Tíminn - 23.01.1951, Blaðsíða 8
99
ERLE1\T YFIRL1T“ t DAG:
Varnfr haltla siríðsins
55. árgangur.
Reykjavík,
„A FÖRAWl \EG1“ t DAG:
Landið ot§ mutborðið
23. janúar ,1951*
18. blað.
Manntjón í aftaka
veðri við Norður-
Noreg
Um síðustu helgi gerði eitt
hvað hið mesta fárviðri við
norðurströnd Noregs, sem
Iengi hefir komið. Veðrið
brast nokkuð snögglega á á
sunnudagsnóttina, en flestir
bátar fengu þó viðvörun í
veðurskeytum i tíma, svo að
þeir gátu haldið til hafnar.
Þrátt fyr'r það fórust tveir
eða þrír vélbátar í rúmsjó og
með þeim níu menn. Skemmd
ir á bátum og hafnarmann-
virkjum í verstöðvum urðu
svo miklar, að þær eru taldar
nema m lljónum króna, enda
gereyðilögðust margir bátar í
höfnum.
150 þús. hl. síldar
komin á land
í gær höfðu borizt á land í
Noregi, aðallega Álasundi. um
150 þús. hl. af síld á þessari
nýbyrjuöu síldarvertíð. Mest
megnis er þessi síld veidd af
snurpunótaskipum en rek-
netabátar hafa einnig komið
inn með góða veiði allt að
400 hl. á bát. Síldin veiðist
mest í nánd við Svíney og eru
síldartorfurnar sagðar geysi-
stórar á þessum slóðum.
Allmikið af þessari síld fer
í verksmiðjur, en einnig er
nokkuð ísað fyrir Þýzkalands
markað eða saltað á Svíþjóð-
armarkað.
Vorííð hofst 29. jan.
Bátar við Lofoten eru nú
að verða tilbúnir að hefja
róðra á vetrarvertíð. Ákveð-
ið hefir verið, að vertíðar-
róðrar í Lofoten hefjist 29.
jan. í Norður-Noregi er það
fastur siður, að róðrardagur
er ákveðinn og má enginn
bátur byrja fyrr en hinn á-
kveðna dag. —
Óvenjulega mikið hefir kveðið að snjóílóðum í Alpafjöllun-
um nú í vetur, og hefir fjöldi fólks beðið bana af völdum
þeirra nú upp á síðkastið, og mikið af mannvirkjum
skemmst. — Myndin hér að ofan er frá snjófióði í Ölpun-
um. Það skín í bera f jallshlíðina, en niðri fyrir snjódyngjan,
sem hrapað hefir.
Fjögurra ára dreng
bjargað-með snarræði
Féll nlður á milli ships og bryggju, en toll-
bjónn reimdi sér í sjúinn og’ uáði barninu
Um hádegi í gær-,i,var liílum dreng, er féll í höfnina í
Reykjavík, bjargað f,vr r snarræði tollþjóns, sem að bar, og
atfylgi skipverja á Lagarfossi og verkamanna hjá Eimskipa-
felaginu.
180 manns farast í
snjóflóðum í Ölpunum
Heil þorp kafin I fönn. Flóðin mest í Sviss
en einnig’ í Austurríki og Aorðiir-ítalíu
Snjóflóðin í Suður-Ölpunum hafa orðið meiri og örlaga-
ríkari en vitað var um og útlit var fyrir á laugardagskvöldið.
Á sunnudagsnóttina féllu mörg og mikil snjóflóð, og í gær
var talið, að allt að 180 manns mundu hafa farizt í snjó-
flóðum þessum.
GóS afkoma Akranesstogarans :
Útflutningsverðmæti
aflans 3,5 milj. kr.
Akurnesingar þurfa annan togara til að
tryggja stanslausan rekstur frvstihása
Togaraútgerðin á Akranesi gengur mjög vel, og hefir
bæjartogarinn þar, Bjarni Ólafsson, orðið bæjarbúum að
miklu liði við að bægja frá atvinnuleysi. En með tveimur
togurum er hægt að starfrækja frystihúsin á Akranesi allt
árið og koma þannig algjörlega í veg fyrir atvinnuleysi þann
tíma ársins, sem bátar róa ekki frá Akranesi.
Var leystur úr verkfalli. veiðar 26. október. Atvinnu-
Eins og menn rekur minni leysi var þá verulegt í bæn-
til, náðu Akurnesingar tog- um, og full þörf á því, að tog
ara sínum út úr togaraverk- arinn hæfi veiðar. Var mikið
fallinu og fór hann á karfa- atvinnuleysi á Akranesi í allt
___________________ sumar að kalla, en þegar síld j
arbátarnir komu heim og byrj j
uðu á reknetum og togarinn'
fór á veiðar og farið var að:
vinna úr aflanum í frystihús- j
unum, batnaði mjög í búi hjá
vinnandi fólki á Akranesi. I
Drengurinn, sem fé'll í sjó-
inn, var fjögurra ára, Sverrir
Sarlsson að nafni, t f'heimilis
ið Vesturgötu 17. Lágarfoss
á við gömlu uppfyllinguna
'raman v ð pakkhús Elmskipa
’élagsins og voru verkámenn
ið vinna að uppsk pun.'Dreng j
urinn var þarna á höttunum j
í kring, ásamt eldr4 systur
sinni, og tveimur börnum öðr
um. Mun faðir drengslhs hafa
verið við vinnu í skipinu.
Stýrimaður lét færa skipið.
Áður en nokkurn ýárði féll
drengur nn niður á mllli skips
og bryggju. En svo mjótt var
bilið, að fullorðinn maður
komst þar ekki niður. Guðráð
ur Sigurðsson, stýrimaður á
Lagarfossi, lét þegar er hann
vissi, hvað orðið var, draga
skipið að að framan, svo að
því svifaði frá bryggjunni að
aftan. Ungur verkamaður
renndi sér síðan í sjóinn, en
ekki tókst honum að ná taki
á barninu. Verkamennirnir
og skipsmennirnir vörnuðu
því á meðan, að skipinu slægi
aftur að bryggjunni.
Eiríkur Guðnason
bjargar barninu.
í í þessum svifum bar að tvo
tollþjóna, sem voru að koma
úr þýzkum togara í austur-
höfninni. Sáu þeir, að eitt-
hvað var um að vera við Lag-
arfoss. Var þeim brátt sagt,
hvers kyns var. Kaðall hékk
þar bundinn við þoll á bryggj
unni, og renndi annar toll-
þjónanna, Eiríkur Guðnason,
Sogavegi 142, sér niður á hon
um.
Náði hann barninu. Var síð
an rennt til hans kaðalstiga,
er hann náði fótfestu í, og
stroffu. Var hann þannig veg
inn upp með barnið í fanginu.
— Ég sleppti aldrei ann
arri hend nni af kaðlinum,
sagði Eiríkur í viðtali við
tíðindamann frá Tímanum.
Sá ég, að barnið hafði náð
taki á undirstöðum bryggj-
unnar og hélt sér þar dauða
haldi, og tókst mér að synda
að því, áður en það missti
takið. En það var ekki ég
(Framhald á 7. síðu.)
Unnið að togara-
kaupum Siglu-
fjarðarbæjar
Jón Kjartansson, bæjar-
stjóri í Siglufirði, tók sér far
til Reykjavikur með Heklu í
fyrradag. Mun hann hér syðra
vinna að því, aö Siglufjarðar-
bær fái einn af hinum nýju
togurum, sem enn er óráð-
stafað, svo og öðrum nauð-
synjamálum fyrir Siglufjörð.
Það var ranghermi 1 blað-
inu á dögunum, að nefnd
hefði verið kosin til þess að
vinna að þessum málum. —
Bæjarstjóranum var einum
falið að starfa að lausn
þeirra. —
Snjóflóð þessi hafa bæði
orðið í héruðum í Austur-
ríki, aðallega Tyrol, Sviss og
Norður-Ítalíu. Mest er þó
tjónið, bæði á mönnum og
eignum, í Sviss. í gær höfðu
alls verið grafin upp um 130
lík, en margra var enn sakn-
að og fjöldi manna hafði
meiðzt illa.
Þorpið eyðilagðist allt.
aðeins 12 komust lífs af. í
gærkvöldi var búið að grafa
upp níu lík.
Snjóflóð þessi eru meiri en
þekkzt hafa á þesum slóðum
svo mannsöldrum skipti. Ó-
hemjumikið hafði sn.ióað
þarna og síðan gerði bleytu.
Rauði krossinn hefir sent
margar hjálparsveitir á vett-
vang til þeirra staða, sem
verst hafa orðið úti, og stjórn
Svisslands ræddi það á fundi
A einum stað í svissnesku í gær, hvað hægt væri að gera
Ölpunum féll geysistórt snjó
flóð á þorp eitt, gróf það allt
1 fönn og gereyðilagði það. í-
búarnir voru rúmlega 30, en
til hjálpar nauðstöddu fólki.
í dag mun forseti landsins
ávarpa þjóðina í tilefni þess-
ara hörmulegu atburða.
Góð afkoma togarans.
Síðan Bjarni Ólafsson hóf
veiðar í haust hefir afkoma
skipsins verið mjög góð. Er
þó hér um að ræða eitt versta
aflaskeiðið á árinu.
I Fyrir útgerðartímabilið
frá október til janúar er verð
. mæti karfaaflans úr Bjarna
Ólafssyni, lýsis, mjöls og
flaka, áætlað 3 milljónir og
485 þúsund krónur. Af því er
Ibúið að greiða í vinnulaun í
landi um 770 þúsund krónur.
Er það fyrir vinnu í frystihús
um, í mjölverksmiðjunni og
við uppskipun.
i Hásetahlutur á þessu tíma-
bili nam 852 þúsund krón-
um. —
i
Þurfa annan togara.
Með því að vlnna karfann
á þann hátt, sem gert hefir
verið á Akranesi, fæst mest
verðmæti út úr aflanum til
útflutnings og við þá vinnslu
(Framhald á 7. síðu.)
Asíuríkin leggja fram nýja
tillögu í Kóreudeilunni
Tillagan byggð á orðsendingnni, sem farið
Iiafa á milli Peking’ og Níew Dehly
Stjórnmálanefnd S.Þ. kom saman til fundar í gærkvöldi
| til umræðu um Kína-tillögur Bandaríkjamanna. Þrem
stundum áður en nefndarfundurinn hófst, hafði fulltrúi
I
Indlands, sir Benegal Rau kallað saman fulltrúa þeirra 12
| Asíuríkja, sem auk Indlands, stóðu að fyrstu samtökunum
| til að koma á vopnahléi í Kóreu.
fyrst viðurkenndur. Sir Bene
Nýjar orðsendingar.
I Á fundi Asíuríkjanna mun
sir Benegal Rau hafa skýrt
: frá nýjum orðsendingum, sem
: farið hafa á milli Peking-
stjórnarinnar og stjórnar
Indlands undanfarna daga.
Eftir þeim orðsendingum að
gal Rau lét svo ummælt, að
þetta styrkti enn þá skoðun,
að Kína vildi frið.
Nýjar tillögur lagðar fram.
Asíuríkin sömdu síðan nýj-
ar tillögur í Kóreudeilunni,
sem eiga að verða eins kon-
dæma mun Pekingstjórnin | ar miðlun, og lagði sir Bene-
hafa fallizt á að taka þátt í gal Rau hinar nýju tillög-
almennri ráðstefnu um Kóreu
deiluna og önnur brýnustu
Asíuvandamál að því einu til-
sk'ldu, að fulltrúaréttur Pek-
ingstjórnarinnar hjá S.Þ. yrði
ur fram á fundi stjórnmála-
nefndarinnar i gærkvöldi. —
Um efni tillagnanna í einstök
um atriðum var ekki vitað í
gærkvöldi.