Tíminn - 14.02.1951, Blaðsíða 7

Tíminn - 14.02.1951, Blaðsíða 7
37. blaS. TÍMINN, m ðvikudag nn 14. febrúar 1951. 7 HÆSTARETTARÐOMiR FALLIM: Landsbankinn ekki dæmdur ti lánveitingar, en rök fyrir neitun ekki metin fullgild | <jvartur fiugkappi kærður og sýknaður Démur hæstaréttar stemlur óha^aðnr cn málskostuaðsir skal falla niðnr I fyrradag var kveðinn upp í hæstarétti dómur i máli Helga Bencdiktssonar gegn bankaráði Landsbankans fyrir hönd síofnlánadciidar sjáv&rútvegsins. Var málid höfðað út af neitun bankans um lán út á vélskipið Helga Hclgason, en atvinnumálaráðherra og nýbyggingaráð lögðu til, að lánið yrði veitt. í dcminum kom fram sú skcðun réttarins, að hann teldi bankann ekki hafa bent á fullgild rök fyrir synjun lánsins, en dómsniðursíöður urðu þó þær, að hinn áfrýjaði dómur átandi óbreyttur og bankinn ekki skyldaður til að veita umrætt lán, en málskostnaður fellur hins vegar niður. Fer dómurinn hér á eftir í hcild, eins og hann kemur frá hæstrétti. Ný varnarlína S.Þ. sunnan Hoengson 500 haiularískii* Iicrmcim innikróaðir af framsvcltuin norðurliersiits Harðir bardagar geisuðu á miðvígstöðvum Kóreu í gær, og sunnan og vestan Seoul. Hafa hersveitir S. 1». hörfað suð- ur fyrir Hoengsong en á suðurbakka Hanfljótsins og vest- an Seoul héldu þær stöðvum sínum. Áfrýjandi, sem hefir skot- ið máli þessu til hæ'staréttar með stefnu 10. september 1949, gerir þær dómkröfur, að stefnda verði, að viðlögðum dagsektum samkvæmt mati hæstaréttar, dæmt skylt að lána áfrýjanda kr. 1.200.000 gegn 1. veðrétti í v.s Helga Helgasyni, V. E. 343, og verði kr. 480.000.00 af þeirri láns- fjárhæð A-lán samkvæmt lög um nr. 41/1946, en kr. 720.000.00 B-lán. Lánstíminn verði 20 ár, afborguninni hag að samkvæmt 9. gr. fyrr- nefndra laga og vextir 2y2<70 p. a. Loks krefst áfrýjandi málskostnaðar úr hendi stefnda bæði í héraði og fyrir hæstarétti eftir mati hæsta- réttar. Stefnandi krefst staðfesting ar hins áfrýjaða dóms og málskostnaðar fyrir hæsta- rétti eftir mati dómsins . Málsatvikum er ítralega lýst í héraðsdómi, og eru þau í höfuðdráttum á þá leið, að þegar er lög um stofnláns- deild sjávarútvegsins við Landsbanka íslands, nr. 41 1946, höfðu hlotið stað- festingu sótti áfrýjandi um lán úr stofnlánadeild inni gegn 1. veðrétti i skipi, er hann hafði þá í smíðum í Vestmannaeyjum og síðar hlaut nafnið Helgi Helgason og umdæmistöluna V. E. 343. Hinn 30. maí 1947 tilkynnti áfrýjandi nýbvggingarráöi, að skip hans væri að verða full- smíðað og ítrekað jafnframt tilmæli sín um, að honum yrði veitt lán úr Stofnlána- deildinni út á skip sitt. Kvað hann kostnaðarverð skipsins mundu nema um kr. 1.800.000.00. Taldi hann sig eiga rétt á láni, að fjárhæð kr. 1.200.000.00, en % kostn- aðar- eða vírðingarverðs er hámark lánsfjárhæðar sam- kvæmt áðurgreindum lögum. Hinn 13. júní 1947 ritaði ný- byggingarráð stofnlánadeild- inni bréf, þar sem það til- kynnti, að það hefði samþykkt skip þetta sem lið í heildav- áætlun ráðsins um þjóðarbú- skap íslendinga, sbr. niður- lagsákvæði 3. gr, laga nr. 41 1946. Hinn 30 sama mánaðar tilkynnti stjórn Landsbank- ans, að hún sæi sér ekki fært að óbreyttum aðstæðum að veita slíkt lán úr stofnlána- deildinni. Taldi stjórn bank- ans „það hafa orðið að sam- komulagi“, að stofnlánadeild in veitti ekki lán út á skip, sem smíðuð væru hér á landi, enda mundi fé það. sem deild in réð yfir, ekki hrökkva til að lána út á skip þau, sem búið væri að festa kaup á er lendis frá. Hélt stjórn Lands bankans síðan fast við neitun þess þrátt fyrir ítrekaða kröfu áfrýjanda um lánveit- ingu, sem studd var af atvinnu málaráðherra svo og nýbygg ingarráði, sem ekki vildi við- urkenna samkomulag það, sem bankinn skírskotaði til. Samkvæmt ákvæðum og markmiði laga nr. 41/1946 og reglugerðar nr. 91/1946, sem sett var samkvæmt þeim lög um, bar stefnda að verja þvi fé, sem stofnlánadeild sjáv- arútvegsins réð yfir, eftir því sem það hrökk til og á sem haglcvæmastan hátt frá sjónarmiði alþjóðar, til lán- veitinga handa þeim, sem full nægðu skilyrðum greindra laga og reglugerðar. Af hendi stefnda hefir ekki verið bent á fullgild rök fyrir því, að áfrýjanda var synjað um lán veitingu út á v.s. Helga Helga son. En þar sem ákvæði fram angreindra laga veita áfrýj- anda ekki rétt til láns þeirr- ar fjárhæðar og með þeim til teknu skihnálum, sem hann gerir kröfu tll í máli þessu, verður að sýkna stefnanda af kröfum áfrýjanda og staðfesta hinn áfrýjaða dóm að niður stöðu til. Eftir atvikum þykir rétt, að málskostnaður fyrir hæsta- rétti falli niður. Dómsorð: Hinn áfrýjaði dcmur á að vera óraskaður. Málskostnað ur fyrir hæstarétti fellur nið ur. Svertingi i Detroit, orustu- ■ flugmaður og höfuðsmaður í ( flugliðinu í hcimsstvrjöldinni seínni, nú starfsmaður í bif- reiðaverkstæði og stúdent við laganám, var nýlega hreinsað ur af ákæru fyrir óhollustu við land sitt. Svertingi þessi hafði í styrj öldinni þrívegis hlotið heiðursmerki fyrir fram göngu sína. Hinn svarti höfuðsmaður var kærður fyrir að hafa sézt lesa kommúhistablað og vitn að til þess, að systir hans og faðir, sem er prestur hefðu haft samband við kommún- istísk samtök í kosningabar- áttu. Það var ritari flughersins, sem stö'ðvaði inálið. Höfuðsmaðurinn segir í New York Times, aö hann voni, að þetta mál á hendur sér veröi til þess, að breytt verði um starfsaðferðir og afnumin lög, sem leyfa slikan mála- rekstur gegn saklausu fólki. ,.Það er stundum svo um laga smíð“, sagði hann, „að fyrst er framkvæmt, en svo er hugs að.“ Maður utan af landi óskar eftir að komast í bréfasamband við stúlku á aldrinum 19—31 árs, sem hefir áhuga fyrir sveita- búskap. Mynd fylgi. Tilboð merkt X, sendist skrifstofu biaðsins fyrir 1. marz. R. C. A 16. m. m. tal- og tón- sýning- arvél til sölu, með tjaldi og öðru tilheyrandi upplýsingar á Laugaveg 76 næstu daga. Barátta gegn hug- myndakerfi komm- únista Kunnir indverskir mennta frömuðir hafa boðað til þings í Nýju Delí, þar sem skipu- leggja á baráttu gegn hug- myndakerfi kommúnismans. Þetta var nýlega tilkynnt af indverska rithöfundinum Raja Raó. Meðal þeirra, er til þessa þings boða, eru B. R. Ambedk ar, dómsmálaráðherra í Ind- landi, S. S. Bhatnagar, for- stöðumaður vísinda- og til- raunastofnunar ríkisins, M. R. Masani þingmaður, Naran dra Deva, vararektor háskól- ans í Lucknow og K. M. Munshi matvælaráðherra. Ný varnarlína. í fyrrinótt hörfaði suður- herinn undan þunga gagn- sóknar norðurhersins úr bæn um Hoengson norðan Wonju og tók sér nýja stöðu i fjalla- skörðunum nokkru sunnan við bæinn. Er varnaraðstaða góð og dró úr sókn norður- hersins á þessum slóðum síð deg's í gær. Herdeild innikróuð. í gærkveldi bárust þó fregn ir um það, að vélaherdeildir úr noröurhernum hefðu sótt fram í fleyg vestan Hoengson allt suður á móts við Wonju og innikróað þar sveit 500 Bandaríkjamanna og er hún tal'n i nokkurri hættu. Uejna aö lengja víglínuna. Mac Arthur flaug til vest- urvígstöðvanna í Kóreu í gær. Hann lét svo um mælt við fréttamenn, að her S. Þ. mundi reyna að mynda varn- arbelti yfir þveran skagann og haf víglínuna sem lengsta, því að það auðveldaði suð- urhernum loftárásir á lið kommúnista en torveldaði jafnframt aðdrætti þeirra. Hann sagði elnnig að allar frcgnir um að hersveit;r S. Þ. hefðu farið norður fyrir 33. breiddarbaug væru úr lausu lofti gripnar. Nota bandarískar fallbyssur. Nörðurherinn gerði í gær harðar t'lraunir til að hrekja suðurherinn úr stöðvum sín- um á suðurbakka Hanfljóts- ins og vígjum vestan Seoul. Notaði norðurherinn í stcr- skotaárásum sínum banda- rískar fallbyssur, sem hann tók í byrjun gagnscknar sinn ar norðar á skaganum eft'r hátíðariiar. Bandarískar frétta- sendingar til Rúss- lands Bandaríkjamenn senda nú átta stundir á hverjum sclar- hring fréttaskeyti til Rúss- lands, og er til þess ætlast, að andstæðingar ráðstjórnar innar vélriti þessi skeyti og dreifi þeim meðal almenn- ings. Er þetta því hugsað sem stuöningur við leyniblöö í svip uðum stil og leyniblöðin, er gefin voru út á stríðsárunum í londum þeim, sem Þjóðverj ar höfðu hernumið. Þessi skeyti eru send fyrstu tuttugu mínútur hverrar klukkustundar sólarhringsins og aðeins átta til tíu orð á mínútu, svo að allir geti skrif að þau hjá sér. ISafttarverkfall í Gaiifahorg Hafnarverkfallið í Gauta- bor, sem hófst fyrir nokkrum dögum, stendur enn og eru 1600 hafnarverkamenn þar í verlvfalli. Vilja þeir ekki hverfa aftur til vinnu nema loforð fáist um það, að við- ræður um nýja samninga hefjist þegar. Auka viðskiptin vil$ Spáti Bretar og Spánverjar hafa í hyggju að auka nokkuð við skipti sín á milli á þessu ári og hinu næsta. Fulltniar spánskra yfirvalda hófu í gær viðræður við fulltrúa brezku stj órnarinnar um þetta og er gert ráð fyrir, að nýir og víð- tækari verzlunarsamningar verði undirritaðir innan skamms. tengIuThJ. Helði við Kleppsvej Sími 80 694 annast, hverskonar raflagn- ir og viðgerðir svo sem: Verk smiðjuiagnir, húsal&gnir, sklpalagnir ásamt viðgerðum og uppsetnlngu a mótorura, röntgentækjum og helmiha- velum. Frímerkjaskipti Sendið mér 100 islenzk frl- mcrki. Ég scndl yður um h»l 200 erlend frimerki. J O N 4GN AE8. Frímerkjaverzlun, i P. O. Box 356. Reykjavík Forðizt eldinn ng eignatjón Framleiðum og seljum flestar tegundir handsiökkvl tækja. Önnumst endurhleðslu á slökkvitækjum. Leitlð uyp- Jýslnga. Koisýruhleðslan s.f. Simi 3381 Tryggvagötu 10 Minuiiigarspjjölcl Krabbameinsfélagsins í Reykjavík. Fást í verzluninni Remedia, Austurstræti 7 og á skrifstofu Elli- og hjúkrunarheimilistns ISauita konmiúnÍNÍÍNk fclagssamtök Franska þingið samþykkti i gær frumvarp um að banna þrjú sambönd franskra komm únista eða hefta starfsemi þeirra að miklu leyti. Verður | starfsemi þeirra leyst upp að mestu. u Ragnar Jónsson hæstaréttarlögmaður Laugaveg 8 — Sími 7752 Lögfræðistörf og eignaum- sísla. , Timaritið DVÖL Allt, sem til er af eldri ár- göngum Dvalar, en það eru um 150 arkir eða um 2400 blaðsiður lesmáls, mest úrval þýddra smásagna, fæst nú fyrir kr. 50,00, auk burðar- gjalds, sent gegn póstkröfu hvert á iand sem er. Þetta er óvenjulegt tækifæri til að eignast skemmtilegt sögu- safn. Ég undirrit.... óska að fá það, sem til er af Dvöl. Nafn Heimili Póststöð Sýsla ..

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.