Tíminn - 15.03.1951, Page 8
MEM OG MÁLEFM:
Aftaha Tuhhatchevshis
35. árgangur.
Reykjavík
Skemmtun skóg-
ræktarfélagsins
í kvöld
Skógræktarfélag Reykja-
víkur heldur skemmt'fund 1
Sjálfstæðishúsinu í kvöld. Þar
verður sýnd hin fagra lít-
kvikmynd frá skógræktinni í
Tromsö og einnig kvikmynd
af vigslu Heiðmerkur og
starfi þríggja félaga þar. Um
30 félög töku sér land og gróð
ursettu í Heiðmörk í fyrra og
nú eru 10 félög á biðlista.
Fjölsækið skemmtun skóg-
ræktarfélagsins í kvöld.
Ekki reipdráttur
heldur tíðarfar
veldur töfinni
í þessari höll I París hafa aostoðaruianríkisráðherrar fjór
Vegamálastjóri hefir skýrt veldanna setið á rökstólum við lítinn orðstýr undanfarna
daga og reynt að koma sér saman um dagskrá fjórvelda-
ráðstefnu um Evrópumál. Líkur benda nú til að ekki verði
einu sinni unnt að koma sér saman um dagskrána og má
af því marka hvort betra verður samkomulagið þegar farið
er að ræða deilumál n sjálf.
Skíðamótið á ísafirði
verður mjög fjöisótt
— Tilhögun keppninnar ákveðin —
Einkaskeyti frá ísafirði.
Skíðaráð ísfirð nga hefir nú ákveðið tilhögun á skíða-
landsmót nu, sem haldið verður á ísafirði um bænadagana
og páskana og búzt er við, að verði mjög fjölsótt.
blaðinu frá því að það sé
rangt, sem fréttaritari blaðs
ins á Akureyri segir um það,
að tafir þær sem orð ð hafi
á að láta ýtu þá, sem ný-
komin er til Akureyrar á veg
im flugmálastjórnarinnar,
Aefja ruðning á Eyjafjarðar-
braut, séu af reipdrætti vega
gerðarinnar og flugmála-
stjórnar nnar um það, hvor
stofnunin eigi að greiða
kostnaðinn.
Sagði vegamálastjóri að
töfin stafaði e’nvörðungu af
því, að ekki þætti fært eins
og veðrátta er nú og var enn
i gær að hefja slíkar fram-
kvæmdir, þar sem skafrenn-
ingur og kafaldshríð mundu
fylla slóð.na þegar aftur.
Kvað hann verkstjóra sinn á
Akureyri þegar hefja verkið,
er tiltækilegt þætti vegna tið
arfarsins. Um hitt hefði ekki
orðið hinn m nnsti ágreining
ur, hvor stofnunin gre;ða ætti
kostnaðinn.
Sýning á barnateikn
ingum f rá 27 þ jóðum
Næstkomandi þriðjudag
verður opnuð í Washington
á vegum S. Þ. sýning rúm-
lega 6 þús. teikninga og
mynda eftir skólabörn frá 27
þjóðum þar á meðal 16
Evrópuþjóðum. Sýningin mun
standa mánuð.
Fyrir sýningu þessari
samstarfs- og vináttunefnd
alþjóðlegra kvennasámtaka
til eflingar vináttu barna
um heim allan.
Flutt út fyrir 50
millj. í febrúar
í febrúarmánuði voru flutt
ar út íslenzkar vörur fyrir
50,2 millj. króna og er það
rúmlega helmingi hærra en
I febrúar í fyrra en þá var
gengið hærra. Hæsti liður var
freðfiskur fyrir 11.4 millj.
þar af til Bandaríkjanna fyr-
ír 6,3 millj.
Keppt alla dagana.
Á skírdag fer fram skíða-
ganga, fimmtán og átján kiló
I metra, og sv g kvehna. Á föstu
daginn langa verður keppt
í bruni í öllum flokkum, og
| á laugardaginn sveitakeppni
' í svigi og boðganga, tíu kíló-
| metra. Á páskadag verður
i keppt í stökkum, og þá verð-
ur einn!g svigkeppni A- og
B-flokks. Á annan dag páska
verður keppt i þrjátíu kíló-
metra göngu, og er það ný
( grein.
Mikill og góður snjór.
Mikill og góður snjór er á
skíðalöndunum, enda stöðug
norðanátt með snjókomu.
r——---——---------------
200 farmiðar seld
ir á hálfum öðr-
um klukkutíma
Strandferðaskipið Hekla
fer frá Reykjavik vestur
um land miðvikudaginn
fyrir skírdag, og var byrj-
að að selja farmiða í gær
morgun. Þeir seldust allir
upp á hálfum öðrum
I klukkutíma. Skipið tekur
j , tvö hundruð farþega, en
það mun aðeins vera brot
af þeim f jölda, sem hefði
viljað komast tli ísafjarð-
ar með þessari hentugu
ferð rétt í byrjun skíða-
mótsins.
Haldist kæla, verður því að-
staða til keppninnar með á-
gætum. Búizt er v ð miklu
fjölmennj til ísafjarðar, bæði
flugleiðis og með strandferða
skipum. Þeir, sem þátt taka í
mót nu, munu flestir koma
með Esju um næstu helgi.
27 keppendur úr Reykjavík.
Við þetta fréttaskeyti frétta
ritara Tímans á ísafirði má
bæta því, að héðan úr Reykja
vík fara til keppni 27 menn
frá fjórum félögum, ellefu frá
Ármann', sjö frá Í.R., sjö frá
K.R. og tveir frá Val. Ellefu
eru skráðir til þátttöku í
svigi og bruni karla i A-flokki
og tíu í B-flokki, og tve'r í
svigi og brunj kvenna í A-
flokki og þrír í B-flokki. Þrír
taak þátt í stökkum, í A-
flokki, B-flokki og drengja-
flokk'.
í reykvísku sveitinni, sem
keppir um svigbikar Litla
skíðafélags ns, verða Ásgeir
Eyjólfsson, Gísli Kr stjánsson
Stefán Kristjánsson og Þór-
arinn Gunnarsspn.
Meðal þátttakendanna úr
Reykjavík verða Ármenning
arnir Ásgeir Eyjólfsson og
Sólve g Jónsdótt r, Reykjavík
urmeistarar i svigi, Stefán
Kristjánsson og Víðir Finn-
bogason, Í.R.-ingarn r GísÞ
Kristjánsson, Guðni Sigfús-
son, Þórarinn Gunnarsson og
Valdimar Örnólfsson og K.R.-
ingarn r Guðmundur Jóns-
son og Vilhjálmur Pálmason.
Fararstjóri verður Hörður
Björnsson, formaður skíða-
CFramhald á 7- síðu.)
Víötækar jarðvegsrannsókn-
ir undirbúnar hár á landi
Eínalia^ssaiBviiinusíofminin sondir IsingJ-
að fsokktan jarðvegsfræðiiig á næsta stimri
Nú nýverið er farinn til Bandaríkjanna ungur háskóla-
stúdent, Einar Gíslason, í þeim t lgangi að nema og kynna
sér hina tæknilegu hlið á flokkun og kortlagningu jarð-
vegs. Mun liann dvelja við nám í Bandaríkjunum í tæpa
fjóra mánuði en að þvi loknu koma hingað heim og hefja
hér starf á sviði jarðvegsrannsókna í samvinnu við jarð-
vegsfræðing Aívinnudeildar Háskólans. Deild sú í land-
búnaðarráðuneyti Bandaríkjanna, sem hefir með höndum
jarðvegsrannsóknir þar, mun að mestu leyti skipuleggja
nám Einars þann tíma sem hann dvelur vestra.
Jarðvegsfræðingur
sendur hingað
Næsta sumar mun svo
bandarískui' jarðvegsfræðing
ur með víðtæka þekkingu og
reynslu varðandi flokkun
jarðvegs koma hingað til
lands og hafa hér um tveggja
mánaða viðdvöl. Mun hann
þann tíma er hann dvelur
hér, vinna að því með starfs-
liði Atvinnudeildarinnar á
sviði jarðræktar að skapa
sem beztan grundvöll fyrir
flokkun og kortleggingu ís-
lenzks jarðvegs svo og að
koma þessum og öðrum sam-
hliða rannsóknarefnum í sem
ákveðnast horf.
Kostað af ECA
Efnahagsamvinnuskiftfstof
an í Washington hefir veitt
fé, er svarar til alls erlends
kostnaðar í sambandi við
framkvæmdir þessar og er
það hluti af þeirri tæknilegu
aðstoð er íslenzkir atvinnu-
vegir hafa hlotið frá efna-
hagssamvinnunni og hefir
svipuð tæknileg aðstoð verið
veitt á ýmsum öðrum svið-
(Framhald á 7. síðu.)
Framkværad jarð-
ræktarlaga rædd
á búnaðarþingi
Á fundi búnaðarþings í gær
voru mörg mál til umræðu og
sum afgreidd frá þinginu en
önnur til annarrar umræðu.
Samþykkt var ályktun um
reglugerð um framkvæmd
jarðræktarlaganna. Reikning
ar félags'ns fyrir árin 1948
voru og samþykktir.
Sífelldar stórhríðar og
harðviðri í Grímsey
Vaffisskorlur er að verða í eynni
Miklar stórhriðar hafa verið í Grímsey í vetur, stormar
og hörkutíð, sagði Róbert Jack í símtali við fréttamann
frá Tímanum í gær. Hefir enn ekkert lát orðið á því tíðarfari
og vatnsskortur farinn að gera vart við sig.
50—60 manns í eynn1’.
— Hér heima i eynni eru
nú 50—60 manns í vctur, en
allmargt ungra manna fór
suður í verstöðvar við Faxa-
flóa til starfa þar í vetur,
sagði séra Róbert Jack. Hér
heima er lítið að starfa, því
að veturinn er grimmur og
ekki árennilegt að sækja sjó
inn.
Tregar samgöngur
Samgöngur eru tregar við
eyna og vont um aðdrætti.
Bátur kom þó með salt og
kol síðastliðinn föstudag, og
, aftur er von á báti um mán-
aðamótin næstu. Annars
hafa Grímseyingar lítið af
Stjórn niyndnð í
Hollandl
Stjórn var mynduð í Hol-
landi í gær undir forsæti leið
toga jafnaðarmanna. Hlaut
hún traust þingsins. í Hol-
landi hefir nú verið stjórnar
kreppa nærri því mánuð.
umheiminum að segja um
þetta leyti, nema hvað togar-
ar koma undir eyna til þéss að
liggja af sér óveður.
Nægjanleg hey —
Vatnsskortur
Dálít Ö er áf skepnum í
eynni, en þótt hart sé tíðar-
farið, er þess að vænta, að
hey manna endist til vors.
Aftur á móti er vatnsskortur
farinn að gera vart við sig.
Eru brunnar eyjarskeggja nú
mjög að þrjóta.
Aðrir orgeltónleikar
Páls Isólfssonar
Páll ísólfsson, tónskáld
heldur aðra orgeltónleika^
sína í dómkirkjunni á moig-
un föstudag kl. 6,15. I.eikin
verða verk eftir Bach. Reger,
Muffet og Buxtehude. Verk-
in eru valin með tilliti til
föstunnar. Aðgangur er ó-
keypis að tónleikunum.