Tíminn - 21.01.1951, Side 4
TIMINN, sunnudaginn 21. janúar 1951.
17. blað.
Þýðingar Pilchers biskups
Vér íslendingar stöndum
t mikilli þakkarskuld við þá
merkis- og fræðimenn út-
ienda, sem af einskærri ást
á íslenzkum fræðum hafa
snúið á víðlesin erlend mál
oókmenntum vorum, í
bundnu máli eða óbundnu, og
með þeim hætti víkkað land-
aám íslenzkrar menningar.
í þeim fríða flokki skipar
dr. Charles Venn Pilcher,
oiskup í Sydney í Ástralíu,
oæði heiðurssess og á þar
iérstöðu, því að hann hefir
gerst brautryðjandi á því
sviði, með enskum þýðing-
im sínum á íslenzkum trú-
arljoðum að fornu og nýju.
Eigi verður hér rakinn ævi
og starfsíerill dr. Pilchers,
pó meir en verðugt væri; en
dr. Rúnólfur Marteinsson
nefir nýlega gert það í megin
dráttum í prýðisgóðri grein
i Lögbergi, og áður hafði
sá, er þetta ritar, gert því
nokkur skil í grein sinni „ís-
íandsvinurinn dr. C. Pilcher
og þýðingar hans.“ (Tímarit
Þjóðræknisfélagsins, 1942).
Að þessu sinni skal athygli
æsenda sérstaklega dregin
að hinu nýja safni hans af
pýðingum islenzkra trúar-
\j óða.
Hann hafði áður, eins og
Kunnugt er, gefið út þrjú
áöfn af þýðingum sínum úr
Passiusálmum séra Hall-
gríms Péturssonar, The Pass-
ion-Hymns of Iceland (Lon-
don, 1913), Meditations on
the Cross (Toronto, 1921), og
icelandic Meditations on
the Passion (New York, 1923)
sem er aðalsafn þýðinga
nans fram að þeim tíma. —
Vöktu þessar Passíusálma-
pýðingar hans eftirtekt og
nlutu ágæta dóma, en ítar-
iegri umsögn um þær er að
x'inna í oíannefndri ritgerð
greínarhöfundar, og vísast
þangað.
Alveg nýverið hefir Astra-
hudeild hins mikla útgáfu-
xélags Oxford University
Press gefið út nýtt safn þýð-
xnga ur íslenzku eftir dr.
Pilcher, er nefnist Iceland-
íc thristian Classics (Mel-
bourne, 1950), og hefir inni
að halda þýðingar af Sólar-
Ijóðum (The Lay of the Sun),
Lilju (The Lilly), nokkur
orot ur Passíusálmunum,
pjóðhátíðarsálm séra Matt-
níasar Jochumssonar, „Ó,
guð vors Iands“ (The Iceland-
xc Millennial Hymn), og einn
sálm eftir hvorn þeirra
dönsku og sænsku biskup-
anna og sálmaskáldin, Thom
as Kíngo og Laurentinus
Petri.
Hér hefir dr. Pilcher þvl
safnað í einn stað ýmsum
þeim þýðingum sinum, er áð
ar höfðu komíð í tímaritum,
asamt öðrum nýjum, er
hvergi höfðu verið prentað-
ar fyrri, og er mest þeirra
jg merkust Lilju-þýðing hans
sem er meginefni þessa nýja
þýðingasafns hans, og myndi
ein nægja til að halda nafni
hans á lofti.
Þýðing dr. Pilchers á Sólar
Ijóðum kom upprunalega út,
undír fyrirsögninni „An Ice-
iandic Divine Comedy," í
tímaritinu The Canadian
/ournal of Religios Thought
(1924), og var endurprentuð
í bók þýðandans, The Here-
after in Jewish and Cristian
Ihsught (London, 1940);
hún er því birt á prenti í
Eftir Ricliard Bcck prófcssor
í Sydney í Ástralíu er biskup að nafni Charles Wenn
Pilcher, er unnið hefir að því um langt skeið, að þýða
íslenzk trúarljóð á ensku. M.a. hefir hann þýtt Passíu-
sálmana, Lilju og Sólarljóð. í eftirfarandi grein, sem
nýlega birtist í Lögbergi, segir prófessor Richard Beck
frá þessum þýðingum Pilchers biskups, er hann telur
hið merkasta verk.
þriðja sinn í hinu nýja safni
hans, og er það vel, því að
hún á þar ágætlega heima
við hliðina á öðru gersemi
fornra helgikvæða vorra,
Lilju. Til grundvallar þýð-
ingu sinni hefir dr. Pilcher
lagt hina merku útgáfu dr.
Björns M. Ólsens af Sólar-
ljóðum. Þýðingin er einnig
hin prýðilegasta um ná-
kvæmni í máli og hugsun,
hrynjandi og blæfegurð ensk
unnar (Smbr. umsögn mína!
í fyrrnefndri ritgerð um dr.!
Pilcher). Og fjarri fer því,1
að ég sé einn um þá skoðun.
Dr. Björn B. Jónsson, sem1
bæði var maður óvenjulega'
smekkvís á skáldskap og hand
genginn íslenzkum andlegum
ijóðum, fór á sínum tíma
þessum orðum um þýðing-1
una:
„Hér er óefað um verulegt
snilldarverk að ræða. Þýð-
ingin er aðdáanleg. Andinn
heitur og lifandi, búningur-
inn fagur sem á frumkvæð-
inu, nema fegri sé á stund-
um. Kveðandin þýð eins og
söngrödd; stuðlar og höfuð-
stafir í föstum skorðum ís-
lenzks standbergs, en ávallt
á óþvingaðri ensku, sem renn
ur fram eins ljúflega og berg
lind að hafi. — Hvorki ensk-
ir menn né íslenzkir, þeir er
bókmenntum unna, fá full-
þakkað prófessor Pilcher
þetta snilldarverk,,. — (Sam-
elningin, nóvember 1928). j
Ágætlega nær dr. Pilcher
t. d. anda og krafti kvæðis-
ins í þýðingu sinni af þeim
áhijifamikla kafla þess, er
lýsir refsingum þeim, er bíð-
ur ranglátra hinum megin
grafar:
„Menn sák þá,
es mjök ala
öfund of annars hagi;
blóðgar rúnir
váru á brjósti þeim
merktar meinlega.
Menn sák þá,
es margan höfðu
fé ok fjörvi rænt;
brjóst í gegnum
rendu brögnum þeim
öflgir eitrdrekar.
___ O _
Men saw I then
Who much nourish
Envy of others’ good hap.
Runes of blood
Upon their breast
Were graven painfully.
Men saw I then
Who many had robbed
Of chattels and life.
Through their breasts
Strong snakes
Shot stings of poison.“
Eigi er þýðing dr. Pilchers
á Lílju í heild sinni með
minni ágætum. Hefir hann,
eins og getið er í formálan-
um, haft hliðsjón af hinum
beztu útgáfum og þýðingum
kvæðisins, og af grundvall-
arritum um íslenzka kirkju
og kristni, auk þess, sem hann
hefir notið aðstoðar og leið-
beininga ýmsra íslendiuga
beggja megin hafsins.
Þýðandinn hefir því gengið
til þessa verks af mikilU sam
vizkusxxmi, með diúpri alúð
og virðingu fyrir þeim vanda,
sem hann hefir með því
færst í fang. Og ávöxtur þeirr
ar viðleitni hans er þá einn-
ig að sama skapi.
Samanburður á þýðingunni
við frumkvæðið leiðir það
fljótt í ljós, að hún fylgir því
trúlega um efni og málfar.
Þýðandinn heldur braghætti
kvæðisins, þó að hann hafi
ekki talið fært að halda stuðl
um og höfuðstöfum né hend-
ingum hrynhendunnar. Eigi
að síður hefir honum í rík-
um mæli tekist að ná hrynj-
andi og hreim kvæðisins,
tign þess og andríki, eins og
eftirfarandi dæmi sýnir:
„Dagarnir sex að vísu vuxu
veltilegir um sjávarbelti,
áður fengi alla prýði
jörð og loft, er drottinn gjörði,
pressað vatn i himininn
hvassa,
hjörn og eld sem merkis-
stjörnur,
hagl og dýr sem fiska og
fugla,
fagran plóg og aldinskóga.
__ i9 _
Six days passed, with eve and
morning,
Circling through the zone of
heaven,
Ere the earth and air, created
Gained from hand divine
their beauty:
Water forced through cold
skyrekions;
Ice and fire and heavenly
planets;
Beauteous beasts and fowl
and fishes;
Earth’s fair produce, fruitful
forest.“
Þýðingum sínum af Sólar-
ljóöum og Lilju fylgir dr.
Pilcher úr hlaði með prýði-
legum inngangsritgerðum,
sem lýsa fagurlega ást hans
og skilningi á íslenzkum forn
bókmenntum og helgikvæð-
um, samhliða víðtækri þekk-
ingu hans á kirkjulegum bók
menntum miðaldanna al-
mennt. Hann ritar einnig
gagnorðan inngang að úr-
vali því úr Passfusálma-þýð-
ingum sínum, sem hann hef-
ir tekið upp í þetta safn sitt,
en meðal þeirra er hin ágæta
þýðing á versunum úr 12.
sálminum (Pétur sat þar í
sal“), þar sem hinum íslenzka
blæ er framúrskarandi vel
haldið, eins og ég hefi bent
á í framannefndri ritgerð
minni um þýðandann.
Þýðing dr. Pilchers á hin-
um innblásna þjóðhátíðar-
sálmi séra Matthíasar, „Ó,
guð vors lands,“ sem hér er
birt endurskoðuð frá þýð-
andans hendi, má einnig telj
ast prýðisvel af hendi leyst,
en þetta er lokaerindið, sem
Baejarpóstur Þjóðviljans birti
athyglisverða ritgerð eftir sig
nýlega. Hann hafði einhvers-
staðar séð það í blaði að guði
hefði lítt verið þökkuð björgun
Geysismanna af Vatnajökli.
Þetta fannst honum óþarfi, því
að þar væri lítið að þakka.
Nú er það vitanlegt, að sum-
ir trúa ekki á neinn guð og er
það sjónarmið skiljanlegt, en
bæjarpóstur gerir ráð fyrir að
guð sé til, en guðshugmynd
I hans er bæði skrítin og fornfá-
I leg. Hann neitar ekki afskiptum
guðs, en segir að mest sé þó um
það vert, að hann láti flugslys
ekki gerast. Hann virðist telja,
I að guð eigi ekki hrós eitt skilið,
heldur gagnrýni, enda hafi
hann sjálfsagt „heyrt gamalt
og gott máltæki, sem þannig
hljóðar, að „sá er vinur er til
| vamms segir“. Hann treystir
því, að guð sé svo laus við hé-
gómaskap, að hann taki því vel,
þegar bæjarpóstur og aðrir slík-
ir leiðbeina honum og vanda
um við hann. Og „þeir, sem
ekki hafa með öllu glatað virð-
ingunni fyrir manninum, að-
hyllast afturámóti þá skoðun,
að t. d. sómi Ingigerðar flug-
freyju af umræddu máli sé fullt
eins mikill og guðs“.
Nú er hafin rannsókn út af
þessu slysi og beinist raunar
ekki gegn guði og mun því ekki
upplýsa hans hlutdeild í mál-
inu. Hins vegar er það víst, að
eitthvað hefir borið út af í
reikningum hinna ágætu flug-
manna og hafa annaðhvort tæki
þeirra eða þeir sjálfir brugðizt.
Geysir hefði nefnilega ekki
strandað á Vatnajökli í þeirri
hæð og á þeirri stefnu, sem á-
höfninni reiknaðist að væri.
Flestir þeir, sem reikna með
því, að guð sé til, gera ráð fyrir,
að hann hafi einhvern tilgang
og takmark með mannlífinu og
sé þar framsýnni en mennirnir.
Þetta er auðvitað erfitt að
sanna, og ef til vill um of að
ætlast til þess, að bæjarpóstur-
inn geri ráð fyrir því, að til geti
veriö guð sem sé framsýnni og
vitrari en hann sjálfur. En það
er samt undarlegt þetta lif.
Stundum sýnist okkur þó, að
sorglegir atburðir, sem aldrei
hefðu átt sér stað, ef það hefði
staðið í mannlegu valdi að af-
stýra þeim, hafi orðið til góðs.
Ef til vill hafa harmar og mann-
raunir orðið til að leiða fram
það, sem við höfum séð fegurst
og bezt við mannlífið. Ef til vill
höfum við eignast virðingu fyrir
manninum, traust á honum og
þar með hollustu við málstað
hans, vegna þeirra eiginleika,
sem sorgir, mótlæti og erfiðleik-
ar leiddu í ljós. Þetta er ekki
sagt til að óska eftir hörmum
og mannraunum, en ég get ekki
annað en játað þetta, ef ég vil
vera heiðarlegur.
Heimilisfaðir á bezta aldri
missir heilsuna. Hann liggur
sjúkur árum saman og deyr síð-
an. Kona hans verður að vinna
tvöfalt starf vegna þessa en þau
taka hlutskipti sínu æðrulaust.
Ef til vill verður hetjulíf þeirra
og manndómur til að opna augu
einhverra fyrir því, sem er einna
fegurst og tilkomumest í mann-
lífinu. Ef til vill er hetjulund
þeirra í mótlætinu einhverjum
öðrum ævilöng uppspretta, sem
þeir teyga úr trú á manninn og
mannlífið. Ef til vill fá þeir þar
1 þá reynslu, að þeim finnist allt-
af síðan, að þeir standi í óbættri
skuld við málstað mannsins.
Svona má nefna fleiri dæmi,
þó að ekki séu tök á því hér í
í baðstofunni að þessu sinni. En
i þegar við hugsum í alvöru um
j þessa hluti gæti vel farið svo,
að við skildum hugsunarhátt
j gamalla trúmanna eins og hann
1 kemur fram í þessari gömlu,
I einföldu vísu:
í Ráði sá, sem ráðið hefir fyrri,
' það, sem þykir barni bezt,
barnið stundum skaðar mest.
Mér finnst, að bæjarpóstinum
færi vel dáiítið meiri hófsemi
og að gera ráð fyrir fleiri hugs-
anlegum skýringum. Hann ætti
að lesa sögu mannsandans. Ég
ætla mér ekki að boða honum
eða neinum öðrum neina trú,
en virðist það staðreynd, að líf
okkar sé háð vissum lögmálum
og það hefni sín að brjóta viss
atriði þeirra lögmála. Nýlega
hafa læknar fundið það lögmái
að sykur og fínmalað korn veld-
ur tannskemmdum ef mikils er
neytt og tennur illa hirtar. Ég
veit ekki hvort bæjarpósturinn
kallar það, að guð mylji tennur
úr mönnum og hafi þar illt í
frammi. Ég get hugsað mér að
eitthvað hliðstætt lögmál hafi
; valdið því, að Geysir strandaði,
en það hafi ekki verið duttl-
j ungum neinna máttarvalda um
að kenna.
Sumir telja það staðreynd, að
stundum sé gripið inh í líf
manna. Öfl, sem standa utan
við þetta sýnilega jarðlíf geti
látið til sín taka. Á því byggist
trúin á guð og engla. Fáir munu
! halda því fram, að þeir viti
j hvemig guð sé. Hér er um tvo
, meginhópa að ræða. Annar
! hyggur að spilaborg mannlífs-
ins hafi myndazt af gufum og
| reyk fyrir tilviljun við hreyf-
ingu vitundarlausra efna. Aðrir
I trúa því, að mannlífið lúti stjórn
j og hafi tilgang, en þeir viður-
kenna yfirleitt, að þeir skynji
ekki nema lítið af tilverunni.
Þeir vita, að lífið er undursam-
legt ævintýri, — og svo tekur
trúin við.
Ég trúi því, að lífið haldi á-
fram í einhverri mynd, jafnvel
þó að jörðin farist í eldi og frum
efnin leysist í sundur eins og
Völuspá og Opinberunarbók Jó-
hannesar boða. Ég trúi því, að
við búum öll yfir eilífum verð-
mætum, lífsneista, sem ekki glat
ast. Ég trúi því, að við getum
gert anda okkar móttækilegan
fyrir utanaðkomandi hjálp, svo
að við lifum í samræmi við lög-
mál lífsins og vöxum að þroska
ef við temjum okkur að vilja
vel. En ég trúi því líka, að erfið
leikar og áföll stæli kraftana.
Það er ekki aðeins, að bæjar-
póstur sjái sóma flugþernunn-
ar betur vegna mannraunanna
á jöklinum, — sómi hennar er
meiri vegna þeirra. En hvort
var þá betra, minni mannraunir
eða minni sómi?
Starkaður gamli.
VtXtVttXlXÍiVMÍliÍÍKlt
Jörðin HAMRAR
í Hraunhreppi, Mýrum, fæst til kaups og ábúðar í næst-
komandi fardögum. Semja ber við eiganda og ábúanda
jarðarmnar Þórð Eiríksson.
II
(Framhald á 6. síðu.) i tttítltiitttiitittittttiiiiiittiilittttiii