Tíminn - 05.06.1951, Side 8
„ERLEIVT YFIRLiT“ í DAG:
Maðurinn er verUfteri
35. árgangur,
Reykjavík,
„4 FÖRMJM VEG1“ í DAG: *
Skólateshan — sveitastörfin
5. júní 1951.
122. blaff.
Ein fjölsóttustu hátíðahöld
sjómanna í Reykjavík
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur í hafnarbæjum
víðs vegar um landið á sunnudaginn. Voru hátíðahöldin hvar
vetna vel sótt og fóru hið bezta fram. Veður var gott og dag-
urinn hinn ánægjulegasti fyrir sjómenn og alla þá, sem sam-
fögnuðu þeim á þessum hátíðisdegi þeirra.
Ein þau fjölmennustu
í Reykjavík.
í Reykjavík voru hátíða-
höldin á sunnudaginn ein
þau fjölmennustu, sem verið
hafa frá því farið var að
halda daginn hátíðlegan. —
Kappróðurinn og sundkeppn-
in fór fram á laugardaginn
eins og ráð hafði verið fyrir
gert, enda fóru hátíðahöldin
fram samkvæmt áætlun
þeirri, sem birt var í Tíman-
um fyrir helgina. Úrslit í í-
þróttakeppnunum urðu þau,
að björgunarsundið vann Sig
urður Þorsteinsson, skipverji
á Þorsteini Ingólfssyni,
stakkasundið vann í sjötta
sinn Jón Kjartansson á Sel-
fossi, reiptogið vann sveit frá
bæjarútgerð Reykjavíkur,
kappróðrana unnu skipshafn
irnar á vitaskipinu Hermóði
og vélbátnum Víði og Hilm-
ar Jónsson, bátsmaður á tog-
aranum Akurey, sigraði í neta
bætingum og- vírafléttingum.
Tlm sex þús. á íþróttavellinum
Skrúðganga sjómanna var
með allra fjölmennasta móti
og mikill fjöldi bæjarbúa, sem
safnaðist saman á Austur-
velli.
Að afloknum hátíðahöld-
unum þar, fór fram íþrótta-
keppni úti á iþróttavelli. —
Kepptu þar skipshafnirnar
af Gullfossi og Goðafossi i
knattspyrnu. Fóru leikar
þannig, að skipverjar á Goða
fossi unnu með tveim mörk-
um gegn einu. Bar markmað-
ur Goðafossmanna af öðrum
liðsmönnum, en Gullfoss-
menn virtust hafa yfirburði
í leiknum á vellinum.
Á sunnudagskvöldið voru
svo fjölsóttar skemmtanir á
vegum sjómannadagsráðsins
í flestum samkomuhúsum
bæjarins.
Sjómannadagurinn
í Keflavík
Frá fréttaritara Timans
í Keflavík.
Sjómannadagurinn var hald
inn hátíðlegur í Keflavík á
laugardag og sunnudag. í-
þróttakeppni fór fram á laug
ardag. Sex sveitir kepptu í
róðri, og vann sveit Njarð-
víkinga.
Á sunnudaginn fór skrúð-
ganga sjómanna um bæinn og
hlýtt var guðþjónustu niðri
við höfn. Blómsveigur var lagð
ur á leiði óþekkta sjómanns-
ins, og skemmtanir voru i
samkomuhúsunum fyrir fulU
orðna og börn. Hátíðahöldin
voru fjölsótt og fóru vel fram.
Albert Guðmunds-
son bezti knatt-
spyrnumaðurinn
Brezka knattspyrnuliðið
Arsenal er nú í Suður-
Ameriku og háir þar kapp-
leiki, og meðal annarra í liði
þessu er íslendingurinn Albert
Guðmundsson.
27. maí keppti iiðið við eitt
bezta knattspyrnulið Ríó de
Janeiró, Fluminense, og tap-
aði með tveimur mörkum
gegn engu. Fréttaritari
norska blaðsins Sportsmanden
segir, að Albert Guðmunds-
son hafi verið bezti maður-
inn i enska liðinu.
ALFUTV1 Hl’U EIMSKIPAFÉLAGSIAS:
Kaupir félagiö hluta-
V.-
Kaupir félag'ið hlutabréf V.>íslending'a?
Aðalfundur Eimskipafélags íslands var haldinn um helg-
ina, o? var hann bæði fjölsóttari en undanfarin ár og stóff
lengur. Á fundinum var meðal annars rætt um forkaups-
rétt félagsins á hlutabréfum og kaup á hlutabréfum í eigu
Vestur-íslendinga, er tillaga var samþykkt um.
Árbók F.Í. um Vest-
ur-ísafjarðarsýslu
Árbók Ferðafélags íslands
árið 1951 er nýkomin út og
fjallar hún um Vestur-ísa-
fjarðarsýslu. Er aðalhöfund-
ur hennar Kristján G. Þor-
valdsson á Suðureyri, en kafla
rita Óskar læknir Einarsson
og Þórður bóndi Njálsson á
Auðkúlu. Að venju er árbókin
Ju|ýdd ífjölda ásgætra 'ljós-
mynda.
Auk þess eru í árbókinni
tvær stuttar frásagnir um ör-
æfaferðir eftir Ásgeir Jóns-
son og Einar Magnússon.
Finnsk listaverka-
sýning opnuð
í kvöld verður opnuð í þjóð
minjasafnsbyggingunni sýn-
ing á listaverkum finnska
myndlistarmannsins Axels
Gallén Kallela. Verða sýnd
120 listaverk, sem fengin hafa
verið hingað að frumkvæði
Finnlandsvinafélagsins.
Kom tengdadóttir iista-
mannsins, Prikko Gallén Kall
ela, hingað til lands nýlega í
tilefni af sýningunni, ásamt
dóttur sinni, og finnska rit-
höfundinum dr. Weenner-
virta, og konu hans.
Prikko Gallén Kallela mun
efna til hljómleika hér 7.
júní.
fbíiar jarðarinnar
2400 milljónir
Samkvæmt upplýsingum frá
þeirri stofnun sameinuðu
þjóðanna, sem líkja má við
hagstofu okkar, er sagt, að
mannfjöldinn í öllum heimin
um nú muni vera um 2400
miljónir.
Hefir mannfólkinu þá fjölg
að um 500 milljónir síðan 1920
SjO-
manna í Hornafirði
Nazistaráðstefna í_
álmey í Svíþjóð
Á hvítasunnudag var ráðstefna fjölmargra nazista frá
ýmsum löndum Norðurálfu haldin í Málmey í Svíþjóð undir
foruslu Svíans Per Engdal. En mörgum, sem boðaðir voru,
Birting á hluthafaskrám.
Að undanförnu hafa orðið
um það blaðaskrif, að S.Í.S.
væri að leitast við að ná vax-
andi itökum í Eimskipafé-
laginu, en það kom fram á
fundinum, að Sambandið á
ekki nema 625 króna hluta-
bréf í félaginu, en hefir far-
ið atkvæði fyrir nokkur kaup
félög, en hlutabréfaeign
þeirra er einnig óbreytt.
Fulltrúi S.Í.S. á fundinum
flutti tillögu um það, að gert
yrði skrá um alla hluthafa og
hlutabréfaeign þeirra, þar
sem reynt hefði verið í ræðu
og riti að fara með staðlausa
stafi um þau mál, í því skyni
að gera stjórn félagsins tor-
tryggilega. Skyldi slík skrá
birt með skýrslu félagsins
framvegis. — Þessi tillaga
var þó feild með 16679 at-
kvæðum gegn 4003.
Flutningagjöldin.
Fulltrúi S.Í.S. flutti aðra
tillögu, svolátandi, er sam-
þykkt var með 12699 atkvæð-
um gegn 8286, gegn andmæl-
um Sveins Benediktssonar:
„Með tilvisun í frjálsræði
það, sem nú orðið ríkir í við-
skipta- og verðlagsmálum,
telur fundurinn það óeðli-
legt, að opinber verðlagsyfir-
völd hafi lengur afskipti af
JÞjoverjar sækja um
npptöku
Verkalýðsmálastofnun sam
einuðu þjóðanna kemur
væntanlega saman til fundar
í Genf á morgun. Meðal
þeirra mála sem liggja fyrir
fundinum er að taka ákvörð-
un um það, hvort veita sk.uli
vestur þýzka lýðveldinu upp
töku í stofnunina. Ef þaS kem
ur í ljós að % meðlimanna
eru því fylgjandi, verður um
sókn Þjóðverjanna strax tek
in gild og þeir þar með orðn-
ir meðlimir.
flutningsgjaldatöxtum félags-
ins og telur að fulltreysta
megi félaginu til að stilla
flutningsgjöldum í heilbrigt
hóf, nú eins og fyrr. Skorar
fUndurinn því á stjórnina, að
vinna að því, að félagið fái
sjálft að ráða verðlagi þjón-
ustu sinnar.“
Heyleysi í Noregi
í byggðunum í grennd við
Kristjánssand í Noregi varð
svo mikið heyleysi í vor, vegna
snjóalaga og samgönguteppu,
að bændurnir urðu að síðustu
að grípa til þess að draga
fram lífið í skepnum sínum
að meira eða minna leyti með
bjarkarlimi og asparberki.
Á þessum slóðum er bænd
urnir vanir að kaupa að hey,
ef vorkart er, en nú brugðust
aðflutningar.
Fjórtánda Við-
skiptaskráin
Viðskiptaskráin árið 1951 er
nýkomin út, gefin út af Stein
dórsprenti. Er þetta í fjórt-
ánda sinn, sem Viðskiptaskrá
in er gefin út.
í Viðskiptaskránni er mik-
inn fróðleik að finna. Þar eru
uppdrættir af Reykjavík,
Akureyri og Hafnarfirði og
skrá um öll hús og lóðir í þess
um bæjum, ásamt mati á
þeim, nýtt vitakort og upp-
drættir af fiskimiðunum,
skrá um alþingismenn og
ýmsa embættismenn og full-
trúa íslands erlendis, félags-
málaskrár og nafnaskrár
Reykjavíkur og fjörutíu kaup
staða og kauptúna, varnings-
og starfsskrár og skrá um
skipastól landsins 1951.
fengu ekki sænska áritun á vegabréf sín og urffu því aff sitja
Hátíðahöld sjómannadags-
ins í Höfn í Hornafirði hóf-
ust með skrúðgöngu af hafn-
arbryggjunni að barnaskól-
anum. Fór þar fram guðsþjón
usta. Sóknarpresturinn, séra
Eiríkur Helgason prédikaði.
Að lokinni guðþjónustunni
var hlé til kl. 4, en þá fór fram
reiptog milli sjómanna og
landmanna, og létu hvorugir
hlut sinn fyrir hinum. Einn-
ig var keppt í naglaboð-
hlaupi og pokahlaupi. Klukk-
an 8 hófust svo hátíðahöld i
samkomuhúsinu, þar sem sr.
Eiríkur Helgason las upp
kvæði, Benedikt Þorsteinsson
flutti ræðu og Halldór Sveins
son las upp. Að lokum var
dansað.
heima.
Meðal þátttakendanna áttu
að vera um þrjátíu Þjóðverj-
ar, og höfðu margir þSirra
verið á sar.V. konar ráðstefnu
í Rómaborg í fyrra. í hópn-
um voru einnig IVJosley, enski
nazistaforinginn, og Scorzeny,
bjargvættur Mússólínis, en
hvorugur þeirra mun hafa
komizt til Svíþjóðar.
Áritun á fölskum forsendum.
Meðal þeirra, sem áritun
fengu, var þýzki þingmaður-
inn Franz Richter, er hann
hafði komið í sænsku ræðis-
mannsskrifstofuna í Köln
með meðmæli frá þýzka ut-
anríkisráðuneytinu og látið í
veðri vaka, að hann ætlaði
að fara kynnisför til Sviþjóð
ar. Utanríkisráðuneytið lýsti
síðar yfir því, að því hefði
verið ókunnugt um fyrirætl-
anir Richters, og hefði hann
ella ekki fengið meðmæla-
bréf frá stjórnarvöldunum í
Bonn.
Þátttakendur frá Argentínu.
í hópi hinna þýzku þátttak
enda, voru menn, sem flúið
höfðu til Argentínu, er nazista
veldið í Þýzkalandi hrundi til
grunna. Annars munu flest-
ir þátttakenda hafa verið af
Norðurlöndum, þar á meðal
Norðmenn og Danir.
Bretar geri áætlun um
vinnslu olíulindanna
Persnesk þjóðnýting |iw g'rundvöllurinn
Persíustjórn hefir nú boðið brezka olíufélaginu, sem nýtt
hefir hinar umdeildu olíulindir fram að þessu, að gera á-
ætlanir um rekstur þeirra framvegis á þeim grundvelli, sem
Bretar geti unað við, enda sé það tilskilið, að þær verði þjóð-
nýttar Persum.
Fréttir hafa ekki borizt af
þvi, hvernig brezka stjórnin
lítur á þetta tilboð Persa, en
í gær lýsti Morrison því yfir
í brezka þinginu, að það væri
rangur skilningur, ef Persar
héldu, að þessi deila kæmi
ekki öðrum við en þeim og olíu
félaginu. Þyrfti þar ekki ann-
ars við en vitna til þess, að
brezka ríkið á meira en helm-
ing hlutabréfa í olíufélaginu.