Tíminn - 23.01.1951, Side 5
18. blað
TÍMINN, þriðjudaginn 23. janúar 1951.
5
Þviðjud. 23. jan.
Sameinuðu þjóð-
irnar og Kórea
Stjórnmálanefnd Samein-
uöu þjóðanna fæst við erfitt
og örlagaríkt verkefni þessa
dagana, þar sem Kóreustríðið
er. Það er komið á nýtt
og alvarlegt stig eftir að Kín
verjar höfnuðu seinusta sátta
tilboði Sameinuðu þjóðanna.'
Fyrir nefdinni liggur tillaga
frá Bandaríkjamönnum um!
að lýsa Kínverja árásaraðila •
í Kóreu og hefja refsiaðgerð
ir gegn þeim samkvæmt því, i
þó ekki hernaðarlegar. Þá er1
og þegar þetta er ritað, talin 1
von á tillögum frá Asíuþjóð-
unum um að ný sáttatilraun
Sé enn reynd.
Fljótlega eftir að kunnugt
varð um innrás Kínverja í
Kóreu, hugðist Bandarikja-
stjórn að leggja fram svipaða
tillögu í stjórnmálanefndinni
og hún hefir nú flutt þar.
Samkvæmt lögum og tilgangi
Sameinuðu þjóðanna virðist
•það eðlilegt og rökrétt áram
hald af því, sem áður var
búið að gera. Afstaða ýmsra
Asíu- og Evrópuþjóða, m. a.
Breta, var hinsvegar sú, að
áður en slík samþykkt yrði
gerð, yrði að reyna til hins
ítrasta að ná sáttum. Banda
ríkjastjórn tók tillit til þess-
arar afstöðu og hefir þrásinn
is dregið tillögu sína til baka
meðan nýjar og nýjar sátta-
tilraunir hafa verið reyndar.
Þær hafa jafnan strandað á
synjun Rússa og Kinverja.
Eftir að Kíhverjar höfnuðu
seinustu sáttatilrauninni í
síðastliðinni viku, taldi Banda
ríkjastjórn sér ekki lengur
fært að halda tilögu sinni til
baka.
Sá ágreiningur, sem hér er
milli hinna frjálsu þjóða,
Bandaríkjanna og ýmsra ann
arra annarsvegar og Breta og
ýmsra annara hinsvegar, virð
ist stafa af því, að mönnum
sýnist sitthvað um það, hvað
sé vænlegast til að hindra
stórveldastyrjöld í Asíu. Af-
staða Breta og fylgismanna
þeirra stafar fyrst og fremst
af því, að þeir óttast að af
tillögu Bandaríkj anna geti
leitt stórveldastyrjöld í Asíu.
Afleiðing hennar yrði sú, að
Bandaríkin gætu síður hjálp
að Vestur-Evrópu, ef á hana
yrði ráðist. Bandaríkjastjórn
segir hinsvegar, að sú leið,
sem hún bendir á, sé líklegust
til að afstýra stórveldastyrj -
öld. Algert undanlát Samein
uðu þjóðanna yrði ekki til
annars en að auka hroka og
yfirgang árásarmannanna og
myndi gera heimsstyrjöld
fyrr eða síðar óhjákvæmilega.
Hæfilegar refsiaðgerðir myndi
hinsvegar verða þeim áminn
ing, en vel megi beita þeim
án þessa að íæra út vopna-
viðskiptin.
Hér stendur fullyrðing gegn
fullyrðingu og geta báðir haft
mikið til síns máls. Við þetta
bætist svo, að Bandaríkja-
stjórn hefir að ýmsu leyti
erfiðar aðstæður heima fyr-
ir. Andstæðingar hennar
segja, að Bahdaríkin hopi
ekki aðeins fyrir Kínverjum,
heldur láti einnig í minni
pokann fyrir samherjum sín
um. Kóreustríðið sé stríð
Sameinuðu þjóðanna, en ekki
ERLENT YFIRLIT:
Varnir í kalda stríðinu
Álit nokkirrra brezkra sórfræðinga í ut-
anríkis- og hernaðarmálum
„Vörnin í kalda stríðinu“ nefn
ist bók, sem kom út í Bretlandi
á síðastliSnu hausti. Bók þessi
hefir vakið talsverða athygli,
því að höfundar hennar eru
nokkrir kunnir sérfræðingar í
hernaðar- og utanrikismálum,
sem unnu .að samningu hennar
á vegum félagsskapar, sem fæst
við uþplýsingastarfsemi um
millirírkjámál. I grein, sem ný-
lega biftist í norska blaðinu
„Verdens Gang“ er efni þessarar
bókar nokuð rakið, og fer grein
sú hér á eftir í meginatriðum:
Merkilegt verk.
Bretar -éru engin byrjendur
í milliríkjamálum og hér hafa
fremstu •kérfræðingar þeirra í
heimsmáfunum verið að verki.
Sir Jan -Jacob var formaður
þeirrar nefndar, sem samdi rit-
ið. Það jer hið bezta verk, þar
sem má}ín eru rædd af raun-
sæi og rp.kvísi. Efnið er sannar
lega hugstætt, þar sem bókin
fjallar uiii taugastríð líðandi
tíma og Ú1 dæmis um það, hvað
hún liggttr nærri samtíðinni
er það;- að þar er grein um
Kóreustríðið. Bókin er byggð
eins og skýrsla um hernaðar-
styrk. Málin eru rædd frá öll-
um hliðu.m og þannig fengið
fullt yfiSUt yfir vígvöllinn.
Það sýnir vinnubrögðin við.
þessa bök, að fyrst er rökrætt j
hvað táugastríðið eða kalda
stríðið sT í raun og veru og
því er sva-rað á þá leið, að það
sé að nota allt sem unnt sé, til
að hafa áhrif í utanríkismálum,
annað beinar hernaðarað-
gerðir vópnaðra liðssveita rauða
hersins. Kommúnistar og fylgis-
menn þeirra eru alltaf viðbúnir
og væntánlegir til þátttöku í
slíkum átökum fyrir þá, eins
og í Kóréústríðinu. Þess vegna
má ekkbrftiða alla vopnafram-
leiðslu við stórstyrjaldir ein-
göngu.
Það er eðlileg afleiðing þessa,
að ekkí. jná gera ofmikið úr
kjarnorkusprengjunni. Af stjóm
málalegum og mannúðlegum á-
stæðum vérður hún sjálf ekki
notuð í smáhernaði. I stórstyrj-
öld má heldur ekki ofmeta
kjarnorkuna. Dæmin frá Þýzka
landi og Japan sýna, að þjóð
getur hatóið liði sínu undir
vopnumr.,þó að hún verði fyrir
ægilegiuri loftárásum. Og það
er rétt að gera sér þess grein,
að það er einungis her Sovét-
ríkjanna sjálfra, sem ekki má
hafast néitt að.
Ólíkur herstyrkur.
Það er líka hættulegt að tala
of mikið um sprengjuna. All-
ar stórfenglegar lýsingar á
hryllilegum áhrifum hennar
skelfa hinn frjálsa heim að lok
um meira en Rússa. Svo mikið
er víst, að kjarnorkusprengja er
enginn liður í hernaði með
venjulegum vopnum og þegar
litið er á algenga varnartækni
blasir vonleysi vesturveldanna
við. Tölur þær, sem birtar eru,
eru sannar, og þær eru skelfi-
legar. Ef styrjöld brytist út í
dag, myndu Rússar þegar hafa
100 herfylki undir vopnum og
10 þúsund fiugvélar til aðstoð-
ar við árásir á Vestur-Evrópu.
Gegn þessu öllu hafa Vestur-
veldin 12 herfylki og eitthvað
þúsund orrustuflugvélar og öll
eru þessi herfylki þeirra van-
búin að vopnum nema fjögur.
Rússar eiga 40 þúsund skrið-
dreka eða sex sinnum fleiri en
Bretar og sjö sinnum fleiri en
Bandaríkin.
Nú er ráðgert að varnarlið
Vestur-Evrópu verði 30 herfylki
en það tekur 2—3 ár að koma
þeim á fót. í þessarri bók eru
55 herfylki talin lágmark og
þriðji hluti þes liðs verður að
vera reiðubúinn til að grípa taf-
arlaust til vopna í Þýzkalandi.
Gegn 10 þúsund flugvélum
Rússa vantar Vesturveldin í
fremstu víglínu fimm þúsund
þrýstiloftsorrustuflugvélar og
þúsund sprengj uflugvélar. Vest
urveldin ætluðust til þess af
iðnaði sínum að tæki þeirra
væru miklu vandaðri en rúss-
nesku vopnin, en þau standa
svona langt að baki með fjöld-
ann.
Eini þáttur varnanna sem er
jafnsterkur hjá Vesturveldun-
um er flotinn. Floti Rússa er
lítill, en kafbátum þeirra fjöölg-
ar ört, og því vantar lítil skip,
sem geta mætt þeim. Stærri
orrustuskipum mætti líka
fækka, því að þau eru bæði
dýr og mannfrek.
Varnarleysið er dýrara.
Það er nú augljóst að sá
vígbúnaður, sem hér er nefndur,
kostar bæði fé og menn, en
spurningin er ekki sú, hvort
við höfum efni á að vígbúast,
heldur hvort við höfum efni á
að láta það ógert. Fjárhagsleg
framlög í þessu skyni má ekki
miða við hvort lífskjör haldist
eins og þau eru, heldur við ut-
anríkispólitík, ettida e;ru lífs-
kjör alltaf teyjanlegt hugtak.
Ef allt bendir til — eins og nú
er — að stríðið hljóti að koma
innan skamms, þá er lítið vafa-
ATTIÆE
mál, að það er ódýrara að víg-
búast en að bjóða hernáminu
heim eða kalla yfir sig langt
stríð, sem ef til vill tapast.
Höfundarnir telja endurreisn
og hervæðingu Vestur-Þýzka-
lands nauðsynlegan þátt í þess-
um vígbúnaði: Þar verði öll
tilfinningamál að víkja, því að
Vesturveldin hafi engin efni á
því að halda Ruhr-héruðunum
og 48 milljónum manna utan
við varnarkerfið. Vesturveldin
verða því að taka að sér að
verja Þýzkaland, því að auð-
vitað séu Þjóðverjar ekki gin-
keyptir til að verða fallbyssu-
fóður ef land þeirra á að verða
hernumið. Vegna þessa og
margs annars þarf að gera sér
ljóst og ákveða fastlega hvaða
svæði eigi að verja, ef til styrj-
aldar kemur Það verða ekki
full not af hernaðarstyrk Vest-
urveldanna nema þau líti á
allt varnajsvæði og allar varnir
sínar sem eina heild, svo að
þau séu ekki berskjölduð á ein-
um stað vegna þess, að óþarf-
lega mikill styrkur var bund-
inn annars staðar.
Þá er það sjónarmið þessarra
höfunda að núverandi skipu-
lag sé mjög vafasamt. Atlanz-
hafsbandalagið og allar þær
nefndir og undirnefndir, sem
með þessar varnir hafa að gera
(Framhald á 6. siðu.i
Enska knatt-
spyrnan
Úrslitin í 27. umferð i ensku
knattspyrnunni urðu á þessa
leið í 1. og 2. deild:
1. deild
Arsenal—Middlesbro 3—1
Aston Villa—Fulham 3—0
Burnley—Huddersfield 0—1
Charlton—Wednesday 2—1
Chelsea—Newcastle 3—1
Derby—Liverpool 1—2
Everton—Stoke 0—3
Manch. U.—Tottenham 2—1
Portsmouth—West Bromw. 2—2
Sunderland—Bolton 1—2
Wolves—Blackpool 1—1
2. deild
Bury—Cardiff 1—2
Chesterfield—Manch. C. 1—2
Doncaster—Hull 2—4
Leeds—Southamton 5—3
Luton—Barnsley 1—1
Notts County—Grimsby 3—2
Preston—Birmingham 1—0
Quens P. R.—Coventry 3—1
| Sheffield U.—Leicester 2—1
Swansea—Brentford 2—1
West Ham-Blackburn 2—3
I
I Eftir 27. umferðina er stað
an þessi í 1. og 2. deild:
stríð Battdarikjanna, og fyrst
Sameinuðu þjóðirnar vilji
ekki véita Bandaríkjunum
fulla liðvelslu, eigi þau ekki
að vera að berjast ein fyrir
þær, heidur eigi þau að draga
her sittti úr Kóreu og efla
þeim mtm betur varnar sinar |
í Japan, á Formosu og Filipps [
eyjum, ng forðast jafnframt
alla samnlnga við kínverzku
kommúftistastjórnina. Lík-
legt er .að þessi stefna fái
meiri hljómgrunn í Banda-
ríkjunum, ef þófið hjá Sam-
einuðu þjóðunum heldur á-
fram, og geri jafnframt
Bandaríkjastjórn erfiðara
fyrir um samninga við Kín-
verja, ef til kæmi.
Það má þannig segja, að
lýðræðisskipulagið, sem leyf-
ir stjórnarandstöðu og gagn-
rýni, geri Bandaríkjastjórn
nú að ýmsu leyti örðugra um
vik. Einræðisstjórninar þurfa
ekki að hafa áhyggjur af
slíku, heldur geta þær farið
sínu fram, hvort sem þjóðum
þeirra líkar betur eða ver. Ef
þær byggju við gagnrýni og
aðhald alminningsálitsins
hefðu þeir ekki heldur getað
farið út í þau stríðsævintýri,
sem heimsfriðnum stafar nú,
ógn af. Þess vegna er lýðræð-
isskipulagið friðinum og
frelsinu miklu hollara en ein
ræðið, þótt svo virðist stund-
um að það sé veikara og ó-
traustara stjórnarkerfi.
Það ósamkomulag, sem nú
ríkir meðal hinna frjálsu
þjóða sýnir einnig, að innan
samtaka þeirra ríkir ekki nein
yfirdrottnun eða þrælsótti,
heldur getur hver fylgt sinni
skoðun. Þetta getur stundum
reynst veikleiki og svo virð-
ist það nú. Þegar til lengdar
lætur mun þetta þó reynast
styrkur og því mun áreiðan-
lega svo fara, þótt erfiðlega
horfi um stund og kommún-
istar geri sér miklar hagnað-
arvonir í því sambandi að hin
ar frjálsu þjóðir munu finna
sameiginlega grundvöll til að
standa á og verja með frjálsu
samstarfi friðinn og frelsið í
heiminum gegn yfirgangi og
ógnum kommúnismans.
Raddir nábáanna
Þjóðvilj. birti í fyrradag yfir
litsgrein, þar sem hann rekur
yfirráð Thorsættarinnar á
ýmsum sviðum þjóðfélagsins
og finnst mikið um. M. a. seg
ir hann svo um saltfisksöl-
una: í
„Af framleiðslugreinunum
innanlands hafa Torsararnir
öflugustu yfirráð yfir saltfisk-
sölunni, enda þótt þeir hafi
ekki sjálfir framleitt einn ugga
af saltfiski síðan stríði lauk.
SÍF hefur sem kunnugt er rik-
isverndaða einokun en for-
maður SÍF er Richard Thors
og hefur verið um mjög langt
skeið. Erlendis hefur allur salt
fiskurinn verið seldur af þre-
menningunum sem nefndir
voru áðan, Pipinelis, Hálfdáni
og Þórði! Þeir hafa þann hátt
á að þeir eru bæði seljendur
og kaupendur, hafa borgað ís-
lenzkum framleiðendum mun
minna en fáanlegt er og neitað
öllum öðrum en sínum eigin
fyrirtækjum um saltfisk. Hef-
ur það mál verið rakið marg-
sinnis og ýtarlega hér í blað-
inu og sýnt fram á t. d. að frá
stríðslokum til miðs árs 1949
hafi þeir Pipinelis og Hálfdán
Bjarnason með þessum verzl-
unarháttum haft af íslenzk-
um framleiðendum um 9 millj-
ónir“.
Þess minnist Þjóðviljinn
ekki, að meðan Áki Jakobsson
var sjávarútvegsmálaráð
herra hafði hann ekkert við
, einokun S. í. F. að athuga,
heldur samþykkti hana fús-
lega. Þá taldi Þjóðviljinn
Thorsarana heldur ekki neitt
hættulega, heldur kallaði þá
hinn „frjálslynda arm Sjálf-
stæðisflokksins".
1. deild
Tottenham 26 15 6 5 57-32 36
Middlesbro 26 14 8 4 62-37 36
Arsenal 27 15 5 7 54-30 35
Wolves 25 13 6 6 52-31 32
Newcastle 25 12 7 6 44-37 31
Bolton 25 13 3 9 44-39 29
Stoke 27 9 11 7 33-32 29
Burnley 26 9 10 7 33-27 28
Manch. U. 26 11 6 9 35-30 28
Blackpool 26 10 7 9 47-38 27
Derby 26 10 6 10 50-45 26
Liverpool 25 9 7 9 34-38 25
Portsmout 25 8 8 9 42-47 24
Fulham 27 8 8 11 32-45 24
Sunderl. 26 7 8 11 40-51 22
West Bromw. 27 7 13 35-40 21
Everton 27 8 5 14 36-57 21
Aston Villa 26 5 10 11 40-44 20
Charlton 26 7 6 13 39-61 20
Huddersf. 26 8 4 14 37-62 20
Chelsea 24 8 3 13 32-36 19
Wednesd. 26 6 5 15 37-56 17
2. deild
Preston 27 15 4 8 52-32 34
Coventry 27 14 4 9 56-35 32
Manh. C. 24 13 6 5 54-37 32
Blackburn 26 13 5 8 43-40 31
Cardiff 26 10 10 6 34-28 30
Southamt. 26 12 6 8 39-44 30
Birmingh. 27 12 5 10 41-37 29
Barnsley 26 10 7 9 52-34 27
Sheffield U25 10 7 8 46-37 27
Notts C. 26 10 7 9 39-34 27
Hull City 26 9 9 8 46-40 27
Doncaster 25 9 9 7 37-39 27
West Ham 26 11 5 10 42-44 27
Leeds 25 10 6 9 41-37 26
Leicester 26 9 7 10 39-36 25
Queens PR 25 9 4 12 41-53 22
Brentford 26 8 5 13 34-52 21
Chesterf. 26 5 10 12 27-41 20
Swansea 25 9 2 14 34-51 20
Luton 26 5 9 12 29-40 19
Bury 25 7 4 14 33-48 18
Grimsby 26 4 9 13 41-61 17
3. deild syðri.
Notingham 24 16 6 2 62-18 38
Norwich 24 14 9 1 43-19 37
Bristol Rovers er með 33, Mill
wall 31 og Reading 30 stig.
3. deild nyrðri
Rotherham 26 18 4 4 55-22 40
Carlise 26 14 8 4 52-58 36
Tranmere er með 33 stig, Gat
eshead og Stockport 32 og Lin-
coln City 31.
Aðalleikurinn í 27. umferð
var milli Arsenal og Middles-
bro á Highbury. Arsenal virð-
ist nú vera búinn að ná sér
upp og gaf Middlesbro ekki
mörg tækifæri. Sigurinn varð
3:1 en Arsenal skoraði öll
mörkin. Goring skoraði fyrsta
markið, og Lewis annað og
þriðja, en undir leikslok
setti hínn óheppni Comton
knöttinn í eigið mark. Middl-
esbro varð fyrir þeirri ó-
heppni að McCrea (marka-
hæsti maðurinn I 1. deild)
meiddist. Tottenham tapaði
fyrir Manch. Utd. á sínu eigin
(Framhald á 4. síöu) ,