Tíminn - 19.07.1951, Blaðsíða 2
z.
TÍMINN, fimmtuðaginn 19. júlí 1951.
159. blaff.
j Jtá ka/ti
Útvarpið
Utvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega
20.30 Tónleikar: Kórlög úr óper
um (plötur ). 20.45 Dagskrá Kven
réttindasambands Islands. 21.10
Tónleiker (plötur). 21.15 Frá út-
löndum (Benedikt Gröndal rit-
stjóri). 21.30 Sinfónískir tón-
leikar (plötur). 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22J.0 Framhald
sinfónísku tónleikanna. 22.40
Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Útvarpssagan: „Faðir Gor
iot“ eftir Balzae; XI. (Guðmund
ur Daníelsson rithöfundur).
21.00 Tónleikar (plötur). 21.25
íþróttaþáttur (Sigurður Sigurðs
son). 21.40 Tónleikar: Lög eftir
Árna Thorsteinson (plötur).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Vmsæl lög (plötur). 22.30
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell er í Álaborg. Arn •
arfell fór frá Vestm.eyjum 16.
þ.m. áleiðis til ítalíu. Jökuifell
fór frá Chile 6. þ.m. áleiðis til
Ecuador.
Rikisskip:
Hekla er á leiðinni frú Reykja
vík til Glasgow. Esja verður'
væntanlega á Akureyri í dag. |
Herðubreið er á Austf jörðum á!
suðurleið. Skjaldbreið fer frá
Reykjavík í kvöld til Breiðafjarö j
ar og Vestfjarða. Þyrill er á leið
frá Norðurlandi tii Reykjavík-
ur. Ármann átti að fara frá
Keykjavík í gærkvöldi til Vest-
mannaeyja.
Eimskip:
Brúarioss er í Reykjavík.
Dettifoss er í New York. Goða-
foss fer væntanlega frá Ham-
borg í dag 18.7. til Antwerpen,
Rotterdam og Hull. Gullfoss er
væntanlegur til Reykjavíkur í
fyrramáiið 19.7. frá Leith og
Kaupmannahöfn. Lagarfoss |
kom til Seyðisfjarðar í morgun!
18.7. frá Gautaborg. Selfoss er |
í Reykjavík. Tröliafoss fór frá'
London 17.7. kl. 9,25 til Gauta- 1
borgar. Hesnes fermir í Antwerp
en og Hull i lok júlí.
■V/.VAVAV.V.V.V/.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V,
H,f. EimskipaféSag Kslands \
Flugferðir
Flugfélag Isiands:
í dag er áætlað að fljúsa til
Akureyrar (2 ferðir), Vest-
mannaeyja, Ólafsfjarðar, Reyð
arfjarðar, Fáskrúðsfjarðar,
Blönduóss, Sauðárkróks, Siglu-
fjarðar og Kópaskers.
Á morgun eru ráðgerðar flug
ferðir til Akureyrar (kl. 9,30 og
16,30), Vestmannaeyja, Kitkju-
bæjarklausturs, Fagurhólsmýr-
ar, Hornafjarðar og Siglufjarð-
ar. Frá Akureyri verður flug'-
ferð til Austfjarða.
Loftleiðir:
í dag er ráðgert að fljúga til
Vestmannaeyja (2 ferðir), ísa-
fjarðar, Akureyrar og Keflavík-
ur (2 ferðir). Frá Vestmanna-
eyjum verður flogið til Hellu.
Á morgun er ráðgert að fljúga
til Vestmannaeyja, ísafjarðar,
Akureyrar, Siglufjarðar, Sauð-
árkróks, Hólmavíkur, Búðardals,
Hellissands, Patreksfjarðar,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyr-
ar og Keflavíkur (2 ferðir).
Blöð og tímarit
Náttúrufræðingurinn,
2. hefti 21. árgangs er nýkom-
ið út. Aðalefni ritsins að þessu
sinni er þetta: Hermann Ein-
arsson: Náttúrugriasafnið og
verkefni þess. Finnur Guðmunds laus.
Síldarsöltunin er nú í fuílu
fjöri norðanlands. Litla telp-
an á myndinnj er aff ljúka við
fyrstu síldartunnuna, sem
hún hefir saltað á ævinni. En
hún er ákveðin í að þetta
vcrffi ekki síðasta tunnan, er
hún fyllir, ef síidin lieldur á-
fram að berast aff landi, sem
allir vona.
(Ljósm. G. Þcrðarson.)
son: Þættir úr sögu náttúru-
gripasafnsins. Unnsteinn Stef-
ánsson: Hafstraumar við Norð-
urland. Magnús Már Lárusson:
Landskjálftinn 1584. Ennírem-
ur rita þeir í heftið Björn Jó-
hannesson, Jóhannes Áskelsson
Jón Eyþórsson, Ingimar Óskars-
son, Áske'l I.öve o. fl.
Samvinnan.
Júlíhefti Samvinnunnar er
komið út. Flytur það ritstjórnar
grein um árangur af störfum
samvinnustefnunnar á íslandi.
Ýtarlega frásögn með mörgum
myndum af aðalfundi Sam-
bands ísl. samvinnumanna að
Bifröst í síðasta mánuði. Grein
um komu hinna sænsku trygg
ingarfræðinga. Grein um Mo-
hammed Mossadeqh forsætis-
ráðherra írans, sem nú er oft
nefndur í fréttum. Tvær verð-
launasögur úr smásagnasam-
keppni ritsins. Grein um skóg-
rækt á íslandi eftir Ingólf
Davíðsson, Byggingar Kaupfé-
laga, kv ennaþáttur framhalds
sögu o. fl.
r r
Ur ýmsum áttum
ÍJr Miklaholtshreppi.
Sláttur var almennt hafinn
hér í vikunni sem Ieið en þó er
grasspretta í lakasta lagi og
skemmdir afar miklar i túnum
af kalí. Eru því horfur á aö
töðufengur verði rýr.
Óþurrkur er og fara menn sér
hægt við sláttinn og vænta þess
að spretta aukist heldur.
Landsmót í hjólreiðum.
Hjólreiðakeppni- fer fram á
Akranesi sunnudaginn 12. ágúst
n.k. Keppnisleiðin er 33 km.
(kringum Akrafjall). Væntan-
legir þátttakendur gefi sig fram
við stjórn Iþróttabandalags
Akraness fyrir 7. ágúst n.k.
Ungbarnavernd Líknar.
Templarasundi 3 er opin
þriðjudaga kl. 3,15 til 4 og
fimmtudaga kl. 1,30 til 2,30.
Hestur fastur í skurði.
1 fyrradag sáu vegfarendur
skammt frá Tívólí hest, er sat
fastur í skurði við veg. Var
lögreglan kvödd til og náði hún
hestinum upp. Sakaði hann ekki
og virtist fullhress, er hanh var
Grasvöllur vígður.
í kvöld kl. 8 keppa norsku
knattspyrnumennirnir síðasta
leik sinxr hér við KR. Verður
keppt á hinum nýja grasvelli fé
lagsins. Verður þetta um leið
vígsla vallarins. Á undan leikn-
um mun Lúði-asveit Reykjavík-
ur leika á vellinum. Aðgöngu-
miðar eru seldir í tóbaksbúð-
inni Austurstræti 1.
Óháði frikirkjusöfnuðurinn.
efnir til sumarferðalags á
sunnudaginn kemur og verð-
ur prestur safnaðarins með í
fei-ffinni. Allt safnaðarfólk er
velkomið með í fei-ðina. Áskrift-
arlisti í klæðaverzlun Andrésar
Andréssonar.
Lyfjabúð við Háteigsveg.
Á síðasta fundi heimilaði bæj
arráð bæjarverkfræðingi að láta
lóð undir væntanlega lyfjabúð
Hlíðahverfis við Háteigsveg.
Karl Lúðvíksson lyfjafræðingur
hefir fengið lyfsöluleyfi til að
reka þarna lyfjabúð.
I Tvö Islandsmet í sundi.
1 Á sundmótinu í sundhöllinni
t í fyrrakvöld setti Helgi Sigurðs-
i son, Ægi, nýtt íslandsmet í
1500 metra sundi á 21,25,9 mín.
100 metrana synti hann einnig
á nýjum mettíma á þeirri vega
lengd á 14,15,7 mín. Setti hann
þannig tvö íslandsmet í sama
sundinu.
Tvenn fótarmeiðsli með
stuttu millibili.
Séra Pétur Ingjaldsson að
Höskuldsstöðum á Skagaströnd
liggur um þessar mundir í
sjúkrahúsi á Blönduósi vegna
fótbrots, er hann varð fyrir.
Þetta er þó ekki eina meiðslið,
sem séra Pétur verður fyrir í
vor, því að skömmu áður hafði
hann meiðzt illa í hinum fæt-
inum. Það vildi til með þeim
i hætti, að hann stóð uppi á léleg
] um húströppum. Húsmóðirin í
| húsi þessu kom út á tröppurn-
> ar og ætlaði að vara hann við
I þeim, en í sama bili hrundu þær
! með þau bæði. Við það rifnaði
liðpoki í öðrum ökla séra Péturs,
og hafði hann átt í því meiðsli
þar til hann fótbrotnaði á hin-
um fætinum. *
Bjar^aði lífi níiiu
(Framhald af 1. síðu.)
sem skáti kunnaff nokkuff í
hjálp í vifflögum og greip
hann nú til ráða, sem öll-
um skátum eru kennd. Batt
liann fast um handlegginn
við olnbogann og bjó um sem
hann gat. Tókst honum að
stööva blóðrásina að nokkru
og hélt síðan gangandi af
stað heim r*ð Arnarstapa,
þótt þangað sé f jögurra km.
leið.
Missti mikið blóð.
En það er ekki auðvelt að
binda svo fast um handlegg
sem þarf er svona stendur á,
með vinstri hendi einni, og
missti Lúðvík allmikið blóð á
göngunni. Kom fólk á Arnar-
stapa honum loks til hjálpar
og var læknir þegar sóttur.
var mjög máttfarinn eftir blóð
mjög máttfarinn eftir blóð-
missinn og var rænulítill á
sunnudaginn, en er nú að m
sér. j
Augljóst er, að hann hefir
þarna bjargað lífi sínu með
kunnáttunni í hjálp í viðlög-
um.
M.s. Gullfoss
fer frá Reykjavík laugardaginn 21. júlí
kl. 12 á hádegi til Leith og Kaup- ||í
mannahafnar.
Tollskoðun farangurs og yegabréfa- £
eftirlit byrjar í tollskýlinu vestast á ; jl
hafnarbakkanum kl. 10 y2 f. h. og skulu
allir farþegar vera komnir í tollskýlið /
eigi síðar en kl. 11 f. h. 3»
■: í
/////////////////////,■//,■////////////,■/////////.'
;.WuVJVAVAV.V.V.'AW.V/,Y.VAVLSV.%W.VAV/^
| Til Miðjarðarhafsins
e.s. „BRUARFOSS
u
i
fer áleiðis til Grikklands fyrst i ágúst. Farþegar, er
óska að fara með skipinu til Grikklands eða fram og
aftur eru vinsamlegast beðnir að snúa sér til skrif-
stofu vorrar í Reykjavík viðvíkjandi nánari upplýs-
ingum. Farmiðinn fram og aftur kostar kr. 5.500,00,
fæði og þjónustugjald innifalið. Áætlað er að ferðin
taki um 40 daga.
H.f. Eimskipafélag íslands
í
i ■■■■■■«i
i i
!■■■■■■■■■■•■>
BÁTAR TIL SÖLU
Kaupfélag Húnvetninga hefir til sölu tvo uppskip-
unarbáta.
Bátarnir eru í góðu lagi og vel við haldið. í öðrum
bátnum er nýleg og litið notuð Redwing vél 25—40 ha.
Hinn báturinn er þannig byggður að hægt er að setja
í hann vél án breytinga.
Tilboð sendist til Vilhjálms Árnasonar, lögfr., Sam-
bandi ísl. samvinnufélaga, Reykjavík.
líiiztiit
aasmwmamiwsa:;
Úháði Fríkirkjusöfnuðurínn j
| Sumarferðalag næsta sunnudag. — Prestur safnaðar- H
•j ins verður með. j:
ij Allt safnaðarfólk velkomið. jj
- xt
Askriftarlisti í Klæðaverzlun Andrésar Andréssonar, j:
|j Laugaveg 3. «
3 Stjórnin ::
Biðjum viðskiptamenn
okkar
að athuga, að við lokum vegna
sumarleyfa frá 23. júlí til 7. ágúst.
DAVÍÐ S. JÓNSSON & CO.,
heildverzlun.
rmttn:
L O K A Ð
vegna sumarleyfa frá 23. júlí — 6. ágúst.
Efnagerð Reykjavíkur
Ctbreidid Timann
a
••»••»***••*»*»••»••»»•»•*•••••«»«•<
AIGI.TSIIVCASÍMI TÍMAXS ER 8130»