Tíminn - 10.04.1951, Qupperneq 6

Tíminn - 10.04.1951, Qupperneq 6
6. 80. blaff, Skulduskil (Corner Creek) Afar spennandi ný amerísk mynd í eðlilegum litum með Itandolph Scott, Margaret Shappman. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TRIPOLI-BÍÓ Orustan IIH3 Stalin- grad Síðari hluti. Sannsöguleg rússnesk mynd af orrustunum um Stalín- grad, mestu orrustu allra tíma. Enskur skýringartexti. Músík eftir Aram Khatsja- turjan. Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum. I uudirdjúpunum Afarspennandi o6 œnntyra- rík amerísk litmynd, tekin að miklu leyti neðansjávar. Sýnd kl. 5 og 7. Bönnuð innan 12 ára. NÝJA BÍÓ Viðburðarík og spennandi ný amerísk mynd frá ævintýra- heimum Alsírborgar. Aðalhlutverk: Ivonne de Carlo, Tony Martin, Peter Lorre. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBIÓ HAFNARFIROI Leikfélag Hafnarfjarffar „Nóttin langa“ ' Sýning í kvöld kl. 8,30. Sími 9184. Bergnr Jónssoo MáUflutnlngrsskrlfstofa Laugaveg 65. Stxnl 5833 Heima: Vítaatlg U~ Rafmagnsofnar, nýkomnlr 1000 wött, á kr. 195,00. Sendum 1 póstkröfu. Gerum við straujám og önnur heimilistæki Raftækjaverzlunln UÓS & HITI H.F. Laugaveg 79. — Sími 5184. <yuu/elcí$u?% TÍMINN, þriffjudaginn 10. apríl 1951. Austurbæjarbíó Bæj'arráðið o g n á ð h ú s i ð Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 7 og 9. GÖG og GOKKE Sýnd kl. 3 og 5 Sala hefst kl. 11 f. h. TJARNARBÍÓ Handan við gröf og dauða (Ballongen) Hin bráðskemmtilega sænska grínmynd með: Nils Poppé Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BÍÓ Næturljóð (Night Song) Dana Andrews, Merle Oberon, píanósnillingurinn heims- frægi Arthur Rubenstein. Aukamynd: Fréttamynd, brezka bikar- keppnin — „Sugar Ray Rob- inson o. fl. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HAFNARBÍÓ Sigurmerkið (Sword in the Desert) Ný amerísk stórmynd, byggff á sönnum viðburffum úr bar- áttu Gyðinga og Breta um Palestínu. Aðalhlutverk: Dana Andrews, Marta Foren, Stephen McNally. Bönnuff innan 12 áw. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Auglvsingasínii TIMANS er 81300 ELDURINN gerir ekki boff á undan cér. Þelr, »em eru hyggnlr, tryggja atrax hj* Samvinnutrysglnsum AmkriftarsfimJt TIMINIV ISIS Gerlzt áckplfeadn1. Erlent yfirllt fFramhald af 5. síffu.i Friður verður unninn, ef hver og einn leggur sitt fram. Sérhver okkar verður að gera sér ljóst, ekki eingöngu fánýti styrjalda, heldur einnig hættu þá, er þær búa mannkyni. Heimsstyrjöld- inni síðari lauk fyrir nærri sex árum, sú styrjöld virðist hafa skapað fleiri vandamál en hún leysti og friður virðist enn langt undan. Dr. Julian Huxley, fyr- verandi framkvæmdastjóri UNESCO heíir kveðið upp þenn an raunsæa dóm um áhrif nú- tímahernaðar: „Langdregin stríð, sem svelta almenning og leggja heil lönd í eyði, eru hættu leg fyrir þroska mannkynsins. Því algjörara, sem stríð verður, því ákveðnari, sem verður ein- beiting mannlegra krafta að eyðileggingu í stað uppbygging- ar, og því víðtækara, sem slíkt stríð verður, er það leggur undir sig fleiri og fleiri lönd hnattar vors, því meiri ógnun verður það fyrir þróun mannkynsins. Slíkt stríð gæti ef til vill leitt hinn menntaða heim inn í nýjar ald ir myrkurs og vanþekkingar, inn í nýjar miðaldir". Þetta var skrif að áður en atómsprengjan kom fram og sannleikur þess er því miklu augljósari nú. Baráttutilhneigingum mann- anna er hægt að veita inn á aðrar brautir, stjórnmálakerfi þeirra er hægt að byggja upp þannig að stríð verði óiíkleg. Þetta er verð það, er gjalda verð ur fyrir friðinn og sérhver okk- ar getur og verður að leggja fram sinn hluta af því gjaldi. Ég hef minnst á, að veita mætti baráttutilhneigingum mannanna inn á nýjar brautir. Nefnd til ráðleggingar um al- þjóðlegar framfarir (Inter- national development advisory board) var skipuð af Truman forseta síðastliðinn nóyemþer og hefir nýlega lagt fram mjög athyglisverða skýrslu. Meira en ein billjón fölks lifir í þeim hlut um heims, er telja verður að standi öðrum að baki í allri tæknilegri þróun. Lífsskilyrði þessa fólks má marka á því, að meðal árlegar tekjur hvers ein- staklings er um það bil einn átjándi af meðaltekjum Banda- ríkjamanns. Með fáeinum und- antekningum lifir þetta fólk á daglegu fæði, sem er 200% fyrir neðan lágmark það, sem nauð- synlegt er til að tryggja heilsu og fulla starfskrafta. Á mörgum svæðum jarðar er næringarskort ur landlægur, raunverulegt hungur legst að með vissum millibilum, meðalaldur er minna en helmingi styttri en Banda- ríkjamannsins. Eins og skýrsla nedndarinnar tekur fram, vofir hungur og heilsuleysi í sífellu yfir megin- hluta þessarar billjónar manna. Þessi frumstæðu svæði jarðar- innar veita oss svo að segja ó- takmörkuð tækifæri til starfs og baráttu. Til að öðlast varanleg- an frið, öryggi og velmegun í heiminum, verðum við að taka höndum saman í efnahagslegri (Economic) sókn gegn hungri, fátækt, fákunnáttu og sjúkdóm um. Slíkir eru hinir raunveru- legu óvinir friðarins á helmingi þessa hnattar. Ef við viljum heyja algjört stríð, þá skulum við ekki heyja slíkt stríð gegn meðbræðrum okkar heldur gegn þessum okkar verstu óvinum. ;; ÞJÓDLEIKHÚSID Þriðjudag kl. 20. Heilög Jóhanna eftir Bernard Shaw f aðalhlutverki: Anna Borg Leikstjóri: Haraldur Björnsson. Miðvikudag kl. 20. FlekkaÖar hendnr Vegna fjölda áskorana. Allra síðasta sinn. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 13,15 til 20,00 daginn íyrir sýn- ingardag og sýningardag. Tekið á móti pöntunum. Sími 80000. vf Cjina ^JCauá: SKIPS- LÆKNIRINN 72 — Nei — nei. Ekki í dag, sagði hann. Ég er ekki vel hraustur. Ég hefi um svo margt að hugsa — stend í leið- indamáli. Ég vil yfirleitt fá að vera í friði. . — Mamma hefir rekið mig burt. Ég get ekki farið til hennar aftur, sagði Milla þráalega. — Jæja, borðaðu þá bara einhvers staðar. Þú hefir nóga peninga. En það var einmitt vandinn. Milla átti ekki eyri eftir. Hún hafði keypt súkkulaði fyrir tvö siðustu mörkin. — En ég vil vera með þér, tuldraði hún. Þá þótti gimsteinasalanum sér nóg boðið. Hann lét óþvegin orð fjúka. En Milla hnykkti til höfðinu og strunsaði brott. Gimsteinasalinn minntist þess skyndilega, að hann hafði lofað henni helzt til miklu nóttina áður. Það hefði haft í för með sér mikil útgjöld að efna þau loforð. — Þú þarft ekki að koma aftur, hvæsti hann á eftir henni. Nú harmaði Milla það, að hún hafði látið Wolzogen sigla sinn sjó. Ég verð líklega að leita hann uppi, hugsaði hún raunamædd. Og svo tók hún að svipast um eftir honum. Hún fann hann hvergi og nam loks staðar við dyrnar á veit- ingasalnum. Að síðustu kom Wolzogen. Hann var áhyggju- fullur á svip og lotinn, eins og hann bæri þunga byrði. Hann gekk framhjá Millu, án þess að verða hennar var. — Þú ert þó ekki reiður við mig? kallaði hún á eftir honum. Hann rétti skyndilega úr sér og leit undrandi á hana. — Ég varð full í gærkvöldi, sagði hún. Þú mátt ekki vera reiður við mig. Ég skal ekki drekka framar. — Jæja, jæja, sagði hann og ætlaði að halda áfram. En Milla stakk hendinni undir handlegginn á honum. — Það er gott, að þú ert ekki reiður, sagði hún. Ég elska þig miklu meira en Exl. — Býðirðu mér ekki að borða? Ég er svo svöng. En nú áttaði Wolzogen sig. Bjóða henni að borða — nei, það kom ekki til mála. Hann hafði um svo margt að hugsa. — Hvað amar að þér í dag? spurði Milla og var nú að missa móðinn. — Amar að mér? Ég hefi tapað stórfé — allir hafa tap- að stórfé hér á skipinu. Miklum peningum — skilurðu það? En þú skilur náttúrlega ekki, hvað peningar eru. Og svo skálmaði hann inn í salinn, án þess að kveðja hana. Að loknum snæðingi urðu Exl, Pyrker, Karólína Kroll og Köhler loftskeytamaður samferða í lyftunní upp í loft- skeytastöðina. — Þér spyrjist fyrir um gengið á hlutabréfunum, ef til- kynning um það er ekki þegar komin, sagði Pyrker. — Hún er þegar komin, sagði Köhler án allra svipbrigða. Gimsteinasalinn beit á vörina. — Maður skyldi aldrei hugsa um annað en jörðina og það, sem hún gefur af sér, sagði frú Kroll raunamædd. Það eitt er gæfuvegur. Andartaki síðar kom Köhler með blað í hendi. Það var kominn á hann nýr svipur. Hann brosti út að eyrum. Hann opnaði munninn, en kom ekki einu orði upp. Karolína Kroll stundi af reiði og vonbrigðum og þeytti um skeytið, sem hann hélt á. Það hljóðaði svo: „María litla nær hitalaus. Beztu horfur. Hjartans kveðjur frá okkur. Lára.“ Karólína Kroll stundi af reið iog vonbrigðum og þeytti blaðinu í gólfið. Köhler tók það upp aftur, braut það vand- lega saman og stakk því í vasa sinn. Hann var of glaður til þess, að hann léti framkomu frúarinnar á sig fá. En Pyrker þreif í hann og hrópaði: Gengið — hvernig stendur gengið? — 92 mörk, sagði Köhler, og það var eins og hann vakn- aði af svefni — 92 mörk. • — 92 mörk, endurtók Karólína Kroll hvað eftir annað, eins og hún skildi ekki þessa tölu. XIX. Stefansson var í hræðilegu skapi, en hann hafði notið þess að sjá skelfingu allra, er fréttirnar um sífallandi gengi hlutabréfanna bárust. Það var eins og græðandi smyrsl í þau sár, sem hann hafði hlotið. Hann fyrirleit þetta hyski, og það seytlaði um hann ánægjan, þegar hann sá, hve illa það bar tap sitt. Til þess að njóta þessa til fulls lét hann kalla Traugott fyrír sig. Hann vildi fá að sjá skrá um hluta-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.