Tíminn - 11.05.1951, Blaðsíða 7
103. blað.
TÍMINN, föstudaglnn 11. maí 1951.
7
Þorlákshöf n
(Framhald af 8. síðu.)
Yfir allri byggingunni en4!
loft með timburgólfi, sem not
að er fyrir veiðarfæra og
birgðageymslur útgerðarinn-
ar.
Þessi mikla bygging er ris-
in upp af viðum dönsku ein-
okunarhúsanna á Eyrabakka
og ekki notað annað timbur
í hana en þaðan fékkst. Eru
hin gömlu einokunarhús ris-
in í nýrri og veglegri mynd í
höfn hins heilaga Þorláks,
þar sem þau eiga að taka virk
an þátt í uppbyggingu at-
vinnulífsins á grundvelli
frjálsra félagssamtaka hins
unga lýðveldis.
Við hliðina á þessum ris-
miklu og tígulegu bygging-
um er komið fullkomið fisk-
þurrkunarhús, þar sem notuð
verður follkomnin tækni til
að gera Þorlákshafnarfiskinn
að góri og eftirsóttri vöru á
erlendum mörkuðum.
Á bakkanum fyrir framan
er svo fiskimjölsverksmiðjan,
sem vinnur úr fiskúrgangin-
um, allt að fimm smálestir
af mjöli á sólarhring, og skil
ar nú um 160 lesta vinnslu
eftir vertíðina. Er það ánægj u
leg hagnýting verðmæta, sem
annars myndu að litlu. gagni
koma. Við hliðina á fiski-
mjölsverksmiðjunni er lýsis-
bræðsia, búin fullkomnum
tækjum, sem fullvinnur lifr-
ina. Að vertíð lokinni eru um
570 lýsistunnur úr afla Þor-
lákshafnarbáta.
Hafnarmannvirkin ónóg.
Eins og sakir standa skera
takmörkuð hafnarmannvirki
útgerðinni í Þorlákshöfn
þröngan stakk. En vonir
standa til, að úr því verði
byrjað að bæta á þessu
sumri.
Hafnargarðurinn, bryggjan
sem byggð var 1949, reynist
vel og stendur af sér gustinn
frá Atlanzhafinu, en er ekki
nema 110 metrar að lengd og
þar fá aðeins fjórir bátar
fullnægjandi skjól á bátaleg
unni.
Með fyrirhugaðri lengingu
bryggjunnar skapast skilyrði
til aukinnar útgerðar báta
þeirrar stærðar, sem ekki eru
settir á land. Að fenginni
þeirri lengingu garðsins, sem
fyrirhuguð er, geta stór flutn
ingaskip auðveldlega og á-
hættulaust lagzt að bryggju í
Þorlákshöfn, flutt þangað vör
ur beint frá útlöndum og tek
ið aftur innlendar afurðir til
útflutnings.
Gott búsílag.
í dag á lokadaginn er bú-
sældarlegt um að litast í Þor
lákshöfn að aflokinni góðri
vertíð. Gildir staflar af hvít-
um og fallegum saltfiski fylla
hvern krók og kima í fisk-
geymsluhúsunum. Lýsis- og
síldartunnur fylla húsasund
og sléttar grundir og fiski-
mjölssekkjum er staflaö upp
undir mæni við hliðina á
vinnsluvélunum.
Þeir, sem unnið hafa að
þessari framleiðslu, bera
meira úr býtum en algengast
er á þessari vertið í öðrum
verstöðvum, og tekjur þeirra
aflahæstu, nálgast, það að
vera ævin(týra.\5gar. Þannig
munu aflahlutir aflahæstu
skipstjóranna vera í kring-
um 40 þúsund, og hásetahlut-
ir manna þeirra um 20 þús-
und krónur frá þvi um mán-
aðamótin janúar og febrúar.
Reynzlan í vetur hefir hins
vegar sýnt, að ekkí er hægt
að treysta á útgerð opinna
báta með öruggri afkomu fyr
ir augum. Bátar í kringum
20 lestir virðast vera sú stærð,
sem hentugust er til sjósókn-
ar við þau hafnarskilyrði, sem
nú eru i Þorlákshöfn.
Með gæfu hins heilaga
Þorláks í stafni.
Þeir sem unnið hafa að
endurreisn Þorlákshafnar,
setj a markið hátt. Þeim næg
ir ekki að sjá síldar- og lýsis
tunnur fylla húsasund, fiski-
húsin full út úr dyrum og
mannhæðarháa stafla af
fiskimjöli. Fólkið á Suður-
landsundrilendinu hefir hugs
að sér að gera þennan stað
að höfuðborg sinni við sjóinn,
höfuðborg, þar sem drekk-
hlaðnir bátar flytja væna
þorska að landi fram á vor
og slifurlitað síldarhreistrið
skreytir götur og torg að sum
ar- og haustlagi — höfuðborg,
þar sem brjóstmikil hafskip
koma og fara árið um kring,
flytjandi varningin heim og
færandi fjarlægum þjóðum
afurðir af frjóum .sléttum Suð
urlandsundirlendisíns og úr
hafinu úti fyrir.
Og við skulum líka vona,
slíkur bær eigi Þorlákshöfn
eftir að verða, því að eitt er
víst, að íslenzkur dugnaður
og framsýni er við stýrið og
gæfa og blessun hins heilaga
Þorláks í stafni. — gþ.
FJÁRSÖFNUN
Barnavinafélagið Sumar-
gjöf fékk rösklega 143 þúsund
krónur í tekj ur á sumardag-
inn fyrsta. Voru þá 1175 sölu
börn á vegum þess, og varð
söluhæstur Sigurður Stefán
Helgason, Snorrabraut 81.
Hann seldi fyrir 755 krónur.
Hundrað börn fengu bóka-
verðlaun fyrir frammistöðu
sína.
ísak Jónsson hefir beðið
Tímann að færa öllum, sem
unnu fyrir Sumargjöf eða
studdu hana á annan hátt á
sumardaginn fyrsta, og svo
almenningi fyrir góðar und-
irtektir, hinar alúðarfyllstu
þakkir félagsins.
Franskir vísinda-
menn á leið til
Grænlands
í fyrradag lét úr höfn í
Reykjavík norska skipið
Skallabjörn, sem hingað kom
á leið til Grænlands með
menn úr franska leiðangrin-
um á Grænlandsjökli, og vist
ir og útbúnað handa honum.
Hafði það nokkurra daga við
dvöl í Reykjavík.
Skipið siglir héðan vestur
til Grænlands og fyrir Hvarf,
og síðan norður með vestur-
ströndinni, allt norður á 70.
breiddargráðu. Þar munu leið
angursmenn fara á jökulinn
á skriðbílum og stunda í
sumar þykktarmælingar á
mjög stóru svæði.
Viðbúið er, að Frakkar geti
ekki haft vetursetu á Græn-
landsjökli næsta ár sökum
féleysis, en munu væntanlega J <
halda áfram rannsóknum að
sumri.
Áætlunarferðir
norður
(Framhald af 1. síðu.)
í Öxnadal klukkan um sex í
gærdag.
Töldu bílstjóarnir færðina
betri en búizt var við
í gær var byrjað að ryðja
snjó af veginum yfir Öxna-
dalsheiði. Norðurleiðir mun
hafa vetrarbíla í förum yfir
heiðina á meðan hún er ekki
fær venj ulegum farartækj -
um. Verður næstá áætlunar-
ttbroiðið Tíiuaim.
Maltextraktö!
BJór
Pilsner
Spur Cola
Engiferöl
Appelsínuiímonaði
H.f. Ölgerðin
Egill Skallagrímsson
Reykjavík. Sími 1390. Símnefni Mjöður
Kunnur Húsvík-
ingur látinn
Sigfús Jóhannesson frá
Húsávík andaðist í Revkja-
vík 9. þessa mánaöar eftir
langvarandi vanheilsu. Sig-
fús var vel þekktur borgari í
Húsavik og um langt skeið
starfsmaður í Kaupfélagi
Þingeyinga.
ferði frá Akureyri á laugar-
dag og sama dag verður
sennilega farið líka norður
með farþega frá Reykjavík.
SeglSu steinínum
Sýning í I'ðnó í kvöld kl. 8
Aðgönumiðar seldir frá ki. 2
í dag. Sími 3191.
BÆNDUR
*
Nær 30 þnsund Is-
lendingar við nám
í vetur
Á skólaárinu 1950 —1951
voru 26479 nemendur í 329
skólum. En séu þeir, ,sem
stunda nám í námsflokkum
Reykjavíkur, bréfaskóla B.Í.S.
njóta útvarpskennslu eða
stunda nám erlendis, taldir
með, eru nemendur 29314.
Af þessu fólki voru 16218 í
214 barnaskólum, en næstir
eru gagnfræðaskólarnir 15
með 3150 nemendur, seytján
iðnskólar með 1209 nemendur,
tveir menntaskólar með 769
nemendur, átta héraðsskólar
með 767 nemendur, tveir
handiða- og myndlistarskólar
með 670 nemendur og há-
skólinn með 620 nemendur.
í bréfaskóla S.Í.S. eru 1370
nemendur.
Kennafar eru alls 1518, þar
af 909 fasíir kennarar.
Húðir og skinn eru nú i háu verði. Vandið því sem
bezt alla verkun þeirra. Umfram allt verður að vanda
vel fláninguna. Hver hnífrispa eða skurður í húðina
gerir hana verðminni. Farið hreinlega með húðirnar,
þegar slátrað er og látið þær kólna sem fyrst, án þess
að holdrosinn skurni. Saltið húðirnar strax eftir að þær
eru orðnar kaldar og áður en holdrosinn byrjar að
þorna. Sé dregið að salta, gengur saltið ekki eins vel
inn í húðina, en það er skilyrði fyrir góðri geymslu
að húðin gegnumsaltist á sem skemmstum tíma. Þegar
saltað er, verður vandlega að breiða úr öllum skækl-
um og jöðrum og dreifa saltinu vel yfir alla húðina. —
Eftir því sem skinnið er þykkra þarf meira salt. Fyrir
hver 3 kg. af hráhúöarvigt þarf sem næst 1 kg. af salti.
Mikið salt gerir aldrei skaða og er þvi betra að salta of
mikið en of lítið. Notíð ávallt hreint salt.
Nýsaltaðar húðir má ekki brjóta saman í búnt til að
geyma þannig. Þær eiga að liggja flatar, lítið eitt hall-
andi, svo að hið blóði blandaða vatn, sem saltið dregur
úr húðinni, geti runnið burt. Má salta þannig hverja
húðina ofan á aðra í stafla og snúa holdrosanum upp
á hverri húð. Húðirnar verða að liggja þannig í stafla
þar til þær eru gegnsaltaðar, en það tekur venjulega
1—2 vikur. Þá má, þegar hentugt þykir, taka þær upp
og búnta til flutnings eða geymslu.
Athugið leiðbeiningar þessar nákvæmlega hver og
einn og Ieitist við að fara eftir þeim í öllum greinum.
Það tryggir yður hæst verð fyrir húðirnar.
] Samband ísl.samvinnufélaga
l
SKipAirraeKo ; RIKISINS
„Skj til Snæl iald ;breið“
i 'ellsneshafna, Gils-
fjarðar og Flateyrar hinn 18.
þ. m.“ Tekið á móti flutningi
á þriðj udaginn. Farseðlar
seldir á miðvikudag.
M.s. ESJA
fer héðan í skemmtiferð fyr-
ir starfsmannafélag Keflavik
urflugvallar um hvítasunn-
una. Fer skipið héðan kl. 11
árdegis á morgun (laugar-
dag) og kemur aftur á hvítai
sunnudagskvöld. 16 farpláss
eru laus. Nánari upplýsingar
í skrifstofu vorri.
Raflagningaefni
Vír, einangraður 1,5 qmm.
Vír, einangraður 4 qmm
Gúmmíkapall 3x4 qmm.
Vír, einangraður 2,5 qmm.
Gúmmíkapall 2x0,75 qmm.
---“—— 2x1 qmm.
---“--- 4x2,5 qmm.
Glansgarn 2x0,75 qmm.
Nýkomið.
Véla- og raftaekjaverrluHin.
Tryggvagötu 23. Sími 81 279
I