Tíminn - 06.02.1951, Síða 5

Tíminn - 06.02.1951, Síða 5
30. blað TÍMINN, þriðjudaginn 6. íebrúar 1951. 5 mmm Þriðind. G. febr. ERLENT YFIRLIT Lærdómsrík skýrsla í seinasta sunnudagsblaði Tímans var birt skýrsla, er samin hafði verið af sérstakri nefnd. sem bæjarráð hafði skipað til að kynna sér rekst- ur á sjúkrahúsvm og vistheim ilum bæjarins. Niðurstöður nefndarinnar eru hinar merkilegustu, og eru þær all ar á þá leið, að rekstri um- ræddra stofnana sé meira og minna áfátt og rekstrar- halli stórum meiri en hann þyrfti að vera. Líklegt má þó telja, að rekstrinum sé enn meira ábótavant en skýrsla nefndarinnar gefur til kynna, þar sem flokksmenn bæjar- stjórnarmeirihlutans voru 1 meirihluta í henni og hafa þeir vafalaust ekki kært sig um að mála ágallana of dökk um litum. Hér skulu dregnar saman nokkrar niðurstöður nefndar innar: Hallinn á barnahælinu á Kumbaravogi var árið 1949 um 115 þús. kr. og virðist nefndinni að auðveldlega mégi minnka hann um 22—25 þús. kr. með því að stækka búið, sem þar er rekið, án þess þó I að auka mannhald þess. Hallinn á Farsóttarhúsinu var árið 1949 341 þús. kr. Þar virð ist nefndinni að starfsfólk sé of margt og „óskiljanleg eyðsla“ í sambandi við inn- kaup. Aðkeyptar matvörur nema hvorki meira né minna en kr. 28.73 á hvern dvalar- dag á árinu 1949. Nefndin telur, að' með bættum inn- kaupum og fækkun starfs- fólks megi alltaf lækka rekst urshallann um 100 þús. kr. Hallinn á Hvítabahdsspítal anuni var árið 1949 330 þús. kr. og hefir a. m. k. orðið 100 þús kr. meiri á s. 1. ári. Daggjöld sjúklinga eru þar ekki nema kr. 28.00 en á Land spítalanum og Landakots- spítala eru þaú kr. 40.00. Með því að hækka þau á Hvíta- bandinu upp í kr. 38.00 myndi rekstrarhallinn lækka um 150 þús. kr. Einnig telur nefnd in hugsanlegt að spara megi 45—50 þús. kr. við fækkun starfsfólks. Annars bendir hún á það ráð, að spítalinn verði leigður dugandi lækn- um, er nytu auk þess nokk- urs styrks úr bæjarsjóði. Hallinn á hælinu að Elliða- vatni var á árinu 1949 36 þús. kr., en nefndin telur að reksturinn eigi að geta borið sig, ef fjölgað sé þar sjúk- lingum og setti slíkt að vera hægt í samráði við Klepps- spítalann. Hallinn á Arnarholtshælinu var 206 þús. kr. á árinu 1949 og virðist þar ríkjandi hið fyllst ráðleysi í öllum rekstrinum. Öll innkaup eru t. d. gerð í smásölu. Hælið á öll tæki, sem þarf í þvotta- hús, nema þurkara. en þó er þvottur þess allur þveginn í þvottahiisum í Reykjavík og kostáði það 44 þús. kr. á s. 1. ári. Hælið hefir sérstakan bílstjóra, sem nefndin telur enga þörf fyrir. Nefndin telur að stækka megi búið og draga úr rekstrarhalla. Hallinn á vöggustofunni á Hliðarenda varð 80 þús. kr. þá þrjá mánuði, sem hún starf- aði árið 1949. Þar gæta ein forstöðukona og 10 stúlkur 22 barna. Auk þess eru þar dag- StríðsSiættan í fskyggileg'asta ofriðarblikan virðist nú g'rúfa yfir Júgóslavín Seinustu atburðir, sem gerzt hafa í sámbandi við Kóreudeil- una, benda fastlega til þess, að þar sé ekki að vænta neins sam komulags' fyrst um sinn. Shou En-lai, utanríkisráðherra Pek- ingstjórnarinnar, lýsti því yfir um helgipa, að sú yfirlýsing stjórnmálanefndar og allsherj- arþings Sameinuðu þjóðanna, að Kína hefði stutt árásaraðila í Kóreustýrjöldinni, hefði lokað öllum leiðum til samkomulags. Af mörgum, sem til þekkja, er yfirlýsing þessi talin merki þess, að Pekingstjórnin hafi aldrei ætlað sér að semja, heldur hafi hún aðeins ætlað að draga samningaumleitanir á langinn. Samþykkí þings S. Þ. hafi gert herini ljóst, að slíkt myndi ekki takást, og þá hafi henni fundist fótt að nota þetta sem átyllu tiF þess að geta kennt S.Þ. umf aö samningaumleitan- irnar hafi-strandað. Aðrir telja hins vegar, að þessi yfirlýsing Chou En-lai þurfi ekki að hindra sapjninga síðar meir, þeg ar Pekingstjómin hafi gert sér ljóst, að það sé ekki síður í hennar hag en S. Þ. að semja.1 Pekingstjórnin hafi hins vegar enn þá tfli, að hún hafi betri samningsaðstöðu og þess vegna sé hún þver og vilji láta ganga eftir sér. Ofmiklir eftirgangs- munir ^ji aðeins gert hana enn þverati. i StríAshæjttan mest í Evrópu. Þrátt íyrir það, að sýnt er, að ekkeri samkomulag verður í Kóreudéllunni fyrst um sinn, er ekki verulegur ótti við það, að styrjöld í Asíu muni breið- ast út áííæstunni. Styrjaldar- átökin þar verði fyrst og fremst bundin víð Kóreu og Indó- Kína og fari fram með svipuð- um hætþi.- og að undanförnu. Áhyggjur.y.manna við aukna stríðshætijj .jVirðast nú einkum bundnar við Evrópu og óttast margir, að. á komandi sumri geti gerzt” þar hin mesta ó- tíðindi í þessum efnum. Fyrir nökkru var hér í blað- inu rakia.fheginefnið úr ára- mótagrrfnym fréttaritara „The New York Times“, í London, París og .Washington. Það virt- ist sameígíniegt álit þeirra, að stjórnmálamenn í þessum höf- uðborgum- teldu ekki verulega stríðshætfo í Evrópu á þessu ári, en álitu, að hún yrði mest á árunuill'’ 1952—53. Þá væru Rússar áð'líkindum orðnir jafn okar Bandaríkjamanna á kjarn orkusviðinu og þyrðu af þeim ástæðum að hefja árás. Það eina, sem væri líklegt til að stöðva þá í þeim áformum, væri það, að Vestur-Evrópa hefði komið sér upp nógu öflugum vörnum fyrir þann tíma. Þeirrar skoðunar gætti þó nokkuð, að Rússar kynnu að gera árás á Vestur-Evrópu á þessu ári af ótta við fyrirhug- aðan vígbúnað Þjóðverja. Álit hernaðarráðunauta brezku stjórnarinnar. Nú hefir Lundúnafréttaritari „The New York Times“, Benja- min Welles, gert þessi mál enn á ný að umræðuefni, og telur sig þar hafa heimildir fyrir því, að hernaðarlegir ráðunautar ensku stjórnarinnar hafi ný- lega skýrt henni frá því áliti sínu, að þeir reikni ekki með Evrópustyrjöld næstu 18 mán- uðina. Hins vegar munu þeir telja, að mikil hætta geti verið á árás eftir að komið er fram á mitt árið 1952. Álit þetta byggja hinir ensku sérfræðingar m. a. á því, að Rússar muni ekki hefja árás [ á Vestur-Evrópu, án þess að, vera færir um að geta gert I kjarnorkusprengjuárásir á, helztu borgir og iðjuver Vestur- j Evrópu og þó einkum borgir og [ iðjuver Bretlands. Rússar megi. reikna með því, að kjarnorku- ! ver þeirra sjálfra verði eyðilögð í upphafi styrjaldarinnar og þess vegna verði þeir að vera búnir að koma sér upp veru- legum birgðum af kjarnorku- sprengjum áður en þeir hefja styrjöldina. Þess sé ekki að vænta, að þeir hafi komið sér upp slíkum bírgðum fyrr en á síðari hluta næsta árs. í samræmi við þetta álit hern aðarráðunauta sinna, stefnir enska stjórnin að því, að varn- ir Bretlands verði komnar í sæmilegt horf ekki síðar en á miðju ári 1952. Varnarfyrir- ætlanir Atlanzhafsbándalagsins eru miðaðar við það sama. Verður næst ráðizt á Júgóslavíu? Benjamin Welles segir í áður nefndri grein sinni, að hernað arráðunautar Bandaríkjastjórn- ar séu ekki að öllu leyti sam- mála hinum brezku stéttar- bræðrum sínum. Þeir telji nokkra hættu á, að Rússar láti leppriki sín í Austur-Evrópu hefja árásir strax á næsta sumri, en reyni hins vegar að standa hjá sjálfir, a. m. k. að j nafninu til. Slíkar árásir er einkum að óttast í Þýzkalandi og Júgóslavíu. Samkvæmt greinum, sem' hinn kunni blaðamaður Drew j Middleton hefir nýlega skrifað, í amerísk blöð, er nú talin stór, um meiri hætta á því, að slik j árás verði gerð á Júgóslavíu en Þýzkaland. Þetta stafar m. a. af því, að Rússar óttast að árás á Vestur-Þýzkaland, þótt hún væri að nafninu til gerð af Þjóð verjum, myndi þegar leiða til allsherjarstyrjaldar. Hitt er vafamál, hvaða liðveizlu Titó myndi fá. Viðbúnaður sá, sem undan- farið hefir átt sér stað í lepp- ríkjum Rússa, er ekki sízt tal- inn benda til þess, að þeim sé ætlað að ráðast á Júgóslavíu. Herinn hefir verið stóraukinn í öllum þessum löndum og Rúss ar hafa látið þau fá mjög mikið af hvers konar hergögnum. Skipulagningu hinna svo köll- uðu landvarna hefir verið hag- að þannig, að mjög fljótlegt er að hefja innrás í Júgóslavíu. Ýmsir draga það í efa, hvort leppríki Rússa ein, þ. e. Búlgar- ía, Rúmenía, Ungverjaland og Tékkóslóvakía, séu þess umkom (Framhald á 6. síðu.j -------—------------------- lega fjórlr. nemendur frá Hús mæðraskóla Reykjavíkur, er vinna sem. matvinnungar, en taka ekkL kaup. Nefndin tel- ur að hér megi fækka um 3— 4 stúlkuf og spara þannig 40 —50 þús,.kr. Seinast er svo að nefna heimavist Laugarnesskólans fyrir veikluð börn. Forstöðu- konan þar, Vigdís Blöndal, tel ur heimavist þessa ekki full- nægja tilgangi sínum lengur og eigi því að leggja hana nið ur. Nefndin tekur undir þá til lögu. HalHnn á heimavist þess ari varð'143 þús. kr. á árinu 1949. Nefndin telur, að með um- ræddum táðstöfunum megi alltaf lækka rekstrarkostnað umræddra 7 stofnana um 600 þús. kr. á ári. Enn er þó tal- inn sú tillaga nefpdarinnar, sem mestan sparnað á að geta haft í för með sér, en hún er sú, að einum manni verði falin innkaupin fyrir all ar þessar stofnanir. Innkaup til þeirra eru nú mjög skipu- lagslaus og óhagkvæm og for stöðumönnum þeirra allra kemur saman um „að Inn- kaupastofnun bæjarins geri ekkert gagn í því tilliti að út vega þeim vörur með hag- kvæmu verði og þess utan geti innkaupastofnunin oft- ast alls ekki útvegað þær vör ur, sem mest vanhagar um“’ Sú stofnun virðist því verri en engin. Nefndarálit þetta er lær- dómsríkt um þá miklu óreiðu, sem er ríkjandi í stjórn þeirra fyrirtækja, sem heyra undir Reykjavíkurbæ, og mun þó; hér um þau fyrirtæki bæjar-| ins að ræða, þar sem sukkið er einna minnst. Og það spá- ir ekki góðu um, að endurbóta megi vænta frá því, sem verj ið hefir, að bæjarstjórnar- j meirihlutinn lét það verða fyrsta verk sitt eftir að um rædd skýrsla kom fram að fella' I tillögu frá Þórði Björnssynij um að koma innkaupum þess ara stofnana í sæmilegt horf. Raunhæfra lagfæringar verður ekki að vænta meðan Sjálfstæðisflokkurinn einn stjórnar bænum. Raddir nábúarma Blöð kommúnista og Alþýðu flokksins halda áfram að bannfæra gengislækkunina og kenna henni allt illt. Mbl. gerir þetta að umtalsefni á sunnudaginn var og segir m. a.: „í þessu sambandi má gjarn an segja frá því, að þegar að kratar og kommúnistar keppt- ust um að lýsa því yfir á Al- þýðusambandsþingi á s. 1. hausti að allir erfiðleikar spryttu af gengisfellingunni, þá varpaði einn Sjálfstæðis- verkamaður fram þeiri spurn- ingu á nefndarfundi, hvort hin ir rauðu bræður vildu þá ekki beina þeirri áskorun til Al- þingis að gengi yrði hækkað á ný? Þá duttu andlitin af kempunum. Þeim varð orð- fall og litu sneypulega í gaupn ir sér. Þær hliðruðu sér hjá að svara spurningu Sjálfstæð- isverkamannsins én sam- þykktu í stað þess að mótmæla gengislækkuninni enn einu sinni!!!“ Hér í blaðinu var einnig vikið að því í þingbyrjun, að þ'ngmenn Alþýðuflokksins og kommúnistar ættu að sýna það í verki, að þeir tryðu því sjálfir, sem þeir segðu um gengislækkunina, og flytja því frv. um að hækka gengi krónunnar í það, sem var fyrir fellinguna. Þá ætti allt að batna af sjálfu sér, ef erfiðleikarnir stöfuðu af gengisfellingunni- Þingið er nú búið að standa 1 fjóra mánuði og þessir ágætu þing menn eru enn ekki farnir að sýna umrædda trú sína í verki. Nýju vísitölulögin Stjórnarandstæðingar hafa haldið uppi alveg furðuleg- um æsingum í sambandi við vísitölulög þau, sem Alþingi samþykkti að frumkvæði rík- isstjórnarinnar nú um helg- ina. Þeir viðurkenna þó, að í þeim felist ekki nein ný- mæli, heldur sé þar aðeins um það að ræða að skýra svo ákvæði þeirra laga, sem sett voru um vísitölugreiðlur um áramótin, að ekki þurfi lengur að ríkja neinn vafi um þau. Það er vissulega hlægilegt, þegar blöð stjórnarandstæð- inga eru að kalla þessi nýju lög þrælalög. Þau b’nda ekki að neinu leyti hendur verka- lýðssamtakanna. Þeim er eft- ir sem áður frjálst að semja um grunnkaupshækkanir og kaupgre ðslur samkvæmt vísi tölu. Að þvi leyti ganga þau skemmra en jlög þau, sem stjórn Stefáns Jóhanns setti um áramótin 1937—38, er batt vísitölugreiðslur við 300 stig. Og þau eiga ekki að neinu leyti sammerkt við lög þau, sem Alþýðuflokkurinn átti þátt í að setja í sambandi við gengislækkunina 1939, en samkvæmt þeim voru grunn kaupshækkanir bannaðar. Þegar þetta er athugað, verður það að teljast meira en furðulegt, að Alþýðuflokk urinn skuli hnýta sig aftan í kommúnista og taka undir þau hróp þeirra, að hér séu einhver voðaleg þrælalög á ferðinni. Sannleikurinn er sá, að stjórnin hefir ekki viljað fara þvingunarleiðina. Hún hefir heldur kosið að treysta á skilning og þegnskap laun- þega. Hún treystir því, að þeir misnoti ekki það vald, sem þeim er gefið til að knýja fram kauphækkanir. Hún treystir því, að þeir sjái, að nýjar kauphækkanir, eins og nú er ástatt, bæta ekki kjör þeirra, heldur stuðla að sam- drætti framleiðslunnar og bjóða þannig heim stórauknu atvinnuleysi og stórfelldri kjaraskerðingu. Rannsóknarefni Samanburður sá, sem Tím- inn birti á sunnudaginn um verðlag á smurningsolíum hjá Olíufélaginu h. f. annars- vegar og olíuhringunum hins vegar, hefir að vonum vakið gífurlega athygli. Hann sýn- ir, að um fjögurra ára skeið hefir verðið alltaf verið stór- um lægra hjá Olíufélaginu en olíuhringunum og er verömun urinn hvorki meira né minna en 56% fyrsta árið. Á sama tíma var verðlagið næstum hið sama á Norðurlöndum og i Bretlandi á smurningsolíum þeim, sem Olíufélagið og hringarnir hér seldu. Umræddur samanburður á vcrðlaginu hjá Olíufélaginu og olíuhringunum leiðlr það í Ijós, að á undanförnum fjór- um árum hafa smurningsolíu notendur grætt um þrjár milljónir króna fyrir atbeina Olíufélagsins. Ef Oliufélagið eitt hefði haft innflutning- inn, myndi þessi gróði smurn ingsolíunotenda hafa numið 7—8 millj. króna. Það gæti vissulega verið rannsóknarefni fyrir opin- bera aðila að kynna sér hvað veldur þessum mikla verð- mun. Og vonandi stendur ekki á Þjóðviljanum og Mbl. að stuðla að því, að slík rann sókn fari fram.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.