Tíminn - 22.06.1951, Page 2
2.
TÍMINN, föstudagiim 22. júní 1951.
137. bJad.
tjtvarið í dag:
8.00—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 12.10—13.15
Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegis-
rttvarp. — 16.25 Veðurfregnir.
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón-
leikar: Harmonikulög (plötur).
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: „Faðir
Goriot“ eftir Honoré de Balzac;
IV. (Guðmundur Daníelsson rit-
höfundur). 21.00 Tónleikar (plöt
ur: Serenade eftir Mozart. 21.15
Erindi: Ýmislegt frá Spáni
(Margrét Indriðadóttir frétta-
maður). 21.40 Tónleikar (plöt-
ur). 21.45 Iþróttaþáttur (Sig-
urður Sigurðsson). 22.00 Frétt-
ir og veðurfregnir. 22.10 Vinsæl
lög (plötur). 22.30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip:
Hekla fór frá Reykjavík í gær
kvöld til Glasgow.Esja kom til
Reykjavikur kl .1 í nótt úr
strandferð að austan og norð-
an. Herðubreið er á Austfjörð-
um á norðurleið. Skjaldbreið fór
frá Reykjavík í gærkvöld til
Skagafjarðar- og Eyjafjarðar-
hafna. Þyrill var í Vestmanna-
eyjum í gær. Armann fer frá
Reykjavík í dag til Vestmanna
eyja.
Eimskip:
Brúarfoss er í Hamborg. Detti
foss fer frá Vestmannaeyjum
í kvöld 21.6. til Akraness. Goða-
foss kom til Hamborgar 20.6. frá
Reykjavík. Gulifoss kom til
Reykjavikur 21.6. frá Kaup-
mannahöfn og Leith. Lagarfoss
er í Reykjavík. Selfoss er í
Reykjavík. Tröllafoss er í Reykja
vík. Katla er í Reykjavík. Vollen
lestar í Hull um 20 þ. m.
Flugferbir
Flugfélag íslands:
Innanlandsflug: 1 dag er ráð
gert að fljúga til Akureyrar (2
feröir), Vestmannaeyja, Horna
fjarðar, Fagurhólsmýrar; Kirkju
bæjarklausturs og Siglufjarðar.
Frá Akureyri verður flogið til
Austfjarða. Á morgun er áætl-
að að fljúga til Akureyrar (2
ferðir ), Vestmannaeyja, Blöndu
óss, Sauðárkróks, Siglufjarðar
og ísafjarðar.
Millilandaflug: Gullfaxi fer
til Kaupmannahafnar kl. 8,30
í fyrramálið.
Loftleiðir:
1 dag er ráðgert að fljúga tli
ísafjarðar, Vestmannaeyja,
Hólmavíkur, Sauðárkróks, Heli
issands og Akureyrar. Á morgun
er áætlað að fljúga til ísafjarð
ar, Akureyrar, Vestmannaeyja,
og Patreksfjarðar.
Blöð og tímarit
Jass-blaðið.
fimmta og sjötta tölubl. þe. á.
er nýlega komið út. Flytur það
ýmsan fróðleik fyrir jassunn-
endur. í þessu blaði er meðal
annars: íslenzkir hljóðfæraleik-
Æirar, Efnilegur guitaristi, Hljóm
jsveit Braga Hlíðbergs, Fimmtán
manna hfjómsvelt F.I.H., Grein
um Núma og danslagatexta
hans. Þrir nýir íslenzkir dans-
lagatextar. Fréttir og margt
fleira.
Úr ýmsum áttum
Keykjavíkurflngvöilur.
I maí mánuði var umferð um
Reykjavíkurflugvöll sem hér
segir: Millilandaflug 18 lending
ar, farþegaflug, innanlands 219
lendingar, einka og kennsluflug
143 lendingar. Samtals 378 lend
kafi til
ingar. Með millilandaflugvélum
fóru og komu til Reykjavíkur-
flugvaliar 515 farþegar, 11688
kg. farangur, 5193 kg. vöruflutn
ingar og 1477 kg. póstur.
Með farþegaflugvélum í inn-
anlandsflugi fóru og komu 2982
farþegar, 41386 kg. farangur,
90632 kg. vöruflutningar og
9921 kg. póstur.
Miðnætursólin.
(Midnigth sun) blað starfs-
manna Keflavíkurflugvaliar,
júni blaðið, er ný komið út. Ræð
ir það ýms áhugamál starfs-
mannanna og flytur auk þess
innlenda og erienda frétta
þætti.
Ferðafélag íslands
Ferðafélag Islands ráðgerir að
fara 8 daga skemmtiferð til
Hornafjarðar. Lagt af stað fyrri
hluta næstu viku. Farið flug-
leiðis til Hornafjarðar. Skoðað-
ur Hornafjörðurinn. Farið í Al-
mannaskarð og austur í Lón.
Þá haldiö landveg tii baka um
Suðursveit, Öræfi, vestur Skeið-
arársand og Síðu til Reykja-
víkur. — UpplýSlngar og far-
miðar á skrifstoíunni Túngötu
5.
„Ertu búinn að synda
200 metrana?“
Það er nú að færast all-
mikið líf í þátttökuna í nor-
rænu sundkeppninni hér á
iandi. Fleiri og flciri ljúka
ratiniHni og aðrir eru í óða
önn að æfa sig. Þeir, sem
ekki eru búnir, hafa heldur
engan stundlegan frið. Hvar
sem maður mætir manni er
spurt án tafar: Ertu búinn
að synda 200 metrana?
Menn sjá því að ekki er um
annað að gera en ljúka þessu
af til þess að losna við sam-
vizkubitið í hvert sinn, sem
spurningin mætir þeim.
Fram til 10. júlí ætti það líka
að vera kveðja manna í
hvert sinn, sem þeir hitta
kunningja sinn á götu eða
hringja til hans í síma: Ertu
búinn að synda 200 metrana?
Ilandknattleiksreglur.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
hefir geFið út að tilhiutan 1-
þróttasambands Islands smá
kver, sem hefir inni að halda
handknattleiks- og körfuknatt
leiksreglur Í.S.Í. Er þtta mjög
handhægur og ýtarlegur leióar-
vísir fyrir þá er þessar íþróttir
stunda. Um útgáfuna hafa séð
þeir Þorsteinn Einarsson, Jens
Guðbjörnsson og Kjartan Berg-
mann. I ritinu er þetta efni:
Handknattleiksreglur l.S.l.
teknar saman og þýddar af Finn
boga Guðmundssyni, Sigurði
Norðdahl og Sigurði Magnús-
syni. Reglur Í.S.Í. um hand-
knattleiksmót, samdar að til-
hlutun handknattleiksráðs
Reykjavíkur. Körfuknattleiks-
reglur I.S.Í. fyrir karla, Sigríður
Valgirsdóttir þýddi og tók sam-
an, og körfuknattleiksreglur
Í.S.I. fyrir konur einnig þýtt og
tekið saman af Sigriði Valgeirs
dóttur.
Her SÞ sækir hindr-
unarlítið fram
Her S. Þ. í Kóreu hélt áfram
sókn sinnl í gær bæði á aust-
urströndinni og vesturströnd
inni og veitti norðurherinn
mjög litla mótspyrnu.
Á mánudaginn kemur er ár
liðið síðan kommúnistar í
Kóreu héldu með her sinn suð
ur yfir 38. breiddarbaug og
hófu styrjöldina.
Aðalfundur S. 1. S.
(Framhald af 1. síðu.)
nýja skipi, Jökulfelli, hefir
enginn gjaldeyrir fengizt enn,
svo að skipið er byggt fvrir
erlend gjaldeyrislán. Þess
vegna er skipið leigt næstu
fjóra mánuðj til útlanda til
þess að afla gjaldeyris upp I
kostnaöinn, enda er lítil þörf
fyrir frystiskip hér þann tíma
árs, þótt þörfin sé margföld
aðra tíma. Mörg tiiboð um
kaup og leigu á skipinu hafa
borizt, en þeim hefir öllum
verið hafnað. Forstjórinn gat
þess, að þótt sambandið ætti
nú þrjú afbragðsgóð skip,
væri flutningaþörf sambands
ins ekki fullnægt og næg verk
efni fyrir miklu stærri skipa-
stól samvinnumanna.
Það, sem af er þessu ári
hefir rekstur skipadeildarinn
ar orðið hagstæðari en nokkru
sinni fyrr, og nemur afskrift
og hagnaður á þessum fvrra
helmingi ársins samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri um 5'
milj .kr.
65% þjóðarinnar skipta
við samvinnufélögin,
í árslok voru sambands-
félögin 54 eða jafnmörg
og í ársbyrjun. Eitt félag,
Kaupfélag verkamanna í
Vestmannaeyjum, hætti
starfsemi á árinu, en eitt
félág, Kaupfélag Ólafs-
fjarðar, bættist í hópinn.
Félagatala samvinnu-
manna í sambandinu leið-
rétt þannig, að aðeins að-
alfélagar eru taldir, svo að
ekki er um tvítalningu að
ræða, þótt sami maður sé
í fleiri en einu félagi, var
í árslok 30680 og hafði
fjölgað um 2056 á árinu.
Þar af voru í neytendafé- j
lögum 30263 með 93760 á
framfæri sínu. Það er um
65% þjóðarinnar, og er það
mcð hæstu — ef ekki
hæsta hlutfallstala í heira
inum.
Kaupfélögunum vel
stjórnað.
Forstjórinn ræddi nokkuð
um hag kaupfélaganna al-
mennt og hvatti eindregið til
að forðast skuldasöfnun.
Hann sagði, að heildarblær-
inn væri sá, að kaupfélögun-
um væri vel stjórnað, og fjár,
hagur félaganna gagnvart
sambandinu hefði heldur
batnað á árinu.
Forstjórinn lét svo um mælt
í ræðulok, að hann væri sann
færður um, að allir örðug-
leikar yrðu yfirstignir, ef full
ur samhugur allra aðila og
sannur samvinnuandi ríkti
1 samvinnustarfinu.
Skýrslur framkrænida-
stjóra.
Að lokinni ræðu forstjór-
ans fluttu framkvæmdastjór
ar sambandsins skýrslur
deilda sinna, þeir Helgi Pét-
ursson fyrir útflutningsdeild
ina, Helgi Þorsteinsson fyrir
innflutningsdeild, Leifur
Bjarnason fyrir véladeild og
Harry Fredriksen fyrir iðn-
aðardeild.
Á fimmta tímanum í gær
hófust svo fyrirspurnir vegna
skýrslnanna og almennar um
ræður. Aðalfundurinn heldur
áfram í dag og á morgun.
'•■/AW.V.V.V.W.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W.’AV.V.VJ
>
ASeins
30 kr.
á ári
ffirir
fjölbreyttasta,
útbreiddasta
og ódýrasta
mánaðarrit
landsins.
Gerist
áskrif-
endur!
Sími 7080.
W.V.V.V
TILKYNNING
til kaupenda um blaðgjald
ársins 1951
Blaðgjald ársins 1951 hefir verið ákveðið sem hér
segir:
I. Verðsvæði: Árgangurinn kr. 180,00. Mánaðargjald
kr. 15.00.
(Reykjavík, Seltjarnarneshreppur, Kópavogs-
hreppur, Hafnarfjörður og Akureyri frá 1. maí).
ÁskíFnn réttur til verðbreytinga.
II. Verðsvæði: Árgangurinn kr. 150,00.
(Rangárvallasýsla, Vestmannaeyjar, Árnessýsla,
Gullbringu- og Kjósarsýsla, Keflavik, Akranes,
Borgarfjarðarsýsla, Mýrasýsla, Snæfellsness og
Hnappadalssýsla, verzlunarsvæði Stykkishólms í
Dalasýslu og Siglufjörður.
III. Verðsvæöi: Árgangurinn kr. 120,00.
(Meginhluti Dalasýslu, Barðastrandasýsla, ísa-
íjarðarsýslur, ísafjörður, Strandasýsla, Norður-
land alit, utan Siglufjarðar og Akureyrar, Aust-
urland og* Skaftafellssýslur).
Frá og með 1. maí eru fallinn í gjalddaga öll blað- r|
gjöid á II. og III. verðsvæðum. nema þau sem greidd eru H
mánaðarlega og ársfjórðungslega til innheimtumanna. ||
ú
Innheimta Tímans I
g
1
«
• -
H
g
3
I
1
3
1
*.*,
*.*.*•
Ég þakka kærlega sveitungum og öðrum er heim-
£ sóttu mig og færðu mér gjafir, eins þakka ég skeyti er •»;
í mér bárust á 65 ára afmæli mínu 13. þ. m. **
Bjarni K«lbeinsson %
I;
•.V,\W.VA".V.V/,V.V.V.V.V.W.W,VAW.W.W.VA%
AW.VÁ*.V.V.*.V.V.V.V.*.V.V.V.*.V.W.W.V.*.V.V.V.V
N í
Innilega þakka ég öllum vinum og vandamönnum £
í nær og fjær, er méð heimsóknum, skeytum og gjöfiun 3;
£ glöddu mig á fimmtugsafmæli mínu þann 6. júní s. 1.
5
og gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Magnús G. Ingimundarson,
Bæ í Króksfirði
■ ■ JB ■ ■
I ■ ■ ■ • 1
1» ■ • ■ • « • • «
.V.’.V.*,V.V.V.V.V.V.V.V.V.*.V.V.’.
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS