna ára, verður út-
koman þessi:
Árið 1946 var neyzlan 2,0
lítrar á hvern íbúa, árið 1947
varð hún 1,94 lítrar, árið 1948
varð hún 1,88 lítrar, árið 1949
varð hún 1,61 líter og árið
1950 varð hún 1,47 lítrar. í
hvert sinn er miðað við mann
fjölda árið áður. Af þessu sést,
að áfeng'sneyzlan hefir
minnkað um rúmlega hálfan
lítra á þessum fjórum árum,
Kúabú í heyþroti fyrir jól
Uppboð auglýst á gripum þess
Hreppsncfndiii I Mosfellssveit hefir orðið
að sjá Laxnesbúimi, sein stutt er af Reykja
víkurbae, fyrir hey fóðnrvöru og' mat
Sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu hefir auglýst
uppboð á öllum búfénaði að I.axnesi í Mosfellssveit, nær
fiörutíu nautgripum og fimmtíu hænsnum. Hefir hrepps-
nefnd Mosíelishrepps með skírskotum til gildandi forða-
gæzlulaga, krafizt opinberrar íhlutunar, þar eð fóðurþrot er
í Laxnes', svo að hun hefir um skeið orðið að sjá gripun-
um fyrir fóðri.
Uppboð þetta er auglýst 30.'
janúar næstkomandi, og á áð
íselja þar 27 kýr, 4 vetrunga,
sjö kálfa og eitt naut, og auk
þess fimmtíu hænsni.
I
Eigendur
I Búið í Laxnesi var upphaf-
lega eign hlutafélagsins Bú-
kolia, en síðar kom til sögunn
ar nýtt hlutafélag, Laxnesbú-
ið, er taka átti viö búrekstr-
inum. Þau eignaskipti munu
þó ekki hafa verið þinglésln
vegna misbrests, er talinn var
á.
Reykjavíkurbær lánaði
Bú þetta í Laxnesi hefir
lengi gengið báglega, og fyrir
nokkrum árum var það aug-
lýst til sölu vegna vangold-
inna skulda. Lagði Reykjavik
urbær fram 200 þúsund krón
ur að láni til fyrirtækisins.
Búið hefir því verið rekið
með stuðningi bæjarins. Hafa
síðan litlar sögur farið af því,
þar til nú.
Vetrarforðinn þrotinn
fyrir jól.
Síðastliðið ár keyrði þó
um þverbak um búrekstur
inn í Laxnesi. Vetrarforð-
inn, sem bústofninum var
ætlaður, þraut um miðjan
desembermánuð, og eftir
það var honum framfleytt
á aðfluttu heyi, sem sum-
part var keypt austur í
Gunnarsholti í Rangárvalla
sýslu, en að nokkru leyti í
Reykjavík eða nágrenni
hennar. Mun það eins
dæmi, þrátt fyrir misjafn-
an ásetning, að menn verði
heylausir í jólamánuðin-
um. Hefir heyleysi á góu
verið tilfært í annála.
Hreppsnefndin tekur að
sér að framfleyta búinu
Forðagæzlumaöur sveitar-
innar, Kjartan Magnússon
bóndi á Hraðastöðum, hafði
samkvæmt skyldu sinni gert
hreppsnefndinni viðvart um,
hversu ástatt væri um fóður-
birgðir hjá Laxnesbúinu, og
gerði þá kröfu, að hún léti
málið til sín taka.
Rétt fyrir miðjan janúar-
mánuð var allt rekið í strand
um öflun og aðflutning fóð-
urs, og varð þá hreppsnefnd-
in að taka að sér að sjá bú-
stofninum fýrir daglegu fóðri.
Var það til hjálpar, að Stefán
hreppstjóri Þorláksson í
Reykjadal átti allmikið af
heyi, sem hann gat látið af
höndum til þess að forða því,
að gripirnir stæðu í svelti.
En það eru þó ekki að-
eins, gripirnir, sem hrepps
nefndin hefir orðið að taka
upp á sína arma, heldur
einnig orðið að sjá fólkinu
fyrir fæði þess síðustu
daga.
Gripirnir vel hirtir
Björguðu norsku
haískipi til lands
Frækileg frainnii>>
síaða skipverja á Ing
ólfi Arnarsyni í fyrrii
nótt
í fyrrinótt voru skipverja,
á botnvörpungnum Ingólfj.
Arnarsyni önnum kafnir vib'
að bjarga biluðu norsku flutn
ingaskipi til lands. Hafði þaö
bilað í fyrradag, er það var
statt norður af Orkneyjum á
leið sinni frá Bergen til Bost
on. Tókst skipverjum á Ing-
ólfi giftusamlega með b,iörg-
un og komu skipi og ahöfn
heilu og höldnu til hafnar á,
Orkneyjum i gærmorgun.
Norska skipið heit'r Tatrs.
og er um 7000 lestir að stærð.
Vonzkuveður var er vél skips
ins bilaði og það bað um
hjálp. Ingólfur Arnarson vai
á leiðinni til íslands og fór
skip’nu til hjálpar. Tókst
skipverjum að koma dráttar-
taugum um borð í skipið og
var það dregið til hafnar i
K rkwall í Orkneyjum.
Ingólfur hélt þaðan heim-
leiðis um hádegisbilið i gær
og er væntanlegur hingað á
sunnudagskvöld.
Skipshöfnln
leigir bátinn
í gær var verið að skipa
upp sementi í Borgarnesi úr
vélbátnum Hafborg sem gerð
ur út þaðan. Kom báturinn
með sementsfarm frá Dan-
mörku um 70 smálestir, en
fór með flutning, aðallega
síld frá Akranesi til Sviþjóð-
ar skömmu fyrir jólin. Haf-
borg er leigð skipshöfninni
og eru Borgnesingar ekki á
skipinu. Báturinn var á tog-
veiðum í haust, en mun mi.
hefja veiðar á vertíðinni.
Sjö inflúensusjúkl-
ingar í sama húsi
í Reykjavík
Það hefir nú sannazt, að
inflúensan er komin til
Reykjavíkur, og er vitað
mál, að minnsta kosti sjö
menn hafa fengið veikina.
Býr allt þetta fólk í sama
húsi við Vesturgötu, en er
úr f jórum f jölskyldum.
Veikin er væg eins og
hún hefir og er enn á
Keflavíkurflugvelli, en þó
er hitti allhár, 39—40 stig.
Önnur sjúkdómseinkenni
eru beinverkir, höfuverk-
ur, ógleði og stundum upp
köst, hósti og særindi í
hálsi.
Starfsfólkið í Laxnesi er
þrennt, og til þess að koma í
veg fyrir misskilning er rétt
að taka það fram, að það hef
ir hirt' gripina ágætlega og
gengið vel um hey, svo að fóð
urþrot svo snemma vetrar er
að engu leyti bruðli eða illri
umgengni að kenna.
Qóöar sölur í
Englandi
Egill Skallagrímsson seldi i
Englandi í gær, 3016 kitt fyrir
10087 sterlingspund. Er það
enn ágæt sala.
Finnbjörn frá ísafirði seldi
e nnig í Fleetwood í gær, 676
kitt fyr r 3096 sterlingspund,
sem er afbragðssala.
Vegir að lokast
í Skagafirði
Frá fréttaritara Tímans
á Sauðárkróki.
Snjór er orðinn allmikill í
héraðinu og hjarn og svellalög
með jarðbönnum, nema frammi
í dölunum, þar eru enn hagar.
Bifreiðasamgöngur eru alveg
að teppast, og er það mjög
bagalegt, meðal annars vegna
mjólkurflutninga. Vegurinn frá
Sauðárkróki til Varmahlíðar er
mjög erfiður. Hefir hann verið
ruddur, en snjó dregur jafnóð-
um í snjógöngin, sem myndast.
Um miðjan dag hafði verið
unnið átta klukkustundir að
snjóruðningi á þessarri leið, og
var þá ekki búið að ryðja nema
átta kílómetra kafla.
Út í Viðvikursveit og Hjalta™
dal er orðið ófært bifreiðum.