Tíminn - 11.05.1951, Qupperneq 2
2.
TÍMINN, föstudaginn 11. maí 1951.
103. bíað'.
Útvarp'íð
Útvarpið í dag:
8.30—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 12.10—13.15
Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegis-
útvarp. — 16.25 Veðurfregnir.
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón-
leikar: Harmonikulög (plötur).
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: „Nótt í
Flórenz" eftir Somerset Maug-
ham: VIII. (Magnús Magnús-
son ritstjóri). 21.00 Tónleikar
(plötur: Tvö píanóverk: Són-
atína og „Gosbrunnurinn“ eftir
Ravel (Alfred Cortot leikur).
21.15 Erindi: Úr Öræfum (frú
Rannveig Bjarnadóttir). 21.40
Tónleikar (plötur). 21.45 Frá út
löndum (Hafþór Guðmundsson
lögfræðingur). 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Skólaþáttur
inn (Helgi Þorláksson kennari).
22.35 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell lestar saltfisk í
Vestmannaeyjum. Arnarfell er
í Hafnarfirði. Jökulfell lestar
frosinn fisk og kjöt á Austur-
landi.
Ríkisskip:
Hekla fór frá Reykjavík kl.
20 í gærkvöld austur um land
til Siglufjarðar. Esja kom til
Reykjavíkur í gærkvöld að aust
an og norðan. Herðubreið er á
Vestfjörðum á norðurleið.
Skjaldbreið er á Húnaflóa á
norðurleið. Þyrill er í Reykja-
vík. Oddur átti að fara frá
Reykjavik í gærkvöldi til Aust-
fjarða. Straumey lestaði í
Reykjavik i gær til Breiðafjarð
arhafna.
Eimskip:
Brúarfoss er ,í Reykjavík.
Dettifoss fór frá Alexandria 8.5.
til Hull og London. Fjallfoss er
í Reykjavík. Goðafoss er á Akra
nesi, fer þaðan siðdegis í dag
10.5. til Reykjavikur. Lagarfoss
fór frá Reykjavík 2.5. til New
York. Selfoss er á Sauðárkróki.
Tröllafoss fór frá Norfolk 3.5.
til Reykjavíkur. Dux kom til
Reykjavíkur 9.5. frá Hamborg.
Hilde kom tli Reykjavíkur 9.5.
frá Léith. Hans Boye fermir í
Álaborg og Odda í Noregi um
miðjan maí til Reykjavíkur.
Katla fór frá New York 8.5. til
Reykjavíkur. Liibeek fór frá
Hull 8.5. tfl Reykjavikur. Teddy
kom til Reykjavíkur 8.5. frá
Kaupmananhöfn. Force kom til
Reykjavíkur 10.5. frá Hull.
Árnað heilla
Mjónaband.
f dag verða gefin saman af
séra Sigurði Norland ungfrú
Sigrún Jóhannsdóttir frá Hjörs
ey og Sigurður Jóhannsson iðn
nemi. Heimili þeirra verður
Sörlaskjól 24.
Flugferbir
Flugfélag' fslands:
‘Innanlandsflug: f dag er ráð
gert að fljúga til Akureyrar,
Vestmannaeyja, Kirkjubæjar-
klausturs, Fagurhólsmýrar og
Hornafjtirðar. Á morgun eru á-
ætlaðar flugferðir til Akureyr-
ar, Vestmannaeyja, Blönduóss
og Sauðárkróks.
Míllilandaflug: Gullfaxi fer
cil Kaupmannahafnar kl. 8,30 í
fyrramálið.
Úr ýmsum áttum
Fitigfélag fslands:
Farþegaflutningar með flug-
vélum Flugfélags íslands 1 3.príl
mánuði jukust um 25% miðað
við sama tíma í fyrra. Fluttir
voru nú 1116 farþegar, þar af
848 innanlands en 268 á milli
landa. í fyrra var farþegatalan
hins vegar 896.
Vöruflutningar voru miklir í
mánuðinum, og hefir aldrei fyrr
verið flutt líkt því eins mikið
magn af vörum á þessum tíma
árs. Farnar voru fjölmargar
ferðir með fóðurbæti, hey og
ýmsan annan varning til staða,
sem erfitt áttu um allan að-
drátt sökum snjóþyngsla. M. a.
var varpað niður heyi til bænda
í Álftaveri, Hróarstungu og á
Möðrudal á fjöllum. Þá hefir
einnig verið flutt allmikið af
öðrum vörum, "svo sem tilbún-
um áburði, girðingarefni, korn
vörum og saltkjöti. Alls fluttu
flugvélar F. 1. 56.276 kg. af vör-
um innanlands í apríl, og er
það um tífalt meira magn en
í sama mám^ði í fyrra. Þá
flutti Gullfaxi 4093 kg. af vör-
um á milil landa í mánuðinum.
Póstflutningar innanlands
námu 6462 kg. í s. 1. mánuði og
862 kg. á milli landa. Hafa þess
ir flutningar næstum þrefald-
ast borið saman við sama tima
s. 1. ár.
Flugveður var ekki sem hag-
stæðast í apríl, og urðu flug-
dagar þar af leiðandi ekki
nema 22.
Braggarnir við Breiðholtsveg.
Á fundi bæjarráðs á þriðju-
daginn var lagt fram bréf frá
íbúum við Breiðholtsveg, þar
sem var eindregið óskað, að
braggarústir í grennd við hús
þeirra verði hreinsaðar brott.
Máli þessu hefir verið vísað til
borgariceknis..
FÍLACSLÍF
Vormót 1. R.
Síðari hluti fer fram 20. mai
n.k. Keppnisgreinar eru: 200 m
hlaup fyrir drengi og fullorðna,
400, 100, 5000 m hlaup, 110 m
gr. hlaup, 1000 m boðhlaup,
sleggjukast, þristökk og stang-
arstökk. Þátttökutilkynningar
berist fyrir 15. maí n. k.
Gjafir og áheit
sem S.í.B.S. liafa borizt mán-
uðina janúar, febrúar, marz og
apríl.
Janúar: Jórunn Þorsteins-
dóttir, Borgarnesi, kr. 50, kona
í Rangárþingi, 150, Guðmundur j
torsteinsson, gullsm., 100, N. N.
50, I. K„ 500, Jónína Bjarna-1
dóttir, 10, N.N.,15, N.N., 20, Þórð (
ur ^ónsson, Keflavík, 16,30, Þór j
ey Þorleifsdóttir, 40, Þórunn
Jónsdóttir, 40, Sigurgeir Steins- j
son, 50, S. G., 100, Ingibjörg1
I Sigurðardóttir, 440, Guðrún Pét
ursdóttir, 25, Aðalheiður Böðv-
arsdóttir, 10, N. N„ 10. Samtals
kr. 1626,30.
Febrúar: Þorri, 100, G.T., 500,
Jónina Björnsdóttir, 60, Á.S.,
10, frá ísafirði, 30, D.O., 100,
Jóhann G. Sigurðsson, Dalvík,
110, Þorbjörg Jóhannesdóttir, N.
-Þing., 5000, Olga Berndsen. 50,
Helga, 100, Arndís Þorvalds-
I dóttir, 50, N.N. 25, N.N. Ytri-
Njarövík. 50. Samtals kr. 6185.00.
Marz: Sigríður Sigurðardóttir,
S.-Þing„ 1000, Systkini Engil- j
berts Jónassonar, 1000, Gunnar |
Sigurðsson, 17,50, N.N. gefinn!
vinningur, 100, N.N. gefinn sölu
laun, 13,30. Samtals kr. 2130.80.
Apríl: N.N. ísafirði, 100, G.J.,
kranesi, 100, Olga Berndsen, 50,
Gunnlaugur Ingason, 25, N.N.,
100. Samtals kr. 375,00.
Kærar þakkir M. H.
TENGILL H.F.
Sími 80 694
HeiSl vtS Kleppsveg
annast hverskonar raflagn-
lr og viðgerðir svo sem: Veri
smlðjulagnir, húsalagnlr
sklpalagnir ásamt viðgerðun:
og uppsetnlngu á mótorum
röntgentækjum og helmilia-
í vélum.
fi pmm fofit
Á lokadaginn
Það er nýr svipur að færast yfir allt, enda er sjálfur
lokadagurínn í dag. Það var mikill hátíðisdagur meðal
sjómannastéttarinnar fyrr á árum, en hefir nú misst
mikið af svip sínum. Samt er órói í blóðinu. Lokadag-
urinn boðar enn, að sjómennirnir, sem sótt hafa lang-
ar leiðir í verstöðvar sunnan lands, fara að halda heim
til sin eftir langa og stranga útivist. Og heima bíður
þeirra vorið með grænkandi tún og bala og fagnaðar-
bros á vörum á vörum þeirra, sem heima sátu. Litlir
hnokkar munu standa á bryggjunni og heilsa pabba
sínum með feginleik og aðdáun, og við glugga einhvers
húss undir fjallshlíð stendur kannske ung stúlka með
þrá í augum og horfir út á bláan fjörðinn, þar átem
von er báts, er flytur unnusta hennar heim einn morg-
un í maí.
★ ★ ★
Og það eru viðar óvenjulegar hræringar. Það eru
lika merkisdagar hjá skólafólkinu. Unga fólkið úr
héraðsskólanum er að koma heim og rabbar prunkið
við nágrannana á bæjum eða húsunum í kring. Og i
strætisvögnunum í Reykjavík var í þröng af ungling-
um, sem ræddu af miklum alvöruþrunga um rafmagn-
aða fiska, hvalategundir og eiginleika svínanna. Þetta
var örlagaþrungið umræðuefni, því að fyrir höndum
var próf, þar sem veita varð fullnægjandi svör um
þessi merkilegu viðfangsefni.
★ ★ ★
Það er óskandi, að hinir rafmögnuðu fiskar verði
skólafólkinu ekki ofurefli við að kljást, og megi allir
allir þeir, sem í vetur hafa dvalið fjarri heimili sinu
og heimaslóð, eiga góða heimkomu, jafnt sjómenn sem
skólafólk. Verði júnínæturnar í sumar bjartar og heið-
ar, eins og þær sem Þorsteinn Erlingsson kvað um,
og blessaði í nafni hinnar saklausu ástar í dölum ís-
lands. \ j. n.
♦♦♦♦•♦♦•♦»»♦♦»♦♦»♦
• II
♦ »»
| Iðnaðarfyrirtæki íil sölu S
\ Arðvænlegt iðnfyrirtæki til sölu, ásamt vörulager. §
5 Upplýsingar gefur »|
: ' n
Æ«ii* Olafsson, |
: Laugaveg 18 B. — Sími 7373. :|
ztaæxju.
jReykjavík - Kjalarnes - Kjós
Frá Reykjavík:
Mánud., þriðjud., miðvikud., fimmtud., föstud. kl. 6
(18), laugard. kl. 1,30 og kl. 5, sunnud. kl. 8 f. h.
1,30, 7 og 11 e. h.
Frá Hálsi:
Mánud., þriðjud., miðvikud., fimmtud., föstud. og
laugard. kl. 8 f. h. og laugard. kl. 7 e. h., sunnud'
kl. 10 f. h., kl. 5 e. h. og kl. 9 e. h.
Júlíiis Jónsson
Ferðaskrifstofan.
V.V.'.V.Y.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.Y.V.V.W.",
tilkynning!
Fjárhagsráð hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð
á unnum kjötvörum: ' >
í heildsölu
Miðdagspylsur ........... kr. 12.80
Vínarpylsur og bjúgu .. kr. 14.00
Kjötfars .............. kr. 8.40
I smásölu
kr. 15.75 pr. kg.
kr. 17.25 pr. kg.
kr. 10.50 pr. kg.
Reykjavík, 10. maí, 1951
VERÐLAGSSKRIFSTOFAN
-V/.V.V.1
.w.v,
NYTT SMJÖRLIKi
FLÓRA
Ljúffengt, bragðgott og bætiefnaríkt
Frystihúsið HERÐUBREIÐ
Sími 2678
naanai
I
♦
♦
:
:
Byggingafélög
og einstaklingar
Við framleiðum og seljum beint frá verksmiðju:
Hurðir
Glugga
— Karma
Skápa allskonar og innréttingar
Dúklista og þyljur
Innréttum samkomuhús.
Sendum hvert á land sem er. Gerum fyrirfram verð-
tilboð, ef teikningar og verklýsingar fylgja pöntunum.
Samband ísl. byggingafélaga
Byggir h.f.
Símar 7992 og 6069. — Reykjavík.