Tíminn - 24.01.1951, Síða 5
19. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 24. janúar 1951.
5
Nliðvikud. 24. jtm.
ERLENT YFIRLIT:
Deilur frægra systra
. Eva Cnrlc átti drýgst«m þátt í því, að Irene
\ eröhækkanir hér systir hennar var vikið ár frönska
og í Noregi
í blöðum Alþýðuflokksins
er nú fylgt því fordæmi
kommúnista að kenna geng-
islækkuninni um allar verð-
hækkanir, sem hér hafa orð-
ið. í tilefni af því er ekki ó-
fróðlegt að kynna sér efni
forustugreinar, sem birtist í
„Arbeiderbladet“, aðalmál-
gagni norska Alþýðuflokksins,
28. desember síðastliðinn, þar
sem raktar eru orsakir verð
hækkana, er orðið hafa í Nor
egi. í þeirri gréin segir svo:
— Það hefir verið dýrt að
halda jólin að þessu sinni
Af þeirri ástæðu er ekki úr
vegi að kynna sér orsakir
verðhækkananna. Sumir
segja, að þær séu stjórnar-
stefnunni að kenna. Vegna
stjórnarstefnunnar hafi trúin
á verðgildi peninganna þorr-,
ið, menn kaupi því meira en
ella og af því leiði vöruþurrð
og verðhækkanir.
Þetta gæti verið rétt ef Nor
egur væri alveg óháður öllum I
innflutningi og allar nauð-1
synjar þjóðarinnar væru1
framleiddar í landinu sjálfu. |
En slíku er ekki að fagna.!
Við lærum það strax í barna’
skólanum, að Noregur hefir,
tiltölulega meiri utanríkis- [
verzlun en flest önnur lönd'
og af því leiðir að fjárhags- j
mál okkar — og þar á meðal
verðlagið — eru mjög háð
þeim sveiflum, sem verða á
heimsmarkaðinum. Það væri
eins rangt að láta sér sjást
yfir þetta og halda því fram,
að Kóreustyrjöldin og átökin
milli austurs og vesturs væru!
afleiðing af utanríkisstefnu!
Noregs.
Við þekkjum ekki neitt land
þar sem ekki hafa orðið stór
felldar verðhækkanir síðan
haustið 1949. Vísitala Moodys
yfir hrávörur, sem sýnir verð
breytingar helztu hrávara í
Bandaríkjunum, var í kring-
urn 340 haustið 1949. Frá því
í ársbyrjun 1950 og þangað tilj
í maílok átti hægfara hækk-
un sér stað. Síðan hefir
hver verðhækkunin annari
meiri átt sér stað og nú er
umrædd vísitala Moodys um
500. Þetta sama gildir líka um
hrávörur, sem Norðmenn
þurfa að flytja inn, og það
hefir svo vitanlega sín áhrif
á heimamarkaðinum.
Vísitalan fyrir verðlag inn
flutningsvaranna sýnir þetta
einnig. Hún var sumarið 1949
um 280 stig. Hún hækkaði
nokkuð í fyrrahaust og fyrra
vetur af völdum gengislækk
unarinnar. Mestar hafa þó
hækkanirnar orðið síðan í
ágústmánuði í sumar. í októ
bermánuði var vísitalan kom-
in upp í 344 eða hafði hækk
að um 20% á einu ári. Ýmsir
vöruflokkar, eins og t. d. ný
lehduvörui;, höfðu hækkað um
50%.
Við getum auðveldlega
gert okkur grein fyrir þeim
afleiðingum, sem þetta hefir
fyrir okkur. Árið 199 fluttum
við alls inn vörur fyrir 4.2
miljarða króna. Sama vöru-
magn myndi með núgildandi
verðlagi kosta 800 millj. krón
um meira. Það er enginn smá
skildingur fyrir litla þjóð
eins og Norðmenn.
kjarnorkiuiefiidinni
Curie hjónin, Marie og Pierre,
voru á sínúm tima heimsfrægir
vísindamenn, einkum fyrir það,
að þau fundu fyrst undraefnið
radium, og var þó frægð frúar-
innar emx, meiri. Um Marie
Curie var grein í almanaki Þjóð
vinafélagsins 1915 en síðar kom
út á ísleiizku hin mikla bók Evu
dóttur he'nnar um hana og er
hún því mörgum íslendingum
kunn. Dætur hennar báðar hafa
hlotið heimsfrægð. Nú hefir
Irene verið vikið úr kjarnorku-
nefndinnU frönsku en um það
og fleira ræðir Jörgen Bast í
grein þeirri, sem hér birtist á
eftir í lauslegri þýðingu úr
Berlingske Aftenavis:
Fréttír frá París herma að
Irene Jolibt Curie, sem einu
sinni hlöut Nobelsverðlaunin,
hafi verið látin fara úr kjarn-
orkunefndinni frönsku. Manni
hennar, Frederic Joliot Curie
var nokkrum mánuðum áður vik
ið frá formennsku í kjarnorku-
rannsóknanefndinni með þeim
forsendum, að hann hefði látið
í ljós mikla samúð með Rúss-
um.
Þessar- "fréttir sýna njósna-
hræðslunæ í Frakklandi, en þær
varpa jafnframt ljósi á heimilis
ófrið innan einhverrar gáfuð-
ustu fjölskyldu Frakklands. Það
blað, sem fastast hefir gengið
eftir því’ að þessum hjónum
væri ekkr sýndur trúnaður í
sambandf' við kjarnorkumálin
er Paris-Presse, en það er fyrst
og fremst'málgagn yngri systur
frúarinnarr Evu Curie.
Ólíkur -er ferill systranna
tveggja, dætra þeirra Marie og
Pierre Cueié.
Irene Cflrie.
Irene éí nú 53 ára. Hún tók
að erfðum' frábærar vísindagáf
ur foreldra sinna. Aðeins 21
árs tók hún með miklum glæsi-
leik magisterspróf í stærðfræði
og eðlisfræði við háskólann í
París og siðan vann hún með
móður sinni við Curie-stofn-
unina í'París og hún býr enn í
húsinu, sem kennt er við föð-
ur hennáf.
Hún Héflr af eigin verðlelk-
um og vinnu unnið sér frægð
við rannsóknastörf, fyrst við
radíum og síðan kjarnorku. En
auk þess lék jafnan um hana
ljómi af...frægð foreldranna og
rómantískur bjarmi sveipaði
þessa ungu vísindakonu.
Frederic Joliot var þremur ár
um yngrl. Hann varð hrifinn
af Irene strax á barnsaldri.
Hann sá mynd af henni með
foreldrum sínum í blaði, og þá
' mynd klippti hann úr blaðinu.
Heima í foreldrahúsum hafði
hann litla efnafræðilega til-
raunastofu og þar hengdi dreng
urinn þessa mynd yfir vinnu-
borðið sitt. Myndin fylgdi hon-
um svo á stúdentsárunum í
París og milli allra tilrauna-
stöðva, sem hann vann við á
námsferli sínum. Ef til vill hafa
það verið áhrif frá þessari
hrifningu, að hann valdi sér
nákvæmlega sama námsefni og
stúlkan, sem hann dáðist svo
að.
Þegar hann hitti Irene sjálfa
varð hann engan veginn von-
svikinn. Einhverntíma sagði
hann, að með Irene hefði hann
séð fullkomna sameiningu feg
urðar og anda.
Hjónin Joliot- Curie.
Hann fékk ást sína endur-
goldna og árið 1926 giftust þau,
og var það brúðkaup, sem vís-
indamenn um allan heim veittu
óvenjulega athygli. Þau urðu
hamingjusöm hjón, en jafn-
framt nánir samstarfsmenn og
ástarsagan í efnarannsóknastof
unni komst svo langt, að árið
1935 hlutu þau hjónin efna-
fræðiverðlaun Nóbels. Þá voru
þau mörgum ímynd hinnar vís
indalegu aldar, sem færa skyldi
mannkyninu fullkomna ham-
ingju.
Áður en heimsstyrjöldin síð-
ari hófst höfðu þau hjónin
hneigzt til kommúnisma, en það
leiddi ekki til neinnar einangr-
unar í þá daga. Það var á þeim
hamingjusömu dögum, þegar
allar skoðanir rúmuðust á Vest
urlöndum, án þess að hræðslan
við svik gengi sem vofa um
allar vísindastofnanir.
Ekki varð þetta verra, eftir
að Rússar urðu styrjaldaraðilar
1941 og franskir kommúnistar
hófu mikla þátttöku í frelsis-
hreyfingunni frönsku. En það
horfði allt öðru vísi við eftir
stríðið, þegar kommúnistar
heimtuðu skilyrðislausa auð-
sveipni við Moskvu, sem alltaf
fjarlægðist vestrið meira og
meira og þar með Frakkland.
Hjónin Joliot — Curie tóku
réttlínuafstöðu til Moskvu,
hvort sem madaman hefir gert
það af eigin sannfæringu eða
vegna áhrifa bónda síns. En
strax á árinu 1946 var farið
að tortryggja þau.
Irene fór til Bandaríkjanna
1948. Þá var hún fyrst kyrrsett
í hálfan mánuð og fékk síðan
ekki landvist nema mjög tak-
markaðan tíma.
Eftir heimkomuna úr þeirri
Hinar. stórfelldu verðhækk ■
anir, sem- enn sést ekki fyrir
endann., á., standa í beinu sam
hengi við Kóreustyrjöldina
og hina- auknu stríðshættu.
Nær hvarvetna í veröldinni
fer fram stórfelldur vígbúnað
ur, sem sogar til sín vörur og
vinnuafl í stórum stíl. Á
sama tíma fer fram mikil
birgðasöfnun. Þetta hækkar
verðlagið og það má búast við
því, að þessar verðhækkanir
haldi áfram, unz horfurnar
í heimsmálunum verða frið-
vænlegri.
Við skrifum þetta til að
sýna, að verðhækkanirnar |
rekja ekki rætur sínar til i
vantrausts á norsku krónuna
eða til fjármálastefnu stjórn
arinnar. Það eru önnur vold
ugri öfl, sem knýja verðlagið
upp víðsvegar i heiminum. —
Þetta segir aðalmálgagn
norska Alþýðuflokksins um
verðhækkanirnar í Noregi.
Þetta getur þó ennþá frekar
átt við verðhækkanirnar hér,
því að þótt innflutningur
Norðmanna sé mikill, er inn-
flutningur íslendinga þó til-
tölulega mun meiri og hefir
því enn meiri áhrif á heild-
arverðlagið hér en í Noregi.
Þessum staðreyndum neitar
hinsvegar íslenzka Alþýðublað
ið, heldur skrifar allar verð-
hækkanirnar á reikning
gengislækkunarinr.ar og
stjórnarstefnunnar. Það eru
svipuð rök og ihaldsmenn
hampa í Noregi og eru svo
glögglega hrakin í framan
greindri grein norska AlÞýðu-
blaðsins.
Væri það ekki vænlegra fyr
ir Alþýðublaðið hér til að
vinna flokki þess fylgi ábyrgs
og hugsandi verkafólks að
taka hinar rökstuddu greinar
Arbeiderbladets meira til fyr
irmyndar en æsingaskrif
Þjóðviljans?
EVA CURIE
ferð voru þau hjón jafnan ein-
angruð meira og meira, og
kjarnorkunjósnir í Englandi og
Ameríku bættu ekki um fyrir
þeim. í lok apríl var svo eigin-
manninum vísað á dyr en þá
var enn hikað við að reka dótt-
ir Marie Curie, sem alltaf hlýt-
ur að skipa eitthvert veglegasta
sætið í vísindasögu Frakklands.
En nú hefir verið látið undan
ákæruöldunum, og meðal þeirra
(Framhald á 6. síðu.)
Raddir nábáarma
Alþýðublaðið ræðir í for-
ustugrein i gær um væntan-
lega komu Eisenhowers í til-
efni af níðskrifum Þjóðvilj-
ans um hann. Það segir m.
a.:
„En íslenzka þjóðin og full-
trúar hennar munu taka Eis-
enhower sem þeim aufúsu-
gesti sem hann er henni og
öllum lýðræðisþjóðum í Ev-
rópu; því að þær vita, að mark
mið hans er ekki stríð, heldur
að varðveita friðinn. En að
vísu veit hann, að það verður
ekki gert með því að láta Vest
ur-Erópu varnarlausa gegn yf
irvofandi árás, eins og hún er
nú. Það hefir stríðið austur í
Kóreu sannað honum eins og
mörgum öðrum. Að koma fyrst
og fremst í veg fyrir það, að
Vestur-Evrópa verði ný Suð-
ur-Kórea, er einmitt það hlut-
verk, sem Eisenhower hefir ver
ið falið af Atlanzhafsbanda-
laginu...
Það mun yfirleitt leitun á
sigursælum og frægum hers-
höfðingja í allri veraldarsög-
unni, sem er eins frábitinn
handverki hermannsins og
Eisenhower hefir sýnt og sann
að. Hann er ekki fyrr búinn
að leggja sitt þunga lóð í vog-
arskál annarrar heimstyrjald
arinnar og sigra þýzka nazism
ann, en hann lét af her-
mennsku og gerðist mikils-
virtur rektor við einn þekkt-
asta háskóla heimalands síns.
Þetta lýsir manninum. Hann
skorast ekki undan þeirii
skyldu, að verja vestræna
menningu með vopn í hönd, ef
nauðsyn krefur. En hann kýs
miklu heldur friðinn og hlut-
deild í því, að efla og auðga
þá menningu með friðsam-
legu starfi.“
Að Wjóðviljanum virðist
helzt mega ráða, að kommún-
istar hér ætli að efna til upp-
þota í tilefni af komu Eisen-
howers. Slikt mun aðeins
auka fyrirlitningu á þeim, því
að sérhver fjandskapur þeirra
við varnir Vestur-Evrópu aug
lýsir þjónustu þeirra við
Moskvuvaldið og sýnir bezt.
að þeir meta landvinninga-
stefnu þess meira en hags-
muni þjóðar sinnar.
Nýir markaðir og
Þjóðviljinn
Lengi hafa verið þjóðfræg-
ar að endemum fautalegar og
fólskulegar níðgreinar komm
únista um íslenzkt kinda-
kjöt. Hafa sumir æðstuprest-
ar íslenzkra kommúnista með
hinn virðulega föður að
Gljúfrasteini í fararbroddi
sungið þá messu, svo sem
kunnugt er. Þar hafa menn
verið fræddir á því, að ís-
lenzkt lambakjöt væri hrak-
leg vara.
Nú bregður svo við, að þeg
ar markaður opnast fyrir ís
lenzkt d Ikakjöt í Ameríku og
þangað á að selja 450 smá-
lest’’r af íslenzku dilkakjöti
fyrlr hálfa fimmtu milljón
króna í dollurum, umhverfist
Þjóðviljinn og segir meðal
annars í æðinu að „hross hor
falli nú í stórum stíl í Skaga-
firði“ og horketinu þurfi að
koma í verð. „Horket af hross
um og pestarket af rollum“ sé
talinn hæf'legur matur
handa Islendingum, en dilka
kjötið skuli vera „forréttindi
herraþjóðarinnar“ að éta.
Þeir voru ekki lengi að
kyngja öllum fyrri óþverra-
rógi um íslenzka dilkakjötið,
Þjóðviljamennirnir, þegar
markaðurinn opnaðist vestra.
En fóturinn fyrir fellissögun-
um úr Skagafirði er sá, að
þegar vetur gekk þar í garð
með frostum og jarðbönnum
vegna áfreða, var slátrað
nokkrum hundruð tryppa, þar
sem hross almennt voru tek-
in á gjöf. Hefir það aldrei
þótt minnknn eða óráð að
fækka bústofni í byrjun gjafa
tímans, meðan skepnur eru
enn í haustholdum og ekki
hefir þurft að eyða í þær
vetrarfóðri. Slíkt hafa bænd-
ur jafnan gert til að komast
hjá fóðurskorti og eru þess
engin dæmi, að það væri kall
að að fella úr hor og er vand-
séð, hvort þar er ríkari
heimskan eða skítmennskan
hjá Magnúsi Kjartanssyni.
En vandlifað er þá við búskap,
ef menn eiga þess von að vera
bornir verstu sökum um níð-
ingsskap og skussahátt fyrir
það eitt að setja gætilega á.
. .Þaö er stefna Þjóðviljans í
manneldismálum að forsmá
og níða allt, sem íslenzkt er,
þó að nú sé undantekning
gjörð með dilkakjötið. ís-
lenzkar gulrófur eru kalláðar
kúafóður, ærkjöt og nauta-
kjöt óætt, og hrossakjöt þykir
heldur ekki boðlegt mönnum.
. .Aðrar þjóðir gera sér jafn-
an far um það, að selja sem
mest af góðum gjaldeyrisvör-
um. Danir skammta smjör og
flytja út mikið af svínakjöti,
svo að stundum fæst það ekki
þar í landi. Og svo að farið
sé til landa, sem Þjóðviljan-
um líkar við, má nefna það,
að Ungverjar hafa nú marg-
háttaða skömmtun heima
fyrir hjá sér, svo að þeir geti
flutt út til framandi „herra-
þjóða“, sem mest af sinni
girnilegustu framleiðslu.
En hérna við Þjóðviljann
eru menn gikkslegir og vilja
ekki leggja sér til munns ann
að en hið mesta lostæti bæði
íslenzkt og erlent. Þeir
heimta dýra ávexti frá fjar-
lægum löndum og banna að
flytja út það, sem þykir gott
að borða erlendis og er því
eftirsótt vara.
Það mun ekki þurfa að
skorta hollan og góðan mat
hér á landi, þó að tveggja
mánaffa forði af dilkakjöti
(Framhald á 7. síðu.)