Tíminn - 15.07.1951, Side 2
2.
TÍMINN, sunnudaginn 15 júlí 1951.
156. jlað.
'Jtá hafji til heiía
*****
Útvarpib
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 11,00 Messa í dómkirkjunni
(Björn Magnússon prófessor).
18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö.
Stephensen). 20,20 Tónleikar
(plötur). 20,35 Erindi: Engey
(Jónas Árnason alþm.). 20,55
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar-
innar. Einsöngvari: Else Múhl
óperusöngkona. Stjórnandi: dr.
Victor Urbancic. 21,15 Upplest-
ur: Sigfús Elíasson les frumort
kvæði. 21.30 Tónleikar (plötur).
22,00 Fiéttir og veðurfregnlr. j
22,05 Da islög (plötur). 23,30 Dag
skrárlok
Útvarpið á morgun:
Fastir iiðir eins og venjulega.
Kl. 20,20 Tónleikar (plötur).
20,45 Um daginn og veginn
(Gísli Kristjánsson ritstjóri).
21,05 Einsöngur: Richard Tauber
syngur (plötur). 21,20 Erindi: Á
Serkjaslóðum (Margrét Indriða
dóttir fréttamaður). 21,45 Tón-
leikar: Lög eftir Irving Berlin
(plötur). 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. 22,10 Búnaðarþáttur:
Júgurbólga í kúm (Páll Pálsson
dýralæknir). 22,30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Ms. Hvassafell kemur til Ála
borgar í dag. Ms. Arnarfell er í
Vestmannaeyjum. Ms. Jökulfell
er á leið til Ecuador frá Chile.
Rtkisskip: 1 (
Hekla er í Reykjavík og fer
þaðan kl. 8 á þriðjudagskvöld til
Glasgow. Esja fer frá Reykjavík
annað kvöld vestur um land til
Akureyrar. Herðubreið er á ieið
írá Austfjörðum til Akureyrar.
Skjaldbreið var á Akureyri í
gær. Þyrill var í Skerjafirði í
morgun. Ármann fór frá Reykja
vik í gær til Vestmannaeyja.
Fiugferðir
Flugfélag Islands.
Innanlandsflug: 1 dag verður
flogið til Vestmannaeyja, Akur
eyrar (kl. 9,15 og 16,30), Siglu-
fjarðar, ólafsfjarðar, Kópaskers,
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Hornafjarðar og Kirkjubæjar-
klaustufs. Frá Akureyri verður
flogið til Ólafsfjarðar, Siglufjarð
ar og Kópaskers. — Millilanda-
flug: Gullfaxi fer til Kaup-
mannahafnar í dag kl. 9.30 og
kemur aftur til Reykjavíkur í
kvöld. Flugvélin fer til London
kl. 8,00 á þriðjudag og er vænt
anleg þaðan kl. 22,30 á þriðju-
dagskvöld.
Loftleiðir h.f.
í dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja, Akureyrar og
Keflavikur (2 ferðir). Á morgun
á að fljúga tll Vestmannaeyja,
ísafjarðar, Akureyrar, Hellisr
sands og Keflavikur (2 ferðir).
Ur ýmsum ðttum
Frá Sl.vsavarnafélaeinu.
Myndir af skemmtiför kvenna
úr slysavarnadeildum Reykja-
víkur og Hamarf jarðar verða til
sýnis í skrifstofu félagsins á
morgun. mánudag, 16. þ. m. kl.
8.30 síðdegis. Myndirnar óskast
greiddar um leið og þær eru
teknar. — Nefndin.
Loftferðasamningur.
í eær var undirritaður í Rvík
loftferðasamningur milli tslands
og Noregs. B.iarni Benediktssou
ntanríkisráðhier.ra undirritaði
sarnninginn fyrir íslands hönd,
en T. Andersen-Rysst sendiberrg
Norðmanna'á fsiandi undirritaði
fyrir hönd Noregs.
Hér sést einn af tízkukjólum
sumarsins. Hinir svörtu knippi
ingar fara vel á ljósu líni' eða
silki, og pilsið er úr svörtu
organza. Ekki skaðar heldur
hin stórger^a svarta hlásfesti.
Leiðrétting.
í frásögn af hátíðahöldum á
Reyðarfirði 17. júní var það mis-
hermt að kaupfélagið hefði séð
um veitingar. Það var kven-
féiagið á staðnum, sein sá um
veitingarnar en hreppurinn bar
allan beinan kostnað af hátíða
hcldunum. 1
Síhlvoiðin
(Framhald af 1. síðu.)
mál. Þetta eru aðeins nokkur
nöfn af þeim mörgu bátum,
sem voru á leið til lands í
gær.
Engar síldarfregnir að vestan.
Engar fregnir um síld höfðu
bprizt af vestursvæðinu um
sild og viröist síldargangan
því vera komin austur á
Grímseyjarsund að austar.
Von á mikilli síld
til Raufarhafnar.
Lítil síll var enn komin til
Raufariiafnar í.gær, er blaðið
átt; tal við fréttaritara sinn
þar um kl. fjögur í gær. Þó
var farið að salta á öllum plön
um og von á mörgum bátum
inn. Sumir þeirra báta, sem
áður hafa verið nefndir, fara
til Raufarhafnar. Frétzt hefir
um ýmsa báta, sem fengið
hfðu 800—1000 mál og full-
fermi. Afbragðs veður var á
miðunum djúpt út af Rauðu-
núpum og síld víða uppi.
Gerizt áskrifendur að
Anglýsið i Tímunum.
%
tmamim
Áskriftarsími 2323
Á fitHum tofi:
Loksíns hreyft viö fauskunum
í fyrradag mátti loks sjá, að farið var að hreyfa við
blettinum framan við menntaskólann i Reykjavík. Hafði
verið rist ofan af nokkrum hluta hans, og nú er vonandi
runnin upp sú stund, að eitthvað verði hreyft við fausk
unum, dauðu trjáhríslunum, sem staðið hafa í röð í
jaðri blettsins undanfarin tvö sumur sem glottandi á-
sjóna dauðans á lóð æskunnar í höfuðstaðnum, og sem
ljós vottur um hiröuleysi þess bæjarfélags, sem hafði
k urlað úr þeim lifið með flutningahnjaskinu.
★ ★ ★
Þegar Lækjargatan var breikkuð, sem ekki ber að
lasta, var tekin væn sneið af lóð menntaskólans sem
kunnugt er og olli nokkrum styr. Trén, sem stóðu fram
viö gömlu Lækjargötuna, voru færð nokkru ofar, og
l’lutningsmennirnir voru svo vissir um, að trén mundu
sætta sig viö þetta, að þeir munu ekki hafa vandað til
fiutningsins sem skyidi. Þetta gerðist fyrir tveimur eða
jiremur árum, en þegar hið sama sumar fölnuðu öll
blöð á þessum kvistum menntaskólans og næsta vor
mátti aðeins sjá einstaka óræktarlega laufsprota út úr
síofnunum. í vor var enginn kvistur lifandi.
★ ★ ★
Svona iiafa fauskarnir staðið í tvö sumur og sýna
furðuiegt tómlæti þeirra manna, sem komið höfðu þeim
1 hið nýja fóstur. Það mundi varla hafa þótt sæmandi í
nokkurri höfuðborg nema Reykjavík að láta tugi dauðra
trjáfauska standa tvö sumur við fegurstu götu höfuð-
borgarinnar. Þeir mundu hafa verið höggnir upp og á
eld kastað þegar eftir dauða sinn, og nýir frjóangar
gróðurcettir í staðinn. Þetta tók hins vegar tvö ár á
fsiandi.
★ ★ ★
í öðru lagi sýnir saga þessara trjáfauska það, að við
erum enn ekki komnir svo langt sem skyidi í kunnáttu
í trjárækt eða þeirri list að flytja iifandj tré, sem vaxin
eru nokkuð úr moldu, og starfsmenn okkar á þessu
sviði þekkja ekki enn takmörk getu sinnar eða aðstæðn
anna hér á landi. Það er ekki einleikið, er sérfræðngar á
þessu svjði taka nokkra tugi hálfvaxinna trjáa og flytja
um set með þeim árangri, að hvert einasta þeirra drepst.
Ef alit hefðj verið með felldu hefði mestur hiuti þeirra
átt að lifa, eða þá að hinir vísu menn hafa þekkt svo
annmarkana, að þeir nefðu ekkj lagt út í flutningana
og losað menn við þá hörmung að þurfa að horfa á
fauskana tvö sumur á hinni fornhelgu lóð eins virðu-
legasta menntaseturs í landinu við fegurstu götu höf-
I uðstaðarins.
i. VÁLERENGEN -
Fram - Víkingur (úrval)
keppa annað kvöld kl. 8,30.
Aðgöngumiðar: Sæti 20 kr., stæði
10 kr. og fyrir börn 2 kr.
í
ryðvarna- og ryðhreinsunarefni
óldum saman hefir hinn nytsami málmur, járnið,
ryðgað í sundur, tærst, svo að segja gufað upp í hönd-
u:n mannanna. Nú er lyfið gegn þessu mikla böli fundið. i
Ferro-bet getur verndað eigur yðar, hús, vélar, skip,
bíla, áhöld og öll mannvirki gegn eyðileggingu ryðsins.
l'ldur og ryð herja stöðugt á eigur manna. Það er
hægt að vátryggja gegn bruna. En ekki gegn ryðbruna.
Ff eigur yðar eru í hættu vegna bruna, kallið þér
á slökkviliðið.
Ef þær sru í hættu vegna RYÐBRUNA, er Ferro-
bet slökkviliðið.
Þér þurfið ekki framar að strita við að skrapa hús-
þök eða annað ryðgað járn. Ferro-bet vinnur verkið
/yrir yður á svipstundu með miklum yfirburðum.
Feildsölubirgðir:
Samband ísl. saiuviniiiifólag'a.
Vorzlun O. EHingsou.
n
í
‘HLKYNNING!
Hér með er vakin athygli innflytjenda á auglýsíngu,
sem birtist í Lögbirtingarblaðinu, laugardaginn 14.
j álí, um undanbágu frá ákvæðum um innflutnings- Qg
gjaldeyrisleyfi.
Reykjavik, 14. júlí, 1951,
Fjárhagsráð
♦
l
i»»»iii»i»n»i»n»im:iuni:t»»»»t:nmtmn»n»imnnnw:»iwm:«iaia
Rúllugardí.nur
nýkomið strigaefni og pappír, einnig ýmar lengdir af
heflum. Komið með rétt mál af breidd og sídd. —
Fljót afgreiðsla.
Húsgagnaverzlunin Húsfflunir
Hverfisgötu 82 — Sími 3655.
n
Auglýsingasími Tímans 81300