Alþýðublaðið - 11.07.1927, Síða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Reynið
,Hflk-Man‘ dósamjólk.
Hún er ódýr, en sérstaklega góð.
Auglýsing
um
skoðuin á bifreiðum og í bifhjólum i Iögsagnarumdæmi Reykja-
vikur.
Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist hér með bifreiða- og bif-
hjólaeigendum, að skoðum fer fram sem hér segir:
Þriðjudaginn 12. júli á bifreiðum og bifhjólum RE. 1—50
Miðvikudagrnn 13. — - — — — — 51 —100
Fimtudaginn 14. — - — — — — 101—150
Föstudaginn 15. — - — — — — 151—200
Laugardaginn 16. — - — — — — 201—250
Mánudaginn 18. — - — — — — 251—300
Þriðjudaginn 19. — - — — — — 301—350
Miðvikudaginn 20. — - — — — — 351—400
Fimtudaginn 21. — — — — — 401—450
Föstudaginn 22. — - — — — — 451 —472
Ber bifreiða- og bifhjóla-eigendum að koma með bifreiðar sinar
og bifhjól að tollbúðinni á fiafnarbakkanum (simi 88) og verður
skoðunin framkvæmd þar daglega frá kl. 10—12 fyrir hádegi og frá
kl. 1—6 eftir hádegi.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni eða bifhjóli til skoðunar,
verður hann látinn sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögunum.
Bifreiðaskattur, sem féll í gjalddaga 1. júlí 1927, verður inn-
heimtur um leið og skoðunin fer fram.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli, til eftir-
breytni.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 8. júlí 1927.
Jón Hermánnsson.
zog, uppreistarforinginn frá 1914,
tók við af honum. Og þessi síð-
arnefndi er ekki Bretum eins auð-
sveipur og fyrirrennari hans.
Annars hafa stjórnarvöldin í
Suður-Afríku margvíslegar á-
hyggjur og örðugleika við að
striða. Mikill hluti af íbúum rík-
‘isins eru svertingjar, og sambúð-
in milli þeirra og hvítu mann-
anna veldur stöðugt vandræðum.
Þar á ofan anka svertingjamir svo
mjög kyn sitt, að hinir óttast,
að þeir verði þá og þegar ofurliði
bornir. Sagt er, að Hertzog hafi
nú á prjónunum hin hörðustu
þrælalög gagnvart svertingjum.
Þau hafa þó enn ekki náð sam-
þykki, enda ekki^ líklegt, að þau
yrðu til þess að firra vandræðum.
Æt!a mætti, að undir þessum
kringumstæðum hlytu hinir tveir
hvitu þjóðflokkar að sameinast
gegn hættunni, og að þeir hrós-
uðu happi yfir því að hafa heims-
veldið brezka að baki sér. En
samkomulagið milli hvítu mann-
anna er alt annað en gott. Með
Búum og Bretum er víða bitur
fjandskapur, og sá flokkur, sem
nú heldur í stjórntaumana, vill
sem allra minst hafa saman við
Breta að sælda. Mun markmið
þeirra vera að losna algerlega
undan yfirráðunj þéirra.
Þetta vita menn fullvel í Lund-
únum og reyna að aka seglum
eftir vindi. Það ræður því að lík-
um, að alt annar svipur er á því
andliti, sem veít að Suður-Afriku-
búum, heldur en hinu, sem yglir
sig íraman í verkamenn heima á
Bretlandi. Eigi að siður hefir
brezka stjórnin vakandi auga á
rás viðburðanna þar syðra.
' Eins og áður er sagt, er vand-
ræðamál mikið á uppsiglingu í
Suður-Afriku. Nú er það fáninn,
sem deilunni veldur. Hertzog og
flokkur hans vill gera Union Jack
(brezka fánann) landrækan, en
taka upp nýjan og sérstakan fáona
fyrir Suður-Afríku.
Þetta vilja Bretar ekki ganga
inn á. Sumum kann að sýnast,
að einu gildi hvor dulan er dreg-
in á stöng. En á það verður að
líta, að fáninn er tákn ánnars
meira. Það skilja Bretar líka of-
urvel. Verði brezki fáninn flæmd-
ur úr kandi í Suöur-Afriku, fara
yfirráð Breta þar fljótlega sömu
ksiðiuB.
6.-6,—'»7. ; —m—.
Stakkasundið
fór fram í gær eins og til stóó.
Veður var ekki vel hagstætt, tölu-
verð rigning, og var því mótið
ekki eins ánægjulegt og annars
hefði getað orðið. Orslit urðu
þessi:
Stakkasundið fór þannig, að
fyrstur varð Pétur Á. Árnason
sjómaður, Þórsgötu 21, á 2 m. 40,3
sek., næstur gamli bikarhafinn,
Jóhann Þorláksson, á 2 m. 44,8
sek., þriðji Sig. Matthíasson á 2
m. 53,2 sek., og eru þessir allir
undir metinu, sem sett var í fyrra.
100 ist. baksund fyrir konur
synti Regína Magnúsdóttir á 2 m.
12,3 sek. og er það met í bak-
sundi hér á landi. Önnur var Ruth
Hanson, 2 mín. 12,3 sek., þriðja
Anna Gunnarsd. 2 m. 51,2 sek.
50 st. sund fyrir telpur yngri
en 18 ára: Fyrst Kornelia Krist-
insd. 53,6 sek., önnur Hulda Jó-
'hannesd. 55,2 sek., þriðja Fanney
Jónsd. 57,2 sek. Frú Hanson synti
100 st. bringusund og var 2 mín.
49,8 sek. Frúin er 43 ára gömul
og má þetta því heita frækilega
gert. Ruth Hanson var 3 mín. 4,8
sek. að bjarga systur sinni, Rig-
mor. Synti hún með hana 100
stikur. Er það íslenzkt met í
þessari xaun.
400 st. frjáls aðferð fyrir karl-
menn: Fyrstur varð Jón Ingi Guð-
mundsson á 7 mín. 20,6 sek. Er
það met. Annax varð Þórður Guð-
mundsson 8 m. 56,6 sek., þriðjí
Pétur Á. Árnason 9 min. 36,5 sek.
Sundið fór vel fram og skipu-
lega. Virtust menn skemta sér á-
gætlega. Sundsýning Ruthar Han-
sons þötti mjög skemtileg. Stakka-
sundið dió þó mest að sér at-
hygli manna og virtist áhugi
manna vera mestur að sjá, hver
sigraði þar. Að sundinu 'loknu af-
henti forseti í. S. 1. verðlaunin.
Þákkaði hann Sjómannafélagi
Reykjavíkur fyrir hinn fagra
stakkasundsbikar og gat þess, að
æskilegt væri, að fleiri sjómanna-
félög úti um land vildu fara að
dæmi þess og vekja þannig á-
huga sjómanna sem víðast fyrir
sundi. Sagði hann að síðustu, að
sundskálann vantaði mjög tilfinii-
anlega bandhægan bát, en lé væri
ekkert fyrir hendi- Óskaði hann að
einhver vildi hlaupa þar undir
bagga, því skálinn væri alls g<5ðs
maklegur og þyrfö að vera sem
allra bezt úr garði gerður.
Erlend símskeyti.
Khöfn, FB., S. júlí.
Frá frelsisstriði Kina.
Frá Lundúnum er símað: Suður-
hierinn kínverski nálgast bæina
Tsingtau og Tsinanfu. Japanar
senda hierlið til þess að vemda
járnbrautina milli bæjanna. Ot-
lendingar flytja frá Peking, því áð
þeir óttast, að svo kunni að fara
‘fyrr en vaxir, að hún falli í heíndur
sunnanhiersins.
Er norska stjórnin orðin vit-
laus?
Frá Osló er símað: Fyrirspurn
hefir verið gerð í Stórþinginu við-
vikjandi norsk-íslenzku samninga-
tilraununum. Lykke býst við þrí,
að meðferð íslendinga á norskum
fiskimönnum breytist. Mowinckel
sagði, að Noregur þoli ekki til
lengdar mótþróa Islendinga gegn
kröfum Noregs, 'þar sem Norð-
menn hafi slakað mikið jtil.
Járnbrautarslys.
Frá Berlín er símað: Jámbraut-
arslys varð nálægt Harzen. Níu
mennn fórust.
Khöfn, FB., 8. júlí.
Jafnaðarmenn heimta bætta
kjördæmaskiþun.
Frá París er símað: Mikið er
rætt í þinginu um breytingar á
kosningaiögunum. Jafnaðarmenn
og róttækir leggja tíl, að fram-
vegi® verði éingöngu höfð ein-
menningákjördæmi í stað núver-
andi listakosninga. Áköf mót-
spyrna hægrimanna. Feiknaæsing-
ar á þingfundum út af þessu máJi.
Flotaminkuninn var auðvitað i
nösunum.
Frá Genf er símað: Menn búast
við því, að árangur af flotamála-
ráðstefnunni verði litill eða eng-
inn, vegna ágreinings um beiti-
skipin.
Hafa Þjóðverjar of mikil vig-
búning ?
Frá Brússel er simað: Hermála-
ráðherrann í Belgíu hefir haldið
því fram í ræðu, er hann hélt í
þinginu, að Þjóðverjar hafi fleiri
menn(?) (eða vopn?) til hemað-
ar en heimilt er samkvæmt Ver-
salafriðarsamningnum.
Khöfn, FB., 10. júlí.
Ætlar Poincaré að liggja á
kosningalögunum ?
Frá París er símað: Menn búast
við þvú að breytingarnar á kosn-
ingalögunum mtmi valda ósam-
lyndi innan stjómarflokksins og
veikja stjórn Poincarés, jafnveí
þótt stjórnin látí breytinguna hlut-
lausa.
Manntjön og usli af vatnavöxt-
um.
Frá Berlín er símað: Fádæma
vatnavextir eru í Sachsen, eink-
um í nánd við Sexelfi í dölun-
um kring um Pima. Er vatnsflöð
mikið í bæjunum, fjöldi húsa
Shrunin, og e:ra mörg þorp og
járnbrautir gereyðilögð. Skaðinn