Tíminn - 15.03.1951, Page 2
TÍMINN, fimmtudagínn 15. marz 1951.
62. blað.
i til heiía t
Útvarpih
Utvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. — 9.05
Húsmæðraþáttur. — 9.10 Veður
iregnir. 12.10—13.15 Hádegisút-
varp. 15.30—16.30 Miðdegisút-
varp. — (15.55 Fréttir og veður.
fregnir). 18.25 Veðurfregnir. I
18.30 Dönskukennsla; I. fl. —1
19.00 Enskukennsla; II. fl. 19.25 .
Tónleikar: Danslög (plötur).l
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. ‘
20.30 Einsöngur: Rise Stevens
syngur (plötur). 20.45 Lestur
fornrita: Saga Haralds harð-
ráða (Einar Ól. Sveinsson). 21.10
Tónleikar (pötur). 21.15 Dag-
skrá Kvenfélagasambands Is-
lands. — Erindi: Sagt frá sum-
arferð (Rannveig Þorsteinsdótt
lr alþm.). 21.45 Tónleikar (plöt-
ur). 21.45 Frá útlöndum (Bene-
dikt Gröndal ritstjóri). 22.00
Fréttir og veðurfregnir. — 22.10,
Passíusálmur nr. 44. 22.20 Sin-
.iónískir tónleikar (plötur). 23.10
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Arnarfell er væntanlegt,
til Húsavíkur n. k. föstudags-
mnrgun frá Reyðarfirði. M.s.
Hvassafell er í London.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík
ÍL3. til Fraklands og Hull.
bettifoss er í New York, fer
þaðan væntanléga 15.3. til
Reykjavíkur. Fjallfoss fer frá
Akureyri í kvöld 14.3. til Isa-
fjarðar. Goðafoss fer frá Akur-
eyri í dag 14.3. til Dalvíkur, Húsa
rikur, Kópaskers, Reyðarfjarð-
ar og útlanda. Lagarfoss fór
frá Reykjavík 11.3. til New
York. Selfoss er á Austfjörð-
am. Tröllafoss fór frá Patreks-
firði 6.3. til New York. Vatna-
jökull fermir í Antwerpen um
115.3. og í Hamborg til Reykja-
víkur. Dux fermir í Heroya,
Gautaborg og Kaupmannahöfn
16.—22.3. Skagen fermir í Lond
on um 19.3.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík. Esja
fór frá Reykjavik í gærkvöld
vestur um land til Húsavíkur.
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið er í
Reykjavík. Þyrill er í Reykja-
vík. Ármann var í Vestmanna-
eyjum í gær. Straumey fer frá
Reykjavík í dag til Hvamms-
tanga, Blönduóss, Skagastrand
ar og Sauðárkróks.
Flugferðir
Flugféiag íslands:
Innanlandsflug: í dag er ráð
gert að fljúga til Akureyrar,
Vestmannaeyja, Hellissands,
Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarð-
ar, Neskaupstaðar, Seyðisfjarð-
ar og Sauðárkróks. Á morgun
eru áætlaðar flugferðir til Ak-
ureyrar, Vestmannayja. Horna
fjarðar, Fagurhólsmýrar og
Kirkj ubæ j arklausturs.
Millilandaflug: Gullfaxi kom
í gær frá Prestwick og Kaup-
mannahöfn.
* *
Ur ýmsum áttum
Grunn við Hauganes.
í tilkynningu til sjófarenda
nr. 9/1950 var tilkynnt grunn
við Hauganes í Eyjafirði. Grunn
þetta hefir nú verið athugað
nánar og reyndist það vera
boði nefndur „Hóll“, sem er
mjög lítill um sig. Minnsta dýpi
3.7 m um stórstraumsfjöru. Stað
ur: 65055.’3 n.br. og 18°17.’4 v.
lg., þ.e.a.s. 550 m, lOCf® fM'
Hauganesi.
Hjalteyrarviti. Ljóshornum
breytt.
Vegna grunnsins, sem fund-
izt hefir út af Hauganesi hefir
ljóshornum Hjalteyrarvitans
verið breytt, og eru þau nú:
Grænt ............. 135°—153°
Hvítt ............. 153°—338°
Rautt.............. 338°—360°
Að öðru leyti er vitinn ó-
breyttur.
Innri höfnin, Vestmanna-
eyjum.
í Vestmananeyjum hefir á
undanförnum árum verið unn
ið að þvi að dýpka innri höfn-
ina norðaustan í Heimaey, og
er það verk nú svo langt komið
að inn á hana eru jafnaðar-
lega tekin skip allt að 2—3000
rúmlestir brúttó. Hafskipa- og
fiskibátabryggjur eru að sunn
anverðu í höfninni, og hefir
verið dýpkuð rás frá hafnar-
mynninu og inn að þeim. Norð-
urhluti hafnarifinar er hins veg
ar grunnur, og eru þar ból fyr-
ir fiskibáta staðarins. Ef mikill
sjór er úti fyrir, getur verið tölu
verður sogdráttur í höfninni, og
þá er vissara fyrir skip, sem
liggja við bryggjurnar, að ganga
vel frá festum sínum. Flóð og
fjara er 37 mín. fyrr en í Reykja
vík. Flóðhæð um stórstraum 3.0
m og 2.0 um smástraum.
Til leiðbeiningar við innsigl-
ingu eru, auk vitanna á end-
um hafnargarðanna, tvenn leið
armerki (leiðarljós), og 3 lítil,
rauð toppmynduð dufl, rétt inn
an við hafnarmynnið, beggja
vegna hinnar dýpkuðu rásar,
tvö að norðanverðu og eitt að
sunnanverðu. Hafnsögumaður
er á staðnum.
Tafl- og bridgeklúbburinn
tilkynnir að vegna óviðráð-
anlegra orsaka verður skemmti
fundi þeim, sem átti að halda
í kvöld frestað til sunnudags-
kvölds og hefst hann þá kl.
8.20 i Edduhúsinu.
Aðalfundur Félags vegg-
fóðrara
í Reykjavík var haldinn 4. marz
s. 1. Stjórnin var öll endurkos-
in að undanteknum varafor-
manni Guðm. J. Kristjánssyni,
sem baðst eindregið undan end
urkosningu. Stjórnina skipa nú
eftirtaldir menn:
Formaður, Ólafur Guðmunds-
son. Varaformaður, Guðmundur
Helgason. Ritari, Þorbergur Guð
laugsson. Gjaldkeri, Friðrik
Sigurðsson. Meðstjórnandi, Guð
mundur Björnsson.
Aðalfundur Félags bifreiða-
smiða
var haldinn 26. febrúar s.l.
og var vel sóttur. Formaður frá
farandi stjórnar, Tryggvi Árna
son baðst undan endurkosn-
ingu. í stjórn voru kosnir:
Gunnar Björnsson form., Sig-
urður Hjálmarsson varaform.,
Magnús Gíslason ritari, Gísli
Guðmundsson vararitari, Guð-
jón Jónsson gjaldkeri og Hjálm
ar Hafliðason varagjaldkeri.
j Umsókn synjað.
I Bæjarráð hefir synjað um-
i sókn frá Jóhanni Sigurðssyni,
I Nökkvavogi 46, um lóð undir
: fisksöluskúr í Herskólakampi.
j Eimskipafélag Islands
I hefir sótt um leyfi til þess
' að innrétta til bráðabirgða sölu
j búð í húsi sinu við Tryggva-
götu. Bygginganefnd Reykja-
víkurbæjar hefir fallizt á þetta,
að áskildu leyfi heilbrigðis-
nefndar.
Dvalarheimilið
Lóðin handa dvalarheimili
aldraðra sjómanna hefir enn á
ný verið til umræðu í bæjar-
ráði Reykjavikur. Niðurstaða
þeirrar umræðu var sú, að bæj
arráðið vísaði til ályktunar sinn
ar 18. janúar í fyrra.
Skautafélag Reykjavíkur
hefir farið þess á leit, að
lögð verði vatnsleiðsla að tjörn
inni og keypt dráttarvél, sem
félagið fái til afnota til snjó-
moksturs. Málið er til athugun-
ar hjá bæjarverkfræðingi og
vatnsveitunni.
l.R. Páskavikan að
Kolviðarhóli.
Þeir, sem ætla að dvelja að
Kolviðarhóli um páskana eru
beðnir um að láta skrá sig í
Í.R.-húsinu (uppi) á morgun
(föstudag) kl. 8—9.
Skíðadeild í. R.
Leiðrétting.
Það var ranghermt hér í
fregn í blaðinu í gær um fisk-
söluna til Frakklands. Tollur-
inn er 40% e nhann kemur ekki
j til greina í þessu tilfelli þar
sm kaupandinn kaupir fiskinn
| í höfn í Frakklandi og greiðir
innflutningstollinn sjálfur.
fiuqlúáit í T/fttahum
Símanúmer okkar er 2521
Gjörið svo vel og færið númerið í skrána
SANDBLÁSTUR & MÁLMHÚÐUN H.F.
Smyrilsveg 20
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦■
BÆNDUR
Húðir og skinn eru nú 1 háu verði. Vandið þvl sem
bezt alla verkun þeirra. Umfram allt verður að vanda
vel fláninguna. Hver hnífrispa eða skurður í húðina
gerir hana verðminni. Farið hreinlega með húðirnar,
þegar slátrað er og látið þær kólna sem fyrst, án þess
að holdrosinn skurni. Saltið húðirnar strax eftir að þær
eru orðnar kaldar og áður en holdrosíhn byrjar að
þorna. Sé dregið að salta, gengur saltið ekki eins vel
inn í húðina, en það er skilyrði fyrir góðri geymslu
að húðin gegnumsaltist á sem skemmstum tíma. Þegar
saltað er, verður vandlega að breiða úr öllum skækl-
um og jöðrum og dreifa saltinu vel yfir alla húðina. —
Eftir því sem skinnið er þykkra þarf meira salt. Fyrir
hver 3 kg. af hráhúðarvigt þarf sem næst 1 kg. af salti.
Mikið salt gerir aldrei skaða og er því betra að salta of
mikið en of lítið. Notið ávallt hreint salt.
Nýsaltaðar húðir má ekki brjóta saman í búnt til að
geyma þannig. Þær eiga að liggja flatar, litið eitt hall-
andi, svo að hið blóði blandaða vatn, sem saltið dregur
úr húðinni, geti runnið burt. Má salta þannig hverja
húðina ofan á aðra í stafla og snúa holdrosanum upp
á hverri húð. Húðirnar verða að liggja þannig í stafla
þar til þær eru gegnsaltaðar, en það tekur venjulega
1—2 vikur. Þá má, þegar hentugt þykir, taka þær upp
og búnta til flutnings eða geymslu.
Athugið leiðbeiningar þessar nákvæmlega 'hver og
einn og leitist við að fara eftir þeim 1 öllum greinum.
Það tryggir yður hæst verð fyrir húðirnar.
Samband ísl.samvinnufélaga
w.
*
fi ýcrHutn Vegi:
Haldlaus mæling
j
Bílstjóri einn, sem varð fyrir því, að ekið var á bif-
reið hans, þar sem hún stóð á lögmætum stað á göt-
unni hefir komið að máli við mig og beðið mig að
koma á framfæri umkvörtunum.
★ ★ ★
Hann sagði sögu sína á þá leið, að hann hefði kvatt
til lögregluþjóna, en er þeir fóru að mæla stöðu bif-
reiðarinnar á götunni, gerðu þeir það á þann hátt að
nota skref sin sem mælitæki.
Nú hefir rannsóknarlögreglan tjáð honum, að slík
mæling yrði ekki tekin gild, ef málið kæmi í dóm.
Hún væri haldlaus og lítils nýt. Er hann að vonum
óánægður yfir þessu.
★ ★ ★
— Fyrir nokkrum árum höfðu allir lögregluþjónar
á sér málbönd til þess að nota, er svo bar undir, sagði
hann. Nú virðist þetta vera breytt, hvað sem veldur.
Ég vil beina því til lögreglustjórans, að þessu verði
hið fyrst kippt í það horf, sem áður var, því að þetta
kák er óhafandi. Ég leita til lögreglunnar í því skyni,
að hún sé hið óyggjandi vitni, og hún verður að hafa
það, sem þarf til þess að hún sé það.
' Eitthrað á þéssá léið fórust manni þessum orð.
J. H.
HjJ Stúdcntafélag Reykjavíkur
Kvöld vaka
verður haldin að Hótel Borg í kvöld og hefst kl. 20,30
MeðaJ akemmtiatáiða verða: Spurningaþáttur er
Tómas skáld Guðmundsson annast. Tvöfaldur Jækna-
kvartett syngur. Bolli Thoroddsen, bæjarverkfræð-
ingur les frumort ljóð o. fl.
DANS
Aðgöngumiðar og félagsskirteini verða afhent að
Hótel Borg (suðurdyr) kl. 17—19 í dag og við inn-
ganginn.
Stjórnin
í
V.'.VAVAV/.W/.V.V.V.Y.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.
Þökkum hjartanlega öllum er sýndu okkur samuð
og vinarhug við andlát og jarðarför
GUÐNÝJAR ÞORSTEINSDÓTTUR
Kjalvararstöðum
Vandamenn *
V.V.VAV.V.V.V.'.V.V.V.V.V.’.V.'.V.V.V.V.V.V.’.V.VA
,■ Vinum og vandamönnum, sem minntust mín á sjö-
I; tugsafmæli minu 22. f. m. færi ég alúðar þakkir og
■’ óska þeim allrar blessunar.
Hlíð í Lóni 4. marz 1951
Kristín Jónsdóttir
ÍV.V.V.V.V.V/.V.’.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.