Tíminn - 05.06.1951, Page 3
122. blað.
TÍMINN, þriðjudaginn 5. júní 1951.
íslendingaþættir
Dánarminning: Ólafía Ólafsdóttir
„Dauðinn er lækur, en lífið
er strá,
skjálfandi starir það straum-
fallið á.“
Svo kvað þjóðskáldið Matt-
hías fyrir löngu. Látlaust og
óstöðvandi streymir hin
dimma móða ,sem hrífur með
sér mannslífin og ber þau á
brott tíl hins mikla, ókunna
lithafs. En hinir, sem enn
er hlíft, standa eftir á bakk
anum með hugann fullan af
söknuði og glíma við ráðgát-
una miklu: Hvers vegna?
Hvert?
Þetta er i dag hlutskipti
ástvina Ólafíu Ólafsdóttur,
þegar jaröneskar leifar h«nn
ar eru bornar til hinztu hvíld
ar. — Ég tel mig ríkari og
lánsmann að rneiri, að hafa
átt þess kóst, að kynnast Ól- ’
afíu Ólafsdóttur, og við þessi j
miklu þáttaskil sækja fast
á hugann minningarnar frá
mörgum glöðum og góðum j
stundum á heimili hennar og
eiginmanns hennar, Sæmund (
ar Eggertssonar. Ég held ég,
mæli ekki um óf þótt ég
segi, að þar átti hamingjan
heima.
í fari húsfreyjunnar og
öllu fasi þóttist ég strax
firina óvenjulega mikið af
hlýrri, sannri einlægni og
hispursleysi, eitthvað, sem
er í ætt við heiðfíkju og
glaðan og Ijúfan andvara
þessara fýrstú' júnídaga. Hún
var ríkulega gædd þeim eðl-
iskostum, sem Þorsteinn Er-
lingsson fann hjá vini sín-
um, þeim, er hann kvað til:
„Því það var þinn hiklausi
hugur,
og hlýjan, sem dró mig að
þér.“
VÆrðmæti eru margvísleg
og við eignumst þau með
ýnisum hætti. Kynningin við
góða menn og konur eru okk
ur sífelldur unaðsgjafi, er við
lítum yfir farinn veg. Það
er trúa mín, aö svo fari um
minningu Ólafíu Ólafsdóttur.
Þeir ,sem hana þekktu, munu
geyma þau kymii efns og
„sólskinsblett í heiði', og auð
legð þ\rra minninga mun
slæva eggjar hins bitra
hanns, sem nú er kveöinn að
ástvinum hennar.
Og þú, góði vinur, sem átt-
ir hana að iífsförunaut, mér
veröur orðfátt, er ég hugsa
til þín. Þyí að hvaö megna
orðin ein og yfirlýsingar um
hluttekningu og samúð, þótt
af heilum huga sé mælt? —
Mér er ljóst, að það er satt,
að
„Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tungu,
tárin eru beggja orð.‘
En hitt veit ég líka, að
samt ertu ríkur i sorg þinni.
Ríknr af elskulegum minnr-
ingum frá samvistum ykk-
ar. Þar áttu dýran sjóð, sem
ekki verður frá þér tekinn.
Það er sannmæli, að þótt sá,
sem missir ástvin sinn, eigi
mikils að sakna, þá er hinn
stórum snauðari ,sem aldrei
eignaðist slíkan vin. — Tím-
inn, hinn mikli læknir sorg
ar og trega, mun vinna sitt
verk. Og þessum fátæklegu
orðum vil ég ljúka með þeirri
ósk, að þú getir tekið undir
með skáldinu, sem sagði:
Sorgárkjör mér svíða gerði,
samt ei vann mér slig.
Lífssteinn var í sáru sverði,
sem að græddi mig.
Frímann Jónasson.
Reykjavík—Akureyri
VÖRUFLUTNINáÉR MEÐ BIFREIÐUM
Vörumóttaka daglega hjá Frímanni, Hafnarhúsinu.
Pétur & Valdimar h.f.
Akureyri.
Reykjavík—Dalvík
VÖRUFLUTNINGAR MEÐ BIFREIÐUM
Vörumóttaka daglega hjá Frímanni, Hafnarhúsinu.
GUNNAR JÓNSSON
Dalvík.
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS
Drengjamót
Ármanns
Seinni hluti Drengjamóts
Ármanns fór fram á laugar-
dag. Árangur drengjanna var
ekki eins góður og fyrri dag-
inn, og má segja, að aðeins
í tveimur greinum hafi ár-
angurinn verið viðunanleg-
ur. Þorvaldur Óskarsson ÍR
hljóp 400 m. á 53,7 sek., sem
er ágætt afrek, en annar varð
Svavar Markússon KR,
hljóp á 54,5 sek. í þrístökki
sigraði Helgi Daníelsson ÍR
(markmaður Vals í meistara-
flokki) stökk 13,16 m. Helgi
er kröftugur stökkvari og
gæti ef hann æfði vel þrí-
stökk náð langt að minnsta
kosti ætti hann að geta stokk
ið 14 m. mjög fljótlega .
í 3000 m. hlaupinu sigr-
aði Gunnar Valur, Ármanni,
hljóp á 10:27.4 mín., tími, sem
hann ætti að geta bætt mik-
ið. Gunnar virðist bráðefni-
legur langhlaupari.
Úrslit í einstökum grein-
um:
Stangarstökk:
1. Kristj. Sigurjónss. ÍBA 3.00
2. Þórður Magnúss. ÍBV 3.00
3. Bjarnj Guðbrandss. ÍR 2,93
400 m. hlaup.
1. Þorv. Óskarss. ÍR 53,7 sek.
2. Svavar Markúss. KR 54,5 —
3. Jóh. M. Maríuss. KR 59,9 —
Kringlukast:
i 1. Magnús Láruss UMSK 41,38
2. Ól. Þórarinss. FH 40,71
3. Ásgeir Óskarss. Á 39,28
3000 m. hlaup
1. Gunnar Valur Á 10:27,4
2. Kristinn Jóh.s. FH 10:36,0
3. Þorst. Steingr.son Þ 10:47,0
Þrístökk:
1. Helgi Daníelss. ÍR 13,16 m.
2. Dan. Halldórss. ÍR 12,65 —
3. Ingv. Hallst.son FH 12,37 —
1000 m. boðhlaup:
1. Sveit ÍR 2:10,4 mín.
2. Sveit KR 2:12,5 —
Yfirleitt eiga Reykjavíkur-
félögin mjög jafngóðum
drengjum á að skipa ,en mest
breiddin er hjá ÍR, t. d. voru
sox ÍR-ingar, sem komust í
rnilliriðil í 80 rn. hlaupinu af
átia. ÍR átti sigurvegara í
fjórum greinum, KR þremur,
Áimann tveimur og utanbæj
ardrengir báru sigur úr být-
um í tvfcimur greinum.
Haukur 10,8 sek. — Jóel 62 m.
í sambandi við drengja-
rr.ót Ármanns kepptu nokkr-
ir íþróttamenn, sem komnir
eru af „drengiaa'.d-4.‘. Hauk-
ur CJousen liljóp nú 100 m.
í íyrsta skVp*i i sutnar o^
náði mjög góðum árangrí,
10,8 sek. Haukur hljóp prýði
lega, og sýnir timinn vel aö
hann verðut ekki síðri í sum
ar, en í fyrra, en þá setti
hann nýtt Norðurlandamet í
200 m. hlauþi, eir.s og kunn-
ugt er. Um enga samkeppni
var að ræða, þar sem næsti
maður, Ingi Þorstemsson,
hljóp á 11,7 sek. í spjótkasti
sýndi Jóel Sigurðsson mikla
framför frá fyrri mótunum í
sumar, kastaði nú yfir 60 m.
eða nánar tiltekið nákvæm-
lega 62,00 m. Jóel hefir enn
ekki tekizt að laga atrennuna
sem skyldi, einnig virðist
hann mun þyngri en í fyrra.
Þá var einnig keppt í kringlu
kasti og var Gunnar Huscby
meðal keppenda, og hefir
hann náð sér eftir veikind-
Sparneytin
olíukyndingartæki
Undanfarin 10 ár hefir mik
il breyting orðið á upphitunar
aðferð íbúðarhúsa í landinu.
Þegar hitaveita Reykjavíkur
tók til starfa, og menn fréttu
af þeim þægindum, sem henni
voru samfara, fóru þeir víðs
vegar um land að leita fyrir
sér um það, hvernig það mætti
takast að fá hitunarkostnað-
inn lækkaðan samanborið við
kolaverð, og ennfremur hvern
ig hægt væri að koma því fyr
ir, að húsfreyjurnar þyrftu
ekki að byrja á því að moka
ösku hvern morgun úr mið-
stöðvarkatlinum.
Það var með hliðsjón af
þessu, að Björn Magnússon,
járnsmiður í Keflavík tók að
gera tilraunir með smíði olíu-
kynta miðstöðvarkatla fyrir
um 8 árum síðan. Frá því að
hann byrjaði þessa fram-
leiðslu, hefir hann framleitt
um 1500 af þessum kötlum.
Gerð þeirra er fyrst og fremst
miðuð við að gefa góðan hita,
vera sparneytnir og öruggir í
notkun, Nokkrar breytingar
hefir hann gert á kötlunum
síðustu árin, sem allar miða
því að aðó spara olíuna og hag
að því, að spara olíuna og hag
tekizt mjög vel að dómi hinna
mörgu viðskiptavina hans.
Fyrir nokkru bauð Björnl
nokkrum mönnum að skoða
katla þá, sem hann framleiðir j
nú, en þeir hinir sömu höfðu
að vísu þekkt þá áður, og marg,
ir þeirra notað þá undanf arin !
ár. Eru katlarnir laglegir i út- j
liti, og greinilegir miðað við
það að vera hagnýtir. Undir
sívalri, vatnskældri kápu er
eldstæðið, „brennarinn“, þar
sem brennsla olíunnar fer
fram. Olían rennur inn í eld-
stæðið frá sérstakri gerð olíu
stillis, sem hægt er að stilla
á mikla eða litla olíugjöf eft-
ir þvi, hversu mikinn hita á
að fá á miðstöðvarkerfið. í
brennaranum myndast gas, og
flögra logarnir á því upp um
vatnskældu fletina innan í
katlinum. Hitauppstreymi um
ketilinn mætir það miklum
hindrunum innan í honum, að
mjög lítill hiti tapast út í
reyháf. Katlarnir eru fram-
leiddir í 3 stærðum nr. 1, 2
og 3, eftir stærð íbúöar, sem
hita á upp.
Kostir þessara katla eru
fyrst og fremst þeir, að þeir
eru ódýrir í innkaupi, ca.
2400.00 kr., þeir eru óháðir
rafmagni, gefa góða brennslu
olíunnar, trekkur er hæfilegur
í þeim, en hann stillist „auto-
matiskt* af tréspjaldi utan á
reyröri, þeir eru sparneytnir
og öruggir í notkun.
Undanfarið hefir borið á
auglýsingum ýmissa framleið
enda á olíukynntum miðstöðv
arkötlum. Hefir kostum þeirra
katla verið lýst vel og ræki-
lega. Björn Magnússon hefir
ekki hirt um að auglýsa fram-
leiðslu sína á annan hátt en
þann, að láta reynsluna skera
úr um notagildi katla hans.
Eftirspurn eftir kötlum
Björns hefir frá því fyrsta
verið meiri en að hann gæti
fujlnægt henni. Hefir hann í
höndum skýr og skorinorð
in. Huseby kastaði 47,14 m.
nákvæmlega sama lengd og
fyrsta metið, sem hann setti
í kringlukasti í fyrravor, en
siðan bætti hann það smám
saman í 50,13 m. Þorsteinn
Löve varð annar, kastaði
tæpa 46 m.
vottorð um katla sína frá ýms
um viðskiptavinum, sem allir
láta mikið af þvi, hve ánægöir
þeir séu með þá reynslu er
þeir hafa fengið af „BM“ katl-
inum, en það merki er stað-
fest á kötlum Björns af Véla-
og verksmiðjueftirliti rikis-
ins.
Eins og að framan segir
hafa „BM“ katlar reynzt sér-
staklega sparneytnir. Skal 1
því sambandi skýrt frá því,
að um daginn var þess getið í
auglýsingu, að skipt hefði ver
ið um brennara í blásarakatli
í íbúð í Bústaðavegshúsunum
í Reykjavík. Hefði gamh b-renn
arinn eytt 30 litrum á sólar-
hring, en ný gerð brennara
frá öðru fyrirtæki hefði fariö
niður í 22 lítra á sólarhring,
hvort tveggja miðað við 50
stiga hita. í tveim íbúðum í
húsum þessum eru ,.BM“ katl-
ar, og hefir eigendum þeirra
reynzt þeir mun sparneytnari
en þetta, skv. vottoröi er þeir
hafa gefið Birni, en samkv.
því eyða þeir tæpum 14 litrum
á sama tíma með sama hita-
stigi. Mun þetta vera nokkuö
hliðstætt því, sem viðskipta-
vinir Björns hafa komizt að
raun um yfirleitt.
Einn af viðskiptavinum.
PS. Eftirfarandi bréf hafði
Éirni Magnússyni járnsmið
borizt nýlega, og er rétt að
birta það hér sem eitt af mörg
um, sem honum hafa borizt
frá mönnum, sem keypt hafa
miðstöðvarkatla af honum.
Akureyri, 7. maí 1951.
Herra Björn Magnússon,
Keflavík.
Það hefir dregizt of lengi
fyrir mér að senda yður línu
og.þakka yður fyrir olíukynd-
ingarketilinn, er þér senduð
mér í haust. En það sem vakti
mig af mókinu var grein í dag
blaðinu „Tíminn“, laugardag-
inn 5. þ. m., þar sem fylgir
vottorð um ágæti olíukynding
arketils frá Ól. Ólsen, Njarð-
vík. Er þar umsögn um nota-
gæði og olíueyðslu ketils þessa.
Er sú umsögn öll hin glæsi-
legasta. Fór ég þá að bera
saman lýsingu þessa og reynsl
una af mínum katli, frá yö-
ur, og það sem ég hefi að segja
um þá reynslu, er þetta :
Ég byrjaði að kynda með
honum 2. nóv. sl., og gerði ég
athugunina til 30. apr. sl. Hit-
að er upp á aðalhæð hússins,
og að auki ein hæð á neðrí
hæð. Gólfflötur þessara íbúða
er samanlagt 149,6m'-’. í ofn-
unum eru alls 260 eliment með
hitunarfleti 6335m-. Stofuhiti
á daginn 16—20 stig.
Olíueyðsla til jafnaðar á
dag, var umrætt tímabil 20,8
lítrar.
Nú er þess að gæta við sam
anburð á katli kynntum í
Reykjavík og öðrum á Akur-
eyri, að hér er meöalhiti mun
lægri en í Reykjavík. Annað
er það í sambandi við minn
keti), að þar er ekki um
neina rafmagnseyðslu að
ræða, og kyndingin því ekki
á neinn hátt háð rafmagn-
inu, sem hefir komið sér mjög
vel hér á Akureyri, eins og
það er oft ótryggt á veturna
vegna ótíðar og snjóa. Sem
sagt, ég er mjög ánægöur
með ketilinn minn, og virð-
ist ekkert enn hafa fram
komið, sem bendi til þcss, að
aðrar tegundir olíukyndingar
katla taki mínum fram. Hann
(Framhald á 6. síðu.)