Tíminn - 20.01.1951, Page 2
2
TÍMINN, laugardaginn 20. janúar 1951.
16. blað.
'}i-á hafi til heiia
SM T
m 1 i
L/ívarpið
Útvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. — 9.10
Veðurfregnir. 12.10—13.15 Há-
degisútvarp. 15.30—16.30 Mið-
degisútvarp. — (15.55 Fréttir og
veðurfregnir. 18,25 Veðurfregn-
ir. 18.30 Dönskukennsla; I. fl.
— 19.00 Enskukennsla; II. fl.
19.25 Tónleikar: Samsöngur
(plötur). 19.45 Auglýsingar. 20.00
Fréttir. 20.30 Útvarpstríóið: Ein
leikur og tríó. 20.45 Upplestur.
21.05 Tónleikar: Boston Promen
ade hljómsveitin leikur (plöt-
ur). 21.25 Leikrit: „Á hættu-
svæðinu" eftir Eugene O’Neil.
Leikstjóri Jón Aðils. 22.00 Frétt
ir og veðurfregnir. 22.10 Danslög
(plötur). 24.00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík
18.1. til Breiðafjarðarhafna,1
lestar frosinn fisk. Dettifoss hef
ir væntanlega farið frá Stettin ■
18.1. til Gdynia og Kaupmanna
hafnar. Fjallfoss fór frá Leith
16.1. til Reykjavíkur. Goðafoss
fór frá Reykjavík 17.1. til New
York. Lagarfoss er í Reykja-
vík. Selfoss fór frá Reykjavík
15.1. vestur og norður og til
Amsterdam og Hamborgar.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 15.
1. til St. Johns og New York. j i
Auðumbla fór frá Antwerpen
17.1. til Reykjavíkur.
Ríkisskip:
Hekla var á Isafirði síðdegis
í gær á norðurleið. Esja fer frá
Reykjavík um hádegi í dag aust
ur um land til Siglufjarðar.
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið er á
Eyjafirði. Þyrill er í Faxaflóa.
Ármann fer frá Reykjavík í dag
til Vestmannaeyja.
Messur á morgun
Laugarneskirkja.
Messað kl. 2 e.h., séra Garðar
Svavarsson. Barnaguðsþjónusta
kl. 10.15, séra Garðar Svavars-
son.
Ilallgrímskirkja.
Messa á morgun kl. 11 árdeg-
is, séra Sigurjón Árnason. Barna
guðsþjónusta kl. 1,30, séra Sig-
urjón Árnason. Messa kl. 5,
séra Jakob Jónsson. Ræðuefni:
íþróttirnar og siðmenningin.
r sr
Ur ýmsum áttum
Innbrot.
Þessa síðustu daga hefir ver-
ið brotizt inn í geymslubragga
flugfélagsins Vængir á Reykja-
víkurflugvelli og stolið þaðan
rafhleðlutæki og voltamæli. Þeir
sem einhverjar vísbendingar
gætu gefið, eru beðnir að snúa
sér til rannsóknarlögreglunnar
i Reykjavík.
Nýjar bækur að Laugaveg 24.
í bókasafni bandarísku upp-
lýsingaþjónustunnar er völ á
rúmlega hundrað tímaritum í
lestrarstofunni, og eldri eintök
þeirra eru lánuð heim viku í
senn eins og bækur safnsins.
Safnið er opið frá kl. 9 til 18
hvern virkan dag nema laug-
ardaga og sunudaga. Á þriðju-
dögum og fimmtudögum er það
einnig opið á kvöldin til kl. 22.
Meðal nýrra bóka, sem safn-
ið hefir til boða:
My Story eftir Mary Roberts
Rinehart, sjálfsævisaga amer-
ísks kvenrithöfundar. The Short
Stories of Conrad Aiken, Color
Photography for the Amateur
og margar fleiri.
Staðgreiðsla.
Kaupfélag Héraðsbúa tók upp
staðgreiðslu í búðum sínum 10.
janúar síðastliðinn.
Fermingarbörn
séra Jakobs Jónssonar eru beð-
in að koma til viðtals í Hall-
grímskirkju mánudaginn 22.
janúar kl. 11 eða 4.
Eldri dansarnir I O. T.-Jxúsintt
i kvöld kl. 9. — H&sinu iokaB JcL
10.30.
— Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Sími 3355. —
Fermingarbörn
séra Sigurjóns Árnasonar eru
beðin að koma til viðtals , Hall
grímskirkju þriðjudaginn 23.
janúar kl. 11 eða 4.
Þjóðleikhúsið.
„Pabbi“ verður sýndur í þrí-
tugasta sinn í kvöld. Alls hafa
nú 17 þúsund manna séð þenn-
an. leik. Liklegt er, að hann
verði enn sýndur nokkrum sinn
um, en þó ættu þeir, sem ætla
að sjá hann, ekki að draga
það úr þessu.
Prentvillupúkinn
er víða á vakki, og hafi honum
verið í nöp við Þorrann, þá hefir
hann komið fram hefndum í
gær. ,J>orri kaldur þeytir snjá“,
er rétt upphaf vísunnar í niður
lagi pistilsins „Á förnum vegi“
í gær.
*
fi ffc>hum tiegii
Skógrækt á Reykjanesskaga
Suðurnesjamaður átti tal við mig á dögunum. Hann
vakti máls á því, að næsta haust yrði sennilega fargað
vegna fjárskiptanna öllu sauðfé á stóru svæði á Suð-
vesturlandi frá Botnsá í Hvalfirði austur í sveitir. Yrði
að öllum líkindum fjárlaust eitt ár. En síðan væri lík-
legt, að ýmsir myndu að hljóta að koma sér upp sauð-
fjárbúum — sumir jafnvel stórum, þar sem vel væri
til sauðfjárbúskapar fallið.
★ ★ ★
— Ég er Suðurnesjamaður, sagði gestur minn, og
það er eindregin skoðun mín, að á hluta af þessu fjár-
skiptasvæði eigi alls ekki að hafa neitt sauðfé í fram-
tíðinni. Ég á við Reykjanesskagann, til dæmis vestan
linu úr Elliðaárvogum í Selvog eða Herdísarvík eða
eitthvað nálægt því.
Reykj anesskaginn er nær allur hraunrunnið land,
en víða með talsverðu gróðurlagi, en þó urinn af beit
útigangsfénaðar um margar aldri. Sauðfjárbúskapur
hefir verið rekinn þar með þeim hætti, að láta það
ganga úti í hraununum — lifa þar og deyja eftir því
hvort mildi guðs og veðurlagsins leyfði. Þetta fé hefir
ávallt verið afurðarýrt, eins og kjörin, sem því voru
búin, hafa áskapað.
★ ★ ★
Ósköp er hætt við því, að mjög myndi hjá mörgum
sækja í þetta far aftur, þótt sauðfjárbúskapur yrði
rekinn þar. Það er þó ekki rétt að kasta of þungum
steini á menn fyrir það, Landslagi er þannig
háttað, að það freistar til þess, engjar engar,
en aðstaða til ræktunar svo erfið, að torvelt
er og víða ógerlegt, að rækta land, þar sem
aflað yrði fóðurs handa mörgu fé. Það er hætt við, að
sauðfjárbúskapur þar vilji verða hornbúskapur.
Og því fremur er auðvelt að koma þessari hugmynd
í framkvæmd, að sauðfjárbúskapurinn er nú nálega
niður fallínn af sjálfu sér á mörgum stöðum, og fárir
myndu verða hart úti við þessa ráðstöfun.
★ ★ ★
Á hinn bóginn er skógræktin að komast á það stig,
að þörf er á stóru laudflæmi til skógræktar. Brátt
verður á ári hverju til ráðstöfunar mikill fjöldi barr-
planta, sem aldar hafa verið upp hér. Áhugi almenn-
ings krefst athafnasviðs, og Reykjanesskaginn mun
að mörgu leyti vel til skógrætar fallinn, þótt hrjóstr-
ugur sé og ekki mikil eftirsjá að honum frá öðru. Þar
er skjólgott í hraunbollum og víða kjarr til þess að
skýla ungum barrviðum. Þar er loftslag tiltölulega
hlýtt. Þar er skammt undan mesta fjölbýli landsins
og starfslið til þess að planta skóg. Það er auðvelt að
girða hann og friða í heild. Þar er nóg undanfæri
handa skógræktarmönnum um sinn. Þar verður gott
að hagnýta skóginn, þegar hann er kominn á það stig.
Ég er mjög á sama máli og þessi Suðurnesjamaður,
og ég hefi oft áður heyrt raddir í þessa átt, síðan fjár-
skipti hér um slóðir komu til umræðu. En það væri
nauðsynlegt, að hreyfing kæmist sem fyrst á þetta mál.
J. H.
f. R. skíðaferðir
að Kolviðarhóli í dag kl. 2 og 6
e. h., og á morgun kl. 9 og 10
f. h. Lagt af stað frá Varðarhús-
inu. Stanzað við Vatnsþró,
Undraland og Langholtsveg.
Farmiðar við bílana. Þorrablót í
kvöld, skemmtiatriði og dans.'
Innanfélagsmót í svigi öllum
flokkum á morgun. Skíðabrekk
an upplýst í kvöld kl. 5—7.
Skíðakennsla í dag.
Skíðadeild l.R.
Skiðaferöir að Skíðaskálanum:
Laugardaga kl. 2 og kl. 6.
Sunnudaga kl. 10. Miðvikudaga
kl. 7 e.h. Afgreiðsla Hafnar-
stræti 21 (áður Hekla), sími
1517. 1 sunnudagsferð verður
fólk tekið:
Kl. 9.30 Nesveg- Kaplaskjólsveg.
— 9.45 Hofsvallag.- Hringbraut
— 9.30 Sunnutorg
— 9.45 Kirkjutorg í Teigunum
— 9.30 Miklubraut -Lönguhlíð
— 10.00 Hlemmtorg (Hreyfill)
— 10.10 Suðurlandsbr. Langhv.
Munið Hafnarstræti 21. Sími
1517. — Skíðalyftan í gangi
brekkan upplýst.
Skíðadeild K.R.
Skíðafélag Reykjavíkur.
Nýbýiastjðrn ríkisins
auglýsir hér með til umsóknar lönd til stofnunar ný-
býla í Ölfusi í Árnessýslu og á Hvolsvelli í Rangárvalla-
sýslu. —
í Ölfusi verður gefinn kostur á landi fyrir 4—5 býli
og á Hvolsvelli fyrir 2 býli.
Landið verður leigt með erfðaábúðarsamningum til
nýbýlastofnunar og ábúðar.
Skriflegar umsóknir sendist til skrifstofu nýbýla-
stjórnar, Austurstræti 5, Reykjavík.
Umsóknum fylgi:
1. Aldursvottorð.
2. Vottorð um að umsækjandi sé fullveðja
og fjár síns ráðandi.
3. Vottorð lögreglustjóra eða hreppstjóra,
um að umsækjandi sé reglusamur og ráð-
deildarmaður.
4. Vottorð um að hann hafi lokið verklegu
og bóklegu prófi frá bændaskóla, eða að
að hann hafi stundað landbúnaöarstörf
minnst 2 ár eftir 16 ára aldur.
Allar nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu
nýbýlastjórnar.
Landnámsstjóri.
»♦♦♦«
»♦♦♦<
♦♦♦»•♦«♦♦♦♦»»»»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
♦♦♦«♦♦♦♦♦<♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦■
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦^♦f♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦$♦♦♦♦♦♦<
AUGLYSING
frá fjjármálarábiuiaeytinti um endur-
greiðslu á innflutnins'sg'jaldi af benzíni j[
Samkvæmt reglugerð, útg. 16. jan. 1951, hefir sú breyt-
ing verið gerð á fyrirkomulagi endurgreiðslna á inn-
flutningsgjaldi af bezíni, notuðu til annars en bifreiða,
að framvegis skal miða umsóknir um slíkar endur-
greiðslur við almanaksárið. Að þessu sinni skal þó miða
umsóknirnar við tímabilið frá 1. júlí til 31. des. 1950.
Umsóknir sendist sýslumönnum og bæjarfógetum
eða beint til fjármálaráðuneytisins. Ef umsókn er send
til sýslumanna og bæjarfógeta, skal hún hafa borizt
þeim fyrir 15. febrúar. Allar umsóknir þurfa að vera
komnar til fjármálaráðuneytisins fyrir 15. marz. Um-
sóknum, er síðar berast verður ekki sinnt.
Fjármálaráðunetftið, 17. jan. 1951
■.■.■.■.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.Vl
HANGIKJOT
— Það bezta fáanlega —
selur
Samband ísl. samvinnuíélaga
símar 4241 og 2678.