Tíminn - 23.01.1951, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, þriðjudaginn 23. janúar 1351.
18. blað,
'Jtá hafi til
ÚtvarpLð
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Sinfóníutónleikar frá
Þjóðleikhúsinu. — Sinfóníu-
hljómsveitin leikur; dr. Victor
Urbancic stjórnar: a) Danse
macabre op. 40 eftir Saint-Sa-
ens. b) Fiðlukonsert ’nr. 1 í
g-moll eftir Max Bruch (ein-
leeikari: Ruth Hermanns). Um
kl. 21,05 hlé á tónleikunum. —
Upplestur: Steingerður Guð-
mundsdóttir leikkona les kvæði.
c) Sinfónía nr. 5 í e-moll op. 95
(Frá nýja heiminum) eftir
Dvorak. 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. — 22,10 Passíusálmur
nr. 2. 22,20 Vinsæl lög (plötur).
22,45 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
tals í Dómkirkjunni fimmtudag
kl. 5. Fermingarbörn séra
Bjarna Jónssonar eru beðin að
koma til viðtals í Dómkirkjunni
föstudag kl. 5.
Fermingarbörn
í Nessókn, sem fermast eiga
í vor og í haust, komi til viðtals
í Melaskóla fimmtudaginn 25.
janúar klukkan fimm síðdegis.
— Sóknarpresturinn.
Fermingarbörn
í Laugarnessókn eru beðin að
koma til viðtals í Laugarnes-
kirkju, austurdyr, fimmtudag-
inn næstkomandi klukkan 5.
Einnig börn þau, sem fermast
eiga í haust. — Séra Garðar
Svavarsson.
Keflavíkurvöllur.
Á árinu 1950 lentu 3357 flug-
vélar á Keflavíkurflugvelli. Milli
landaflugvélar voru 2338. Aðrar
lendingar voru íslenzkar flug-
vélar svo og björgunarflugvélar
vallarins.
Borgfirðingafélagið.
Aðalfundur Borgfirðingafé-
lagsins verður í Listamannaskál
anum í kvöld, og hefst hann kl.
8,30.
Aðalfundur Félags
íslenzkra myndlistarmanna
var haldinn í Baðstofu iðnað-
armanna þ. 15. janúar s. 1. í
stjórn voru kjörnir Jóhannes
Jóhannesson, formaður, Kjart-
an Guðjónsson, ritari og Valtýr
Pétursson, gjaldkeri.
í sýningarnefnd málara voru
kosin, þau Nína Tryggvadóttir,
Jóhannes Jóhannesson, Valtýr
Pétursson, Kjartan Guðjónsson
og Kristján Davíðsson, en í sýn
ingarnefnd myndhöggvara:
Tove Ólafsson, Ásmundur
Sveinsson og Gestur Þorgríms-
son.
Aðalfundur Bolvíkingafélagsins,
sem auglýstur hefir verið í
Iðnó í kvöld verður ekki þar,
heldur i Alþýðuhúsinu.
Ms. Arnarfell fór frá Rvík 18.
þ. m. áleiðis til Italíu. Ms.
Hvassafell lestar saltfisk á
Akranesi.
Ríkisskip:
Hekla fór frá Akureyri í gær
vestur um land til Reykjavík-
ur. Esja var á Norðfirði síðdegis
í gær á norðurleið. Herðubreið
er á leið frá Austfjörðum til Ak-
ureyrar. Skjaldbreið er væntan-
leg til Reykjavíkur í dag að vest
án og norðan. Þyrill er í Faxa-
ílóa. Ármann var í Vestmanna-
eyjum í gær.
Eimskip:
Brúarfoss er í Keflavík, lestar
frosinn fisk. Dettifoss fór frá
Stettin 20. 1. til Gdynia og Kaup
mannahafnar. Fjallfoss kom til
Reykjavíkur 20. 1. frá Leith.
Goðafoss fór frá Reykjavík 17.
1. til New York. Lagarfoss er í
Reykjavík. Selfoss fór frá Rvík
15. 1. vestur og norður og til
Amsterdam og Hamborgar.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 15.
1. til St. Johns og New York.
Auðumla fer væntanlega frá
Immingham 22. 1. til Reykjavík-
ur.
A fithum tieqii
Landið og matborðið
Það er nokkurt undrunarefni, hve við íslendingar
leggjum lítið kapp á það að auka fjölbreytni þeirra
fæðutegunda, sem við höfum á borðum okkar, með
ýmsu því, er hægt er að rækta eða fá af landinu sjálfu.
Ég hygg til dæmis, a<5 meginþorri fólks, er garðlönd
hefir og aðstöðu til allfjölbreyttrar ræktunar, láti sér
til dæmis nægja kartöflur og gulrófur. Sumir hafa að
vísu nokkra kálrækt, en ekki nema sumir. Og þar við
situr. —
★ ★ ★
Það er þó engum vafa undirorpið, að víðast á land-
inu má stunda með góðum árangri fjölbreytta ræktun
garðjurta, er skapaði verulega tilbreytni í daglegt fæði
heimilisfólksins talsverðan hluta af árinu. Hihir reynd-
ustu trjáræktarmenn, sem mesta þekkingu hafa i því
efni, segja mér líka, að hægt myndi að útvega plómu-
tré og jafnvel eplatré, sem bæru sæmilegustu ávexti í
öllum hinum hlýrri byggðarlögum landsins, ef þau
væru gróðursett á skjólgóða staði. Þannig gætu mörg
heimili i sveit og kaupstað fengið ofurlítið af nýjum
ávöxtum til matgerðar til bragðbætis og tilbreytingar.
★ ★ ★
Árnað heilla
Iljónaband.
S. 1. sunnudag voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Mál-
fríður Jóhannsdótir og Sverrir
Örn Valdimarsson, prentari.
Séra Jón Thorarensen gaf brúð
hjónin saman. Heimili þeirra
verður að Hofsvallagötu 61.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Alda Hoffritz
á Selfossi og Hilmar Friðriks-
son í Miðkoti í Þykkvabæ.
Hjúskapur.
Síðastliðinn laugardag gaf
séra Sigurður Pálsson í Hraun-
gerði saman í hjónaband ung-
frú Guðrúnu Brynjólfsdóttur á
Selfossi og Árna Sigursteinsson
iðnnema.
Blöð og tímarit
Tízkublaðið
nóv. des. 1950 er nýkomið út.
Flytur það margar greinar og
myndir um kventízkuna og er
efni blaðsins þetta hið helzta:
Nýjasta um vetrartízkuna, Aug-
un, Fegrun og snyrting, Gömlu
fötin, smásagan Gifting til fjár,
Framhaldssagan, Leyndardóm-
ur sumarhússins o. fl. Fjölmarg
ar tízkumyndir eru í blaðinu.
Útgefandi er Æsa K. Árdal.
Úr ýmsum áttum
Fermingarbörn í Dómkirkjunni
Fermingarbörn séra Jóns Auð
uns eru beðin að koma til við-
Það má enn svipast um víðar. Það væri víða kostn-
aðar- og fyrirhafnarlítið að rækta ribsber og sól-
ber til sultugerðar, jafnframt því, sem runnarnir
væru skjólbelti til prýðis við hús og bæi. Af ræktuðum
jarðarberjum má fá mikla uppskeru. Þeir skyldu tala
við M. Simson á ísafirði, er ekki hafa trú á því, ef ein-
hverjir eru. Nýting villtra berja eykst, en gæti þó ver-
ið mun meiri. Skarfakál gæti vaxið í hvaða garði sem
er á íslandi, og salat úr skarfakáli er lostæti. — Fjalla-
grösum og sölum gefa menn nauðalítinn gaum .— og
flestir alls engan.
★ ★ ★
í fornöld mun hafa verið mikil ostagerð hér á landi.
Suður í Sviss eru sumar tegundir hinna dýrustu og eft-
irsóttustu osta epn í dag framleiddar 1 seljum og
bændabýlum langt uppi til fjalla. Þar, sem mjólkur-
sala er ekki hér á landi, eru þó viða fleiri kýr en svo,
að alla mjólkina þurfi ekki til daglegrar neyzlu, er
mest er af henni. Þá ætti við ostagerð. En hún er að
mestu aflögð hérlendis.
★ ★ ★
Enn skal eitt dæmi nefnt. Víða hér á landi eru nær
ördauða ár og vötn, er gætu verið matarkistur. Reynsla
hefir sýnt, hvað gera má á skömmum tíma með klaki.
Laxinn og silungurinn leitar aftur í árnar, þar sem
seiðin hafa verið fyrst skeiðið. Fiskurinn stækkar með-
an maður sefur. En það skeyta ekki sumir um það að
koma upp fiskistofni og njóta góðs af ám sínum og
vötnum.
★ ★ ★
Þessa sögu mætti rekja miklu lengra. Þetta er sagan
um tómlæti þjóðarinnar og ánauð i vanahlekkjum.
Þetta er líka sagan um það, að hvarvetna er gnægð
verkefna, sem geta skapað betra líf og veitt rikulegri
uppfyllingu lífsþarfanna. Hér þurfa margir að leggjast
á eitt. Mér dettur í hug, að hér gætu húsmæðraskól-
arnir miklu áorkað, eins og raunar allir skólar okkar.
Við þurfum þá vakningu og þann skilning, að starfið
sé lífið og skyldan sé að búa í haginn fyrir komandi
kynslóðir með andlegri og verklegri menningu og vinnu,
sem gerir landið betra og byggilegra. J. H.
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦
StúcíentGféBsg Reykjavíkur
Umræöufundur
um friðarmálin verður haldinn í Tjarnarbíó í kvöld og
hefst kl. 9 stundvíslega.
Framsögumenn :
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri.
Gylfi Þ. Gíslason, prófessor.
Jóhannes úr Kötlum, skáld.
Félagsskírteini verða seld í dag í Tjarnarcafé kl.
5—7 og Tjarnarbíó kl. 7—9.
Stjórnin.
„Elsku Rut”
Leikstjóri: Gunnar Hansen
Sýning í Iðnó i kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 2 í
dag.
MarmarS”
llldi l
eftir Guðmund Kamban.
Leikstjóri: Gunnar Hansen
Sýning í Iðnó annað kvöld,
miðvikudag, kl. 8. Aðgöngu-
miðar seldir kl. 4—7 í dag. —
Sími 3191.
SKIÞAUTCeKO!
RÍKISINS
„Skjaldbreiö"
til Snæfellsneshafna og Flat-
eyjar hinn 26. þ. m. Tekið á
móti flutningi á morgun og
fimmtudag. Farseðlar seldir
á fimmtudag.
„Heröubreiö"
til Vestfjarða hinn 27. þ- m.
Tekið á móti flutningi til
hafna milli Patreksfjarðar og
ísafjarðar á morgun og
fimmtudag. Farseðlar seldir á
föstudag.
„HEKLA"
austur um land til Siglufjarð-
ar hinn 27. þ. m. Tekið á móti
flutningi t;l áætlunarhafna
milli Djúpavogs og Húsavíkur
á morgun og fimmtudag.
Ármann
Tekið á móti flutningi til Vest
mannaeyja daglega.
Anglýsingasíml
Tímans
er 81300
Vöru-
happ-
drætti
S
I
B
S
Sala og endurnýjun
t l 1. fl. 1951
er hafin
★
Kaupverð miðans er
10 kr.
Endurnýjun
10 kr.
Ársmiði
60 kr.
Aðeins heilmiðar
★
Öllum hagnaði er varið til
nýbygginga að Reykjalundi,
en Reykjalundur er bjart-
asta leiðarljós í félagsmálum
íslendinga, langdrægur viti,
sem aðrar þjóðir munu marka
stefnu sína eftir.
íslendingar! berið þessum
vita ijósmeti.
Frímerkjaskipti
Sendið mér 100 íslenzk fri-
rnerki. Ég sendi yður um hæl
Í00 erlend frímerki.
JON AGNARS,
Frímerkjaverzlun,
P. O. Bcx 356, Reykjavík.