Tíminn - 15.07.1951, Page 6
6.
TÍMIXN, sunnudaginn 15 júlí 1951.
156 blað.
Flóttanieniiirnir
frá Lidice
Afar spennandi tékknesk
mynd byggð á atburðum við
eyðileggingu þorpsins Lidice.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Lina langsokkur
Sýnd kl. 3.
TRIPOLI-BIO
L°kað til 28. jnlí
vegna sumarleyfa
NÝJA BÍÓ
Lokað (il 28. júlí
vegna sumarleyfa
BÆJARBÍÓ
HAFNARFIRÐI
A vegum úti
(They drive by night)
Mjög spennandi og viðburða
rík amerísk kvikmynd, byggð
á skáldsögu eftir A. J. Bezze-
rides.
Humphrey Bogart,
Ann Sheridan,
George Raft,
Ida Lupino.
Sýnd kl. 7 og 9
Sími 8194.
Amper h.f.
Rafrækjavinnustofa
Þingholtstræti 21,
símj 81556.
JÍHulnurgJoéÍLiAMiA. aLu áejtaJJ
►♦♦♦♦^gw»y
JHöfum efni til raflagna.
J Raflagnir 1 minni ■ og
stæri hús.
; Gerum við straujárn og
önnur heimilistæki
Raftækjaverzlunin
LJÓS & HITI H. F.
Laugaveg 79. — Sími 5184.
Ansturbæjarbíó
Lokað til 18. júlí
vegna suinarleyfa
TJARNARBÍÓ
Við giftum okkur
Frú Guðrún Brunborg sýnir:
Norsk gamanmynd frá Norsk
Film. — Aðalhlutverk:
Henki Kolstad,
Inger Marie Andersen.
Þessi mynd hefir verið sýnd
við fádæma aðsókn í Osló
síðan í janúar, m. a. í 18 vik-
ur samfleytt á öllum sýning
um í helztu kvikmyndahús-
um þar í borg.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
GAMLA BÍÓ
Júlía
hegðar sér illa
(Julia misbehaves)
Skemmtileg og vel leikin
amerísk kvikmynd.
Greer Garson,
Walter Pidgeon,
Peter Lawford,
Elizabeth Taylor.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 1 e. h.
HAFNARBIO
Hættulegur leiknr
(Johnny stooi Pigeons)
Afar spennandi ný amerísk
sakamálamynd eftir sönnum
viðburðum.
Howard Duff,
Shelley Winters,
Dan Duryea.
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sala héfst kl. 1 e. h.
Drottning
skjaldincyjanna
(Queen of the Amasons)
Hin spennandi frumskóga-
mynd.
Sýnd kl. 3.
Sala hefst kl. 1 e. h.
Bergur Jónsson
Málaflutningsskrifstofa
Laugaveg 65. Sími 5833.
Heima: Vitastíg 14.
SEULM
Alls konar hasgögn og
fleira undir hálfvirði
PAKKHÚSSALAN
Ingólfsstræti 11
Símj 4663
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Nýja sendi-
bílastööin
hefir afgreiðslu á Bæjar-
bllastöðinni, Aðalstrætl 16.
Simi 1395.
ELDURINN
gerir ekki boð á undan sér.
Þeir, sem eru hyggnir,
tryggja strax hjá
Samvinnutryggingu***
Askriftarsfmi:
TIMINX
2323
llin nýja tónlist
(Framhald af 5 siðu.í
fullkomnar andstæður, sem eng 1
inn mun blanda saman, nema |
sá, sem gjörsneiddur er öllum
skilningi á sannri list. Hin nýja
stefna tónlistarinnar kann oft-,
sinnis að vera þjóðleg eða þjóð-
ernisleg, en hún er meira en
það. Stjórnmálalegir áróðurs-
menn eru ötulir í leit sinni að
slagorðum, sem þeir misnota; j
þeir tala um „framfaralist" (pro |
gressivismus) alþýðunnar. Þeir
finna einhvern veginn á sér að
hin komandi tónlist muni öðlast
varanlegt og sannarlegt giidi,
og þeir reyna að niðurlægja
hana og nota áhrifin fyrirfram
með slagorðunum „Social-Real- I
ismus“ (félagslegt raunsæi) í
þágu ólistræns tilgangs stjórn-
málanna. — Stefna hinnar kom-
andi tónlistar er hins vegar |
jafn andlega tiginmannleg og
öll sönn list hefir ætíð verið og
mun alltaf verða.
Menn kunna að spyrja hvert
muni liggja leið hinnar nýju
tónlistar. Ómögulegt er að
svara því. Einkennilegt er, að
svo er sem spádómur Oswalds
Spelnglers sé að rætast, þ. a.
að vér munum snúa aftur að
hinum fyrsta uppruna menning
ar vorrar og leita að því, sem
„einnig hefði verið mögulegt".1
Það er sem menn hafi á tilfinn- I
ingunni að „eitthvað hafi ekki
verið með felldu" í hinni list-
rænu framþróun seinustu alda,
þ. e. að eitthvað hafi verið van-
rækt og að óþroskaðir eða háif-
þroskaðir frjóangar hafi verið
látnir liggja ónotaðir (sbr. einn-
ig rit undirritaðs á þýzku um
hin listrænu áhrif íslands,
Landsútgáfan 1951). Vér erum
sakaðir um „frumstæðingshátt"
(primitivismus) og jafnvel stund |
um um skort á „kunnáttu", af
því að vér neitum því að herma
eftir hinum tízkukennda og
hversdagslega „skóla leikfiminn
ar“. Fyrsta boðorð vort er að
vera sannir; — þess vegna kann
list vor að vera eða sýnast „ó-
þroskuð". Vér vitum allra sízt
sjálfir hvert stefnir eða hvaða
gildi hin nýja tónlist kann að
öðlast. Aðstaða vor er erfiðari
en aðstaða jafnvel vorra allra
næstu fyrirrennara — hversu
tízkulegir og nýstárlegir, -sem
þeir kunna að virðast, — því að
þeir byggja allir á samhangandi
langri framþróun, sem þegar
hefir náð seinustu fullkomnun.
Vér byrjum alveg frá grunni,
strengjum þess heit að vinna
vandlega og nota á leið vorri
allt það, sem í óþrjótandi vinnu
og námi reynist nothæft.
Jón Leifs.
Copyright 1951 by
Islandia Edition Ltd.
Reykjavík, Iceland.
IVWAW.W.W.'.W.W.V.WAV.WAT.W.V.V.V^WiV
5
Bernhard Nordh:
'ona
VEIÐIMANNS
..... 65. DAGUR .■.v.vvavv.ww,vv
Iþróttir
(FramhaM ar 4. aíðu.)
á Norömönnunum, en upp-
hlaup þeirra voru aftur á
móti hættulegri.
Beztu menn ÍBA voru fram-
verðirnir, Guðjón og Sveinn
Teitsson. Þó er sá galli á leik
þeirra að þeir halda knettin-
um yfirleitt of lengi. Vörnin
komst sæmilega frá leiknum,
Dagbjartur traustur að vanda,
en þó koma oft fyrir slæmar
staðsetningar hjá þeim. — í
framlínunni voru Ríkarður og
Þórður ágætir og Halldór á
hægri kanti er að verða einn
bezti kantmaður okkar. H.S.
Tannlækningastofa
mín er lokuð vegna sumar-
leyfa til 7. ágúst.
Viðar Pétursson.
andi að knýja hann til þess að stíga sporið til fulls. En
þó var gætni sjálfsagt heilladrýgst. Það var Árni, sem hún
átti að fylgja til prestsins. En hvers vegna lét Árni bið'ja
hennar sér til handa, fyrst hann lagði leiðir sínar til ann-
arrar konu?
— Er þetta nýtt með Ingibjörgu? spurði hún. Hann nefndi
hanaekki, þegar hann var hjá okkur í Grenivík.
Olafur sagði sig allan fram um að svara þessari spurn-
ingu með gætni. Nýtt eða gamalt — það var vandi að skera
úr því. Auðvitað hafði Árna orðið hugsað tii Ingibjargar
áður en hann fór 1 Grenivík.
— Ekki svo sérlega nýtt, sagði hann. — Það er sagt, að
hún sé vanfær.
Júdit kipptist við í sínu.
— Og Árni .... ?
Ólafur skildi ekki, hvað hún áttj við.
— Já — og á Árni barnið?
— Nei. Krakkann á hann ekki. En hann fór í Bjarkar-
dal í dag til þess að hjálpa henni, ef hún þyrfti einhvers
með.
— Hann? Karlmaður?
— Já. Mamma getur ekki gengðj svo langt í vondu færi.
— Hvers vegna sagði hann mér ekki frá þessu?
>— Hann hefir ekki búizt við, að þú bærir skynbragð á
þess háttar.
— En hann gerir það?
Ólafur kinkaðí kolli. Jú — Árni vissi, hvernig hjálpa
átti konu í barnsnauö. Það urðu frumbýlingarnir uppi við
fjöllin að kunna.
Júdit renndi augunum til Ólafs, og það var glettnislegur
glampi í augnakrókunum.
— Kynnir þú það? . .
— Ég á ekki neina konu, svaraði Ólafur og var ekki upp-
litsdjarfur. •
— En ef þú ættir nú konu?
— Hún skyldi ekki liggja hjálparvona, er í nauðir ræki.
Júdit mjakaði sér til á steininum og horfði í suðurátt.
Hún vissi, hvers vegna Árni hafði ekki beðiö hana að koma
með sér. Hann vildi ekki láta Ingibjörgu vita, aö hann
hafði orðið sér úti um kvenmann, sem átti að fylgja hon-
um til prestsins
— Hvað er langt í Bjarkardal?
— Þriggja stunda gangur — kannske fjögurra. Það er
vazl á leiðinni núna.
— Við förum þangað í fyrramálið.
Ólafur tuldraði í bringu sér. Hann kærði sig ekki um
að koma nálægt nýbýli Hungur-Jóhanns. Þau áttu ekkert
erindi þangað.
— Ekki þú kannske. En ég, sagöi stúlkan.
Júdit reis á fætur. Það var kominn tími til þess að fara
heim. Rödd hennar var hvöss og skipandi, og Ólafur var
æði þungur á svipinn, er hann snaraði sér í úlpu sína.
Hann hafði sagt margt, sem betur hefði kyrrt legið, sumt
vitandi vits, annað óviljandi. Óheillaorð voru eins og aftur-
göngur. Þau flögruðu um, af þeim stafaði ógæfa. Júdit
hefði ekki átt að fá að vita, að til var kona, sem hét Ingi-
björg og var vanfær. Margt illt gat gerzt á leiðinni að
Bjarkardal, og enn verra, er þau kæmu þangað. Hann ók
sér, og honum var orðið hrollkalt. Ylurinn frá Júdit náði
ekki lengur til hans.
Þau höfðu varla gengið meira en fimmtiu skref, er Ól-
afur staðnæmdist skyndilega. Hann hvessti augun á eitt-
hvað langt í fjarska. Hann benti, en Júdit sá ekki neitt.
— Árni kemur heim 1 nótt.
Júdit leit snöggt á Ólaf. Hvar sá hann merki þess, aö
Árni myndi koma heim? Sá hann í gegnum holt og hæ'ðir?
— Hvernig wiztu það? spurði hún hálf-skelkuð.
En það þurfti ekki dularfulla eiginleika til þess að vita
þetta, heldur aðeins athyglisgáfu. Hreindýrin voru, komin
á fjallið.
XIX.
Árni sat á hreindýrsfeldi í tjaldi Lappans Tómasar. Það
varð ekki ráðlð"af svip Lappans, hvort gesturinn var
kominn eða ekki. Augu hans voru hálflukt, og hann vsf
þreytulegur í bragði. Ferðin með hjörðina hafði verið erfið.
— Við viljum engin skipti eiga við fólkið í Bjarkardal,