Tíminn - 11.05.1951, Blaðsíða 4

Tíminn - 11.05.1951, Blaðsíða 4
4. TÍMINN, föstudaginn 11. mai 1951. 103. blað. Svar til Brands Stefánssonar Ef einhvei- hefði sagt við mig fyrir nokkrum vikum, að ég myndi bráðlega fara að skrifa í blöðin, þá hefði ég vafalaust tekið þvi mjög fjarri en þegar ég las grein Brands Stefánssonar í Morg- unblaðinu hinn 20. marz síð- astliðinn þá fannst mér, að ekki væri lengur sætt, enda verð ég að líta svo á eftir lestur þeirrar greinar, að Brandur sé því ekki mótíall- inn að eiga orðastað við fleiri menn hér en Odd kaupfélags stjóra. Því hann getur ekki ætlast til, að samvinnumenn hér séu þau ómenni að svara engu þeim svívirðingum sem hann ber þar á O. S. og reynd ar fleiri. Ef Brandur hefði látið sér nægja að deila um verzlunar* málin við Odd Sigurbergsson, þá hefði ég fyrir mitt leyti getað látið það hlutlaust, en hann fer nú pínulítið lengra sá góði maður, enda er mér næst að halda að nú væri rétt ast fyrir Brand Stefánsson að stinga við fótum, svo notuð séu hans eigin orð, og jafn- framt ætti hann að hugleiða hvort ekki væri hugsanlegt að hans frami gæti orðið meiri á einhverju öðru sviði held- ur en við ritstörf. Ég ætla ekki að ræða mikið um þessa nýju verzlun í Vík. Ég segi ekki félag, blátt á- fram af því, að ég veit ekki hvort svo er, og það vita ekki heldur sumir þeirra, sem standa nær henni en ég. En það er broslegt hvernig Brandur talar um þennan um skipting sinn. Það er blátt áfram eins og hann hafi bjarg að sökkvandi skipi eða óvita frá að leika sér með voða, en gat nokkur séð að Jón Hall- dórsson væri í hættu staddur með sína verzlun? Ég held ekki, enda grunar mig, að þes^i björgunarleiðangur sé gerður fyrir annað fremur en Jón Halldórsson. Eitt er það í grein Brands, sem ég gæti trúað að væri al veg satt, það er að þeir hafi lengi verið myrkfælnir. Það er ekki ósennilegt, en sýnir bara það, að mennirnir eru ekki í góðri birtu. En hvað var það svo sem þeir óttuð- ust? Jú þeir voru hræddir um að þeir gætu ekki fengið hæf an mann fyrir verzlunina. Þetta hélt ég nú, að hefði verið á annan veg. Ég hélt nefnilega að þeir hefðu verið búnir að eiga framkvæmda- stjórann í nokkra mánuði þegar þeir fengu vissu fyrir því að geta stofnað fyrirtæk- ið, en náttúrlega veit Brand- ur þetta nú betur en ég. Þegar Brandur fer að minn ast á óhróður þá efast ég um, að hann athugi hvar hann sjálfur er staddur það er ekki hyggilegt að kasta grjóti, ef menn búa í gler- húsi, en það væri freistandi að spyrja Skaftfellinga hven ær þeir hafi helst orðið varir við óhróður og hver hafi rekið hann og með hvaða meðölum. Annars þarf ég ekki að spyrja. Ég veit þetta alltsaman. En hvernig er það með þig Brand ur? Veizt þú það? Og nú verð ég að spyrja B. S. um. Hvaða áróðursmeðöl hefir Oddur Sigurbergsson og hans fylgismenn notað gegn hinni nýju verzlun, sem eru svo voðaleg, að ekki einu sinni hann getur látið þau á prent? Þetta er þó engin lydda hann Brandur. En af því að ég býst frá Stehtjsóri E* Jóstssyni við, að það standi dálítið á svarinu, þá ætla ég að taka það fram, að þangað til hann bírtir þessi meðöl og sannar notkun þeirra mun ég taka hann sem algerðan óvita. Ég get bætt því hér við, að ég hef engan heyrt tala* illa um þessa nýju verzlun í Vík. Ég tel heldur enga ástæðu til þess. Þetta er lítið og hef ir sjálfsagt ekki mikla þýð- ingu það lakasta, sem ég hef um það heyrt er bara frá mönnum, sem þar eru nú bundnir við, en það var vit- anlega sagt á meðan ekki var búið að koma á þá spottan- um. Brandur talar um úrræðið með miklum hryllingi og má segja að þar verði tvennir tímarnir ekki síður en ann- arsstaðar. Mig minnir nú, að tónninn væri dálítið annar frá þessum herbúðum meðan Hitlers-einræðið stóð með blóma, en það er nú alvana- legt að sá sem tapar í stríði tapi líka sínum fyrri vinum. Brandur segir í grein sinni að Oddur Sigurbergsson vilji fá einkarétt á mannflutning um. Það hefi ég nú ekki heyrt fyr. Það skildi þó aldrei vera, að þarna hafi ruglast nöfnin og standi Oddur þar sem átt hefði að vera Brandur? En nú vil ég spyrja. Hversvegna ekki samkeppni þar eins og í verzluninni? Hitt er svo alveg rétt, að Erandur var brautryðjandi á því sviði og það með mikilli prýði og fyrir það starf var hann líka vinsæll. En þegar ég ber saman Brand bílstjóra og Brand verkstjóra, þá sakna ég þess fyrneínda. Það er nefnilega fleira til, sem hefir afleiðingar, en það að kasta ellibelg. Að síðustu vil ég spyrja Brand Stefánsson. Hvað er það, sem Oddur Sigúrbergs- son hefir af sér brotið síðan hann tók við K. S.? Ég get reýndar farið að dæmi Brands og svarað fyrir hann Oddur hefir stjórnað of vel. Ef hann hefði verið atkvæða lítill og stjórnað illa, þá hefði hann vérið látinn í friði. En nú hefir honum orðið á sú skyssa að stjórna K. S. nokk- uð betur en kokkabækur verzl unaríhaldsins í Vík mæla fyr ir um. Það skal fram tekið, að þessi ummæli eru ekki að neinu leyti meint til Jóns Halldórssonar. Brandur Stefánsson virðist vera kominn að þeirri niður- stöðu, að rógur og illmælgi borgi sig ekki. Um það er ekki nema gott eitt að segja því sennilega verða þeir nógu margir samt, sem halda áfram þeirri iðju. En það má segja skemmtilegra að það sæist víð að ef hann hefir nú höndlað þessi lífssa'hnindi, þá væri ar en á pappírnum. En hitt fæ ég ekki skilið, hvernig hægt er að nefna Odd Sigur- bergsson rógbera fyrir það eitt, að segja sannleikann um verzlunarmálin hér og þá mætti kannske spyrja: Hvað eiga þeir menn að kallast, sem skapað hafa þann sannleika, sem svo er falleg- ur? Því miður kann ég ekki sögu K. S. frá byrjun en vissa kafla úr henni kann ég nokk- uð vel og í sambandi við það, sem er að gerast hér nú, dett ur mér í hug eitt tímabil úr sögu K. S., en það var þegar Þórður Pálmason var kaup- félagsstjóri. Vinnubrögð and stæðinganna eru það svipuð nú, að ekki veröur varist þeirri hugsun, að sagan end- urtaki sig. En ef svo fer, þá held ég, að það verði okkur Skaftfellingum hvorki til sóma né ávinnings. Ég fyrir mitt leyti vildi að minnsta kosti óska annars fremur og þess vegna heita á alla sámvinnu- menn, að sýna nú þann félags þroska sern nægir til þess, að þeir sem búnir eru að safna saman áróðurs meðölum, sem ekki má nefna á prenti, sjái þann kost vænstan að hella þeim niður og umfram allt tökum ekkj við því með þögn að okkar starfsmenn séu sví- virtir fyrir það eitt að rækja vel sitt starf. Sveinn Svejnsson frá Fossi rabbar hér um sauðfjáreign og heyásetning: tslendingaþæftir (Framhald af 3. síðu.) flestum að vera það mikið undrunarefni, hversu marg- þætt og stórfellt verkefni hef ir verið og er innt af hendi á heimili frú Guðrúnar. Þar virðist alltaf vera rúm fyrir gestú Ef það er sannmæli u:n nokkurn, að hann hafi reist skála um þjóðbraut þvera fyrir gesti og gangandi, á það framar ílestum við um heim- ili þeirra Guðrúnar og Páls. Á þfiísum afmælisdegi er- um við vinir og kunningjar írú Guðrúnar, þakklátir fyrir mjcg margt, og minnumst margra ógleymanlegra á- nægjustunda í samstarfi og viðkynningu. Fyrst og fremst þeir. sem enn muna hana og með henni unnu í ýmsri fé- lagsstarfsemi heirna i átt- högunum á fyrsta og öðrum áratug þessarar aldár Það er ef til vill bezt og lengst mun- að. Auk þess eru nernendur og samstarfsmenn manns hgnnar bæði við skóia þá, er hann kenndi í, eða stýrði og úr öðrum starfsgreinum. Þá eru einnig þeir mörgu menn, viðsvegar um landið, sem not ið hafa aðstoðar, hollráða og vinsemdar manns hennar um úrlausn allskonar vandamála, sem minnast einnig frú Guð- rúnar fyrir hlutdeild hennar í þvi. — Margra vandl hefir verið leystur af þeim sameig- inlega og hvoru um sig, Qg bæði céga þau óskiptar þakk- ir fjölda manna fyrlr það. — Vinir og kunningjar frú Guð- rúnar samfagna henni vegna hins mikla starfs, er hún hef ir innt af hendi, samfagna henni yfir því, að hún hefir haft aðstöðu til og ástæður, sem hafa gert henni fært að ná til fjölmargra samferða- manna með leiðbeiningar, góð ráð og margskonar aðstoö, er þeirra hefir mest þurft. Gæf- an hefir verið henni gjöful á marga lund. Hún naut þeirr- ar gæfu. að alast upp á góðu heimili í hópi inargra syst- kina hjá góðum foreltírum. Hún hefir lifað í ástríkri sam búð við mann sinn og mann- vænleg börn þeirra og jafn- framt getað haldið við nánu sambandi við fjölda annarra ættingja sinna og vini. Borgfirðingur. „Mánudaginn 23. apríl talaði alþm. Gísli Guðmundsson um daginn og veginn, og talaði hann um sauðfjáreign landsmanna á i síðari öldum, harðindi og góð- j æri, fjárkláðann og fleiri pestir, svo sem móðuharðindin. Vegna1 alls þessa var fjáreignin mjög' misjöfn að tölu, og var erindið 1 mjög fróðlegt, sem vænta mátti.! Þegar ég var að alast upp í Skaptafellssýslum, töluðu eldri menn mikið um sýkingarpest- ina og svo var líka í minni tíð. Lömb og veturgamalt fé hrundi oft niður frá þvi snemma á haustin og fram eftir vetri, og var oft af því mikið tjón. Stund um var líka skita og ormar, svo ekkert varð ráðið við, þar til að ormameðalið og bólusetningar- meðalið kom til sögunnar og er það ómetanlegt fyrir sauðfjár- eigendur, og verður um alla framtíð. Gísli Guðmundsson talaði líka um hvaða þýðingu sauðfjáreign in hefði haft fyrir líf þjóðarinn ar og þaö gerði líka Bjarni Ás- geirsson í útvarpserindi hér um árið. Lýstu þeir með fögrum orðum, hvað sauðkindin hefir fætt og klætt fólkið í landinu. Og enn í dag er það svo, að engar afurðir bænda eru eins dýrar og í háu verði eins og afurðir sauðkindarinnar, og þeg ar fráfærurnar tíðkuðust, þá var sauðamjólkin aðal bætiefni fólksins í sveitunum, sumar og vetur — með skyri, osti o. s. frv., fyrir utan alla þá skemmtun og ánægju, sem fólk hefir haft af að fást við sauðfé, vetur, sumar, vor og haust, og börnin sem ólust upp við sauðfé, hlökk uðu ekki til neins eins mikið og smalamennsku, haust og vor, og margur fjármaðurinn hefir lif- að einar af sínum mestu ánægju stundum við fjárhirðingu. Það er því sorglegt til þess að vita, að alltaf skuli sauðkindin hafa lifað í hættu fyrir fóður- skort, hvenær sem hefir ábját- að með tíðarfar, vetur og vor, og allt fyrir skakkt búskaparlag, samanber það, að alltaf hefir einn og einn bóndi komizt af með hey á hverju sem hefir gengið með tíðarfarið, og þó með líkar aðstæður og fjöldinn, bæði með slægjur og fólk o. fl. Auðvitað er þetta víða að lagast bæði fyrir breytingu á hugsunar hætti fólksins, vélamenningu og ræktunarskilyrðum með tilbú- inn áburð, fóðurbæti o. s. frv. En betur má ef duga skal. Það þarf að verða almennt á landi hér, að allir, sem eiga lifandi skepnur eða fénað, setji hann ekki á vogun. Að vísu segir mál- tækið, að vogun vinnur og vogun tapar, enda hafa líka margir bændur um dagana notað sér það, stundum grætt á því, en oftar tapað á því og það aleigu sinni, og liðið við það sálarraun ir og haft fyrir það amstur og áhyggjur og fjárhagslegt tjón, sem seint eða aldrei hefir verið hægt að bæta upp. í grasleysis árum eða á rosasumrum hafa oft verið erfiðleikar að afla heyja og þá að haustinu verið lítil hey og léleg, og annað hvort orðið að stórfækka fénaði eða setja hann á vogun, en hvorug- ur kosturinn er góður, en ef að sá kosturinn er tekinn, að setja á vogun, og ef þá yrði snjóavet- ur og hart vor, þá sjá menn í hendi sér úrslitin — með öllum þeim kostnaði, afurðatapi meira og minna og ef til vill að fella allann stofninn. Betra hefði ver ið að taka fyrri kostinn: að fækka fénu það mikið að haust inu, að því væri óhætt, sem á er sett, þó vetur og vor yrði hart og fá af því góðar og tryggar afurðir. Dæmi: Bóndi telur sig þurfa að setja á vetur 200 ær, og væri góður með það í meðal vetri og góðu vori, en hefði ekki fóð- ur nema fyrir 100 ær í vondum vetri og hörðu vori. Auðvitað græddi hann á því að setja á 200 ær, ef veturinn yrði mildur og vorið gott, en ef veturinn og vorið yrði vont, þá hlyti sá bóndi að fara illa út úr því, með ærnum kostnaði, afurðatapi, og ef til vill fjármissi. Þá kæmi í ljós, að sá bóndi, sem ætti framgengnar 100 ær vel fóðrað ar og afurðaríkar, væri orðinn mikið stöndugri að vorinu, en sá bóndi, sem að haustinu átti 200 ær. Sama gildir, hvort bónd inn er ríkur eða fátækur. Allur óvarlegur ásetningur á vog- un vegna fóðurskorts í harðind um hefnir sín og gerir hann blá fátækan áður en hann veit af. Fyrir utan alla þá raun, sem því fylgir að lenda í fóðurskorti fyrir fénað sinn í harðindum. En sá bóndi, hvort sem hann er ríkur eða fátækur, sem ekki set- ur á fleira fé en það, að hann geti gefið því mest allan vetur- inn og vorið fram yfir fardaga, ef því er að skipta, stendur traustari fótum efnalega, en hinn bóndinn, þó að hann hafi til jafnaðar færri fénað og græði minna á góðu vetrunum. f dag las ég í Tímanum, að bóndi á Norðurlandi, sem seldi sauðfé sitt sökum brottflutn- ings, fékk fimm hundruð krónur fyrir kindurnar upp til hópa, ær og gemlinga, nú um sumar- málin. Já, það er dýrt að kaupa sauðfé núna, og dýrt að missa það. Fyrir eina kind fæst nú á dögum verð, eins og fyrir tvær snemmbærur til samans, ekki íyrir svo ýkjamörgum árum, og þó að dýrtíöin, og hækkunin sé mikil á öllu dauðu og lifandi, þá held ég að sauðkindin skari þar fram úr öllu í samanburði við það, sem áður var með verð lag. Það er því mikið í húfi að sauðféð falli ekki fyrir fóður- skorti, enda eru ráðamenn þjóð arinnar farnir að hafa af því miklu meiri afskipti en áður var, og er það vel farið. Mér finnst að þeir ráðherrar, sem sitja nú i ríkisstjórn landsins, hafi með sér góða samvinnu að styrkja hvern annan. Hermann Jónasson hefir nú land- búnaðarmálin í sínum verka- hring. Mér finnst, að bændur landsins, hvaða stjórnmálaflokki sem þeir tilheyra, geti einmitt borið traust til hans, að ráða fram úr þessu vandamáli, sem hér hefir verið gert að umtals- efni og komið hey-á-setningar- málinu á traustan grundvöll. Það skal enn játað, eins og fyrr er tekið fram, að alltaf eru bændur til, sem aldrei bila með hey, hvað hörð sem tíðin er. Bændur landsins eiga að vera sómi þjóöarinnar, en það eru þeir ekki, nema þeir séu traust ir landbúnaðarmenn, en það geta þeir ekki kallazt, nema þeir hafi allan sinn fénað eða skepnur vel tryggðar með fóður í harðindum“. I þessu sambandi vil ég spyrja menn, hvort þeir muni yfirleitt eftir mörgum bændum, sem illa hafa bjargazt og þurft hjálpar með, hafi þeir aldrei komizt í heyþrot. Það svipast hver um hjá sér. Starkaður gamli. GERIST ASKRIFIMH R AÐ TIM ANUM. - ASKRIFTASIMI 2323.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.