Tíminn - 01.04.1951, Qupperneq 8
EIULEJVT YFIRLIT:
Frnest Bevin.
35. árgansur.
Reykjavík,
„A FÖRMJM VEGi“ t ÐAG:
B ilftftða sii fn I n.
1. apríl 1951.
73. blað.
Leiö kjarnorkunjósnar-
r
anna lá um Svíþjóö
En gijdran lokaéist hh flesta samstarfs-
menn Fuchs áSnr en þeir kemnst nndan.
Um þessar mundir er (ylgzt af geysimikiLlí athygli mcð
réttarhöldunum vegna kjarnerkunjósna í New York, og
menn komast nú að því, að Rússar hafa vitað um mörg
helztu kjarnorkuleyndarmál vesturveldanna síðan 1945.
Fyrir nokkrum dögum var
m. a. kallað fyrir rétt vitni að
nafni David Greenglass, fyrr-
verandi liðþjálfi. Hann skýrði
frá því, að svili hans, Julius
Rosenberg, hefði afhent sér
fé frá rússnesku njósnamið-
Stöðinni í Bandaríkjunum
fyrir uppiýsingar, er hann
hefði I té iátið.
Rosenberg þessi er ákærður
fyrir njósnir á stríðsárunum
ásamt konu sinni og raf-
magnssérfræðingi nokkrum.
Hafa þau öll játað sekt sina
Tunnuverksmiðjan
*
í
skemmd af eldi
Síðdegis í fyrradag kom upp
eldur í tunnuverksmiðjunni i
Siglufirði, en slökkviliði Siglu
fjarðar tókst að vinna bug á
eldinum á rösklega hálfri
annarri klukkustund. Sviðn-
aði allmikið loft verksmiðj-
unnar, og raflagnir bygging-
arinnar ónýttust.
Einn maður, Ástvaldur
Kristjánsson verkstjóri,
brenndist talsvert á höndum
og í andliti.
Mikið af efni í tunnur var
geymt í verksmiðjunni, er var
nýlega tekin til starfa, og
hefði orðið þarna stórfellt
tjón, ef slökkviliðinu hefði
ekki tekizt að kæfa eldinn í
tæka tíð.
Verið er að rannsaka upp-
tök eldsins, sem kom upp í
spónum frá tunnuefni, ef til
vill út frá hitakerfi.
og er talið, að þau eigi vísan
dauðadóm.
5999 dellarar í farareyri.
Þegar kjarncrliunjósnarinn
Klaus Fuch var handtejkinn
afhjúpaði hann fyrir brezkri
og bandarískri lögreglu þátt
þeirra Rosenbergs og Green-j
glass og fékk honum 5000
dollara, sem hann átti að nota
til að komast brott úr Banda-
ríkjunum. Fékk Greenglass
ýtarlegar leiðbeiningar. Það
átti að koma honum yfir
landamærin til Mexikó ásamt
fjölskyldu sinni.
Við styttu Kólumbusar.
í Mexikó-borg átti Green-
glass að staðnæmast framan
við styttu Kólumbusar ná-
kvæmlega klukkan 17 ákveð-
inn dag og hafa ferðamanna-
bók um borgina milii handa.
Átti hann að hafa löngutöng
í opnu bókarinnar. Þá mundi
koma til hans maður, sem
skoða mundi styttuna en ekk-
ert segja. Greenglass átti að
segja við hann: „Falleg
stytta. Ég er frá Oklahoma.“
Þá mundi maðurinn svara:
„í París eru miklu fallegri
styttur". Hjá þessum manni
mundi Greenglass fá peninga
og nánari fyrirmæli um að
fara til Vera Cruz í Mexikó,
en þaðan yrði honum tryggð
skipsferð til Svíþjóðar.
í Stokkhólmi var gert ráð
fyrir öðrum fundi við ákveðna
myndastyttu í borginni, því að
þar átti Greenglass að fá leið-
beiningar um að komast til
Tékkóslóvakíu, þar sem ráð-
gert var að hann settist að.
En áður en þessi flótti
kæmist í kring, small gildran
og lögreglan handtók njósn-
arana.
Akurnesingar haida
áfram karfavinnslu
^ •
Akranestogarinn Bjarni Ól-
afsson kom heim af karfa-
veiðum í fyrrakvöld og var
landað þá nótt og hina næstu.
Fór skipið aftur á karfaveið-
ar um hádegi í gær.
Að þessu sinni kom togar-
inn inn með um 270 smálestir
Af þvi voru um 180 lestir
karfi, en hitt þorskur og ufsi.
Karfinn og þorskurinn fór til
vinnslu í frystihúsinu, en ufs-
inn til fiskimjöisvinnslu.
Akranestogarinn Bjarni Ól-
afsson er nú eini togarinn,
sem er á karfaveiðum. Er tal-
Snjóbílarnir í stað
hreinsleöa á Finnmörk
Það eru líkur til þess, að segu hreindýra- og hestsleða á
Finnmörk muni senn ljúka, og í stað þessara aldagömlu
samgöngutækja í nyrzta hluta Noregs komi snjóbílar af
sömu gerð og við íslendingar erum nú að komast í kynni
við. Að vísu er líklegt, að Lappar muni enn um hríð nota
talsvert hreindýrasleða, en fyrr en varir getur sú öld runn-
ið upp, að þeir taki snjóbíiana í sína þjónustu og aki þeim
um snæviþakið landið.
Það var fyrst seint í fyrra-
vetur, að hafnar voru reglu-
bundnar áætlunarferðir á
snjóþíl milli Alta og Kauto-
keino, en hætt sleðaferðum
ið, að góður afli sé á djúpmið- me® hesta °S breindýr, er
tíðkaðar höfðu verið á þeirri
leið. Er hún um fimmtán mil
ur.
um, en ónæðissamt við veið-
ar þar vegna stirðrar veðr-
áttu.
Akurnesingar virðast ákveðn
ir i þvi að vinna kgrfafram-
leiðslu sinni hylli á banda-
ríska markaðnum, og hefir
Sturlaugur H. Böðvarsson út-
gerðarmaður á Akranesi tjáð
tíðindamanni blaðsins, að
framleiðslan líki vel. Að vísu
muni eitthvað af fyrstu send-
ingunum ekki hafa verið
hreistrað fullkomlega á rétt-
an hátt. En ánægja hefir hins
vegar verið látin í ljós með
sýnishorn, sem fyrir nokkru
er búið að senda vestur.
Fyrirhuguö mikil trjá-
piöntun í Eyjafiröi
Aukin skwgrækt i Akureyrarbrekku.
Mikill áhugi er nú um skógrækt í Eyjafirði, sagði Ármann
Dalmannsson, formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga, í við-
tali við tíðindamann Tímans í gær. Eru skógræktardeild-
irnar I héraðínu þegar búnar að panta um þrjátíu þúsund
trjáplöntur til gróðursetningar, auk þess sem Skógræktar-
félag Eyfirðinga ætlar sér að' gróðursetja.
Akureyrarbrekka.
Dagskrárfundinum
frestað til mánud.
Fulltrúar fjórveldanna á
dagskrárfundinum í París á-
kváðu í gær að fresta fundar-
störfum þar til á mánudag.
Fulltrúarnir snæddu hádegis-
verð í gær í boði Jessups.
Nú er einnig verið að þreifa
fyrir sér um áætlunarferðir
milli Alta og Karasjok, enda
þótt yfir hálfgerðar vegleys-
ur sé að fara. Einnig hefir
verið ekið á milli Kautokeino
og Karesuando i Svíþjóð, og
gekk sú ferð betur en menn
höíðu þorað-að vænta. Innan
skamms á að hefja áætlunar
ferðir á þeirri leið, og greiðir
það mjög fyrir ferðum 'fólks
af Finnmörk til Suður-Nor-
egs. — Þrír bílar eru nú í hin
um föstu áætlunarferðum.
Áður 3 dagar, nú
4 tímar.
Leiðina milli Aita og Kauto
keino fer snjóbíllinn nú að
jafnaði á fjórum klukkustund
um, en með hreindýra- og
hestasleða fara menn þessa
leið á þremur sólarhringum.
Snjóbíllinn flytur fólk, póst
og varning, eftir því sem til
fellur, og fólkið á þessum
slóðum er mjög ánægt með
þessa nýjung, bæði Norð-
mennirnir og Samarnir.
Adenauer íer á
stáliðnaðarráð-
stefnu í París
Dr. Adenauer forsætisráð-
herra Bonn-stjórnarinnar hef
ir þegið það boð að sitja ráð-
stefnu þeirra sex ríkja, sem
standa að sameiningu stáliðh-
aðar Vestur-Evrópu. Verður
fundur þessi haldinn í París
12. apríl. Þetta er fyrsta ráð-
stefnan, sem fúlltrúi Bonn-
stjórnarinnar tekur þátt í ut-
an lands síns.
Mikill fiskur á miðum,
en fullur af loðnu
Flug'sani^öngurnar liel/ta samgöngubótin
Vegi ot* höfn vantar á Sandi.
Frá fréttaritara Tímans á Hellissandi.
Þó að snjór sé nú með mesta móti á utanverðu Snæfells-
nesi, hefir flugvöllurinn á Sandi aldrei teppzt í vetur, og eru
flugferðirnar þýðingarmikil samgöngubót. Þykir fullvíst, að
ef kominn væri vegur fram fyrir jökul, hefði verið bílfært
vestur í allan vetur.
Félagsreitir og bæjaskógar.
Plöntur þessar ætla skóg-
ræktardeildirnar ýmist að
nota í félagsreiti eða bæja-
skóga, en í sumum deildunum
er unnið að hvort tveggja.
Dregur hínn harði vetur ekki
úr áhuga manna, en hætta
getur orðið á því, ef seint vor-
ar, að menn geti ekki sinnt
skógræktinni eins og þeir
vildu, sökum annarra vor-
anna.
Skógræktardeildin á Akur-
eyri hefir sent bæjarstjórn-
inni erindi og farið þess á
leit, að hún friði brekkurn-
ar suður af Sigurhæðum, en
gróðursetningu í svæði það,
sem þar var búið að friða, er
lokið. Er þess vænzt, að unnið
verði bráður bugur að því að
girða brekkurnar og planta
þær skógi. Verður skógurinn
í brekkunni hin mesta bæjar-
prýði, er fram líða stundir.
Hafnleysi og akvegaleysi.
íbúar á utanverðu Snæ-
fellsnesi hafa fundið til þess
sárar í vetur en nokkru sinni
j fyrr, hversu afskiptir þeir eru
jþeim þægindum, er felast í
, fullkomnum samgöngum á
landi og góðum hafnarmann-
virkjum.
Sjómenn á Hellissandi telja,
að í vetur hefði orðið ágæt
aflavertíð, ef hafnar í Rifi
hefði notið við, og hægt hefði
verið að sækja sjóinn hindr-
unarlaust á stórum vélbátum,
án þess að taka tillit til erf-
iðra lendingarskilyrða.
Mikill fiskur,
en fullur af loðnu.
Um þessar mundir er mikill
fiskur á miðunum út af ut-
anverðu Snæfellsnesi. Fara
Hellissandsbátar um hálfan
annan tíma út. í fyrradag
fengu tveir stærstu bátarnir
12—14 skippund. Annars er
lillt að fást við þorskinn um
þessar mundir. Loðna er kom-
in á miðin, og fiskurinn oft
svo fullur af henni, að hann
ilítur varla við línunni, hvort
heldur hún er beitt sild eða
loðnu.
Engin útgerð að ári’?
Á Hellissandi horfir nú svo
þunglega eftir reynslu á yfir-
standandi vertíð, að menn
eru mjög á báðum áttum um
áframhald útgerðar þar að
ári, ef hafnarinnar í Rifi
nýtur ekki við.
Er það því höfuðnauðsyn
byggðanna á utanverðu Snæ-
fellsnesi að hefjast handa um
þetta mikilvæga mannvirki
og koma því svo langt, að
útgerð báta geti hafizt úr
Rifi á næstu vertíð.
Her S.Þ. fer yfir
38. breiddarbaug
Harðir bardagar geisuðu í
gær á miðvígstöðvunum í
Kóreu, þar sem brezkar skrið-
drekasveitir og fótgöngulið
sóttu fram um fjalllendi gegn
harðri vörn norðurhersins.
Sunnar á vígstöðvunum
fóru tvær bandarískar skrið-
drekasveitir yfir 38. breiddar-
baug um einn km. norður fyrir
bauginn. Flugvélar S. Þ. gerðu
harðar árásir við Malu-fljót
og eyðilögðu þar meðal ann-
ars eina stóra brú. Eru árásir
þessar gerðar til að tefja lið-
flutninga Kínver.ja suður yfir
fljótið.
Keppni í fang-
bragðaglímn
■ p " ■
Annað kvöld gefst Reykvík-
ingum færi á að sjá nýja og
skemmtilegá íþrótt i' hátíða-
sal Laugarnesskólans. Það er
fangbragðaglíma, sem:finhski
glímukennarinn Érkki Jo-
hansson sýnir ásamt 20 nem-
endum sínum. Johansson hef-
ir dvalið hér um hríð á vegum
Ármanns Og kennt íþrótt
þessa, sem er nýr landnemi í
íþróttalífinu hér. Sýningin
hefst kl. 8,30. Aðgöngumiðar
seldir allan morgundaginn
hjá Lárusi BlÖhdaí og Bóka-
búð ísafoldar. . "
mgönguvcr k f ;i11
enn í París.
Samgönguverkfállinu í Par-
ís lauk ekki í fyrrakvöld eins
og líkur voru til. Slamhingar
töfðust á síðustu stundu vegna
þess, að verkfallsmenn kröfð-
ust kaups fyrir daga þá, sem
þeir höfðu verið í verkfallinu.