Tíminn - 07.06.1951, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
35. árgangur.
Reykjavík, fimmtudaginn 7. júní 1951.
124. blað.
Saltvinnsla við hverina á Reykja-
nesi gæti orðið samkeppnisfær
Jsfnframt fen^ist undirstaða innleuds
efnaiðnaðar. — Rannsóknir Raldurs Lrndal
Baldur Líndal efnaverkfræðingur hefir síðustu missori
unnið að rannsóknum á hagnýtingu hverahitans til iðnaðar,
eg telur hann, að bæði megi nota jarðhitann við salívinnslu
og í öðru lagi nota hann sem undirstöðu efnaiðnaðar.
Flóttabörn í Kóreu skipta hundruðum þúsunda, og fjöldi
þeirra er særður, sjúkur og langhrjáður af skortj og illri að-
búð á allan hátt. S. Þ. hafa þó gert mikið til þess að koma í
veg fyrir útbreiðslu næmra sjúkdóma, og hafa tólf milljónir
manna verið bólusettar gegn bólusótt, níu miljónir gegn
taugaveiki og þrjár miljónir gegn kóleru.
íslendingar reyna síld-
veiðar við Jan Mayen
'Vélbáturinn Faxaborg fvljjir norska flot-
anum í sumar norður yfir „kalda álinn“
Það er nú afráðið að íslendingar reyni í sumar síldveiðar
á norðlægum slóðum, þar sem norski flotinn býst til veiða
í sumar. Hefir síldarrannsóknarnefnd tekið á leigu vél-
bátinn Faxaborg til að vera við síldveiðar norður í hafi og
mun ætlunin að fylgja norska veiðiflotanum.
Fundu „köldu kvíslina“ í
fyrra.
Norskir fiskivísindamenn,
sem voru hér á rannsóknar-
skipi í fylgd með norska sild
veiðiflotanum í fyrrasumar, (
komust að þeirri niðurstöðu
1 lok vertíðarinnar, að síld-1
arleysið við Norðurland stafi
aðallega af því, að köld
kvísl sé fyrir norðan land og |
fari síldin ekki suður fyrir,
þessa kvísl á sínar venjulegu
slóðir.
Þess vegna búast norsku
síldveiðiskipin til veiða í sum
ar fyrir norðan þessa köldu
kvísl og ætla sér að stunda
veiðarnar allt norður undir
Jan Mayen.
íslenzkt veiðiskip á nýju
síldarmiðin.
Skip það, sem síldarrann-
sóknarnefnd ætiar nú að
senda á þessar veiðistöðvar er
vélbáturinn Faxaborg, rösk-
lega 100 lesta Svíþjóðarbátur.
Er ætlunin, að báturinn
veiði síldina i reknet og verði
aflinn saltaður. Hafi skipið
meðferðis um fimm hundruð
síldartunnur undir aflann.
í ferðinnj verður fiskifræð
ingur, og mun þessi för gerð
til að afla íslenzkum aðilum
nokkra þekkingar á veiðum
og síldargöngum á þessum
nýju síldveiðislóðum. Getur
vel svo farið, að í framtíðinni
verðj þarna um þýðingarmikl
ar veiðistöðvar að ræða fyrir
íslenzka síldveiðiflotann.
Fundur Framsóknai
p
félaganna í Arnes-
sýslu
Eins og frá hefir verið
ksýrt í Tímainum, halda
Framsóknarfélögin í Ár-
nessýslu almennan fund í
Selfossbíói á .sunnudags-
kvöldið kemur, .og hefst
hann klukkan 8,30.
Meðal ræðumanna á
fundinum verða Hermann
Jónasson landbúnaðarráð-
herra og Jörundur Brynj-
ólfsson alþingismaður.
Á fundinum mun meðal
annars verða rætt um sam
göngumál héraðsins, og
væri æskilegt, að héraðs-
búar notuðu tækifærið til
þess að koma - á framfæri
skoðunum sínum og áhuga
málum.
Saltvinnsia á Reykja-
nesskaga.
— Hér á landj þekkist ekki
önnur saltlind en sjórinn, seg
ir Baldur, og í hverunum er
oft saltmengað magn, eink-
um næst sjónum, en því að-
eins er hægt að vinna salt úr
sjó, að hitaorka til uppguf-
unar sé nægilega ódýr. Jarð
gufu má virkja með ekki
meiri tilkostnaði en svo, að
orkan verði tiltölulega ódýr.
Hveravatn saltara en sjór.
Á Reykjanesskaga má ekki
aðeins fá næga gufu, heldur
einnig sjóðandi sjó úr salt-
hver, sem er saltart en venju
legur sjór. Er þetta hvera-
svæði í hrauninu, skammt
frá Reykjanesvita. Skammt
ofan við veginn er sjóðandi
pyttur með söltu vatni, og hef
ir efnagreining sýnt, að salt
er þar 40% meira en i sjó.
Mundi vinnsla þar spara
mikla uppgufun. Víðar spýt-
ist þarna upp sjóðandi salt-
vatn og mikla gufu leggur
upp úr hrauninu á stóru
svæði.
Auk þess myndi það gera
saltvinnslu þarna auðveld-
ari en ella, að minna er af
súlfati, kalsíum og magnesi-
um en í sjó, en slík efni tor-
velda saltvinnslu. — Þetta
jarðhitasvæðj er um 1200
metra frá sjó.
20 þúsund smálesta
verksmiðja.
Baldur hefir gert áætlun
um vinnslu salts á þessu
svæði, ef boranir leiddu í ljós,
að nægilegt af saltvatni og
gufu fengist. Gerir hann í á-
ætluninni ráð fyrir, að fram
leiddár yrðu tuttugu þúsund
smálestir af fisk- og kjötsalti
og salti til efnaiðnaðar. Nauð
synlegur stofnkostnaður slíkr
ar saltverksmiðju yrði um 11
miljónir króna, ef miðað er
salt í kjöt og fisk og reiknað
með verðlagi í lok ársins
1949, en meiri, ef um salt til
efnaiðnaðar væri að ræða.
Er þá gert ráð fyrir virkjun-
um öllum, vélum, verksmiðju
byggingum, íbúðarhúsum
Fyrsti reknetabát-
urinn fékk 100
tunnur
Reknetaveiðar eru um það
bil að hefjast frá Akranesj og
hugur í sjómönnum og út-
gerðarmönnum að stunda
þær veiðar nú.
Einn Akranesbátanna, Far-
sæll, er búinn að fara í veiði
ferð, með reknet út i flóann
til reynslu. Fékk hann 100
tunnur síldar á þremur nótt-
um. Sildin var mögur og lát-
in til bræðslu i verksmiðjuna
á Akranesi.
8 hvalir á einni viku
Hvalveiðarnar eru nú bún-
ar að standa í um það bil
eina viku. Fóru hvalbátarnir
fjórir út sitt í hverja áttina,
út af Snæfellsnesi og Reykja
nesi og fengu allir veiði svo
til strax. Ekki verður því ann
að sagt en vel líti út með
hvalveiðarnar, ef dæma má
eftir byrjuninni.
Sumir hvalabátanna eru
búnir að koma inn með hvali
oftar en einu sinni, og er búið
að taka á móti átta hvölum
í hvalstöðinni í Hvalfirði.
Dregur úr lúðu-
aflanum
Svo virðist sem heldur sé
farið að draga úr lúðuaflan-
um á miðunum út af Snæ-
fellsnesi, en þar hefir verið
ágæt lúðuveiði, það sem af er
vertíðinni við þær veiðar.
Stunda þar veiðar um 20 bát
ar frá mörgum verstöðvum,
aðallega þó úr Faxaflóa.
Guðmundur Þorlákur kom
til Akraness fyrir þremur dög
um eftir viku útivist á mið-
unum, og setti þar á land 330
lúður, samtals um 40 smá-
lestir.
Prestskosning í
Ögurþingum
Prestskosning hefir farið
fram í Ögurþingum við ísa-
fjarðardjúp. Umsækjandi
var aðeins einn, séra Magnús
Guðmundsson, settur prestur
i Ögri. Náði hann löglegri
kosningu, hlaut 143 atkvæði,
en sex urðu ógild. 233 voru á
kjörskrá.
Furðugóð afkoma
á Héraði
Það má segja, að fénaðar-
höld hafi orðið furðugóð á
Flj ótsdalshéraði, þótt illa
horfði. Sauðburður er nú
langt kominn og hefir geng-
ið ágætlega.
Allgóður sauðgróður er kom
inn, og farið að láta út kýr.
Þurrt hefir þó verið hér í vor
og kalt lengi fram eftir, en
er nú orðið sæmilega hlýtt.
Minnismerki um látna
Breta í Fossvogsgarði
Verðnr vígt með viðhöfn í dag
í dag á afmælisdegi Bretakonungs verður afhjúpað í Foss-
vogskirkjugarðinum minnismerki um Breta þá, sem jarðsett
ir voru þar á styrjaldarárunum. En fjöldi brezkra hermanna
hlaut á þeim árum leg í íslenzkri mold, fjarri fósturjörð
sinni.
Brezkt herskip er komið
_____________hingað til iands, og munu sjó
starfsmanna og vegi til | liðar af þvi standa heiðurs-
Grindavíkur. Með þessum
hætti fengist smálest af
venjulegu saltj fyrir 122 krón
ur, salt til efnaiðnaðar á 127
krónur og borðsalt, ef það
væri framleitt, á 168 krónur
smálestin. — Flutningskostn
aður á saltinu til Reykjavík-
ur er áætlaður innan við þrjá
tíu krónur á smálest, ef góð
(Framhald á 2. síðu.)
vörð við legstað hinna brezku
manna, er athöfnin fer fram
klukkan ellefu fyrir hádegi í
dag.
Herskip þetta hefir verið
sent hingað til lands vegna
þessarar athafnar, sem fram
fer yfir moldum hinna látnu
Breta, er dóu hér á norður-
slóðum, er Bretland var í
hættu statt.
74 ára bóndi í sund-
keppninni
Sjötíu og fjögra ára gamall
bóndi I Mývatnssveit, Bene-
dikt Guðnason á Grænavatni,
tók í fyrradag þátt í sam-
norrænu sundkeppninni.
Sund sltt þreytti hann í sund
lauginni á Laugum. — Geri
aðrir betur!